Þjóðólfur - 30.08.1882, Blaðsíða 1

Þjóðólfur - 30.08.1882, Blaðsíða 1
PJÓÐÓLFUR. 34. ár. Kostar 3 krónur (erlendis 4 krónur), á að borgast fyrir lok ágústmánaðar. Reykjayík BO. ágiist 1882. Uppsögn á blaðinu gildir ekki, nema -i q -i ■. \ hún sé gjörð fyrir I. okt. árinu fyrir. J-ö. Dld/O. Eg- undirskrifaður lýsi því hér með yfir, að þar sem í 16. tbl. 34. árg. „J>jóðólfs“ er sagt: „það er líka látið ósköp illa af kennslu latínukennarans í 5. bekk“, þá hef eg ekki þar farið eptir almennings áliti eða látið í ljósi mitt eigið álit, heldur farið eptir sögu- sögn 2 manna, sem eg nú ekki hef á- stæðu til að álíta að sé á neinum rök- um byggð. Sama er að segja með frönsku kennsluna. Kr. O. porgrímsson. Menntun og skóli. I. Hvað er ungum anda bezt, sem eílir dáð og frama? II. Hvað er ungum anda verst, sem eyðir og kyrkir sama ? I. Fræðastofnun föðurleg, er fræðir um hið sanna, og sýnir ungum anda veg eðli og líf að kanna. Hún er ágætt leiðarljós, lífgar, þroskar, nærir, eins og sólin svásri rós sannan lífs-yl færir. En eptirdæmið allra bezt ungum kennir sálum, að geta stöðugt fætur fest án falls á vegi hálum. II. Urelt fræði og andalaus ungum sjónir villa; kúgun, harðstjórn, hroka-raus hreinum sálum spilla. Að horfa’ á spilling, hneykslis líf í háttum kennaranna, er hið versta villukíf og voði ungra manna. Hvers er von, ef hneykslið á hinum leið að vísa ? Allt fer út um þúfur þá, það er æ hið vísa. Ef þú, kæra ísaláð, ættir stofnun slíka, mundi þeirra þokkaráð (!) þínum börnum líka ? Nei,—ef ekki’ er allra dauð æru-tilfinningin, og sé ei stjórnin sjálf spillt gauð, er særir ei óvirðingin. En ef stjórnin alveg blind einskis sóma gætti, þvílík kölska-kynjuð synd í koll þeim steypast ætti. * * * f>egar að siðferðis þrótturinn sljófgast, og þegar að sómans tilfinning dofnar, svo réttlæti’ í vorkunnar-volæði sofnar, þá illgresið dafnar og allra bezt frjófgast, það hveitinu spillir og kæfir hið unga, og hver ber á herðum þann ábyrgðar- þunga ? a. O'. Ársfundur bókinenntafélagsins var haldinn 11. þ. m. Embættismenn félagsins hér og varaembættismenn voru kosnir hinir sömu og áður, nema bóka- vörður. Var bóksali Kristján O. þor- grímsson kjörinn bókavörður með 18 atkvæðum. — Sú tillaga var samþykkt, að framvegis skyldu 5 menn vera í stjórnarnefnd „tímaritsins“, forseti og fjórir menn aðrir, er kosnir skulu ár- lega. Fyrir næsta ár voru nú kosnir í nefndina þessir menn: Steingrímur Thorsteinsson, skólakennari, Jón Olafs- son, ritstjóri, Páll Melsteð, málaflutn- ingsmaður og Eiríkur Briem, presta- skólakennari. Jón Árnason beiddist þegar í stað lausnar úr nefndinni, og var í hans stað kosinn Jón ritstjóri Olafsson. Hugleiðingar um hin helztu mál, er eigi náðu fram að ganga á alþingi 1881. Biöð vor tala að jafnaði of lítið um almenn þjóðmál, sér í lagi mál þau, Grafin lifandi (eptir A. Badois). (Framh. frá bls. 73). Eg fór frá þeim, og þegar eg var orðinn einn, gat eg fyrst almennilega farið að hugsa um, hvað það var, sem eg hafði skuldbundið mig til. Eg reyndi til að hressa mig upp með því, að setja mér fyrir sjónir, hvé leiður eg var orðinn á ertingum og hæðnisglósum skóla- bræðra minna, og hvé inndælt það væri, að fá að lifa í friði, þegar eg hefði sýnt þeim, að það væri ekki hugleysi í mér, heldur að eins tilfinningasemi; en eg ætlaði varla að geta talið mér sjálfum trri um það í hugan- um. En—hvað átti eg að gjöra? Mér var ómögulegt að hætta við allt saman, eg hafði lofað þessu í viðurvist margra skólabræðra minna, óg eg varð að gjöra það, hvort sem mér þótti ljúft eða leitt. »|>arf eg endilega að fara einn út f kirkju- garðinn?« spurði eg Bilkowsky seinna og eg fann sjálfur, hvernig skalf í mér röddin þegar eg sagði þetta. »Einn? Nei, þú færð það einu sinni ekki, þó að þú vildir það. Einn maður yrði ekki svo fljótur sem þarf til þess að moka upp úr heilli gröf; og við viljum ekki láta koma að okkur meðan við erum að því; skilurðu það ? Við förum eins margir eins og þarf, leitum að gröfinni, hefjum kistuna upp, og það sem á eptir kemur er svo á þinni ábyrgð«. J>að var þó dálítil huggun, að eg átti ekki að vera einn meðan var verið að grafa líkið upp, en þrátt fyrir það var eg allur eins og á nálum það sem eptir var dagsins, og eg var hræddur við sjálfan mig í hvert sinn og eg leit í spegil. Eg hélt að dagurinn ætlaði aldrei að taka enda, en það var þó loksins, og á ákveðn- um tíma fór eg til þess staðar, er skóla- bræður mínir höfðu lofað að bíða eptir mér. »Hana! J>arna kemur hann!« kallaði Bilkowsky, »nú skulum við flýta okkur«. Skelfing hataði eg Bilkowsky! En eg var þreklítill unglingur, hann þrekmeiri og því varð eg að hlíta hans boði og banni. það eina, sem hélt mór uppi, var, að þegar þetta væri af staðið, þá yrði eg frjáls—frjáls eins og fuglinn fljúgandi, og gæti lifað 1 næði óáreittur af ertingum skólabræðra minna. »Flýtið ykkur nú«, kallaði Bilkowsky. »|>að er allra-inndælasta draugaveður, myrkur og rigning. Við megum vera óhræddir, það sér okkur enginn, því að í þessu veðri vogar engin lifandi sála sjer út«. þá er hann sagði þetta opnaði hann gluggann, og stormurinn þeytti regninu í andlitið á okkur. það hvein í storminum úti, og þaðvareins oghann ætlaði að rykkja trjánum upp með rótum, og langt í burtu heyrðust þrumur. Við og við ljómaði eld- ing í náttmyrkrinu. »Hvernig lízt ykkur á að við fáum okkur dálítið í staupinu, til þess að setja í okkur hug ?« sagði Bilkowsky. |>að leizt öllum gott, og eg sótti eina flösku af koníakki. Bilkowsky tók flöskuna, dró tappann úr henni og fyllti glösin. »Nú skulum við drekka skál vinar okkar«,

x

Þjóðólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.