Þjóðólfur - 18.11.1882, Blaðsíða 4

Þjóðólfur - 18.11.1882, Blaðsíða 4
110 Eiríki Asmundss. b. í Grjóta 10 kr., »0- nefndum í nágrenninua 4 kr., 10 búendum í Sandvíkarhreppi 10 kr.—Samtals : 84 kr. Eramlögin alls : 1541 kr. 85 a. |>ar við bættist ávinningur af 2 »Tombolum«, sem haldnar voru í |>orlákshöfn vorin 1881 og 82, samtals : 262 kr. 8 a. jpessa skýrslu biðjum við yður, herra ritstjóri, að taka í blað yðar, til þess að sýna lesendum yðar, að hér hefir sannast, að »mikið má, ef vel vill«, og annað það, að þótt það hafi opt bæði á alþingi og ann- arstaðar verið tekið fram sem ástæða gegn bamaskólum í sveitum, að strj álbýlið gjörði það ókleyft, að koma mörgum börnum svo haganlega fyrir til fæðis og þjónustu, að þau geti sótt skóla, þá hefir reynslan hér þegar sýnt hið gagnstæða; en víða á land- inu mun vera líkt ástatt og hér, að ein- hversstaðar í sveitunum séu þorp eða hverfi, þar sem unnt sé að koma börnum fyrir, svo að þess vegna megi stofna þar skóla; en sjálfsagt er alstaðar fyrsta skilyrðið fyrir því, að þessu geti orðið framgengt það, að vilji og samtök séu eins eindregin og sýnt hefir sig hér í sveit. I ágústm. 1882. Isleifur Gíslason. Jón Arnason. W EPILEPSIE grundig Helbredelse af Nervesygdomme ved AuxiLium orientis af Dr. Boas, 5. Avenue de la grande armée, Paris. Dr. Boas Brochure gratis og franco paa Forlangende. Consultationer dag- lig fra 12 til 2 i alle Sprog. Med Udlandet pr. Correspondance. Kur- honorar betales efter Helbredelse. Umburðarbréf og kort yfir "Rauðárdalinn (á íslenzku og dönsku) verða send og borgað undir með póstum til Islands hverjum, sem sendir utanáskript til sín eða vina sinna til A. E. Johnson, Com. of Emgr., St. P., M. & M. R. R. St. Paul. Minn. America. Hið ágæta Stafrófskver eptir Jón Ólafsson. Stafrófskver Jóns Ólafssonar hefir náð slíkri almenningshylli, að engin þörf er á að mæla með því. Tvö þús- und eru uppseld og þriðja þúsundið er að renna út. Flýtið ykkur að kaupa þetta stafrófskver, sem öllum kemur saman um að sé hið bezta af öllum ís- lenzkum stafrófskverum. Verið er einungis 50 aurar á kverinu í bandi. f>eir sem kaupa fjögur, fá hið fimta gefins. Kr. O. þorgrímsson. Hálfur b æ r í góðu standi nálægt Hlíðarhúsavegi með kálgarði og nægri lóð, fæst keyptur á næstkomandi kross- messu; kaupandi er beðinn að snúa sér til útgefanda J>jóðólfs fyrir útgöngu þessa árs ; hann gefur hér um nánari upplýsingar. Bæjarstjómin í Beykjavík hefir sam- þykkt að láta búa til á kostnað hafnar- sjóðs, svo fljótt sem verða má, bryggju út í sjóinn undan þeirri götu, sem áformað er að leggja fyrir vestan hið nýja barnaskóla- hús, og er ætlazt til að þessi bryggja nái svo langt út 1 sjóinn að lenda megi við hana um stórstraums-fjöru fermdum bátum, að hún verði byggð úr steini og timbri og að hún sé að minnsta kosti 14 álna breið. Fyrir þá sök er hérmeð skorað á þá smiði bæjarins, er kynnu að vilja taka að sér þetta smíð og útvega efni til hennar, að senda bæjarfógetanum innan útgöngu þessa árs uppdrætti af hinni fyrirhuguðu bryggju með sundurliðaðri áætlun yfir hvað slík bryggja muni kosta. Skrifstofu bæjarfógeta í B.vík 14. okt. 1882. E. Th. Jónassen. Undirskrifuðum hvarf að heiman frá sér, nóttina milli 1. og 2. f. m., móbrúnn reiðhestur klárgengur, 14. vetra gainall, ríflega meðalhestur að stærð, vetrar afrak- aður með þykkt fax og sítt lagl neðanaf- skelt í vor; mark blaðstýft fr. h., aljárnað- ur með sexboruðum skeifum undir þremur fótum, en mig minnir dönsk fjórboruð undir öðrum apturfæti, lítið eitt snúinhæfður —einkum á framfótum— ef vel er að gætt. Hver sem hitta kynni nefndan hest, eða frétta til hans, er vinsamlega beðinn að koma honum til mín, eða gjöra mér aðvart, eða þá ef hægra væri, að koma honum að Stóru-Mörk undir Eyjafjöllum, til húsfráar þorbjargar þorsteinsdóttur, sem honum mun mín vegna móttöku veita. Alt mót fullri borgun. Keflavík 8. nóvbr. 1882. P. J. Petersen. f~§ ’82 tapaðist úr ferð steingrá hryssa, 6 vetra, óaffext, járnuð með sexboruðum skeifum, og með mark : standfjöður framan vinstra, og tjörumark á hægri bógi. Hver sem hitta kynni téða hryssu, er beðinn að koma henni til Guðm. Einarssonar á Mý- dal í Mosfellssveit, mót borgun. Efra-Apavatni fg 82. Sigurður Amundason. Aðfaranóttina hins 7. október tapaðist úr mýrinni fyrir neðan Oskjuhlíð jarpur hestur 6 vetra gamall, með mark standfjöð- ur aptan hægra; hann var affextur með litlum síðutökum og eru gráleit hár f faxi undir beizli. Hver sem hitta kynni tóðan hest, er beðinn að koma honum til mín eða gjöra mér aðvart um hann, mót sann- gjarnri borgun. Helgustöðum 7. nóvemb. 1882. Eirikur Jóhannsson. í síðastliðnum júnímánuði rak mann- laust þilskip upp á þykkvabæjarklaust- urs fjöru innan Skaptafellssýslu. í stafni skipsins stóð nafnið CHRISTIANE, og þar neðan undir: MARSTAL, og á hlemmnum yfir stærsta lúkugatinu: DE. 53> 71/ioo Tons. Skipið brotnaði í spón, og flutu brotin á sjó út, en litlu varð bjargað. Hið bjargaða var selt við op- inbert uppboð að yfirvaldsins tilhlutun. Fyrir því er hér með samkvæmt lögum um skipströnd 14. jan. 1876, 21. grein skorað á eiganda skips þessa að segja til sín innan árs og dags og sanna rjett sinn fyrir amtmanninum í Suður- amti íslands og meðtaka andvirði hins selda að öllum kosnaði frá dregnum, en ella missir hann rétt sinn í þessu tilliti. Islands Suðuramt, Reykjavik, 16. nóvbr. 1882. Bergur Thorberg. Eptir næstkomandi mánaðamót mun eg undirskrifaður byrja greiðasölu í Hafnarfiði, að þar til fengnu leyfi hlut- aðeigandi yfirvalds; bústaður minn þar er hið svo nefnda „Clausens-hús“. Hafnarfirði, 10. nóv. 1882. Böðvar Böðvarsson. Hitt og þetta. Enski sendiboðinn í Berlín, Odó Russell lávarður, spurði einu sinn Bis- marck sem hann var að heimsækja: „En hvernig farið þér að við alla þessa fjarska mörgu leiðinlegu menn, sem heimsækja yður ? “. Kanslarinn svar- aði og brosti við : „þar hefi eg mín húsráð við; konan mín kemur t. d. inn og kallar mig út undir einhverju yfir- varpi“. þegar er Bismarck hafði sagt þetta, opnar kona hans dyrnar, snýr sér að manni sínum og segir blíðlega: „Elskan mín, gleymdu nú ekki að taka meðalið þitt“. Russell lávarði varð heldur illa við, en lét þó ekki á neinu bera og brosti að því, að húsráðinu var beitt við hann. Prestur spurði einu sinni barn: „Get- um við haldið öll guðs boðorð, barnið gott“ ? „Nei“, svaraði barnið. Prestur: „Ertu viss um það“ ? Barnið: „Hvernig skyldum við geta haldið öll boðorðin, þegar hann Adam ekki gat haldið eitt, og var hann þó í sakleysisástandinu þá, karlinn“. „Gaman er að börnunum“, sagði mormóninn, honum fæddust sex krakk- ar sömu nóttina. Afgreiðslustofa pjóðólfs: , V?! 8 við Austurvöll. Utgefandi og ábyrgðarmaður Kr. O. jporgrímsson. Prentaður í prentsmiðju ísafoldar.

x

Þjóðólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.