Þjóðólfur - 13.02.1883, Page 3
21
bóta. I þann sjóð geldur liver skips-
eigandi í félaginu sjerstaklega hið
fyrsta ár 172°/o af því verði, sem hann
fær ábyrgð á. petta fé heitir inn-
göngueyrir, og skal það greitt í sjóð
félagsins fyrir septembernaánaðarlok.
3. grein.
í>eir skipseigendur, sem í félagið
ganga síðarmeir, gjalda eins og hinir
fyrstu, auk hins árlega ábyrgðargjalds,
ll/3°/o sem inngöngueyri, af því verði,
er þeir fá ábyrgð á. Hin sama regla
á sjer og stað, í hvert sinn þegar ein-
hver félagsmaður fær ábyrgð á meira
verði, en hann áður heíir borgað inn-
gangseyrir af, og geldur hann þá jafn-
an inngöngueyri af því, er hann við
eykur.
4. grein.
Félagsmenn kjósa á aðalfundi, ann-
aðhvort ár, 5 menn úr félaginu til að
stjórna því, og kjósa þeir úr sínum
fiokki forseta, gjaldkera og skrifara.
5. grein.
Stjórn félagsins leggur fram á aðal-
fundi reikning fyrir hvert ár og yfirlit
yfir framkvæmdir félagsins.
6. grein.
Stjórn félagsíns fær eigi laun fyrir
annað, en ferðalög og beinlínis fjárreið-
ur, og skal sá kostnaður goldinn úr
félagssjóði. Heimilt skal henni og að
greiða úr félagssjóði hvern þann kostn-
að, er nauðsynlega fellur á félagíð.
7. grein.
Stjórn félagsins selur af hendi á-
byrgðarbréf, tekur við ábyrgðargjaldi,
heldur reikninga félagsins, varðveitir
sjóðinn og lánar úr honum með hálfs
árs uppsagnarfresti mót fullri leigu og
moð sömu tryggingu sem altnannafé
og lætur þinglýsa veðbréfum á kostn-
að veðsetjenda. Stjórnin kveður og
til aðalfundar, er haldinn skal ár hvert
í Eeykjavík fyrir lok janúarmánaðar
en til aukafunda, svo opt sem nauð-
syn ber til. Enn hefur og stjórnin
vald til, að taka sér umboðsmenn á
hentugum stöðum, til að gæta hags-
muna félagsins og veita þeim hæfilega
þóknun úr félagssjóði fyrir forðalög og
beinlínis fjárreiður þeirra í félagsins
þavfir.
8. grein.
Á aðalfuudi hvers árs, skal kjósa 3
endurskoðunarmenn, til að gæta þess,
að allt sé rétt skráð í bækur fé-
lagsins og líta eptir, minnst 4
sinnum á ári, peningum þeim, sem
félagið á í geymslu hjá gjaldkera, veð-
skuldabréfum og yfir höfuð að tala
^Hri eign félagsins. Finni þeir nokkra
saknaema yfirsjón eða pretti í reikn-
íngum, skulu þeir kalla saman fund,
°S Isggja málefnið fyrir fundinn.
9. grein.
Félagsmenn kjósa árlega virðingar-
menn, er séu skipasmiðir og skipstjór-
ar, til að skoða og virða skip félags-
ins á því tímabili, er féiagsstjórnin á-
kveður, áður en þau eru sett fram,
Kjósa skai og virðingarmenn til vara.
Við hverja virðingu skulu vera 2 skipa-
smiöir og 1 skipstjóri.
10. grein.
Félagið kostar að hálfu til móts við
skipseigendur aðalvirðingu skipa, sem
sé daglaun og ferðakostnað virðingar-
manna. En óski einstakir skips-
eigendur sérlegrar skoðunar, þá er það
með öllu á kostnað þeirra sjálfra.
11. grein.
Skipta skal skipum í 3 flokka eptir
kostum þeirra, og ákveða virðiugar-
menn slíkt, samkvæmt þeim reglum,
sem til eru teknar í erindisbréfum
þeirra. Sé eitthvert skip ekki svo vel
á sig komið, að það geti orðið í þriðja
flokki, þá tekur félagið enga ábyrgð á
því.
12. grein.
Eigendur, skipstjórar og hásetar fé-
lagsskipanna skulu skrila nöfn sín
undir þær greinir úr sjómannalögum
félagsins, er þá snerta. Á hverju skipi
skal skipstjóri kunna hin nauðsyuleg-
ustu atriði í síglingalist, hann skal
halda reglulega dagbók, er hann ritar
í það markverðasta sem við ber.
13. grein.
Félagið tekur í ábyrgð allt að 9/10
pörtum í viröingarverði skipa. Skips-
eigandi á kost á að láta meta íil á-
byrgðar veiðarfæri þau er skipi hans
á að fylgja, en segja skal hann stjórn-
endum til ef baun breytir til með út-
gerð skipsins og fer þá nýtt mat fram.
fó borgar ábyrgðarsjóður því að eins
veiðarfæri, að skipið farist alveg með
öllu; eins og veiðarfæri borgast heldur
ekki, þó þau séu um borð í skipinu,
farist það á öðrum ferðum en fiskiveið-
um. Vanræki sldpseigandi að gjöra
stjórnendur viðvara í þessu tilliti, hef-
ur hann fyrirgjört réttisínum til skaða-
bóta fyrir veiðarfærin.
14. grein.
Ábyrgðarkaupið er miðað við ábyrgð-
arupphæðina og er:
a. fyrir skip í 1. flokki:
á tímabilinu 14. maí til 31. ág. 1 ‘/2%
1. apr.----------2lÍ2°/0
— „— 1. marz--------------31 /2°/0
á tímabil. 1. sept. til 15. okt. 174%
b. fyrir skip í 2. flokki:
á tímabil. 14. maí til 31. ág. 2%
- —»—. 1. apr.----------------3°/0
- —'i— 1. marz------------— 472%
á tímabil. l.sept. til 15. okt. 172%
c. fyrir skip í 3. flokki:
á tímabil. 14. maí til 31. ág. 27a°/0
- —»— 1. apr.-----------------4°/o
Fyrir 1. apr., eða eptir 31. ág.,
fæst eigi ábyrgð á skipum í 3. flokki,
heldur eigi fæst ábyrgð fyrir önnur
tímabil en að ofan eru nefnd. Sé
skipið haft til annara ferða en fiski-
veiða hér við land, þarf til þess sér-
legt samþykki félagsstjórnarinnar.
15. grein.
Félagið bætir fullkomir.n skipreka.
En ef skip laskast, svo eigi verður sjó-
fært, þá borgar félagið aðgjörðina að
hálfu. J>á skulu og, ef eigi næst til
stjórnenda félagsins, óvilhallir menn,
þeir er bera skyn á málið, segja álit
sitt um það, eins og þeir vilja eið að
vinna, hvert fært sé að gjöra að skip-
inu, eður er það fullkominn skipreki.
16. grein.
Félagið ábyrgist skipin að eins frá
1. marts til 15 oktober, sambr. 14 gr.
En þó skip farist eða laskist á þessu
tímabili, þá tekur félagið engan þátt í
þeim skaða:
a. fegar skipið er á höfn og ekki er
á skipinu helfingur skipverja og
þar á meðal skipstjórieða stýrimaður.
b. |>egar skip liggur að nanðsynja-
iausu annarstaðar, en á góðri höfn
eða legu.
c. J>egar sannast að skip hafi farist
fyrir hirðuleysi eða vangá eiganda.
d. Ef skipstjóri eða útgjörðarmenn
brjóta eður laska skip sittafásettu
ráði.
17. grein.
í>að sem bjargað verður af brotnu
félagsskipi, er eign félagsins að jafnri
tiltölu við þann hluta, sem félagið hef-
ui tekiö í ábyrgð á skipinu.
18. grein.
Eigi skal félaginu skylt að lúka bæt-
ur fyrir skiptjón, fyrr en missiri eptir
að tjónið er sannað fyrir félagsstjórn
inni, samkv. 15 grein.
19. grein.
Ef eigi hrökkur sjóður félagsins til
að bæta áfallinn skaða eitthvert ár,
þá skal því, sem til vantar, jafnað nið-
ur á félagsmenn að réttri tiltölu við
það verð, er þeir eiga í ábyrgð.
20. grein.
Sérhver félagsmaður hefur jafnmörg
atkvæði í málefnum félagsins, sem hann
hefur tryggt mörg þúsundkrónur í skipi,
en standi svo á ábyrgðarverði einhvers
skips að fram yfir þúsundir séu 500
krónur eður þar yfir, þá teljist það sem
1000 kr.
21. grein.
Hafi einhver félagsmanna ekki greitt
ábyrgðargjald sitt, fyrir Septembermán-
aðarlok, þá tekur félagið enga nýja á-
byrgð á skipi hans, svo lengi sem hann
eigi hefur goldið það, er honum bar.
En brjóti nokkur lög félagsins því til
hnekkis, svo að tveir þriðju hlutir at-