Þjóðólfur - 23.06.1883, Qupperneq 2
76
eytt til einkis, eins og hefir átt sér
stað um áminsta vegagjörð.
f>að er nú vitaskuld, að ekki dugar
að ásaka um orðinn hlut, og svo er
um þetta, en slíkt ætti að kenna mönn-
um, bæði æðri og lægri, alþingi og
yfirstjórn, að láta sér þessi víti að varn-
aði verða, og kynna sér betr þetta mál,
en gjört hefir verið, leggja meiri stund
á það og alúð, en gjört hefir verið,
meira kapp af forsjá en verið hefir o.
s. frv., þá munu menn komast að raun
um, að mest af öllu ríðr á því, að kunna
að búa til þrautavegi; þar næst er að
leggja fé til vegagjörðanna, en fyr ekki.
Að eins þá menn ætti því hér eftir að
ráða til vegagjörða, sem hafa staðið
fyrir vorum beztu vegagjörðum; og í
öðru lagi að styrkja nokkra menn sem
fyrst til þess, að kynna sér erlendis þá
verkfrœði, sem að vegagjörðum og
brúagjörðum lýtr, svo að þetta velferð-
armál standi ekki lengr á því, að ekki
séu til menn, sem trúandi sé fyrir vega-
gjörðum.
Engin héruð landsins eru eins illa
stödd og Skaftafells-, Rangárvalla- og
að nokkru leyti Árnessýsla, hvað sam-
göngur og aðdrætti snertir, en sem
engin not geta haft af strandsiglingun-
um, og sem hafa þær mestu torfœrur,
sem eru á landinu, til yfirferðar, nfl.
J>jórsá og Olfusá. þ>eSsar sýslur leggja
þó sinn skerf til strandsiglinganna, en
mega sitja með sárt ennið, hvað afnot-
in snertir. Engum ríðr því meir á
vega- og brúargjörðum, en þessum
sýslum, og þeim er engin framfaravon
fyr en brýrnar eru fengnar og vegirn-
ir lagðir, sem eiga að renna á eftir
brúnum. En það er óvist og á eng-
um fæti byggt, að ætla þessum sýsl-
um að bera kostnaðinn af brúnum af
eiginn rammleik, því þeim er það ó-
kleyft og þær komast aldrei á með
því móti. Alþing á að hlaupa hér
undir bagga; það hefir lykilinn að fram-
förum þessara sýslna og þær eiga há-
tíðlega heimtingu á því, að lagt sé
nægilegt fé til þessara fyrirtækja úr
landssjóði. J>egar litið er á alþingis-
húsið, Möðruvallaskólann, strandferð-
irnar, og á alt það fé, sem veitt hefir
verið hingað og þangað, og hvergi sér
stað, og það fé, sem enn er fyrir hendi,
má sjá, að mikið má gjöra og er þeg-
ar búið að gjöra á stuttum tíma, og
því virðist það eigi ósanngjörn krafa
af sýslum þessum, að fá fé til þessa,
þegar litið er á, hvað gjört hefir verið
fyrir hinar sýslur landsins, og þegar
litið er á ið fyrirliggjandi fé.
In innlenda yfirstjórn landsins hefir
verið málinu hlynt og in útlenda einn-
ig, svo yfirstjórnin í heild sinni verðr
ekki ásökuð í því efni, nema ef vera
skyldi fyrir það, að hún hefir eigi gjört
málið að sínu eigin máli, því það hefði
hún átt og það ætti hún að gjöra, því
það riði að líkindum þann baggamun,
sem hingað til hefir verið á málinu.
f>að er því vonandi, að alþing og
yfirstjórn landsins láti nú til sín taka í
máli þessu, sem heilum sveitum og
sýslum er nálega lífsspursmál.
— Póstsk. »Laura« kom hér í fyrri nótt;
hafði snúið aftr fyrir ís við Horn, og kom
sunnan um. Með því 4 alþ.menn : síra
Bened. Kristjánsson, Einar Asmundss., Tr.
Gunnarss. og Asgeir Einarss. Kjerúlf lækn-
ir kemr eigi á þing í sumar, hefir amtm. for-
boðið honum förÍHa. »Laura« fór kl. 12 í
dag vestr til ísafj.
Auglýsingar.
Starfi sem annar lögregluþjónn f
Reykjavík er laus og eiga þeir, sem
vilja takast þenna starfa á hendur, að
sækja um hann skriflega til bœjarstjórn-
arinnar fyrir i.ágúst þ. á. Launin eru
560 kr. föst og aukatekjur frá 60 til
100 kr. á ári. Enn fremr styrkr 40 kr.
úr bœjarsjóði til þess að kaupa sjer ein-
kennisbúning, og 20 kr. úr lögreglu-
sjóði.
Skrifstofu bœjarfógeta í Reykjavík,
h. _6/6., 1883.
E. Th. Jónassen.
Hér með auglýsist að byggingarnefnd
Reykjavíkr heldur fundi sína á i. og
3. þriðjudegi í hverjum mánuði og verða
því þeir, sem þurfa að fá útmældar lóðir
undir byggingar, eða annað að leita tii
nefndarinnar, að hafa sent bréf um það
til bœjarfógetans fyrir kl. 12 m. d. næst
á undan nefndum fundardögum.
Skrifstofu bœjarfógeta í Reykjavík,
1. júní, 1883.
E. Th. Jónassen.
Hér með auglýsum vér undirskrifaðir, að
vér bönnum öllum ferðamönnum áfanga eða
hesta-áning í voru landi eftirleiðis án vors
leyfis, en þeir sem ekki skeita banni voru
mega búast við, að vér förum eftir því sem
lög leyfa í því efni.
Bjarni Guðmundsson á Onundarholti.
Sigurður Arnbjörnsson í Vælugerði.
Einar Einarsson Urriðafossi.
Jón Eiriksson á Kampholti.
Sökum þess mikla fénaðartjóns, sem vér
urðum fyrir á næstliðnu vori og þar af leið-
andi örðugleikum, hljótum vér að selja öll-
um óviðkomandi ferðamönnum beina og
nœtrgistingu þannig : Lausgangandi mjað-
ur, sem fær vökvun og kaffi, greiði fyrir
nóttina 15 aura; maður með hest, sem fær
hey, greiði 25 au. Kaffibolli sérskilinn kost-
ar 10 au.
Einar Einarsson á Urriðafossi.
Sigurðr Egilsson á þjótanda.
Jón Eiríksson á Kampholti.
Sigurðr Arnbjörnsson í Vœlugerði.
Bjarni Guðmundsson Onundarholti.
Kvennaskólinn í Keykjavík. þeir sem
vilia koma konfirmeruðum, efnilegum og sið-
prúðum yngisstúlkum í kvennaskólann næst-
komandi vetr (1. októbr. til 14. maí), eru
beðnir, að snúa sér í þeim efnum til undir-
skrifáðrar forstöðukonu skólans, ekki seinna
én 31. dgústmdn. næstkomandi.
Reykjavík, 14. dag júnfmán. 1883.
Thórn Melsteð.
1 þjóðólfi, sem út kom laugardaginn 15.
þ. m. stendr auglýsing frá hreppsnefndinni
í Olveshreppi um það, að hross þau, er Ölv-
esingar kunni að finna á afrétti sínum í sum-
ar, verði rekin til réttar og seld á staðnum
béttaedaginn. Út af þessu auglýsist hér
með, að þeir, sem kynnu að hafa í huga,
að eignast hross við þetta tækifæri í Ólvesi,
verða að vara sig, að bjóða ekki ofmikið í
þau, þvi að rettr eigandi getr tekið þau af
þeim dn als endrgjalds.
„Tiro juris“.
Vér, er kosnir höfum verið í nefnd á bók-
mentafélagsfundi til þess, að búa til prent-
unar nýja útgáfa af kvæðum Bjarna amt-
manns Thorarensens, leyfum oss að skora á
hvern þann, er skyldi kunna eða hafa undir
höndum
kvæði eða lausavísur
eftir hann eða honum eignaðar, enn fremr
sendibréf eða smáritgjörðir
og alt þess konar, að gjöra svo vel að senda
oss slíkt alt í frumriti, eða afriti svo ná-
kvæmu sem unt er.
Einnig biðjum vór alla, sem kunna eða
vita eitthvað, er skýrir kvæðin, svo sem aldr
þeirra, eða atvik að þeim, að láta oss fá
að vita það; enn fremur að skýra oss frá
æviatriðum eða frásögum (skrýtlum) um
hann, að svo miklu leyti sem unt er.
Alt þess konar yrði að vera komið í hendr
nefndinni fyrir árslok, og mætti senda það
einhverjum af oss undirskrifuðum og má
skrifa oss alla á Kegensen, Kobenhavn.
Kaupmannahöfn, 26. d. maím., 1883.
Virðingarfylst.
Bogi Th. Melsteð. Einar Hjörleifsson.
Finnr Jónsson. Hannes Hafsteinn.
Jón porkelsson.
Til sölu.
Stórt s exmannaf ar, vel vandað í
alla staði, fæst til kaups.'—'Ritstjóri þjóðólfs
vísar á seljanda.
Tapazt hefir inn 18. maí síðastl., á leið-
inni frá Eyrarbakka austr að Vallarlæk
strigapoki með rekkvoð merktri: K. J. og
sjoli dökkleitu. Finnandi er beðinn að
gjöra mér aðvart um.
Skúfslæk í Elóa, 10. júní 1883.
Gestr Gamalíelsson
Eg undirskrifaðr lýsi nýuppteknu fjár-
marki mínu, sem er sýlt hægra, stýft vinstra.
Eyleifsdal í Kjós.
Sigfús Bergmann Halldórsson.
Rygmarvstæring,
Gigt, Smerter i Lemmerne, Epilepsi etc
helbredes hurtig og sikkert af den verdens-
beromte Læge Dr. John K. Sunnett, Hull,
England. Dr. Sunnett helbreder unatur-
lige Vaner med alle deres forfærdelige Eol-
ger gjennem ufeilbare Midler, ubekjendte
af alle andre Læger. Den eneste Læge,
som fuldstændig helbreder Kygmarvstæ-
ring, Impotens, Pollutioner. T u s i n d e r
af Attester haves. Skriv til
Dr. JOHN K. SUNNETT,
Hull, England.
NB. Danske Sproget skrives.
Ritstjóri: ión Ólafsson, alþingism.
Prentaðr í prentsmiðju ísafoldar.