Þjóðólfur - 22.08.1883, Side 2
100
sjálísforræðinu, hæddi það, níddi og fyrir-
dæmdi.
Til hvers þess konar stjórnarbrögð og
lævísis prettir leiði, sýnir Eússland sjálft
deginum ljósara. Hið aumlega og ægilega
ástand, sem nú er þar, er hrein og bein
afleiðing af stjórn þeirri, sem hefir svo
skaðlegt og viðbjóðslegt mark og mið, að
hún þorir ekki einu sinni að játa það sjálf,
enda þótt hún hafi ótakmarkað vald, og
reynir til þess hins vegar, að fótum troða
hinar einföldustu meginreglur frjáls þjóðlífs
leynt og lævíslega.
Auk Eússa geta nú aðrir lært af þessu
ekki svo lítið; því að það, sem á sjer
stað á Bússlandi, þar sem allt hið forna
illa og ónýta reynir til þess að standa
óhaggað með því að látast vera að breiða
eitthvað lítið af nýju og betra yfir gömlu
rotnunina og fúlindin, það á sér og stað
útan Bússlands, og það er mjög áríðandi
að uppgötva slíkt og hnykkja hulinshjálm-
inum af slíkum ósóma.
Með engum mælikvarða er betra að mæla
stjórn, hverja sem er, heldr en með því
að sjá, hvernig hún tekr í þetta hið mikla
mál, sjálfsforræðið, hvort hún metr frum-
reglur þess og ber virðingu fyrir þeim í
sannleika.
Sú stjórn sem skipar sér í fjandaflokk
sjálfsforræðisins, er aftrheldinn þjóðarfjandi;
frá því er enginn undantekning til.
þar hljómar járnið, þar syngr fuglinn.
f>á er ég las þessa grein fyrst, þótti
ffiér hún svo skýr og skorinorð, taka svo
vél fram kjarnann 1 málinu, að mér fannst
hún vera þess verð, að komast á íslenzku.
Islendingar hafa nú um þessar mundir
gott af að heyra þesskonar mál, sem í
grein þessari er, og væri œskilegt að það
bergmálaði sem tíðast. Enn fremr er
hún ein af þeim greinum, sem skýra
ástandið á Eússlandi, og réttlæta níhílista,
þótt ekki sé nema óbeinlínis. Mér skyldi
þykja vænt um, ef þessi grein, og aðrar
sem ég hefi smám saman þýtt og komið
í blað þetta, gætu gefið mönnum réttari
skoðanir á þjóðfrelsishetjunum rússnesku,
en sumir hafa.
Kaupmannahöfn 1. júlí 1883.
Finnr Jónsson.
N ýprentað
eftir Jónas Helgason : Söngkensluhók fyrir
börn og byrjendr, II hefti, 2f örk, 50 aura;
og sömul.: Leiðarvísir um notkun á radd-
færum mansins, arkar á 35 aura; en
sé þetta hvorttveggja keypt, ásamt með
fyrra heftinu af Söngkenslubók, sem var
2J örk og kostaði 50 au., þá fæst það
allt saman fyrir aðeins 1 kr., og er gjöf
en ekki sala. Yér höfum þannig fyrir áhuga
og starfsemi höfundar þessa fengið inar
þægilegustu og vönduðustu kenslubækr í
vísindagrein þessari, og þær svo stuttar
sem auðið er, en þó svo ljósar og svo vel
og smekklega samdar, að hver maðr getr
haft in fyllstu not af þeim. Vér vonum
að sérhver sá maðr só á voru máli, sem
lesið hefir söngfræðiságripið í þeim tilgangi
að fræðast af því, og finni þá jafnframt,
að eitthvað annað en sannleiksást hafi
stýrt penna hr. Björns Kristjánssonar í
dómum hans um það. Líka eru í heft-
um þessum 44 tvírödduð sálma og kvæða-
lög mjög vel valin. En einkum leyfum
vér oss að benda mönnum á leiðarvísinn;
það er in fyrsta bók í þeirri grein, er
sézt hefir á voru máli, og sem er þannig
löguð að hún ætti að vera á hvers mans
borði og í hvers mans huga, er vill temja
sér fagrt mál, er láti vel í eyrum, og kenna
börnum sínum ið sama og jafnframt að
varðveita sem bezt raddfæri sín og mál-
fegrð, hvort sem hann er söngmaðr eða
ekki. Auk þessa kennir bókin líkamsæf-
ingu, sem er nauðsynleg heilsu manna.
Höfundrinn á inar beztu þakkir skilið
fyrir bækr þessar, eins og allt það gagn,
er hann hefir unnið löndum sínum með
starfsemi sinni og áhuga í útbreiðslu inn-
ar fögru og gagnlegu íþróttar.
Forskrip tir
eftir
aB&nedi&t ð-töwScvf’,
er Kristján bóksali porgrímsson hefir látið
steinprenta hjá Hoffensberg & Trap í Kaup-
mannahöfn 1883. Verð 50 aurar.
þessar forskriftir eru nauðsynlegar fyrir
alla unglinga til að læra að skrifa eftir
þeim. Benedict Gröndal er kunnari en
svo að pennahagleik sínum, að þess þurfi að
geta, að forskriftir þessar sé fagrliga ritn-
ar. Framan við forskriftirnar eru stuttar
reglur um, hversu halda skuli á pennanum,
o. s. frv. Eremst eru ritaðir inir einfaldari
stafir til að byrja á, síðan inir torveldari
og svo koma orð og setningar. Aftast er
sýnd viðhafnarskrift, er hafa má til til-
breytingar.
Vér teljum víst, að forskriftir þessar
verði notaðar eigi einungis á öllum barna-
skólum, heldur og af öllum almenningi.
Útgefandinn á þakkir skildar fyrir að hafa
kostað miklu fé til prentunarinnar, og er
vonaudi, að hann fái það endrgoldið. Vænta
má þess, að forskriftir þessar endrskapi
skriftarlist í landinu, því að mest er jafnan
undir því komið, að unglingrinn hafi vel
gerða forskrift, er hann byrjar að draga
til stafs; þeirri forskrift mun skrift hans
hkjast síðan.
Alþingisfréttir.
VI.
þessi mál eru nú (13. ág.) útkljáð á
alþingi.
I. LÖG.
1. Lög um
2. —»«—
3. —»«—
4. —»«—
5. —»«—
6. —»«—
7. —»«—
8. —»«—
9. —»«—
10. —»,,—
11. —»«—
12. —»«—
13. —»«—
14. —»,,—
15. _,«—
16. —»«—
17.
breyt. á opnubrj. 27. maí 1859.
bœjarstjórn á Akreyri.
sölu þjóðjarða.
jarðamat í Bangárvallasýslu.
fiskiv. hlutafél. í landhelgi.
horfelli á skepnum.
eftirlaun prestekna.
aðflutn. gjald af útl. skipum.
skrásetning skipa.
bœjarstjórn á Isafirði.
eftirstöðv. af bygg.kostn. fang-
elsa.
breyt. átilsk. 5. sept. 1794.
kosningu presta.
slökkvilið á Isafirði.
afnám kgs. úrsk. 20. jan. 1841.
breyting á 1. um stofnun lækna-
skóla.
löggilding nýrra verzlunarstaða.
II.
18. þingsályktun um strandmælingar.
19. —»,,— um heiðurslaun Dr. Jóns sál.
Hjaltalíns.
20. Dagsskrá með ástœðum út af lestagjaldi
póstgufuskipanna.
21. —»,,— með ástoeðum út af 11. gr.
st j órnarskrárinn ar.
18. ágúst.
I gær gerði neðri deild alþingis það
meistarastykki, að drepa frumvarp það, er
komið var frá efri deild um stofnun lands-
banka. þeir þingskörungarnir Dr. Grímr
Thomsen, Halldór K. og síra Eiríkr Briem
með Tryggva riddara á taug í kjölfarinu,
greiddu atlöguna. Dr. Grímr, það meg-
nm vér játa, hversu ósamdóma sem vér
annars erum honum í þessu máli, var sá
eini af þeim herrum, er auðið var að sjá að
vissi, um hvað hann talaði; og innan um
nokkur mishermi og ýmsan undarlegan
misskilning, sem vér viljum ekki efa, að
komið hafi af því, að hann hefir ekki hugs-
að svo málið, sem vænta hefði mátt af
honum, komu þó fram í ræðu hans ýmis
atriði, er lýstu þekking á málinu. þetta
varð ekki sagt um nokkurn hinna, sízt
um riddarann, sem auðsjáanlega hafði enga
hugmynd um, hvað seðilbanki er—svo litla,
að minnsta kosti, að hann hélt, að seðlar
bankans gætu streymt inn til útlausnar, án
þess að peninga-(=gull-)forði bankans rírn-
aði. Halldór karlinn setti það mest fyrir
sig, að hann var hræddr um, að íslending-
ar mundu búa svo mikið til af fölskum
seðlum, að bankinn kynni að bíða 1000 kr.
halla við það á ári. Hann tók ekkert tillit
til þess, að það má kalla óheyrt, að falskr
peningr hafi til búinn verið hjer á landi, og
hann hafði enga hugmynd um það, að það
er tíu sinnum örðugra, að búa til falskan
seðil, heldr en falskan pening.—Aðalfor-
málsmaðr bankans var séra Arnljótr, og
var einkum in fyrsta ræða hans afbragð.
Auk þessa studdu þeir frumvarpið með
ræðum Benedikt Sveinsson , Jón Ólafs-
son o. fl. En öll þeirra orð komu fyrir ekki.
Tryggvi hafði smalað svo vel, að 11 atkv.
urðu móti frv., en 10 með. Einn þingm.
(séra M. A.) var fjarverandi.
það mun óhætt að fullyrða, að það sé
álit flestra fyrir utan þingsal neðri deildar,
að hér hafi verið unnið ið mesta óhappa-
verk, og vafalaust ið óheillaríkasta, sem
þetta magra þing 1883 hefir enn unnið.
Utan lands sem innan mun hver maðr,
sem þekkir land vort og þarfir þess, hrista
höfuð yfir blindni þeirri, sem hér hefir af-
stýrt inu heillavænlegasta og þarfasta fyrir-
tæki. Og þótt vér vitum vel, að allir, sem
að þessu unnu, bæði þeir, sem höfðu nokkra
sannfæringu í málinu, og eins þeir, sem
enga höfðu, hafi hér unnið í bezta skyni, þá
eru afleiðingarnar jafn-þungbærar þjóðinni
fyrir því. Eins og Dr. Gr. Th. sagði eitt
sinn við Tryggva riddara : »það þarf dá-
lítið meira, en góða meining—það þarf líiva
ofrlítið af heilbrigðri skynsemu ... og véi
viljum bæta við : af þekkingu á því málefni,
sem menn fjalla um !
Fátt er of vandlega hugað.
»Hver er árangrinn orðinn af« inu langa
(15 ára?) búfræðisnámi Sveins? »Hann er
sá, að« hann hefir uppgötvað »«ð enginn