Þjóðólfur - 29.09.1883, Qupperneq 2
112
fimlega og hraustlega til ára, austrstroga
eða hvers annars, er hann sér á floti, neytir
allra bragða til að halda sér uppi, og kemst
jafnvel á kjöl eigi síðr en hinir. Meðan
hann sá að allt hélzt uppi, hafðist hann
ekki að, níddist á meðbræðrum sínum og
forsmáði aðvaranir og áminningar formann-
sins; en neyðin gat kennt honum að hafa
hendr fyrir sér, og reyna að bjarga sér
sjálfr. nNeyðin kennir lötum manni að
vinna«.--------- Yinsamlegast.
J.
(Framh. síðar).
Frá útlöndum
er fátt tíðina að segja, það er vert sé um
að geta.
— Frá ITALÍIJ má geta jarðskjálfta
mikils, er varð 28. júlí, á eyjunni Ischia,
suðr og vestur frá Neapel. Hrundu nál.
öll hús í borginni Casamicciola (ein 5 hús
stóðu eftir á grundvelli sínum) og í þeim
bæ og grannbæjunum Lacco og Forio fórust
fullar 5000 manna, en margir biðu meiðsl
og örkuml. 31. s. m. tók Vesúvius að gjósa
og spjó hraunflóði miklu, er rann í áttina
til bæjarins Torre del Greco ; varð fólk þar
svo hrætt, að flýði bæinn um vikutíma eða
meir; eigi hefir þó frézt til neinna slysa af
því gosi síðar.
— EGIPTALAND. þar hefir skæð
kólera gengið í sumar, og þótt hún hafi enn
eigi breiðzt út til Norðrálfu, svo fullyrt
verðix, þá er því miðr ekki séð fyrir
það enn. Að vísu slotaði henni í Cairo síð-
ari hlut ágústmán., en bæði var hún komin
til Suðr-Egiptalands, og í Alexandríu gekk
hún enn 3Q(. f. m., eftir því sem ensk blöð
frá frá 31. f. m. fluttu hraðfregnir um.
Prestvígðr 16. þ. m. cand. theol.
Jónas Jónasson, er fengið hafði Stóruvalla-
brauð (gleymdist að geta í síðasta bl.)
Leiðrétting : I síðasta bl. stendr að síra
þorv. Jakobss. sé veittr Staðr í Aðalvík;
á að vera: i Grunnavík.
Ve itt: Fjallaþing síra Einari Vigfús-
syni að Hofi og Miklabæ.
Skeggjastaðir í N. Múlas. síra Jóni Hal-
dórssyni frá Hofi.
Árnes síra porv. G. Stefánssyni í Hvammi.
— Síra Lárus sitr enn á Valþjófsstað til
vors, en þjónar Seyðisfjarðarsöfnuði; einn-
ig veitir hann prestþjónustu miklum hlut
sóknarmanna í Valþjófsstaðarsókn, er vilja
fylgja sínum forna sálusorgara. (Ann-
ars er síra Sig. Gunnarsson settr til
að þjóna Valþjst.). Svo veitir hann og?
prestsþjónustu þeim sóknarbömum séra
Stefáns í Hofteigi, sem kyrkju eiga að
sækja að Brú, með því að einhver snurða
er á með síra Stef. og þeim um prest-
þjónustuna.
Bæði á Brú og Valþjófsstað messar síra
Lárus í kyrkju, en í Hólmakyrkju kvað
hann eigi fá að flytja messu, og hefir því
flutt guðsþjónustu í stóru norsku timbr-
húsi á Eskifirði.
Síra Daníel á Hólmum hafði verið byrj-
aðr nú að láta taka lögtaki tekjur sínar hjá
frísafnaðarmönum í Reyðarfirði. Má vera
það verði honum vegrinn til að ná áliti
og vinsældum sóknarmanna.
I) Lausafregnir voru um það í ágústlok.
Vopnfirðingar höfðu víst ætlað í fyrstu,
að veita séra Jóni Jónssyni sömu viðtökr,
sem Reyðfirðingar séra Daníel. En það
hefir alt snúizt þar öðruvísi, kvað sera Jón
hafa áunnið hylli sóknarmanna með lægni
og ljúfmensku.
Ef séra Daníel vildi nú nokkuð til gjöra
að koma enda á stríð Reyðfirðinga við
kyrkjustjórnina, þá ætti hann að sækja
um Valþjófsstað. Sæbjörn á Hrafnkels-
stöðum tæki honum sjálfsagt tveim höndum.
Er þá líklegt, að séra Lárus sækti um og
fengi Hólmakall, og mundi þá alt í lag fara
þar. — En það er, ef til vill, þarfara, að
þetta verði ekki. það er, ef til vill, fyrr
beztu að barátan sé háð til enda.
Mikið mega allir, sem unna kyrkjulegu
frelsi, annars þakka Reyðfirðingum. Stað-
festa þeirra, stilling og þrek vinnr óðum
viðkenning manna. I fyrstu ámæltu flestir
þeim, enda ætluðu samtök þeirra mundu
hjaðna niðr sem aðra froðu. 1881 flutti
2. þingm. Suðr Múlasýslu, sem þá átti
engu persónulegu hatri að mæta á þingi,
bænarskrá frá frísöfnuðinum um, að rétti
þeirra gagnvart þjóðkyrkjunni yrði skipað
að lögum. En þá mætti múlið eigi meira
gengi en svo á þinginu, að flutningsmaðr
fékk það eigi tekið inn á dagskrá fyr en
undir þinglok, og var það þá svæft í nefnd.
— 1883 þegar sami flutningsmaðr kom
fram með málið aftr (og átti þó þá upp á
móti sér gullriddara flokkinn allan), þá
gekk þó réttarbót fyrir frfkyrkjumenn gegn
um neðri deild og var frumvarpið með
naumindum drepið í efri deild (með jöfn-
um atkvæðum). þettasýnir, að viðrkenn-
ingunni um réft frísafnaðanna miðar á fram í
meðvitund manna. Ef Reyðfirðingar halda
svo fram með þreki og dáð, sem þeir hafa
byrjað, þá mun málið um rétt þeirra ná
fram að ganga á næsta þingi; og þá eiga
allir frjálslyndir menn þeim mikið að
þakka.
Hjá bóksala Kr. Ö. porgrímssym':
eFato vc eftir Benedict Gröndal.
Skrifbœkr í 4 bl. broti með steinprent-
uðum forskriftum. Verð: 50 au.
Allir vita, hver ritsnillingr Bened.
Gröndal er, og allir, sem séð hafa
forskriftir þessar, ljúka upp um
það einum munni, að þessar for-
skriftir sé afbragð og bœti úr
sannri þorf hér á landi.
gpgp" Forskriftir þessar eru ekki skrif-
aðar með penna af þ>orbirni á
Sitjandanum á pappír, sem drepr
í gegn um.
Engum þarf að detta í hug að
bera þessar forskriftir, sem eru
listaverk, saman við skrifbœkr þœr,
sem Einar prentari selr og hefir
látið klóra efstu Hnuna í með
lökum penna og lélegu bleki.
S-ta|r.ó fo-ííveZ' Jóns Ólafssonar i bandi
50 au.
Sd, sem kaupir 4, fær ið 5. ókeypis.
Hnginn kennari með rænu vill
nú sjá önnur stafrófskver en þetta.
Blessaðir piltar! villizt þið ekki!
Glæpizt ekki á Nýja Barnagull-
inu, sem Einar prentari samdi
sjálfr.
Rvík 12/9—188 3.
Kr. O. porgrímsson.
Nýjar einkxmnarbækr handa barna-
skólum fást á afgreiðslustofu ísafoldar
fyrir 20 aura.
Enskunámsbók Jóns Ólafssonar
er blátt áfram in eina kensluhók í ensku,
sem er kaupandi. 1 krso au. í bandi.
Auglýsingar.
fórhallr Bjarnarson,
cand. theol.
veitir tilsögn undir skóla.
Jón Ólafsson,
alþingismaðr og ritstjóri,
kennir e n s k u rétt og áreiðanlega á
styttri tlma en nokkur annar hér í
bœnum.
Kennir einnig þýzku, dönsku,
1 a t í n u .
Borgun : 1 nemandi, 1 kr. um tímann.
2 nemendr, 50 au. hvor um tím.
3 ——, 35 — hver — —
4 ----, 30 — —---------
5 ----, 25 — —---------
— BÓKFŒRSLU, einfalda og italska,
kennir
Jón Ólafsson.
Pappír als konar, stór og smár,
skrifbœkr als konar.
Höfuðbœkr, klaðar,
kassabœkr,
als konar skriíföng
fást eftir komu póstskips (12. þ. m.)
fyrir óvenju fdgt verð
hjá Jóni Ólafssyni
Einnig : enskar orðaliœkr (frá 50
au. til 10 kr. innb.), ensk landabréf
o. fl.
SOYi
cand. jur.
tekr að sér málfærslu.
Rvík, jj 1883.
Nýjar byrgðir frá FBYDENLUNDS
brugghúsi, sem var ið eina, er fékk gull-
medaliu fyrir öl á Amsterdams-sýningunni
í sumar,—eru komnar til
M. Johannessen.
Tapazt hefir inn 20. júlím. s.
1. á veginum frá verzlunarhúsunum á Eyr-
arbakka upp í Hólavöll: borið einskiftu-
tjald í hærupoka, með hælunum í. Sá, er
fundið hefir, gjöri svo vel að skila því, mót
hæfilegri borgnn, til Jóns Gísasonar á
Minna-Hofi í Gnúpverjahrepp.
— Undirskrifaðr hefir á þessu sumri
fundið skipsdreka vestr á Sviði, og getr hver,
sem vill, lýst honum og hvar tapazt hefir,
ef það er gert fyrir næstkomandi vetrar
vertíðar byrjun, því þá verðr hann brúkaðr,
ef óútgenginn er.
Melshúsum f8-—83.
Hjörtr,; Jónsson.
W&T" Hérineð ítrekast yflrlýsing
sú, seni stóð í 80. bl. fjóðólfs j>. á.
xnn, að HESTR PÁLSSON sé ÓSANN-
INDAMAÐR að þar tilgreinduxn um-
inælum.
Ohristiania Bajersk Öl.