Þjóðólfur - 22.12.1883, Blaðsíða 4

Þjóðólfur - 22.12.1883, Blaðsíða 4
144 + Bjarni Guðmundsson -j-1882 Far þú, Bjarni vinur, vel veg þann allir göngum, þá oss burtu hrífur hel og hélar rós á vöngum. þ>ín var æfi þyrnibraut, þó að glaður sýndist; bjó á vörum bros í þraut, þá brjóstið sárast píndist. Orbirgð stríð og als kyns bönd ávalt sýndust buga mentaþyrsta þína önd, þó ei feldir huga. Eiturtungur illar þrátt, um þig gjörðu hljóma, en sálin þín var hafin hátt heimsins yfir dóma. J>ó að skorti auðsins af yxi þrautir harðar, fegri perlu guð þjer gaf gulli bleiku jarðar. f>ví nær hér á hættri slóð huldust friðar kynni, andans heimur opinn stóð ávalt sálu þinni. f>ú hefur unnið þraut og hel, þinn er frelsisdagur runninn upp á eílíft hvel endalaus og fagur. Guðl. Guðmundsson (fyrir Skúla f>. Sivertsen). AUGLÝSINGAR í samfeldu máli með smáletri kosta 2 au. hvert orð (þakkarávörp 3 au.) Orð jfir 15 stafa teljast 2 orð. Augl, meJ oöru letri eía setningr 1 kr, [jrir ]raml- ung dálks-lengdar. Borjun út í hönd. Ingimundr Giíslason. ■J* 7. júlímánaðar 1883. Barst oss harmafregn hörð "að eyrum, var sem dynjandi dimmr hljómr þá alda þung við ströndu stynr. Æstar af stríðum stormi haföldur vöfðu sig um ið valtá fley, þær hafa Ögmund, ungmennið hrausta í skaut sitt hrifið og örmum vafið. Blundar nú vært ið líðna lík háum und öldum, hafs á botni, við fætur Islands, í hafi djúpu; en sál hans er frá svölum unnum hátt upp hafin til himins sala. Sýrgir nú faðir son sinn ástkæran, og móðir blíðlynd barn sitt grætur, því móðurhjartað, mjúka, viðkvæma, særir inn harði sonar missir. Komið er skarð í skæran hóp dýrra systkina, sem hann prýddi, er hafs í dimmu djúpi er látinn. er því autt skarð, þars áðr var fyrir árásum öruggt vígi. Allir, er þekktu, unnu honum, því tryggr var hann vinum sínum ; vel hann reyndist í hættu hverri, og féll að lokum fyrir voða. Harma því meðbræður hlíra látinn, og mönnum ei hans minning gleymist, en önd hans lilir ljúf hjá drottni, þars eigi þekkist mannleg mæða. 518] S. S. pjentugar jólagjafir eru.- Söngvar og kvæði eftir Jón Olafsson, 2 kr. Kátr piltr; saga eftir Bjornstjerne Bj0rnsonj;f ísl. þýðing eftir Jón Ólafs- son, 1 kr.—Enskunámsbók Jóns Ólafs- sonar 1 kr. 50 au.—Allir Marryats ró- manar á ensku í fallegu bandi, 4 bindi (16 rómanar) fyrir 10 kr. — Póstpappír og annar skrifpappír og skrifbœkr ódýrri en nokkursstaðar annarstaðar í bænum í Pappírsverzlun Jóns Ólafssonar. Öskjur með 24 bréfsefnum og 24 umslögum, bæði hvítum og marglit- um—afbragðspappír. Cu'f •'X q '00 ” oTefaepuý „ef ircjoljíu heldr á 3. í jólum til skemtunar félagsmönnum TOMBOtUA. Hver félagsmaðr fær tvö bílæti. Nokkur aukabí- læti fást og keypt hjá gjaldkera félagsins (Kr. Ó. þorgrímssyni bóksala), en að eins félagsmenn fá þau keypt. Engir nema félagsmenn og boðsgestir þeirra fá-aðgang. Margir oggóðir vinningar. 521] 522] i?o h V'ifvdci'Z'Ci'Z' hafa verkstæði í húsi Arna snikkara nálægt Bak- arastíg. þeir taka að sér als konar bókbandsstörf. I>eir, sem áttu bœkr í bandi hjá Gemynthe bók- bindara, er hann fór héðan úr bænum, geta vitjað þeirra til þeirra. Af því að nokkrar þakhellur höfðu fokið af einu af geymsluhúsum verzlunarinnar, þann 18. þ. m. og sjórok hafði komizt inn á lítinn part af loftinu, hefir það borizt út, að kornbirgðir verzl- unarinnar hafi beðið skemdir af þessu. En með' því að engin væta kom nálægt kornkössunum, og að eins fáir sekkir vöknuðu lítið eitt, urðu als engar skemdir á matbirgðunum, og er verzlunin vel birg af mjög góðum og óskemdum kornmat. Reykjavík 23. des. 1883. Fyrir verzlun W. Fischers : 523] Guðbr. Finnbogasen. IfcTæstliðið haust var mér dregið hvítt geldings- lamb með marki mínu: sneíðr. aft. hægra, sneitt fr. vinstra. Getr eigandi vitjað andvirðisins að kostnaði frádregnum til G-unnars Gunnars- sonar á Sviðholti. 525] Tvö herbergi óskast til leigu frá I. jan. Menn snúi sér til ritstj. „f>jóðólfsw. 526] Yfirfrakki er horfinn úr forstofu minni. Sá, sem í misgripum hefir fengið hann, er beðinn að skila honum sem fyrst. Kr. Ó. porgrímsson. 527] Munið nú eftir, að gjörast sem fyrst áskrifendr að „IÐUNNi“, inu nýja tímariti til skemtun- ar og fróðleiks. Boðsbréf, sem menn gétu slcrifað sig á, liggja frammi hjá bóksölunum Ó. Finsen og Kr. Ó. porgrímssyni og hjá ritstjórum blaðanna „Isafoldnr“ og „þjóðólfg1. Einnig hjá flestum útsölumönnum þessara blaða. rilveggjamannafar stórt, heldr gamalt, -®-hvarf af stakkstæðinu hjá J>orl. Ó. Johnson eina nóttina um það leyti póst- skipið lá hér síðast. Beðið að halda til skila mót þóknun til Gróit Odds- dóttur í þerneyjarht't ;i. 5 29] KOM>Ð OG KAUPJÐ hjá undirskri.uðum á- gætlega væna STÍGVÉLASKÓ, um 250 pör, frá 3—4 kr. parið; —sömuleiðis fatnað af ýmsu tagi með niðrsettu verði, óvenjulega ódyrt. Einnig fæst fyrir hálfvirði hjá mér blár farfi og hvítr, viktríól, saltpétr, negulnaglar ig hand- hringir með steinum. Sömul. gott iH ntóbak (1,80 pr. pd.), keks, rauðvín, brer. An, bjór. Alt er með vægasta verði, sem u Rvík 16/,2 Pinnr Finnsson. [530 Tj^undizt hefir hvít kind rekin af sjó ; T- mark •' stúfrifað h., geirstýft v. Eig- andi getr vitjað verðsins til Gunnlaugs Helgasonar að Stapabúð í Vogum. [531 Fjármark mitt er heilrifað og gagnbitað hægra og sýlt vinstra. Miðkoti s/12. 83. Páll Bergsson. [532 Ný upptekið fjármark mitt er hvatrifað og stand- fjörðr frarnan hægra, sýlt vinstra. Miðkoti, s/,2 83. þorkell Bergsson. [533 Frá byrjun ársins 1884 fyrirbjóðum vjer undirskrifaðir hjer með öllum að brúka bryggjur vorar til upp- eða út- skipunar, nema því að eins að þeir borgi fyrir brúkunina út í hönd fyrir hvert einstakt stykki 35 aura, sje það sótt ofan í bátinn. Ef vjer þar á móti verðum að sjá um uppburð oggeymslu á þvf, sem í land er flutt, þangað til þess er vitjað af eiganda, borgar hann um leið og það er afhent 50 aura fyrir stykkið. Auk þessarar borgunar, sem er fyrir afnot bryggjanna, borgast flutningurinn á land til þeirra sem hann annast. J>eir sem vilja fá leigða bryggju fyrir lengri tíma, geta samið um leig- una við okkur. Beykjavík, 17. des. 1883. [534 C.F. Siemsens verzlun: G.E. Unbehagen. Fyrir M. Smith: Jón O, V. Jónsson. Fyrir J. P. T. Bryde: O. Amundason. N. Zimsen. — Guðbr. Finnbogasen. TIúspostilla eftir Helga biskup Thor- *~dersen er nú út komin á mitt for- lag, 48Vi arkir (stórar) að stærð, og kostar óbundin 5 kr. 75 a. fyrir alla, sem skrifuðu sig fyrir bókinni; annars er verðið 6 kr. Rvík. 20. des. br. 1883. 535] Knstján O. þorgrimsson. |>essarar bókar verðr getið nánara í næsta blaði. En vér leyfum oss þegar að mæla ið bezta með henni. Tilhlýðilegri jólagjöf getr enginn gefið en þessa bók. Ritstj. jPfT* Kaupendr „J>jóðólfs“ hér úr kyrkjusókninni (utanbæjar) geta eftir- leiðis vitjað hans í APÓTHEKINU. !ljlgGg~ Aðrir nærsveitamenn geta vitjað hans f FISCHERS-BÚÐ. Samkvæmt opnu bréfi 4. jan. 1861 og lögum 12. apríl 1878 er hér með skorað á alla þá, sem telja til skulda eftir J>orgrím sál. Jónsson snikkara, er andaðist að J>verhamri 7. f. m., að gefa sig fram og sanna kröfur sínar fyrir mér eða erfingjum hans innan 6 mánaða frá síðustu birtingu þessarar auglýsingar. Gílsá í Breiðdal 18. október 1883. Fyrir hönd erfingjanna : Páll Benidiktsson. U^-'Fyrir ný-árið kemr enn út Vf örk af „þióðólfi“. Ritstjóri: JÓn Ólafsson, alþingism. Prentaðr í prentsmiðju Xsafoldar.

x

Þjóðólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.