Þjóðólfur - 09.02.1884, Qupperneq 2
18
henni. Ársvextir af ríkiskuldunurn námu
þá 4,29 doll. (16 kr. 8 a.) fyrir nef hvert
meðal landsmanna. Nú nema vextirnir
0,95 doll (3 kr. 57 a.) fyrir nef hvert. Meira
að segja: tekjur ríkjanna eru svo miklar, i
að stjórnin er 1 vandræðum með, hvað við
þær skuii gjöra. Samkv. lögum þurfa þejr
nl., sem eru eigendr ríkisskuldabréfa, ekki
að láta þau af hendi fyrri en á ákveðnum
tíma, og fær stjóruin því ekki, hvað fegin
sem hún vildi, innleyst nema tiltekna upp-
hæð á ári.
— Fleskútflutningr Bandaríkja. Fyrir
nokkru bannaði þjóðverjastjórn og litlu síðar
Frakkastjórn, allan innflutning þar til landa
af fleski frá Ameríku; var fyrir borið, að
ormar þeir, er tríkinur kallast, væri tíðari í
fleski frá Ameríku, en öðrum löndum, með
því að eftirlit væri þar slælegra. Ameríkp-
menn neitaþessu, oghafa boðið stjórn þjóð-
verja að senda nefnd vísindamanna tilAme-
ríku til að kynna sér meðferð flesksins þar
og sjá svo, hvort álit þetta sé á rökum bygt.
þetta hafa þjóðverjar eigi viljað þekkjast.
Eigi hefir þó minkað við þetta útflutningr
flesks frá Ameriku til Norðrálfu, heldr hefir
hann aukizt engu að síðr. þannig nam t.
d. útflutningr flesks í ágúst síðastl. 270°/»
meiru en árið þar á undan; en fleskið var
í lægra verði, svo að verð þess, sem út vár
flutt í ágúst 1883,nam ekki nema 100°/» meiru
en 1882. Mest er flutt til Englands og til
Norðrlanda. [«G. & n. h.»].
— Nýir Atlantshafs-málþrœðir. Tveir
ameríkskir milíónarar , Bennett (eigandi
»New York Herald’s») og Maekey, hafa
gjört samning við bræðrna Sielas í Parísar-
borg, um að leggja niðr tvo nýja málþræði
þvert yfir Atlantshaf. Fyrri þráðrinn á að
vera al-lagðr um 1. júní núna í vor.
[G. & n. h.]
— Stœrsta seglskipið í heimi lá í nóvbr.
síðastl. í Philadelphíu og tók þar farm.
|>að heitir »Lord Wolsely*, er308 fetalangt,
42 feta, 6 þuml. breitt, ristir 21 fet og ber
4000 smálestir. 4 eru siglur á skipinu og
rásegl á þremr. J>á er öll segl eru uppi á
öllum 4 siglum, nemr flatarmál allra segl-
anna 420Q0 □ fetum.
— TENNYSON, lárviðarkrýnda hirð-
skáldið enska, hefir góðar tekjur, 79 þús.
kr. um árið af ritum aínum. — Nýlega hefir
drottningin gefið lionum aðalsmanns tign;
kvað það einkum til launa fyrir grafskrift
eða erfiljóð, er hann orkti eftir herbergis-
þjón drotningar, Brown.
— BROWN þessi var í miklum kærleik-
um hjá Viktoríu drotningu, og dylgja blöð
um það, að hann hafi verið friðill hennar.
Hún hefir látið gjöra líkneski hans og setja
upp í garðinum fyrir utan hallarglugga sína,
svo að hún hefir hann æ fyrir augum. Syni
hennar, prinzinum af Wales, kvað þykja að
þessu ið mesta hneyksli, og hefir honum þó
meir verið fyrir annað viðbrugðið, en skír-
lifi; en honum mun þykja hér vangeymt ins
ytra yfirskins.
— PRIWZINN AF WALES er annars
gleðimaðr mikill, og kendr einatt við «drykk
og dufl».1 í Kvað einatt duflað í höll hans,
og oft um stórfé. Hefir’drotning nú nýlega
látið það boð út ganga, að það sé harðlega
bannað, að viðlagðri fullri ónáð sinni, að
dufla um fé nokkurstaðar innan endimarka
konungshallanna. þykjast menn skilja, að
þetta sé til prinzis stýlað, og muni eiga að
launa honum fyrir ,óbeit þá, er hann hefir
lýst á Browns-líkneskjunni.
Lang.Tdalsströnd, io. janúarm. 1884.
Jeg lofaði þér í fyrra að senda þér frétta-
jpistil frá okkr útkjálkabúunum, en hefi
brugðið það hingað til. Sumarið sem leið,
var gott, grasvöxtr í góðu meðallagi og nýt-
ingin ágæt. En hálfum mánuði fyrir vetr
byrjaði ótíðin, og svo að segja hafa allar
skepnur síðan staðið á gjöf, bæði á Snæfells-
nesströnd og hér utan til á Langadalsströnd.
Stöðugir umhleypingar hafa verið, en frost-
hörkur aldrei miklar, og haldi slíkri tíð á-
fram, er mjög hætt við að heybyrgðir manna,
þótt þær væru fremr góðar, komi að þrot-
um áðr en vetrinn er á enda. Fiskiafli
hefir á báðum ströndunum verið mjög lítill,
eins og hvervetna kring um Djúpið, enda
er fiskiafli mjög farinn að minka hér á
Langadalsströnd við það sem áðr var, og
kenna greindir og reyndir sjómenn það
veiðiaðferð útdjúpsmanna, þar sem þeirnota
við veiðar sínar ýmsa beitu, sem hamlar
fiskinum að ganga inn eftir Djúpinu. Síð-
an á nýári hefir tíðin verið talsvert stiltari
og betri, og eru nú allir komnir til vers, en
aflafréttir eru litlar af þeim komnar. Y’msir
sjúkdómar hafa verið að stinga sér niðr hér,
bæði bólgusýki, væg taugaveiki o. fl., og 1
kvenmaðr dó úr barnsfarasýkinni; einn
merkisbóndi hefir látizt hér, Egill þorgríms-
son frá Skarði á Snæfjallaströnd, 62 ára að
aldri; hann var sómamaðr í sínu sveitarfé-
lagi og studdi það eftir öllu megni. 2 menn
druknuðu á leið úr kaupstað til Æðeyjar
31. ágúst. Af rúmum 600 manna, sem eru
í þessu prestakalli, hafa andast 3 síðastliðin
ár 108 manns, og þar af § úr mislingum í
fyrra, og er það víst með því flesta að til-
tölu, sem dáið hefir hér á laudi þessi ár.
Pósthúsið.
þ>að er minkun fyrir landið og bse'
inn að ekkert pósthús skuli vera til *
höfuðstað landsins. En svo er nú.
fað getr verið álitsmál, hver kosta
eigi pósthús hér í bænum, hvort landið
eigi að gjöra það, eða póstmeistarinn.
í sjálfu sér er slíkt auðvitað að eins
formspurning, því að vitaskuld er það,
að hvort sem landið borgaði kostnaðinn
beinlíuis eða óbeinlínis, þá yrði það á-
valt landið, sem þó ber hann.
Nú sem stendr hefir póstmeistarinn
2600 kr. í laun (2400-4-200 kr.) og 1000
kr. 1 skrifstofufé.
Nú er spurningin: lætr póstmeistar-
inn hæfilegt húsrúm í té fyrir þessa
upphæð eða ekki? Ef hann gjörir það
ekki, þá á almenningr heimting á að
hann gjöri betr. En gjöri hann það.
og sé húsrúmið sa/nt ónógt, þá er það
landsins sjálfsögð skylda að hækka
skrifstofuféð.
Hvað fyrra atriðið snertir, þá munU
flestir ætla, að ef hr. póstmeistarinn
ynni sjálfr persónulega að embættis-
störfum sínum, og verði til þeirra öll'
um tíma sínum (í stað þess að gutla
við allan þremilinn annan, t. d. bygg'
ingarnefndarstörf. niðrjöfnunarnefndar-
störf, sjúkrahúsgjaldheimtu, brunamála'
gjaldheimtu, skipsafgreiðslu, bókaveYzl'
un, og hver veit hvað?), þá mundi það
ekki eins manns ofverk, að rækja póst-
meistarastörfin, án þess að halda fastan
skrifara, og mundi þá nægja að taka
sér aðstoð stund og stund við póstkom'
ur, og mundi slíka aðstoð mega kaupa
fyrir 200 kr. um árið; enda ætluin vér
að hann hafi hingað til kostað ékki öllu
meiru til slíkrar aðstoðar. J>á eru eftir
800 kr.' til skriffanga, ljóss, eidiviðar ogf
húsaleigu. Ljós, eldivið og ritföng get-
um vér eigi við það embætti gjört
meiru en 200 kr. virði, og eru þá 600
kr. eftir til húsal.eigu. Og þá getum
vér ekki neitað því, að oss þykir sern
fá mætti allviðunanlegt húsrúm leig't
fyrir 600 kr. um árið.
Nú sem stendr er alls ekkert húsrúnl
sérstaklega leigt til póstafgreiðslunnaT-
Hún er látin fara fram í bókasölukompu,
örlítilli, og þar sem vinir og rnágar,
mágakonur og mága-mágar og mága-
konu systkini póstmeistara eru að vefj'
ast fyrir og blaða í bréfUnum og lesa
utan á þau, þrátt fyrir það, -þótt það
sé harðlega forboðið í lögunum, að
nokkrir óviðkomandi megi sjá það, sem
fer í gegnum hendr póstafgreiðenda.
Af þessu húsleysi leiðir meðal anfl'
ars sú óregla, að pósthúsið erjafnaðar*
lega lokað svo að segja allan daginn,
einmitt þá daga, sem það ætti helzt a9
vera opið sem lengst. fegar það sV°
loks er opnað, kannske 2 tíma samtal5