Þjóðólfur - 09.02.1884, Síða 4
20
bónda, þar sem hver keptist við annan um
að geðjast honum.
Heim að sœkja var hann mjög gestris-
inn og fanst flestum til þess, hve húsbónd-
inn var einkennilegr, ekki einungis að rausn-
inni, heldr einkum í inu hisprslausa viðtali,
sem jafnan bar vott um fróðleiksmanninn,
inn eldheita föðurlands og frelsis vin, inn
ótrauða félagsmann og inn einlæga trú-
mann.
Hann var hreppstjóri í sveit sinni 7 ár
og bæði þá, sem fyr og síðar, öruggasta stoð
félags síns, þar sem hann af alhuga studdi
öll góð samtök og félagsskap og sparði þá
hvorki ráð né dáð. Hvort hann var upp-
hafsmaðr að þeim eða ekki, um það hugs-
aði hann aldrei; alt smásmuglegt, öfund og
sérgœði var ekki til hjá göfugmenninu.
Hann var jarðsettr að Kálfatjörn (26.
apríl). Kylgdi honum með inni saknandi
ekkju hans, börnum, tengdabörnum og vin-
um, fjöldi mans til grafar og var auðséð, að
í öllu var leitazt við, að gjöra útför hans
svo sem honum hefði bezt verið að skapi.
I grafskriftinni yfir hann er lýsing á honum,
og af þvi um hana hefir verið sagt af þeim,
er til þekktu, að hún sé sönn og heppileg,
setjum vér hana hér að lyktum:
Starfsöm var höndin, stórmannleg var lund-
in,—
stjórnsöm röggsemd mikið vann,—
gáfurnar fagrar ; fáir þeir munu,
fróðleik er unnu meir en hann.
Tállaus var sálin; tungan flærð ei kunni;
Tryggð og drenglund aldrei brást;
trúræknin einlæg, heitt brann í hjarta
heimsins á frelsara viðkvæm ást.
Föðurlandssona fanst hann meðal beztu,
félags máttarstoðin góð.
Aldrei grét kona eiginmann trúrri,
aldreigi trúrri föður jóð.
AUGLÝSINGAR
í samleldu máli m. smáletri kosta 2 a. (þakkaráv. 3 a.) Ivert orð 15 stafa frekast;
m. Mru lelri eía setning! kr. fjTir jiumlunj dálks-lengdar. Borgun úl i hónd.
Proclama.
Samkvæmt opnu bréfi 4. jan. 1881, srnbr.
lög 12. april 1878 er her með skorað á alla
þá, er til skuldar telja í félagsbúi Guð-
mundar heitins Jónssons og eftirlifandi
ekkju, Sigríðar Olafsdóttur, innan 6 mánaða
að gefa sig fram fyrir undirrituðum skifta-
ráðanda. Sómuleiðis er skorað á erfingja
ins látna, sem helzt munu vera systkini
og systkinabörn móður Guðmundar, Vigdís-
ar Pjetrsdóttur frá Skarðsstrandarhreppi í
Dalasýslu, að gefa sig fram ínnan sama
tíma. [33r
Skrifstofu bœjarfógeta, Isafirðil2. des. 1883.
C. Fensmark.
Helgapostilla hke°ff" kr.:ne"n
í bandi 8 kr.
„f>að mun vera samróma álit þessarar aldar, að
Helgi byskup bæri af öllum samtíða Uennimönmim
sínum hér á landi að skörungskap og einfaldri, en
andlegri og hrifandi mælsku í allrí kenningu sinni“.
(pjóðólfr 1867, bls. 17).
„það er ekki ofhermt þótt vér segðum, að Helgi
byskup Thordersen var einhver sá mesti og and-
ríkasti prédikari, sem iand þetta hefir átt, enda
hafði hann alla þá hæfilegleika, sem til þess út-
heimtast, liprar og fjörugar gáfur, lifandi ímyndun-
arafl, mikla mannþekkingu, djúpsettan lærdóm11,
o. s. frv. (P. Pótrsson, byskup, í líkræðunni yfir
Helga byskup). 34r.
að hefir verið send frá Newyork hingað á
Pósthúsið, utanúskrift af pakka frá íslandi til
sira Páls sál. sonar mins, ásamt fyrirspurn um,
hvað í þessum pakka eða böggli hefði útt að vera.
Utanáskriftin hefir sjálfsagt verið dottin af send-
ingunni, og hvorki ég eða nokkur hér, gátum þekt
skrifhöndina á henni. Bið eg því ritstjóra pjóðólfs
að taka þessa auglýsingu í blað sitt. Og þann er
síðan kynni að geta gefið upplýsingu um sending-
una, vil ég biðja að skrifa mér um það beinlínis
hingað.
Mountain P. O. Pembina Co. Dak. Terr.
U. S. N. A.
pann 6. nóvember 1883.
jöorlákr G-. Jónsson. 35r.
■J" Á næstliðnu sumri 9. Ágúst andaðist á Eyr'
arbakka, eftir stutta en stranga banalegu, einn
hinum elnilegustu borgurum þar, verzlunarþjóu®
Andrés Ásgrímsson á Litln-Háeyri, tæpra 42 ára
gamall; hann var fæddr 13. nóvember 1841. Árið
1872 byrjaði hann búskap á Lillu-Háeyri og tóks1
um sama leyti á hendr bókfærslu og stjórn utaQ'
búðar við verzlun stórkaupmanns Lefolii á Eyraf'
bakka. Árið 1872 þann 26. október giftist ham1
ungfrú Málfríði porleilsdóttur DannebrogsmannS
Kolbeinssouar á Stóruháeyri og eignaðist með hennt
4 börn, sem 3 lifa.
Andrés sálugi var í mörgu falli merkr maðr,
staklega atorkusamr og trúr í sinni erfiðu og vanda-
sömu stöðu, sæmilega greindr og rétt vel að sér > I
Dönsku, skrift og reikningi og þvi vel vaxinn
þeim starfa, sem hann var til kjörfnn. Hann var
sérlega hjartagóðr við fátæka; tryggr, vinfastr og
inn áreiðanlegasti i öllum loforðum. Hann var
umhyggjusamr ektamaki, góðr faðir, trúrækinn og
staklega kirkjurækinn, Hans er því maklega sakn*
að, ekki einungis af ekkjunni, börnum og ástmenn-
um, heldr og af mörgum vandalausum bœði nær
og fjær. 9-42 39*
FROSTBÓLGA, SPRUNGUR á höndum og
f andlití, viðkvæmni, þurleikr ogsprungur á hörundi
írostbólgubollar, opin sár, brunameiðsl, skinnkast
0. s. frv. læknast fljótt með því að við hafa cand
pharm. Andersens Creme hygienique. Dósir
á 3° °g 50 au. fást í Reykjavfk hjá
F. A. Love. 494J
Til leign fást 2 herbergi með ofni
mittíbænum, frá 14. maí. Ritstj. ávísar.
Proclama.
Samkvcemt opnu brjefi jan 1861 og lög-
um 12. april 1878 er hér með skorað á alla
þá, sem telja til slculda í fjelagsbúi mínu og
manns míns Jóns sál Bjarnasonar, sem and-
aðist í Beykjavík 6. október f. á., að gefa
sig fram og sanna kröfur sinarfyrir mér inn-
an árs og dags frá seinustu birtingu þessarar
auglýsingar.
Sömuleiðis skora ég á þá, sem skuldir áttu
að greiða til manns míns sáluga, innan sama
tíma að borga þœr til mín eð semja um borg-
un þeirra sem allrafyrst.
Geysi í Beykjavík, lö.janúar 1884. ■
7*j Vigdís Guðmundsdóttir.
--------
hafa nú stofnað síldarveiðafjelag og ætla sér
að láta stunda þi veiði næstkomandi vetrarvertíð
með talsverðum netum, þá gjörir það ómögulegt,
að útlendir, sem ætla að róa eða hafa útveg f
þessum plássum, geti haft sildarnet að leggja með
skipum sfnum vegna þrengsla, því að veiðiplússið
er svo lítið, að það myndi verða til þess, að skaði
væri búinn að þvf. {>ess vcgna tilkynnist hér með,
að engum útlendum manni leyfist að leggja sfldar-
net fyrir landi ofanskrifaðra bygða næstkomandi
vetrarvertíð. En aftr lofar síldarveiðafélagið,
að selja síld til beitu hverjum sem er, ef hún
veiðist, móti borgum út í hönd, með svo vægu
varði sem unnt er.
19. janúar
37*
Jarðaeigendr og lóðarumráðamenn í Njarðvfkum
og Keflavík.
Ágætur REIÐHESTR falr
reifarakaup. Ritstj. „f>jóð.“ vís-
. ar á seljanda. [38*
Ur.
Góð ný cylinder-úr 16 kr.; dto, með
gullrönd 20 kr.; „Landmands“-úr 12 kr.
Stofu-úr frá 2. kr. 50 au. Alt ábyrg-
ist ég í 2 ár og sendi hverjum, sem
sendir mér borgum fyrir fram með
pósti.
26f] S. Rasmussen,
Gammelmont 37, Kobenhavn K.
Utaending „J>jóð.“ utanbœjar annast:
Sighvatr Bjarnt^fcn, Hlíðarhúsastíg-
Auglýaingum til „J>jóðólfa“ veitir ritstj.
móttöku; einnig boksali K. Ó. J>orgrímsson*
Utanbœjarmenn hér ur sókninni beðnir
að vitja „J>jóðólfs“ í apótekinu; aðrir
nærsveitamenn í Pisehers-búð.
■ ------------------------ —
Eigandi og ábyrgðarm.: Jón Ólafsson, alþm.
Aðalstræti Nr. 9.
Prentaðr í prentsmiðju ísafoldar.
I