Þjóðólfur - 01.03.1884, Blaðsíða 2

Þjóðólfur - 01.03.1884, Blaðsíða 2
30 hrekur fiskinn af sínum upphaflegu stöðvum, svo hann að lyktum flýr gjörsamlega. Af því, hversu lóðirnar reka undan straum- unum, leiðir það, að þær flækjast svo hver í aðra, að sjómenn eru opt neyddir til að skera í sundur og skilja eptir af þeim meira og minna, auk þess, sem það ber opt við í stórstrauma, að mörg skip missa á dag mestallar lóðir sínar, og nokkur koma ekki í land aptur með svo mikið sem einn öngul. Lóðaflækjurnar valda því, að fiskimenn beita opt hegningarverðum yfirgangi, þjófn- aði og ráni hver við annan, og ýmist vís- vitandi eða óviljaudi spilla hver annars veiði og veiðarfærum. Uppá þetta gætum vjer konrtið með mýmörg hroðaleg dæmi, sem vjer ætlum oss að sneiða hjá í þetta sinn; það virist nægja að geta þess, að menn hafa róið úr landi lóðarlausir, en komið apt- ur að kvöld með margra hundraða lóð og nægan afla. þess má og geta, að sýslumað- urinn varð að ferðast til Útskálasóknar dag- inn eptir hjéraðsfundinn í Njarðvfk (30. f. m.) til þess að jafna misklíð, sem risið hafði á milli tveggja fiskimanna eða farmanna þar, útaf meðhöndlun á lóð og afla. Sjómenn hafa getið þess að við lóðarbrúk- unina fari sjómennsku hnignandi ár frá ári, á þann hátt, að nú sje orðið sárfáa góða fiskimenn að finna, af öllum þeim fjölda, sem fiskiveiðar stundar. þetta er mjög eðlilegt þegar þess er gætt, að haidfæraveiði er nú ekki stunduð nema að eins 4 eða mest 5 vikur á ári, í stað þess að hún fyrir nokkr- um árum var stunduð alt árið, frá rjettum til vetrarvertíðarloka, nema þann tíma, sem þorskanetaveiði átti sjer stað. |>að er llka eptirtektavert, hve fáir reglulega góðir og ötulir formenn gefast nú orðið hjer við sjó- inn, af öllum þeim mikla fjölda, sem élzt hjer upp við fiskiveiðar frá barnæsku. Hið skaðlegasta, sem fiskimenn meina að af lóðarbrúkuninni leiði, er það, að þeir þykjast sjá fram á, að hún sje smátt og smátt að eyðileggja haustfisksaflann hjer syðra. Sem merki til þessa telja þeir það, að nú á síð- ustu árum hefur veiðst á lóðir slíkt smælki, að 30—40 fiskar rúmast hæglega í 1 skeffu- máli; það er vitanlega sá fiskur, sem er í uppvexti, en er ekki orðinn fullþroskaður til að æxlast, en þegar hinu unga er eytt, áður en það nær að geta af sjer eða frjóvgast, þá er eyðilegging í nánd. Svo mikið er víst, að af öllum þeim veiðarfærum, sem hjer sunnanlands eru höfð við fiskiveiðar, mun ekkert reynast eins hættulegt fyrir aflabrögð- in og lóðin, og þó er hún útgerðarmönnum eitt hið kostnaðarsamasta veiðarfæri, þegar þess er gætt, hve lítilsverður sá fiskur er, sem á hana veiðist, og hversu opt að hún missist. Menn mega sannarlega vara sig á því að horfa svo mikið í stundarhagnaðinn af þess- um «/ím» lóðarafla, að þeir með fyrirhyggju- lausu áframhaldi og ofurkappi eyðileggi all- an haustafla, og, ef til vill, haldfæraveiði á vetrarvertíðinni líka, og því væri það máske heppilegast að af taka alla ýsulóðabrúkun - með veturnóttnm, eins og nokkrir fiskimenn meina. Hvernig er nú komið fiskiufla á Seyðis- firði, hjá því sem var fyrir nokkrum árum, og hverju mun það vera að kenna, að fisk- ur fæst þar nú ekki nær en úti í fjarðar- mynni og fyrir utan það ? Engu öðru en lóðamergðinni, sem þar er og hefur verið tíðkuð. Haldfæraveiðin hefur ávallt reynzt affara- bezt og kostnaðarminnst, enda munuflestir viðurkenna, að á meðan hún var stunduð allan veturinn, þá áttu menn með minni kostnaði miklu meiri haustafla en nú gjörist árlega; þó mun mörgum vera einna minnis- stæðastur sá fjarskaafli, sem á færin fjekkst i Garðsjó á þorra 1855, þegar allir fiski- merm frá Akranesskaga að Garðskaga sóttn daglega hleðslu á lítinn blett í Garðsjó í 17 daga samfleytt; lengur gaf ekki. Hversu lengi mundi sá fiskur hafa haldizt þar við ef allur sá grúi, sem þangað sótti, hefði ver- ið með lóðir? i Vjer skiljumst svo við þetta mál með þeirri föstu sannfæringu, að svo framarlega sem haldið verður áfram með að við hafa ýsulóð fram á vertíð og jafnvel um sjálfa vetrarvertíðina, almennt farið að nota síld til beitu, en engar tilraunir gjörðar til að egna fiskinn að landinu, nje efla viðkomu hans, þá er fiskiveiðum á opnum skipuin hjer í sunnanverðum Eaxaflóa mesti háski búinn. þetta mun reynslan með tímanum leiða betur og betur í ljós, en menn sjáþað þá máske um seinan, og þess væri óskandi, að menn þyrftu ekki seinna að biðja um þær samþykktir löggiltar, sem þeir nú stæra sig af að hafa getað traðkað. Til þess að enginn i Útskálasókn þurfi að vera í efa um höfuudinn að'frarnanrituðuin línum og þess vegna kenna þær saklausum, eða með öðrum orðum feðra þœr rangt, þá mun jeg setja nafn mitt fullum stöfum undir þær, en læt þess um leið getið, að jeg hefi samið þær eptir ósk og samkvæmt upplýs- ingum frá reyndum fiskimönnum hjer í hreppi. Vatnsleysustrandarhreppi í febrúarm. 1884. Guðmundur Guðmundsson. Eftikskr.: 4. gr. frumv. hafðijsýslunefnd- armaður Eosmhvalanesshrepps ekkert í móti, hvorki á hinum heimulega nefndar- fundi nje á sýslufundinum, þó hann greiddi atkvæði sitt á móti henni á hjeraðsfundin- um, eins og hinum greinunum. Sökum þess að vór undirskrifaðir, sem vorum í forstöðunefnd fyrir iðnaðarsýning- unni í Reykjavík síðastliðið sumar, höfum fengið áskoranir frá ýmsum mönnum að gangast fyrir að slík sýning verði haldin á ný í júlímánuði 1885, og sumir óskað að hún verði haldin sumarið 1887, þá auglýsum vér hér með, að vér erum fúsir til að gjöra alt það, sem í voru valdi stendr, til þess að almenn innlend iðnáðarsýning verði haldin í Reykjavík annaðhvort ofannefnt sumar. Leyfum vér oss því hér með að skora á alla þá, sem unna framförum íslenzks iðnaðar, og sérstaklega á ina heiðruðu alþingismenn, sem sjálfsagt verða yfirumsjónarmenn sýn- ingarinnar eins og síðastliðið ár—að láta oss vita, eigi seinna en með póstferðum í næst- komandi maímánuði, hvort hentugra mundi þykja, að hin fyrirhugaða sýning verði hald- in sumarið 1885 eða 1887, og munum vér þá, eptir þeim tillögum sem vér fáum, fast- ákveða og auglýsa í dagblöðunum í næst- komandi júnímánuði, hvort alþingissumarið sýningin verði haldin. Reykjavík, 26. febrúar 1884. Arni Oíslason. • Helgi Helgason. Jón Borgfirðingur. Páll þorkelsson. Sigfíis Hymundarson. Málaflutningr við landsyfirréttinn. I Danmörku eru málfærslumenn við alla rétti, og hafaþeir einkarétt til að flytja mál fyrir réttinum. Má því enginn þar láta annan færa mál fyrir sig, en löggildan mál- færslumann við hlutaðeigandi rétt, nema hann geti falið þetta starf frænda sínum, þjóni eða fjárgæzlumanni (D. L. 1—9—13; N. L. 14); og svo má auðvitað hver flytja sjálfr mál sitt. Hér eru enn engir fastir málfærslumenn skipaðir við undirréttina. En við yfirdóm- inn voru 1858 skipaðir 2 málfærslumenn eftir tillögum alþingis, og hafa þeir laun af almanna fé (áðr úr dómsmálasjóði, nú úr landssjóði). Tilgangr alþingis með, að fá þessa menn setta, var sá,. að tryggja það, að landsstjórn- in ætti völ á lögfróðum, hæfum mönnum, til að flytja sakamál og önnur opinber mál, og> ef til vill, líká, að einstakir menn, er reka þurfa rettar sfns við þennan dómstól, skyldu

x

Þjóðólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.