Þjóðólfur - 07.06.1884, Blaðsíða 2

Þjóðólfur - 07.06.1884, Blaðsíða 2
86 bankann—það, að í reyndinni reyni aldrei á hana. Fríkyrkjusöfnuörinn í Reyðarfirði. m. Ekki virðist, sem betr fer, herra byskup- inn hafa orðið sannspár að því, að «alt kyrkjulegt samheldi hyrfi í söfnuðinumo, þó að samtökunum væri haldið áfram. |>vert á móti er það nú orðið deginum ljósara, að svo öflugt kyrkjulegt samheldi, sem síðan og til þessadags hefir átt sjer stað íReyðar- fjarðar-frísöfnuði, á hvergi sinn líka í nein- um söfnuði á landinu. Ekki vottar heldr fyrir því, að «kyrkjuræknin» sé «horfin» eða að «bamauppfræðingin» hafiverið «vanrækt». Fríkyrkjumenn hafa haft nefnd manna til að hta eftir uppfræðingu barna, og er oss óhætt að fullyrða, að ekki hafi verið ræki- legar húsvitjað í sóknum séra Daniéls í Eyjafirði, meðan hann var þar, heldr en nefndin hefir gjört hjá fríkyrkjumönnum.— En um það, hvort kyrkjurækni eða áhugi á prestlegri þjónustu sé dofinn og dauður eða ekki hjá fríkyrkjumönnum, um það ber það ljósastan vott, að þeir hafa nú ráðið sér prest alveg á sinn kostnað með 1800 kr. árs- launum; og eru þeir þó enn neyddir til að gjalda prestsgjöld til séra Daníels, sem lætr hirða þau með lögtaksgjörðum. Auk þessa kostnaðar, sem skiljanlega hlýtr að hvíla mjög þungt á fríkyrkjumönn- um, hafaþeir nú ráðizt í, að reisa sór kyrkju á Eskifirði nú í sumar. Jafnvel þótt vér séum þess fullvissir, að þessir heiðarlégu forvígismenn kyrkjulegs frelsis á íslandi muni ekki láta neina örð- ugleika aftra þessu áformi þeirra, þá er það eðlilegt, að þeim falli þungbær sú útláta- byrði, er þétta leggr þeim á herðar1, og er það því mjög eðlilegt, að þeir þiggi þá hjálp- arhönd, er þeir menn, er unna kyrkjulegu frelsi, kynnu að vilja rétta þeim. Vér birtum því hér í dag dvarp til allra kyrkjulega frjálslyndra Islendinga, sem vór höfum verið beðnir að gjöra heyrum kunnugt. f>að er svo látandi: tFríkyrkjusöfnuðr Beyðfirðinga sendir landsmönnum kveðju sína. Vér höfum fundið til þess, að fyrirkomi- lag að, sem nú er á kyrkjustjórninni á ís- landi, skerðír frelsi safnaðanna, og að ekkí sé lengr við það hlítandi; fyrir því höfum vér sagt oss úr felagi við ríkiskyrkjuna og gjörzt fríkyrkjumenn. Nú eru þegar liðin 3 ár síðan við bund- umst þessu félagi, en á þeim tíma höfum vér hvorki haft prestsþjónustu nr heldr neina I) Sá bóndi, sem hsest geldr árlega til fríkyrkj- utinar, mun greiða 250 kr. árstillag. kyrkju fyrir söfnuð vorn. Ver erum hvorki margir né auðugir, en þó höfum vér nú ráðið ossprest, og fastráðið að gjöra oss kyrkju á ncestkomandi sumri. Útgjöld vor eru mikil; en hvorki þau né aðrar hindranir skulu aftra oss frá að gjörast frjáls og óháðr söfnuðr. það eru margir, er eigi slcilja fyrirtæki vort og kalla það uppreist móti landslögum, og fyrir því verðum vér mjög að mceta mót- stöðu. Eins vitum vér, að þeir eru enn fleiri, sem fríkyrkju unna, og óska henni vaxta og viðgangs. par eð þetta er fyrsta tilraunin, sem gjörð hefir verið á landi voru, til að koma á fót frjálsum söfnuði og þann veg reyna til þess að velcja ina sofandi kyrkju, þá má nœrri geta, hve örðugt oss hefir veitt, og við hve rcmman reip er að draga, þar vér höf- um að berjast við bœði vanaféstu og hleypi- dóma, er jafnan rísa öndverðir öllum nýj- ungum, hve þarfar sem eru. Er menn taka tillit til þessa, vonum vér að engiwn lineyksUst á því, þótt vér skorum á þá, sem unna viðgangs fyrirtœki voru, að þeir vildu styrkja oss með fjártillagi nokkru,. —Tökum vér þakksamlega hvað litlu sem er. —Vér höfum í hyggju að halda hlutaveltu á komandi vori til inntektar fyrir kyrkju- sjóð vorn, þó sérstaklcga til kyrkjubyggingar. Vceri oss mjög kcert, ef menn hér ncersveitis vildu senda oss muni til hlutaveltunnar. Að 'óðru leyti tökum vér með þökkum móti innskrift til Gránufélagsverzlunar eða ein- hverrar annarar verzlunar á Austurlandi; sömuleiðis ávísunum. Með beztu von til landa vorra. I sóknarnefnd frikyrkjufélags Beyðarfjarðar í marz 1884. Hans J. Beck Jónas Símnoarson á Sómastöðum. á Svínaskála. Jón Stefánsson á Sómastaðagerði“. f>að getr engum dulizt, sem ann kyrkju- legu frélsi, að enginn viðburðr hér á landi hefir fyrri fram komið jafnþýðingarmikill til að vekja af svefni bæði kyrkjustjórn og söfnuði, sem þessi hreyfing Reyðfirðinga; ekkert hefir verið gjört, sem líkt og þetta hafi þokað áfram málinu um rétt safnað- anna til sjálfstjórnar, til þess að vera ekki viljalaus jórtrdýr kyrkjustjórnarinnar. Mál- inu hefir við þennan eina atburð þokað meira áléiðis á þremur árum, en því án þess hefði annars þokað á hálfri eða heilli öld. Málið er nú á þeim rekspöl, að sigrinn er fyrirsjáanlegr; það er herzlumunrinn einn eftir. En hans þarf með. Og Reyðfirðingar hafa einir meira gjört í þessu máli, heldr en allir aðrir landsmenn til samans. f>ví er það siðferðisleg skylda vor allra, sem samdóma erum þeim og unnum þessari frelsishreyfingu, að styðja þá nú í verkinu, og að gjöra þabfljótt.—Sá styrkr, sem fljótt er veittr, er ávalt tvöfaldr styrkr. [Meira]. Blöð og blaðamenska á íslandi og í Ameríku. f>að er auðvitað, að verulega góð blöð geta ekki verið til nema hjá svo stórri þjóð, að blöðin geti verið nokkuð stór og haft svo mikla útbréiðslu, að margir geti unnið að hverju blaði fyrir sig. Engu að síðr er það víst, að blöðin til lengdar munu verða upp og niðr, eins og þjóðin á þau skilið, og ekkert er fráleitara fyrir blað, én að ætla að gjöra öllum til hæfis. f>að getr ekki guð í himnaríki gjört, hvað þá heldr svo breyskr leir, sem einn blaðamaðr. En eins og blöðin nú gerast, upp og niðr, ór það þó viðrkent af öllum þeim þjóðum, sem vita, hvað til þeirra frið- ar heyrir, að þau só eitt ið nauðsynlegasta hverri þjóð, já, hreint og beint andlegt lífsskilyrði. Hverjum augum heimsins frjálsasta þjóð og mesta framfaraþjóð, Ameríkumenn, líti ' á blöðin, má sjá t. d. af því, hversu þeir ' hlynna að blöðunum. I Bandaríkjunum eru það lög : 1. Að áskrifendr eða kaupendr að blaði skoðast framvegis sem áskrifendr, þar til þeir segja sig reglulega frá kaupinu. 2. f>ó að kaupandi segi upp blaði, er sú uppsögn ógild, nema áskrifandinn sé með öllu skuldlaus við blaðið, þegar hann segir upp kaupinu ; þangað til hann er skuldlaus, hefir útgefandi rótt á að halda áfram að senda honum blaðið, og færist kaupanda það alt til skuldar. 3. f>ó að áskrifendr eða kaupendr hætti að vitja blaðs síns á póststöð eða neiti að veita því viðtöku, þá má samt heimta borg- un af þeim fyrir blaðið framvegis þar til öll skuld þeirra er að fullu borguð, og þeir þar eftir segja blaðinu upp reglulega. 4. Breyti kaupandi blaðs heimili eða bú- stað, og skýri ekki útgefanda frá því, þá er kaupandinn skyldr að borga öll þau blöð, sem send eru á hans fyrra bústað, hvort sem þau koma nokkurn tíma honum í hendr eða ekki. 5. Með mörgum dómum er það orðið viðrkent, að «neiti maðr að taka við blaði sínu, láti vera að vitja þess eða flytji burt úr póstumdæminu, án þess að gjöra útgef. að- vart um bústaðaskifti sín, ber slíka aðferð að skoða sem tilraun til að hafa í frammi hegninga/rverða sviksemri. G. Sé manni sent blað, og haun tekr við

x

Þjóðólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.