Þjóðólfur - 05.07.1884, Side 2

Þjóðólfur - 05.07.1884, Side 2
102 gjöld oða þessleiðis, vitum vér ekki, því alt er þetta afgreitt í einni og sömu komp- unni eða básnum. Vér snérum frá, kom- um aftr ll^; enn var ómögulegt að kom- ast að; vér snérum enn frá og kom- um á ný kl. llf; sömu erindislok; loks koinurn vér í því klukkau sló 12, og enn var ösiu söin, og hurfum vér þá frá fyrir fult og alt, og tókum svo það ráð að koma pen- inga8ending vorri áleiðis utan pösts. í þetta sinn munu sumir hafa orðið að bíða yfir 2 klukkustundir, áðr en þeir fengu sig af- greidda, og víst einn maðr fékk skæting hjá póstmeistara fyrir að koma of seint með peningasending, en maðrinn hafði orðið þá að standa óafgreiddr í 2 tíma, af því að póstmeistarinn var að gegna öðrum störf- um, sem alveg eru embætti hans óviðkom- andi, svo .sem farseðlasölu, farmafgreiðslu. Til hvers er svo að skrifa um þetta ? Mundi landshöfðingi álíta sér skylt að skipta sér í nokkru af því, hversu póst- meistari rækir störf sín ? Reynslan skal nú skera úr því. En óitt er víst; alþingi ætti nú að vera það ljóst, hversu hr. Finsen vinfir til nýrr- ar launaviðbótar; því ekki er það að efa, að um hana mun hann biðja á næsta þingi, eins og vant er. það heyrir nú einu sinni til, að ómögulegt er að halda alþing, án þess að launahækkunar bæna-kveinstafr komi frá póstmeistaranum. Vor ætlun er, að það sé meiri þörf á að taka hann til bæna, en að auka laun hans. Vegleysan aó höfuðborginni. það skyldi maðr ætla, að til vegagjörðar væri hvað bezt vandað í hverju landi í ná- munda við höfuðstað landsins, en Reykjavík, mun vera undantekning 1 þessu, sem svo mörgu öðru frá öðrum höfuðborgum, og sýndist þó vera talsverð ástæða til, að halda viðunandi vegum uppi upp frá bænum. Bæði fer þar fjöldi lestamanna yfir, sem sækja að bænum og sjóplássunum þar í grend, enda er þetta inn almenni útreiðar vegr Reykvíkinga, það mundi nærri því mega segja inn almenni kyrkjuvegr þéirra á sumrin, þar sem miklu fleiri bæjarbúar sækja þá Artúnskyrkjuna heldr en dómkyrkj- una á sunnudögum. Einnig er þetta það af vegum landsins, er flestallir útlendingar sjá lang-helzt. það er vegrinn úr bænum og inn að Elliðaánum, sem hér er einkum við átt, og fellr hann í tvo kafla, annan, sem bænum til heyrir, og hinn, sem heyrir til Kjósar- og Gullbringusýslu. Bæjarkaflinn nær úr bænum og upp að vegamótunum, þar sem Hafnarfjarðarvegr skilst frá. Að stefnunni á bœjarkaflanum, eða því, hvar hann er lagðr, er ekkert að finna, en hitt er fráleitt, að vegkafla þess- um skuli ekki vera við haldið í nokkurn- veginn færu ástandi ; en þetta er ekki gjört; undir eins og kemr upp fyrir hegningar- húsið skortir ofaníburð í veginu ; hnökr- grjótið í undirlaginu er því hvervotna kom- ið upp úr og ægir þar hrossum og fótgang- andi með hálsbrotsbyltum. Um kaflann frá Hafnarfjarðarvegi og upp undir árnar er það að segja, að hann er bæði í hneykslan- legu ástandi, enda er hann og lagðr mjög óhöndulega að stefnunni til; því að þar sem hann nú @r, verðr viðhaldskostnaðr marg- falt meiri á honum, heldr en ef hann væri lagðr á réttum stað, og þar að auki verðr honum aldrei viðhaldið svo í lagi sé, þar sem hann er. þegar Reykjavíkrkaflinn af veg- inum var lagðr, var það vitanlega tilgangr- inn að áframhald hans skyldi lagt verða inn melhrygginn inn að Mjóumýri svo kall- aðri, yfir mýrina, sem auðvitað þyrfti að brúa, en hún liggr hátt, og þar innar af mætti halda melhryggnum inn að Bústöð- um. Með því að leggja veginn þannig, sleppa menn við Háaleitisklifið og ina minnisverðu brú á slakkanum hérna meg- in við það. í stað þess, að leggja vegiun þannig, sem er langkostnaðarminst eins og vegrinn yrði þá og betri og ódýrra að við halda honum, þá við heldr nú sýslunefndin með lélegri ruðningu gamla veginum, sem nú liggr svo, að krókr hefir verið gjörðr á hann til hægri handar fyrir innan Hafnar- fjarðarvegamótin, svoað hægt væri aðfylgja slakkanum niðrí bleytunni og forinni. það þyrfti að vinda bráðan bug að því að gjöra eitthvað við þennan veg allan, bæði bæjarkaflann og sýslukaflann, og ætti helzt að byrja þegar í vikunni nú eftir helgina, ef nokkurt lið á að verða á annað borð að slíkri aðgjörð í sumar. Nú er líkaalment atvinnu- jleysi hér og auðgefið að fá ódýran vinnu- kraft, en hins vegar sjálfsagt góðverk og sið- ferðislegt skylduverk, að veita fátæku fóiki þá atvinnu, sem unt er, í þéssari vandræða- tíð, þar sem slíkt nauðsynjaverk er fyrir hendi, sem óhjákvæmilega þarf að vinna,— Oskandi væri, að sýslunefndin hefði nú þá umsjón á sínum vegkafla, ef hann verðr lagðr um, að hann vérði betr af hendi leystr, en ið svo nefnda »Löggjafa-skeið« (hérna megin í Kópavogs-hálsi). ReykjavíU, 5. júli’ 1884. — „Camoens11. Hans feröa-áœtlun er nú breytt svo, aö fyrstu tvær ferö. ern öbreyttar, en Ame- ríku-feröin fellr niör.; Camoens fer því frá Bvík 14. þ. m. og kemr til Granton 18.; þaöan aftr 22. þ. m.; kemr hér 26.; fer héöan 31. til Eskifjarö- ar; þaöan 2. ágúst, til Granton 6.; þaöan 9. á- gúst, kemr til Sauðárkróks 13., Akreyrar 13., þaöan 16., kemr til Granton 20. ág.; þaöan 23. ág., til Rvíli 27.; héðan 2. sc.pt., til Granton 6. — Veatrfarar fóru héöan 28. f. rn. meö „Ca- mo'éns“ urn 30 („Allan-línu farþegar). Með „Romny“ fóru framt aö 20 (“Anchor“-l. farþ.). — Yeitt brauð : Arnes 28. f. m. sóra Eyjólfi Jónssyní á Mosfelli. — Landlæiínik vor fór til Ilafnar nú, til að vera á læknafundi, er halda skal um miðjan næsta mán. L>r. med. Jonas Junas- sen settr landlæknir á meðan. Læknir þorgr. Johnsan á Akreyri einnig sigldr til Hafnar á sama fund. — Próf í forspjallsvísindum 28. f. m. tóku pretslingarnir : Jón Jónsson frá Hlíðarhúsum (41/,) og Ólafr Ólafsson (5); svo og læknfrœðinemarn- ir: Oddr Jónsson (fc), Friðrik Jónsson, Stef. Gíslason (5) og Ólafr Guðmundsson (42/s). — ötskrifaðir úr latfniiskðlanum 27 stúdentar í dag. Kinkunnirnar eigi kunnar enn. — G-ufuskúta, 100 lesta, koiu í gær til Weid- tiersverzlunar (G. Briein) og tekr. hesta; hafði skákað Eggerti Gunnarssyni upp í Stykkishólmi með einhvern vöruslatta. AUGLÝSINGAR samfeldu máli m. smáletri kosla 2 a. (þakkaráv. 3a.) hvert orá 15 slafa frekas^ m. ðBru lalri e5a setning 1 kr. íjrir (ramÍMj dálks-lengdar. Borgun át í hönd Hér með bið ég fjárhaldsmenn skúlapilta, að sœkja um ölmusur 0. s. fr. fyrir þá fyr- ir miðjan jvlímánuð. 22qv.] 3/7 84. Jón þorkelsson. Herbergi til ielgu. Prj'ðiavönduð horbergi með vönduðum húsbúnaði eru til leigu fyrir einhleypa menn, sum fyrir lengri tíma, sum um 2 mánaða tíma. Somja má við kaupmann Matth. Johannessen. [225r. Frá Félagsgarði við lieyk'avík heflr tap- azt 28/6 84 rauðr heslr vakr með mark: biti aftan bæði, aljárnaðr með sexboruð- um flatjárnum nýjum undir framfótum, afrakaðr, taglskeltr, vottar fyrir stjörnu í enni, 8 vetra garnall. Hver sem þennan hest hittir, er vinsamlega beðinn að halda til skila til Guðna Guðnasonar, Keldum í Mosfelssveit mót endrgjaldi. 226*] Jón Jðnsson frá Arabœ. S e rn e n t (bezta Portland-) til sölu, 12 kr. tn. móti borgun út í hönd í peningum. M. Smitlis verzlun. 227*] J. O. V. Jónsson. Járngrindr utan um grafreit, 3'/,, x 4‘/2 al. fæst hjá undirskrifuðum með vægu verði. M. Smiths verzlun. 228*] J- O. V. Jónsson. Grár hestr, óaffextr, ójárnaðr, vakr, 10 vetra gamall, mark: standfjöðr aft. hægra, heíir tapazt frá mér. Enn fremr rauðum hesti, fjögra eða fimm vetragömlum, heldr mögrum. þessum hesti veit óg eigi mark á, óg keypti hann fyrir fá- um dögum, en spurði seljandann eigi um, hvaðan hestrinn væri, (eg held hann hafi verið úr Biskupstungum). Vil ég því biðja þann, er seldimór gripinn, svo vel gjöra, og láta mér í tó þær upplýsingar.sem hann getr, um mark á téðumj hesti.—Hvern er finna kynni ofanritaða hesta,bið ég að koma þeim til mín ið fyrsta. Reykjavík 3. júli 1884. 231 !:J G. Zocga.

x

Þjóðólfur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.