Þjóðólfur - 11.10.1884, Blaðsíða 3

Þjóðólfur - 11.10.1884, Blaðsíða 3
155 Danmerkr ríði í bága hvorir við aðra. —' Stjórnin hefir þverneitað lögum aftr og aftr, j sem ekki hafa in minstu áhrif á hagsmuni. Danmerkr, eingöngu af því, að »vér einiw | (þ. e. ráðgjafinn, sem ekkert þekkir hér til og ekki skilr orð í máli voru) »vitum«, hvað Islandi hentar, betr en alþingi þjóðarinnar. 2. að þjóðin hefir engan veg til að fá vilja sínum framgengt gegn einþykni óvitrs og ein- þykks ráðgj af a, eins og st j órnarskrá vor nú er. 3. að eini vegrinn til þess, að þjóðin fái að njóta sannarlegs sjálfsforræðis í löggjöf sinni, er sá, að tryggja henni þetta í stjórn- arskránni, rneð því að takmarka neitunar- valdið. Úr því nú að þeir, sem mæltu móti tak- mörkun neitunarvaldsins sem stjórnarskrdr- ákvörðun 1850, gjörðu þetta af þeim einum ástæðum, að sjálfra þeirra sögn, að þeim þótti nfyrst og fremst ólíklegt« að konungr mundi vilja »þverneita vilja þjóðarinnar«, og þarnæst af því, að þjóðin (þingið) gæti »gjört konungi ina algjörðu neitun ómögulega« með því að neita skattgjaldi;—og úr því að reynslan hefir sýnt, að báðar þessar ástæð- ur hafa brugðizt------þá virðist nú að mega ganga að því vísu, að þeir inir sömu, og þá sér í lagi inir nú verandi þingmenn Dala- manna og Reykvíkinga, hljóti nú að viðr- kenna, að nauðsyn beri til að takmarka í stjórnarskránni neitunarvald konungs, einmitt samkvæmt þeirra eigin orðum og skoðunum 1850, svo framarlega sem þeir hafa sömu skoðun enn á því, að ófært sé að konungr hafi að engu vilja þings og þjóðar í löggjafarmálum. Við fáum nú að sjá á þingi næsta sumar, hvort þessir menn •— hvort þjóðin í heild sinni er söm nú, sem fyrrum; hvort henni hefir farið fram eða aftr í sjálfsforræðis- áhuga síðan 1850. LX. Hitt og f>etta. Gömul íslands-lýsing. 1598 kom út í JBasel bók eftir Sebastian Mun- ster. Titill hennar er þannig: Cosmographey: das ist Besclireibung Aller Lander, Herrschafften vnd fiir nemesten Stetten des gan/.en Krdbodens, sampt ihren Gelegen- heiten, Eygdnschafften, Religion, Gebraiichen, Geschichten und Handtierungen durch hrn. Se- bastian Munster mit grosser Arbeit in 6 Biicher verfasset: Demnacli an Welt vnd Naturlichen Historien durch ihne selbs [sic] gebessert. Jetzt aber mit allerley Gédechtnuswirdigen Sachen ins MDXCVIIX jar gemehret. Getruckt zu Basel. í'yrirsögn þessa kapítula er: „Eisz oder Isz- landt. Cap. XXXV". — Bókin er fjarska sjald- gæf; eitt eintak hennar er til á landsbóka- safninu. I r »þessi eyja, Island, hefir nafn sitt af in- j um mikla kulda, sem þar er, með því að ís er þar þvf nær árið um kring. Skjald- • merki eyjar þessarar er krýndr fiskr. Hún ! er tvöfalt stærri en Sikiley. þar eru 3 há fjöll, sem að ofan eru þakin eilífum snjó, en niðri í þeim hverar af brennisteinseldi (mit sehwefelige Feuer). Nöfn þeirra eru Hecla, Krossfjall (Kreuszberg od’ Creutzberg), Helga. í Heklufjalli er gjá mikil, er aldrei verðr könnuð; og þar sjást oft þeir menn, er nýlega hafa druknað, eins og væri þeir lifandi; en er vinir þeirra biðja þá að koma heim, segja þeir, og stynja þungan, að þeir verði að fara í Heklu, og hverfa af stundu. Margt furðulegt finst í landi þessu, og skal ég til telja nokkuð. |>ar eru stórir, hvltir og illilegir birnir, er brjóta með hrömmunum gat á ísinn niðr í vatnið, grípa síðan fiska upp um það og éta þá. f>ar er brunnr einn, er gufar upp úr (ein dempfiger Brunn), er breytir hverjum hlut í stein, er gufa hans snertir. A vissum mánuðum kemr ár hvert mjög mikill ís að eyjunni, ogerhann rekr sig í og á kletta og standberg, heyrast skruðn- ingar og drunur, líkt og mannsvein heyrðust úr skýjum ofan, og hafa margir fáráðlingar ætlað, að það væri óp sálna þeirra, er pínast þar í hreinsunareldinum (Fegfeuer) og kvelj- ast þár í afarkuldanum. I átta mánuði er ísinn umhverfis eyjuna. A eyju þessari er svo mikill fiskr, að menn hlaða honum í stakka undir berum himni, jafnháa íveru- húsunum, því að menn lifa þar mjög á fiski, af því þeir hafa ekki korn, nema það, er þeim er flutt úr sjóstöðunum (von den Sée- stetten). Vín frá Spáni kemr og á þessi norðrskautalönd, og gegn slíku víni og korni flytja kaupmenn út fisk með miklum ábata. Menn gjöra og á eyjunni svo mikið smér úr fénu, að ótrúlegt er að heyra, því að svo er þar góð hagbeit, að menn verða að reka féð úr högunum, ef menn vilja eigi að það oféti sig og springi. By þessi liggr undir Noregskrúnu, og af því að konungsríkið Noregr er innlimað (verwachsen) í konungs- ríkið Danmörku, lýtr Island og undir þetta konungdæmi«. Spiritus asper. Reykjavík, II. október. Heimkomnir vestrfarar. Með strand- ferðaskipinu komuí f. m. til Sauðárkróks nokkrir vestrfarar alfarnir heim hingað aftr; nafnkendastr þeirra er Sveinn bóndi í Sölva- nési, er sigldi í fyrra. [«ísafold]. Manntjón af slysförum. í aftaka- veðrinu fimtudag 11. f. m. fórust 2 brœðr, ungir piltar, af bát í fiskiróðri frá Höfða á Höfðaströnd, einkasynir ekkju þar. Tveir menn er sagt að hafi drukknað í inum mikla þilskipafaraldi í þessu sama veðri við Eyjafjörð. Tala þilskipanna, sem brotnuðu, er nú sögð 40—50, þar af 3 ís- lenzk. Um miðjan f. m. drukknuðu tveir ung- lingsmenn úr Landmannahreppi í Skála- vatni, sem er eitt af inum svo nefndu Veiði- vötnum eða Fiskivötnum fyrir vestan Skaft- árjökul. þeir hétu Stefán Guðlögsson frá þúfu og Eiríkr Jónsson frá Lúnaðsholti. þeir voru þar ásamt 10 mönnum öðrum við silungsveiðar, en höfðu skift sér um vötnin, á lélegum bátum að mælt er. Bátr þessara, sem druknuðu, fannst loks rekinn á land mannlaus. Inn 10. sept. rak upp á Eyrarbakka lík af tveimr útlendum sjómönnum. Annar þeirra var að mestu leyti nakinn, en hinn nærfelt í öllum klæðum, og helzt líkr til eftir búningnum, að hefði verið annaðhvort skipstjóri eða stýrimaðr á frakknesku skipi. [«ísafold»] -— Mamialát. | I. þ. m. að Klaustr- hólum Brynjúlfr Melsted Jónsson prófasts; fœddr 23. nóv. 1857. — + í f. m. frú Regina (fædd Sivert- sen) kona séra Benedikts Kristjánssonar á Grenjaðarstað ; góð kona og vel látin. •—Möðruvallaskólínn. porvaldr Thor- oddsen dvelr erlendis í vetr með orlofi, en hr. cand. mag. Bened, Grondal er settr kennari þar í vetr í hans stað. — |>ilslíip hr. Geirs Zo'éga hafa í sumar aflað þannig: «Gylfi» (skipst. Markús Bjarnason) 288 tn., hákarls-lifrar (18 kúta mál) og 19,600 af fiski. nBeykjavíkim> (skipstj. Sig. Símonarson) hefir eingöngu verið við hákarlaveiðar, en ekki þorskveiðar; hún hefir fengið 564 tn. lifrar. Af fiskinum hafði «Gylfi» fengið ca. 10,000 á Húnaflóa, og ca. 4—5,000 á Breiðaflóa. -—Hákarlinn hafa bæði skipin aflað hér sunnanlands. — Að vestan er sagðr hákarls-afli í bezta lagi. Kvað hákarl yfir höfuð hafa geng- ið í mesta lagi að landi sunnanlands og vestan í sumar og verið venju fremr grunt. ,— Magnús þóstr kvað strokið hafa úr gæzlu af ísafirði; komst í norskt skip; hafði fengið að liggja í lestinni. — Fensmark sýslum. var farþegi á káetu. •— Veitt prestaköll. 4. þ. m. Breiðabólstaðr [ á Skógarströnd séra Eiríki Gíslasyni á Lundi. — 9. þ. ra, Borg í Borgarf. Arna Jónssyni, er útskrif. af prestaskól. í haust; tekinn fram yfir heiðvirða, gamla presta og einn prófast. — þorst. Guðmunclsson kaupm. á Akranesi. sem er og verið hefir nú í síðustu tíð geggjaðr á geðsmunum, hleypti skoti úr byssu á Hallgrím í Guðrúnarkoti og annan mann; særðist hvorugr al- varlega. þorst. er dæmdr í undirrétti í I árs betr- unarhús. •— Svo var þorsteinn vel látinn af fátæku fólki þar efra, að sagt er sumir harmi þar meira ólán hans, heldr en þótt Hallgrími hefði verið á bak að sjá.

x

Þjóðólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.