Þjóðólfur - 21.03.1885, Page 2

Þjóðólfur - 21.03.1885, Page 2
46 Fyrir skömmu hefir Grigg sjálfur haft tækifæri til að reyna meðalið. Móðir sjúkl- ingsins og 2 náskildir ættingjar höfðu dáið af blóðlátum. |>á er barnið var fætt, fjekk konan þegar mikil blóðlát, læknirinn náði fylgjunni, og gaf konunni þegar vínglas af ediki. Móðirin dróst þegár saman, en blóð- látin hættu þó eigi algjört; eptir lð mín- útur gaf hann konunni aptur hátt í vín- glasi af ediki og hættn blóðlátin þá fyrir fullt og allt, og allt gekk vel í sængurleg- unni. I bæði skiptin var edikið gefið ó- blandað. G. ætlar að edik verki svo fljótt, að eigi sje ráðlegt að gefa það fyrri en fylgj- an er fædd. (Bptir »Hospitalstidende 13. febr. 1884). Skyldi það sannnst, að meðal þetta á- vallt verki svo fijótt og vel, ættu allar yfir- setukonur að hafa það með sjer, þá er þeirra er vitjað til sængurkvenna. Vestmannaeyjum 11. marz 1885. porsteinn Jónsson. Útlendar frjettir, I. (Eftir ,,ísaf.“) Khöfn 27. febr. 1885. D anmör k. Ótíðin sama á þinginu, og hamingjan má vita, hvað í garðinn kemst. Taðan — eða fjárhagslögin — liggja enn í breiðu, [tvírifjuð af fólksdeildinni, en litlar líkur til að hinni déildinni þyki hún hirð- andi, þegar saman er tekið eptir þriðju rifj- un. Hefir rýrzt heldur í meðferðinni — 7 miljónir króna dregnar úr útgjöldunum ! Og töðugjöldin? Líkast til ný valdboðin fjár- hagslög með samþykki landsdeildarinnar. þetta hafa sum hægri blöðin lengi boðað, og nú þykir mönnum sem að jeli syrti. Fyrir nokkrum dögum lagði Bstrúp frum- varp fram fyrir fólksdeildina, fjárlög til bráðabyrgða (fyrir apríl), því hann þóttist mega gera ráð fyrir, að höfuðáætlunin mundi vart búin frá þinginu í tækan tíma, þ. e. fyri 1. apríl. Frumvarpið var með 'öðru sniði en vant er, en stjórnin beiddist að mega (í apríl) héimta afgjöld og skatta, og gegna útsvari til almennra og nauðsynlegra ríkisþarfa, samkvæmt hinum framlögðu fjár- hagslögum, en taka þœr breytingar til greina, sem báðum deildum hefði komið saman um. Vita má, að vinstrimenn ygldust skjótt við þessa nýjung, og af henni reis þriggja daga rimma í fólksþinginu, sú snarpasta, sem lengi hefir háð verið. Holstein frá Hleiðru, Monrad, Hörup og fl. kölluðu hjer beint farið fram á ríkislagabrot; það yrði allt nauðsynjaframlögur, sem stjórnin segði svo vera, en hitt mætti í hendi sjá, að lands- deildin fjellist ekki á ;þær breytingar, sem mestu sættu. þeir sögðu, að Estrúp hefði ekki átt að hafa þessar vífilengjur, hann hefði eins vel getað lýst fólksdeildina heim- ildarlausa til fjárveitinga. Monrad gamli tvítók í gremju sinni, að «valdboðsdækjan« (den provisoriske Töite) væri auðsjáanlega að freista Estrúps, og þá væri illa, ef svo sómasamlegur maður fjelli á brögðum henn- ar. Engum líkuðu svör Estrúps, því hann skoraðist þar undan, sem menn heimtuðu hrein skil og bein. Annar af fulltrúum sósíalista, Hördum, hafði heldur í heiting- um við stjórnina seinasta daginn. það væri hægt að sjá, kvað hann, að nú ætti ofbeldinu að beita. Hann bað stjórnina að vara sig ; hún kynni að treysta á byssu- stingina, en þeim kynni þó í svip að verða öfugt otað.—Fæstir búastnú við að undan verði látið. »Dregst að því sem verða vill«, segja allir, og hitt flestir, að það verði: valdboðin fjárhagslög og ráðaneyti Estrúps þingstutt af landsdeildinni. Hvað hjer ræt- ist verður reyndin að ýna. Látinn er I. P. Trap, konferenzráð (»Ge- heimek.«), fyrrum skrifari hjá Friðr. 7. og síðar hjá Kristj. 9. Hann fylgdi konungi til Islands 1874. Eptir hann er hin al- kennda «Lýsing Danmerkur« í 6 bindum. E ng l an d. þaðan kveður nú mest að tíðindum, þó ill sjeu. Borgin Khartum, sem Gordon hafði varið svo lengi, svikin falsspámanninum í hendur, og hetjan fræga, Gordon, drepinn. Bágt mun að verja, að Gladstone og hans ráðaneyti hafi slóðrað heldur um liðsend- inguna, þó opt væri ámálgað um að henni skyldi hraða sem mest. Fremstu sveitirn- ar af liði Englendinga áttu 30 mílur að Khar- tum, þegar þau tíðindi urðu, að eiun af sveitarforingjum, hinum egipzku(?), Faragh pasja að nafni, lauk um nótt borgarhliðum upp fyrir liði falsspámannsins og hleypti því inn í borgina 26. janúar. Gordon á að hafa skundað út á strætin við annan mann, er hann heyrði til óláts anna, en var höggvinn til bana eða lagð- ur, er hann var vart kominn út úr hallar- dyrunum. Englendingar játa, að hjer sje fyrir mikið að bæta, og mikils að hefna, og enginn ef- ast um að þeir muni rjetta hluta sinn í Sú- dan og á Egiptalandi til fullnaðar. En þó kann hjer bið á að verða, og mikils verður nú til að kosta. Yjer skulum reyna til í stuttu máli að átta menn á þvf, er gerzt hefir, og hvern- ig nú horfist á. Frá Dongóla í Núbfu eða Kortí, nokkuð sunnar, skyldi sótt suður að tveimur leið- um : upp eptir Níl á skipum með vistir og aðra flutninga, og yfir þau öræfi, sem Bayú- da heita, að bænum Matammeh við fljótið. Að Kortí rennur Níl úr langri lykkju að norðan. þá lykkju hlaut skipaliðið að leggja á leið sína. Fyrir því var hershöfðingi Earle að nafni, en fyrir öræfaliðið setti Vol- seley lávarður, yfirforingi hersins, Stewart hershöfðingja. Báðir áttu þrautaleiðir fyrir höndum. Öræfaleiðin 40 mílur, hin helmingi lengri að Matammeh, en þaðan greiðfærra eptir ánni, er fossum og gljúfrum var lokið. Oræfin sóttust skjótt og fyrirstöðulítið, en hitinn mikill og vatnsþurð hin mesta. Fjór- ar eða fimm mílur frá Matammeh eru brunnar, þar sem Abu Klea heitir. Hjer voru fyrir 10,000 af liði spámannsins. Ste- wart hafði síns líðs 1500. Hjer sló í bardaga 17. janúar, harðan og grimman, áður Súdansmenn hrukku und- an. Höfðu misst 1200 mafina. Hjér Ijet- uat af Englendingum 9 fyrirliðar og 74 hermenn, en 85 urðu særðir. A meðal fallinna var Burnaby yfirliði, frægur af ferðum sfnum í Asíu (til Chiva) og áræðis- afrekum. Stewart heldur áfram austur að Nfl, og tæpa mílu frá bænum koma þaðan drjúgar sveitir til móts við hann. Nýr bardagi 19. jan., og fór hjer á sömu leið. Tveir fyrir- liðar falla og 19 hermenn af Englendingum. Særðir 84 og einn af þeim er Stewart sjálf- ur. Hann er nú dauður af sárum sínurn. Sá hershöfðingi heitir Wilson, sem tók við forustunni. Hann hjelt að þorpi skammt fyrir sunnan Matammeh, sem Gubat heitir. Bæinn tréysti hann sjer ekki til að sækja við svo lítinn liðskost. A ánni við þorpið hitti hann byrðinga frá Khartum með korn og aðrar vistir, og sögðu þeir sem með fóru, Egiptar, að þetta vœri sending frá Gordon til enska hersins, en annars öll hin vildustu tíðindi frá Khartum. Wilson ræðst nú suð- ur á tveimur skipum og vill taka höndum saman við Gordon, en er hann kemur f nánd við Khartum, fær hann aðrar kveðjuf en hann átti von á, og heyrði hver umskipti voru orðin. Hann hverfur nú aptur sem skjótast 5. febrúar og kemst undan með ill- an leik norður að Gúbat. Hjeðan er nú allt á apturleið snúið yfir öræfin og til Kortí. Sagt að falsspámaðurinn sæki að sunn- an með 50 þúsundir hermanna og góðan vopnakost. það er af Earle að segja, að hann sótti upp eptir vestri álmu árlykkjunnar, en nokk- uð suður frábæ, er Abu Hamed heitir, lilaut hann að sækja fjölskipaðar sveitir Súdans- manna, og fjell sjálfur í orustunni. Sigur fengu Englendingar hjer sem á öðrum stöð- um, og menn hinna lágu þar í val hrönnum saman.

x

Þjóðólfur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.