Þjóðólfur - 21.03.1885, Blaðsíða 3

Þjóðólfur - 21.03.1885, Blaðsíða 3
47 Menn ætla að Wolseley kveðji líka aptur skipaliðið til Dóbbeh, nokkuð vestur frá Kortí, eða annara stöðva, þar sem hann vill láta búa um sig og halda kyrru fyrir unz það lið kemur, sem nú er á leiðinni frá Englandi. Yera má, að höfuðsóknin byrji ekki fyr en að loknu surnri, en talað um, að her Englendinga komi þá úr tveim áttum, að norðan og austan. Onnur stöð þeirra er í Suakin við Rauðahaf, og þangað verður sent lið frá Indlandi og Astralíu/ Sagt er, að fyrst eigi að reka þaðan Osman Digma, sem liggur þar í umsát, én síðan leggja járnbraut yfir eyðimerkurnar vestur að Ber- ber, 20 mílur norður frá Matammeh. Hjer munu svo herstraumarnir eiga að mætast. Viðureign á þingi fyrir hendi, og nokkuð tvísýnt um, hvort Gladstone tekst að reka áhlaupið af höndum sjer. Eyrir nokkru höfðu Feníar ný sprenginga- ráð með höndum. Hinn 25. janúar gaus tundurvjel, sem þeir höfðu komið af sjer í Tower í Lundúnum, höllinni gömlu, þar sem rfkisdjásnin eru geymd, og söfn af öllu tagi. Hjer lemstruðust eitthvað um 27 menn. Sama dag sprungu tvær vjelar í Westmin- ster, samnefndri höll, og þinghúsinu mikla (parlamentshöllinni), sem við hana er áfast. Sprengivjelin í höllinni gaus þrem mínútum fyr en hin, og við þann hvell þustu þeir út úr fulltrúastofunni (neðri málstofunni), sem þar voru staddir. Af því leiddi, að síð- ara gosið varð svo fáum að meini, en mundi ella hafa valdið margra manna bana. Sú vjel var lögð undir sæti Parnells, þingskör- ungsins írska. Gluggar allir sprungu, og gólfið sömuleiðis, en sætin öll brotin og brömluð. Tveir menn eru höndlaðir, sem heita Gunningham og Burton. Menn gruna sjer í lagi Cunningham, og að honum hafa böndin borizt um sprenginguna á undirbraut- inni í fyrra. Feníar senda ýmsum embætt- ismönnum brjef, og hafa í heitingum, að meira skuli af hljótast næstu tilraun þeirra. Frahkland. Við deildarkosningarnar til öldungaráðsins vann þjóðveldið góðan sigur, er tala þjóðveldissinna óx um 24. Af 87 náðu að eins 20 kosningu úr hinna liði. Prökkum vegnar vel eystra á móti Sín- lendingum. Ipeir hafa náð fastari tökum á eynni Formósu og rekið Sínlendinga frá Langson og öðrurn kastala við landamæri Tonkins. Kalla landið nú hreinsað að naestu. Courbet, aðmíráll Frakka, kom flota Sín- lendinga nokkuð á óvart á höfninni við Sjeipó, og gat sökkt tveimur skipurn þeirra rneð aðsókn sprengibáta. Á annari frei- gátunni voru 600 manna, á hinni 150. Italia. ítalir kornust yfir vík og bæ við Rauðahaf, sem Assab heitir. í haust eða í sumar leið var unnið á ítölskum mönnum til bana á þeim stöðum. þ>etta hafa þeir haft til saka, og lagt fleiri bæi undir sig. Massóvat er einn bærinn, sem þeir hafa tekið hervaldi, án þess að gefa nokkurn gaum að mótmælum hinna tyrk- nesku yfirvalda. Hvað þeir ætla meira að vinna, vita menn ekki, en allmikið lið, 3200 manna, er þegar komið til þeirra stranda. Mælt er, að þeir hafi hugað til bandalags eða fulltingis við Englendinga þar syðra, en að hinir hafi mælzt undan, þegar ófarirnar heyrðust frá Khartum, og að þeir yrðu ein- ir að rjetta hlut sæmdar sinnar. pý zkaland. Alríkisþingið situr nú við toll-lagabreytingar, og gengur það flest fram, sem Bismarck vill. Drjúgur tollur lagður á aðflutt korn og fleiri vörur. Grannar |>jóð- verja og fleiri lönd segjast verða að taka þetta eptir, að minnsta kosti þar sem |>ýzkaland á í hlut. Fyrir skörungsskap og atfylgi Bismarcks eru málin á Kongófundinu til lykta leidd, og svo, að flóstum mun líka. Lönd Kongó- fjelagsins eru gerð að ríki sjer—konungs- ríki, segja blöðin sem bezt þykjast vita—, og mun Belgíukonungur ætlaður til höfð- ingja. Yfirstjórnin verður að minnsta kosti íBryssel, en umboðsstjórnin þar syðra í höndum landstjóra. Menn ætla, að Stan- ley verði það embætti á hendur falið. Skotlandi 7. marz 1885. Út af hinum hraparlegu tíðindum frá Súdan : falli Gordons o. s. frv., tóku þeir sig til, andvígismenn Gladstones í parla- mentinu, og báru þar fram tillögu um að þingið lýsti yfir því, að það hefði ótrú á hon- um og sessunautum hans í ráðaneytinu. Eptir margra daga rimmu urðu þau mála- lok, að tillagan var felld í néðri deildinni 27. f. m., með 302 atkv. gegn 288, en sam- þykkt í lávarðadeildinni með 189 atkv. gegn 68. Gladstone átti ráðstefnu viðjsessu- nauta sina daginn eptir, og var það að ráði gert, að hyggja ekki á annað en standa við stýri jafnt sem áður, til hausts að minnsta kosti, en þá eru ráðgerðar nýjar kosningar. jpetta þykir vel ráðið flestum nema Tory- mönnum og Parnells-liðum. Frá Súdan engin ný týðindi. Englend- ingar búast við að geta þar ekkert að hafzt nii í þrjá mánuði, fyrir hita sakir. Yms ný- lenduríki Breta, þar á meðal Kanadamenn í Vesturheimi, liafa boðið þeim ótilkvaddir liðskost nokkurn á sjálfs síns kostnað í hern- aðinn í Súdan, og þykir það drengskap- arbragð. Viðsjár nokkrar með Bretum og Rússum austur í Asíu. Hafa Rússar gengið fyrir skömmu heldur nær Afgönum, skjólstæðing- um Breta, og spá sumir, að þeir ætli að sæta því færi, að Bretar eiga í þessum kröggum íxSúdan. Fjörutíu manna týndu lífi í kolanámueldi nærri Newcastle 2. þ. m. Rvik, 2o. marz. Skipskaði. Pyrir síðustu mánaðamót fórst bátr með 4 mönnum á frá Hnífsdal (við Skut- ulsfjörð). Pormaðr Halldór Sigurðsson. Allir mennirnir inir nýtustu. Fjárskaðar urðu ujn sama leyti talsvei'ðir: frá Skjaldfönn (Langadalsströnd) fórst 120 fjár í Selá;á Nesi í Grunnavík fórustísjó 23 sauð- kindr (af 25, sem als höfðu til verið á bænum). Mannskaði. Tveir menn (unglingspiltar) frá Hraundal (næsta bæ við Skjaldfönn) urðu úti um sama leyti. Lagís mikill á ísafirði. Riðið yfir Reykjar- fjörð þveran og ísafjörð (úr Ögri í Vatnsfjörð og þaðan beint að Arngerðareyri). Isalög á Breiðafirði svo, að riða máttí úr Dagverðarnesi beint i Stykkishólm. Vetrarfar segir ísaf. með strangasta móti á Vestrlandi; sífelt fjúk og frosthörkur. Allar skepnur á gjöf frá jólaföstukomu. — Bbennisteinsfélagið enska ér nú loks- ins alveg komið á kúpuna og búið að vera. Umboðsmaðr þess P. G. Johnson fer nú héðan með póstskipinu. Hr. Johnston fer héðan með lofsorði allra, sem hafa kynzt honum — Wiedners-félagid, sem verzlað hefir í Glasgow hér í bænum, er nú, eins og vér spáðum í haust, farið alls holdsins veg og hættir verzlun þess hér í vor. »Svo fór um sjóferð þá!« — látin er í Ameríku húsfreyja Ólavía Ólafsdóttir, kona Bjarnar Pjetrssonar fyrr- um alþingismanns. Hún var dóttir séra Ólafs Indriðasonar á Kolfreyjustað og fyrri konu ,hans, alsystir Páls Ólafssonar um- boðsm. og hálfsystir Jóns Ólafssonar rit- stjóra. — Capt. john coghill kom nú með póst- skipinu og ætlar að vanda að kaupa hér í sumar komandi hesta og fé. Skips væntir hann líkl. ekki fyrri en í júní. Allir þekkja gamla manninn og vita, að hann kemr alt af með gullið í lófanum, en er ekki að kría út gripi »upp á krít«. Við hann er því ávalt óhultast að verzla. — Húnavatnssýslu (Vatnsdal) 2. marz: Tíðarfar hér í Húnavatnssýslu má alt af í vetr heita ið bezta; þótt norðanátt og harð- viðri hafi gengið allan næstl. mánuð, þá hafa samt hvervetna verið góðar jarðir og eru enn þá; en sjálfsagt er beit létt, þar sem jörð hefir verið auð og snjólaus mest- an hlut vetrarins. Víða mjög, eða víðast, ganga hross (einkum stóð) úti gjaflaus, og eru þó yfir höfuð í bezta standi. Eftir öll

x

Þjóðólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.