Þjóðólfur - 11.04.1885, Blaðsíða 4

Þjóðólfur - 11.04.1885, Blaðsíða 4
60 alþm. Thorsteinsson af ísaf. og fer aftr með því. — Aflaleysi að frétta af Isaf. Veðrátta. Otíð um alt land fram að páskum að því er frézt hefir. Síðan er brugðið hér til batnaðar: Sólskin með þíðu á daginn, úrkomulaust, en frost á nóttunni, -—• Ástandið austanfjalls sára- báglegt, heyleysi um austrsýslurnar all- ar meira og minna; menn farnir að skera af heyjum og fénaðr enda að hrökka upp af í hor. Aílabrögð. Hér innra verðr ekki vart við neina skepnu úr sjó, nema allgóð hrognkelsaveiði síðan páska. Yzt í Garðsjó hafa þeir aflað vel, sem hafa leitað (komnir nú 3. hundr. hlutir hæst). En almenningr syðra aflar sáralitið, pó virðist hafa fiskast almennara i Garð- sjó öllum eftir páskana. — Austanfjalls hefir langvarandi gæftaleysi hindrað sjósókn. Snjóflóð og manntjón. Á Seyðis- firði eystra vildi hryggilegr atburðr til á Öskudaginn (18. febr.). — í bréfi af Seyðisf. segir svo : „ 18. febr. kom ótta- legt snjóflóð á Ölduna1 og eyðilagði gjörsamlega 15 íbúðarhús, drap 24 menn og limlesti og skaðaði fjölda marga [12 sagðir beinbrotnir]. Af þeim, sem þar dóu má nefna Markiís Johnsen (Ás- mundarson) apothekara ; þar fór apo- thekið2 með öllu, svo ekki er ein spíta uppi standandi; þar ljezt Valdimar Blöndal (þorláksson) verzlunarmaðr og Davíð Petersen verzlunarstjóri og Geir- mundr Guðmundsson verzlunarm.3 þau bágindi og eymd, sem af þessu leiðir, er ósegjanlegt; allir þeir, sem af kom- ust og húsin áttu eru eignalausir að öllu; húsin með því, sem í þeim var, var þeirra aleiga. En ekki ein spíta í þeim heil, heldr mestr partr jafnvel kominn í sjóinn ; því öllu spyrnti möl- brotnu út í hann. 10 lík eru fundin, en 14 eru ófundin ; en líkl. finst alt á endanum þegar hlánar, því fólkið liggr á kafi í rústunum ; í rústunum hafa þeir allir fundizt, sem fundnir eru. Markús fanst stax, því rúm hans stóð kyrt, en öll yfirbyggingin hafði fallið ofan á hann og hefir deytt hann á einu augna- bliki. Sama útlit er um alla, sem fundn- ir eru, að þeir hafi dáið pegar í stað“. 1) S.o nefnist inn eiginl. Seyðisfj.verzlunarstaðr fyrir fjarðarbotni, gagnstætt (Vestdals-)Eyrinni ut- ar norðan fram með firðinnm. 2) ^>að var í húsi, er „Vingólfu nefndist og átt hafði áðr Gísli lónsson gullsmiðr. i) þessir allir þrír munu verið hafa við norsku verzluniná. Skipakomur. í gær kom hingað skipið „Njáll“ (skipstjóri Christensen) eftir 15 daga ferð frá Kaupmannahöfn með ýmsar nauðsynjavörur til Geirs kaupmanns Zoéga. — í dag kom hingað skipið „Jo- hanne“ (skipstjóri Nissen) frá Kaupm,- höfn með vörur til Brydes-verzlunar. — Með skipinu „Njáli“ barst sú fregn, að dauðr er Oddgeir Stephensen etazráð, forstjóri íslenzku stjórnardeild- arinnar i Kaupmannaþöfn.—Ekki klæð- ist ísland í sekk og ösku við fráfall hans. IírauðsiYCÍtingar. 8. þ. m. Mosfell í Grímsnesi veitt sira Stefáni Stephen- sen á Ólafsvöllum. Aðrir sóttu eigi. S. d. Desjarmjri í Norðr-Múlasýslu veitt síra Einari Vigfússyni í Fjallaþing- um. Aðrir sóttu eigi. AUGLÝSINGAR í samfeldu máli 111. smálelri kosta 2 a, (þakkaráv. 3a.) hverl orð 15 stala frekasl «1. öðra letri eða setning 1 kr. þrir þumlung dálks-lengdar. Borgun úti hönd, Næstliðið haust var mér dregið hvítt tamh með blaðstýft aftan vinstra, enn þar ég á það ekki, bið eg eigandann að gefa sig fram og semja við mig nm markið fyrir næstu fardaga 1885. Guömundur Jónsson á Bóli í Biskupstungum. ' [114* Til athugunar. Vjer undirskrifaðir álítum það skyldu vora að biðja almenning gjalda varhuga við hinum mörgu og vondir eptirlíkingum á Brama-lífs- elixír hra. Mansfeld-Búllner & Lassens, sem fjöldi fjárhuga kaupmanna hefir á boðstólum; þykir oss því meiri ástæða til þessarar aðvörunar, sem margir af eptirhermum þessum gera sjer allt far um að líkja eptir einkennismiðanum á egta glösunum, en efnið i glösum þeirra er ekki Brama-lífs-elixír. Vjer höfum um tangan tíma reynt Brama-lífs-elixír, og reynzt hann vel, til þess að greiða fyrir meltingunni, og til þess að lækna margskonar magaveikindi, og getum því mælt með honum sem sannarlega heilsusömum bitter. Oss þykir það uggsamt, að þossar óegta eptirlíkingar eigi lof það skilið, sem frumsemjendurnir veita þeim, úr því að þeir verða að prýða þær með nafni og einkenn- ismiða alþekktrar vöru til þess að þær gangi út. Harboöre ved Lemvig. ■Jens Christian Knopper. Thomas Stausholm,. C. P. Sandsgaard. Laust Brunn. Niels Chr. Jensen. Ove Henrik Bruun. Kr. Smed Itönland. I. S. Jensen. Gregers Kirlc. L. Dahlgaard Kokkcnsberg. N. C. Bruun. 1. P. Emtkjer. K. S. Kirk. Mads Sögaard. I. C. Paulsen. L. Lassen. Laust, Chr. Christensen. Chr. Sörenscn. 93r.] N. B. Nielsen. N. E. Nörby. Til almeimings ! Læknisaðvörun. |>ess hefir verið óskað, að ég segði álit mitt um „bitter-essents'1, sem hr. C. A. Nissen hefir búið til og nýlega tekið að selja á íslandi og kallar Brama-lifs-essents. Eg hefi komizt yfir eitt glas af vökva þessum. Ég verð að segjs, að nafnið Brama-lífs-essents er mjög vill- andi, þar eð essents þessi er með öllu ólíkr inum ekta Brama-lífs-elixir frá hr. Mans- feld-Bullner & Lassen, og því eigi getr haft þá eiginlegleika, sem ágæta inn egta. þar eð ég um mörg ár befi haft tækifæri til, að sjá áhrif ýmsra bittera, en jafnan komizt að raun um, að Brama-lífs-elixír frj Mansfeld- Bullner & Lassen er kostabeztr, get ég ekki nógsamlega mælt fram með honum einum, umfram öll önnur bitterefni, sem ágætu meltingariyfi. Kaupmannahöfn 30. júlí 1884. E. J. Melchior, læknir. Einkenni ins óekta er nafnið C. A. NISSEN á giasinu og miðanum. Einkenni á vorum eina egta Brama- lífs-elixir eru firmamerki vort á glasinu, og á merki-skildinum á miðanum sést blátt ljón og gullhani, og innsigli vort MB & L i grænu lakki er á tappanum. Mansfeld-BúUner & Lassen, sem einir búa til inn verðlaunaða Brama-lífs-elixir. KAUPMANNAHÖFN. [4r. Hjá undirskrifuðum fæst: ágætr niðrsoðinn silungr frá J»ingvelli við Öxará : í olíu 2 punds dós á 1 kr. „ au. - — 1 — — - „ — 50 — ánolíu2 — — - „ — 90 — -----1 - - - „-45- Beykjavík, 10. apríl 1885. 115r.] G. Zoega. Nýprentuð er: Kirkjusöngsbók með fjórum röddum eftir Jónas Helgason, organista við dómkirkjuna í Beykjavfk. Kostar heft 4 kr. Pæst hjá höfundinum. IPf* Drykkfeldni Jafnvel í verstu tilfellum verkar mitt ágæta meðal; þetta votta löglega staöfest þalclcarbréf og vottorö frá öllum heimsálfum. Meðalið má viðhaíá hvort heldr með eða án vitundar þess, sem lækna á. Reinhold Rctzlaff. [83r.—18/6 Pabricant i Dresden 10. (Sachsen). Eigándi og ábyrgðarm.: Jón Ólafsson alþm. Skrifstofa: á Bakarastíg við hornið á íngólfsstræti. Prentaðr í prentsmiðju. ísafoldar.

x

Þjóðólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.