Þjóðólfur - 02.05.1885, Blaðsíða 3

Þjóðólfur - 02.05.1885, Blaðsíða 3
71 eiginlegu fjárlög, og svo rann 1. apríl upp. |>jóðdeildin sá, að hjer var að eins skollaleikr framinn, engu varð ágengt, og svo lyktaði þingið, að það samþykti svo látandi ávarp til þjóðarinnar: |>jóðdeildin hefir í tæka tíð snúið sjer til konungs (þess skal getið, að deildin hafði áðr valið nefnd til þess að færa ávarp kon- ungi, er það bað hans hátign um að láta ráðaneytið víkja úr þeim sessi, sem það gerði ekki annað en ilt eitt í, en konungr hafði svara því alveg neitandi), til þess að fá afstýrt því stjórnarskrárbroti, sem hlýtr að leiða af einþykkri stjórn. f>að sem þingið hefir sagt við konung, það er og reikningsskapargjörð varfyrir þjóðinni. Vér aukum því einu hór við: það er stjórn- in, sem hefir kosið brotið. Enn hefirhún neitað nýjum tilboðum um meðferð á millibils - lögum. Stjórnin lætr hætta aðgjörðum beggjadeilda-nefndar og slítr þinginu ún fjárlaga fyrir komanda ár. Til- gangrinn er deginum Ijósari. En um leið og þjóðdeildin hér með mótmælir því stjórnarskrárbroti, sem lengi hefir verið í undirbúningi og nú má á hverri stundu vænta, skorum vér á þjóðina að verja þann rótt, er hún á að lögum, í þeirri baráttu, sem krefr allra góðra krafta lijá oss Dönum með meiri alvöru en nokkru sinni áðr«. f>egar eftir að þetta var upp lesið, var hrópað »lifi stjórnarskráin«, og nífalt húrra hljómaði skært og hvellt gegnum þingsalinn og svo gengu allir vinstrimenn út og biðu ekki einu sinni þess að Estrúp kæmi og læsi upp þingsuppsögnina. Segir sagan að honum hafi heldr brugðið í brún, er hann sá þar að eins sína 19 garpa. Á konunginn mintist enginn maðr (og ekki fór Berg, þjóð- deildarforseti, til þess að óska honum heilla þann 8. april, sem annars er vani). — Aðr eu sól var farin af lofti, kom svo jwúvisóríið, ráðgj afafjárlögin, og þar gefr Estrúp sér leyfi til þess að verja öllum þeim peningum, sem hann vill, á hvern hátt sem hann vill og konungr skrifar undir. Slíkt er eitt hvert það tilfinnanlegasta stjórnarskrárbrot, sem hugsazt getr, það er það sama sem manni væri gefið á hann, beint framan á nasirnar, sama sem að einvaldsstjórn, ráðgjafalegt einræði og harðstjórn só »iun sett«, þjóðin er einskis virð, þingdeildin, sem eftir lögunum á að hafa mest að segja um slík lög, er fótum troðin, en ríkisbubbarnir, gózeigendurnir, brosa í kampinn. f>að er vatn á þeirra mylnu. f>eir vilja helzt innleiða á ný hjól og steglur háls- og handhöggs-rétt yfir sauðsvörtum almúganum.—f>ar að auki er Estrúp farinn að æða á móti öllum þeim embættismönnum, sem ekki fylgja honum, eða látast gera það. Prestar eru af settir, ef þeir falla ekki fram og tilbiðja Estrup, þjóðskólaformenn eru sviftir fó því, sem ríkið leggr skólum þeirra, ef þeir sýna sig sem vinstrimenn; ef einhver hefir sagt fyrir 7 árum eitthvert ógætilegt orð um hans hátign, er slíkt grafið upp af þjónustusömum öndum og höfðað mál út af o. s. frv. o. s. frv. Ráðaneytið svífist einskis liéðanaf. Eu hvað gjörir nú þjóðin? I hverju öðru landi hefði fyrir löngu hafizt blóðugr innanlands ófriðr, stjórnin verið sett af með háðung, og hver veit hvað. En Danir eru seigir og seinþreyttir til vandræða f>eir þybbast við; vilja heldr verjast en sækja. f>að þarf ekki þess að geta að inar trylltu aðfarir Estrúps gjöra hægrimenn hrönnum saman að vinstrimönnum, éða að minnsta kosti hans mótstöðumönnum. All- ir skipast nú í einn hóp, vinstrimenn, jafn- aðarmenn, og frjálslyndir hægrimenn, til þess að verja það lítilræði af frelsi, sem enn er eftir ; þeir halda alstaðar fundi, eru alstaðar liðmeiri, og það er ekkert efamál, að þegar þingið hefur setu sína á ný að hausti muni hægri menn þess hafa týnt tölunni svo að muni um. jpjóðin vill ekki beita ofbeldi, vill aldrei fara út fyrir það sem er rétt og leyfilegt, en býr sig þó undir að verja sig og frelsi sitt, ef árásir skyldu verða gerðar enn frekari á það. f>að eru nú út um alt land að myndast byssu- félög í þeim tilganpi, og er Estrúpingum við þau éinna vest. A næsta þingi verðr fjár- lögum og öllum lögum Estrúps óðara neitað, en þau verða fram borin. Við hann og hans stjórn er ekkert samkomulag framar mögu- legt. Ásamt nöfnum hinna ráðgjafanna undir bráðabirgðarfjárlögum Estrúps skín og nafn Hilmars Finsens næst seinast, og mun sú fregn hryggja margan lslending. Ekki nennum vér að tala hér um Islend- inga í Khöfn ; heldr ekki um það, að nokkr- ir Islendingar (ekki: »Nokkrir Islendingar«) hafi verið sæmdir ýmsu brjóstglingri eða titlum. Slíkt eru ekki markverð tíðindi né eftir hafandi. HeIMSKHINGI/A. —Fjöldi Kínverja. Af mörgum á- stæðum er torvelt að vita nokkra nákvæma tölu á Kínverjum. Sumir telja þá 450 millíónir, og eftir þvf ætti þeir að vera nær- felt þriðjungr als mannkynsins, eða eins og rithöfundr einn kemst að orði, þriðji hver maðr í heiminum að vera Kínverji. Aftr eru aðrir, sem eigi vilja meta fólksfjöldann í Iíína meira en til 300 millíóna. Síðustu [áætlanir fara meðalveg og telja, að 1882 I hafi Kíúverjar verið 380 millíónir, og ætla menn alment að það fari sönnu næst. Eftir því ætti fjórði hver maðr í heimi að vera Kfnverji (þ. e. Kínverjar að vera um \ als mannkynsins). —Bús s ar hafa í vetr hækkað svo tollinn á aðfluttri síld, að fullyrt er að það geti ekki orðið talsmál um, að Norðmenn geti selt þangað síld framar. — jpetta hlýtr að hafa áhrif einnig á ísl. slld. — prœlaverzlun, er skrifað í bréfi frá Zanzibar, er nú aftr í fullum blóma hér um slóðir. Ensk herskip hafa í vetr hertekið mörg þrælaskip. Eitt þeirra hafði 160 þræla í farmrúminu, og höfðu þeir ekki bragðað mat í 5 daga né vatn í 3 daga. — Auðmag n. Bræðrnir Rothschild í Frakkafurðu gáfu í vetr þá skýrslu til skattanefndarinnar, að þeir hefði haft 4,788,000 mörk hvor í árstekjur; en það er sama sem 13,120 mörk á dag, eða 546f mörk á klukkustund hverri dag og nótt. (1 mark er um 88 au.). — Gönggegn um Pyrenea-fjöll. Samkvæmt samningum, sem nú eru komn- ir á milli Frakka-stjórnar og Spánarstjórn- ar, á að grafa göng gegn um Pyreneafjöllin, sem aka mégi um á járnbraut. Göngin eiga að liggja milli Canfranc og Lerida, og skulu fullgjör innan 10 ára. Nefnd franskra og spanskra verkfræðinga á að ákveða brautarstæðið nánara. — Vctr arhar ka hefir verið óvenjuleg síðastlið. vetr í ítalfu og á Spáni. I Italíu féll 3 metra (10| feta) djúpr snjór.— Á Spáni hefir ekki svo kaldr vétr komið síðan 1829. I Brihnega (Guadalajara) varð frostið 14 gr. á Celcius-mæli; í Polemia 19 gr., og í Molina (Arragonia) jafnvel 26 gr. Cels. 1 álnar þykkan ís lagði sumstaðar á vötn. 1 Burgos og Segovia, þar sem annars er vant að vera mjög blítt, kom alt að 25 gr. frost. Ein afleiðing af vetrarkulda þessum hefir meðal annars verið óvenjulegr ungbarna- dauði á Spáni. — Efnaðr betlari. L Antwerpen tók lögreglustjórnin í vetr fastan þ>jóðverja, sem baðst beininga á gestgjafastöðum og járn- brautarstöðvum ; bað hann menn um ölm- usu til að styrkja sig til að komast heim til fýzkalands. |>egar hann var tekinn fastr, hafði hann í vörzlum sítium 14000 mörk (12,320 kr.). — B r éy ttr s ól ar g ang r. 11. jan. þ. á. skrifar blað eitt í Madrid : Síðan inir miklu jarðskjálftar gengu, hafa menn tekið eftir því á ýmsum stöðum í Granada-fylki að sólin kemr upp 1 klukkustund síðar, en hún gjörði áðr, en jarðskjálftarnir. komu.. Sannar þetta, að fjállbeltið Sierra Nevada

x

Þjóðólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.