Þjóðólfur - 09.05.1885, Side 2
74
það er varla neitt launþurfamál, að það
er altalað, að vel hæfr maðr í alla staði hafi
sótt um amtmanns-embættið sunnan og
vestan. þ>essi maðr er hr. L. B. Svein-
biörnson yfirdómari. Bn hánn hefir vel að
merkja ekki sótt um að mega gína yfir
tekjum þessa embættis jafnframt sínu eigin
embætti, heldr blátt áfram um fasta veit-
ingu á því.
Bngu að sfðr hefir vísdómi Oddgeirs heit-
ins Stephensens þóknazt að halda embætt-
inu óveittu, en láta Erænda stjórnardeildar-
forstjórans hr. Magnús Stephensen gegna
embættinu ásamt yfirdómara-embætti sínu.
Yér höfum að vísu heyrt suma hneyksl-
ast á þessu, og álíta það miðr heppilegt, að
embætti þessi sé þannig sameinuð í eins
manns höndum ; hefir þeim t. d. þótt, sem
hr. Magnús gjörðist háðari stjórninni, en
æskilegt væri um dómara, með því að hafa
þetta umboðslega embætti einnig á hendi
í þjónustu hennar. Svo hefir og sumum
virzt, sém staða hans sem amtmans kæmi í
sumu hálfleiðinlega í bága við stöðu hans
sem óháðs og óhlutdrægs dómara. Enn hefir
nokkrum sýnzt, að þýðing amtmanna-em-
bættanna mundi ekki vera svo stór, störfin
við þau ekki svo umfangsmikil og nauðsyn
þeirra ekki svo brýn sem sérstakra embætta,
fyrst að hægt sé að þjóna slíku embætti
viðunanlega í hjáverkum fyrir mann, sem
áðr er í vandasömu embætti og hefir 4 eða
5 meira og minna umfangsmiklar sýslanir
aðrar í hjáverkum jafnframt.
Auðvitað hefir það þó ekki verið ástæða
stjórnarinnar til að láta hr. M. St. þjóna í
hjáverKum amtmannsembættinu settan ár-
um saman, í stað þess að veita það hæfum
manni, sem sótt hefir um það, að hún hafi
viljað láta gæðing sinn Magnús gína yfir
sem mestum launum svo lengi sem unt
væri, heldr hitt, að hún hefir séð, hve fágætt
það er fyrir þjóðirnar að eignast slíka ber-
serki, sem geta afkastað 4-—ð manna störf-
um (og hirt launin) betr miklu en 4—ð ein-
stakir menn, og að það væri dýrmætt að
láta þessa berserkskrafta hafa nóg að
spreyta sig á. þetta ‘hefir henni þótt svo
dýrmætt, að það miklu meira en vægi upp
það smá-óhagræði og agnúa, sem annars
kynni að vera á að sameina embætti þessi,
eða að minsta kosti gjöra það ísjárvert að
sameina þau til langframa.
J>á gat það og naumast métizt nema þjóð-
ar-nauðsyn, að mörva keppinn dálítið fyrir
þennan stjórnardýrling og landsþarfa-ber-
serk, því að verðr er verkmaðrinn launanna;
enda er mjög líklegt, að aukið þúsundatal
krónanna geti atyrkt taugakerfið og eflt
þróttinn til starfa í föðurlandsins þjón-
ustu.
það er því líklegt, að hr. Magnús yfir-
dómari með ..................... 4000 kr.
launum,verði enn afreksmeiri þeg-
ar við hann bætast fyrir endrskoð-
un landsreikninganna............. 400 —
og að honum vaxi ásmegin við
hálf amtmannslaunin............. 3000 —
þá rírnar hann ekki við þing-
mennskulaunin (árlegaum)...... 180 —
og svo losnar hann ekki upp úr
bandinu við þ ritlaun fyrir for-
múlar-bókina (á að gizka um) ... 250 —
Er árlega : 7830 kr.
Að vísu eru formúlarbókar ritlaunin ekki
árlegar tekjur; en við það munu kann ske
jafnast prófarkalaun og fleiri smásnapir,
sem ekki eru hér taldar.
það borgar sig að vera berserkr !
það er skaði að landshöfðingja-embættið
er ekki laust líka. Yér efumst ekki um að
hr. M. St. gæti vel annað því líka að gegna
því í hjáverkum sínum ; og það ér mjög
vafásamt, að embættinu yrði mikið öðruvísi
stýrt, en nú, þótt hr. Magnús yrði settr í
það líka.
Ef sparnaðarnefnd verðr kosin á ný á
þingi í sumar, þá viljum vér fela henni að
íhuga, hvort ekki mætti spara landsfé með
því, ef hún gæti unnið hr. Bérg Thorberg
til, að ná sér í eitthvert embætti erlendis.
f>að eru svo miklar byltingar nú í heimin-
um, ný ríki að stofnaat suðr í suðrálfu heims
og má ske víðar ; kann vera Danir þurfi að
halda þar á mjúkum og teiggóðum sendi-
herra; gæti hr. Bergr kann ske fengið slíka
stöðu1. þá mætti setja hr. Magnús í em-
bættið með hálfum launum, og er það auð-
sær sparnaðr landssjóði.
Ef þeir fara nokkuð að káka við stjórnar-
skrána á annað borð, þá mundi mega koma
þeirri ákvörðun að, er heimilaði stjórninni
að hafa 1 konungkjörinn mann, sem hefði
6 atkvæði, á þingi. Er þá auðsætt, að með-
an hr. Magnúsar nýtr við, mætti vel kom-
ast af með hann einan. Hann gætiþáfeng-
ið 6 kr. um daginn fyrir sitt eigið atkvæði,
en 3 kr. t. d. fyrir hvert aí hinum fimm;
er þar auðsær sparnaðr landsjóðs.
þetta er nú, að oss virðist, svo auðsætt
og liggr svo beint við. En líklegt er, að
það sé talsvert fleiri émbætti og sýslanir,
sem mætti «setja» hr. Magnús í. Vel valin
1) það er altítt að Englendingar gjöra þá
menn, sem venð hafa landshöfðingjar, að sendi-
herrum. Dufferin lávarðr var t. d. landshöfð-
ingi í Oanada, en síðan sendiherra fyrst hjá
Kússanum og síðan hjá Tyrkjanum.
sparnaðarnefnd væri vís að finna eitthvað
þess leiðis. Og tækist að finna ein 4—5 til,
sem hr. M. St. gæti vel þjónað í hjáverk-
um, þá er engin furða þó að hann, slíkr af-
burða-maðr, verði enn þá nafnkunnari maðr,
en hann enn er orðinn.
Heiðraði ritstjóri! þér hafið sjálfr lýst
yfir því, að yðr hafi borizt svo margar rit-
gjörðir um fiskiveiðamálið, að blaði yðar sé
ofboðið.
þrátt fyrir það leyfi eg mór nú að sénda
yðr fáar línur, er lúta að sama efni. En sök-
um ótta fyrir rúmleysi í blaði yðar, þá hleyp
eg sem fljótast yfir efnið, enda þó ég sé
þeirrar meiningar að blaðaménn geri órétt,
ef þeir neita um að taka ritgjörðir um fiski-
veiðamálið, séu þær ekki miklu galli bland-
aðar, því það mál er að minni hyggju ið
alvarlegasta á dagskrá nú sem stendr.
það eru nú liðin 7 ár síðan sýslunefnd
Kjósar- og Gullbringusýslu gerði fyrstu til-
raun til að koma í betra horf fiskiveiðiað-
ferð vorri; samt sem áðr er enn í dag engin
lögun fengin á því máli. þetta sýnir, hve
miklum annmörkum það er bundið, að fá
á komið viðunanlegum fiskiveiðasamþykkt-
um, þar sem er um fleiri pláss að ræða,
sem ólíkt er ástatt fyrir, hvað fiskiveiðar
snertir. f>að eru nú sórstaklega þorskanet-
in, sem menn hór syðra hafa barizt fyrir í
seinni tíð að yrði aftekin á djúpsjónum, þar
reynslan er búin að sýna það, að fiskiaflinn
hér innan flóa hefir gengið til þurðar ár frá
ári síðan þorskanetin voru lögð í Garðsjóinn,
þó þetta hafi aldrei jafn áþreifanlega komið
í ljós, eins og á þessari vertlð. það þóttu i
vetr öll líkindi til að fiskiveiðasamþyktin
næði gildi, en þrátt fyrir alla vandvirkni
sýslunefndarinnar, fann amtmaðrinn ástæðu
til að fella samþyktina fyrir tilmæli fárra
manna. þannig getr það geugið í ið ó-
endanlega, að einhverjum þyki of nærri sér
gengið, ef eitthvert haft er Iagt á ofrkapp
þeirra, þrátt fyrir það þó það sé landi og lýð
til inna méstu vandræða. En ið líflitla af-
kvæmi þingsins frá 14. desember 1877, er
snertir fiskiveiðar á opnum skipum, gefr
sýslunéfndum als ekki þá heimild, sem nægir
til að geta komið á fót fullnægjandi sam-
þyktum um fiskiveiðar á opnum skipum; en
aftr á móti sýnist svo, sem amtinu sé þar
gefið svo mikið vald, að það geti í öllum
tilfellum felt slíkar samþyktir ef því sýnist
svo—þótt ástæður sóu lóttar—þrátt fyrir al-
mennings vilja og gagn.
þegar menn hér syðra fengu loks með
eftirgangsmunum að vita að fiskiveiðafrum-
varpið var felt af amtmanni, þá var enginn
tími til að reyna samþykt að nýju, sem