Þjóðólfur - 16.05.1885, Page 1
Kemr út á laugardagsmorgna.
Verð árg. 4 kr. (erlendis 5 kr.).
Borgist fyrir 15. júlí.
PJÓÐÓLFR.
Uppsögn (skrifleg) bundin viá
áramót, ógild nema komi til
útgefanda fyrir 1. október.
XXXVI. árg. lteykjayík, laugardaginn 16. maí 1885. JVá 20.
Bréf til „l*,j6ðólfs“
frá Friðbirni á Eyri.
[Leiðrétting. í febr. bréfum mfnum hefir
misprentazt: bls. 33: dálki i2 landsins fyrir:
landsrnanna; d. i12 „sitt árið hverja i“ f.: s. á.
h. stejnu í; d. 214 „sumum málum“ f.: almcnnum
málum: d. 310 „—foræðis-11 f.: —ýorræðis-; bls.
37. d. 213 „háskól-" f.: /áskól-; d. 318 „1884“ f.:
18837.
V.
Aldrei hefi eg getað felt mig við þá kenn-
ingu, að það sé vítavert, að maðr ræði éða
riti um eitthvert það málefni, sem eigi bein-
línis snertir stöðu hans eða atvinnu ; mér
finnst það svo ófrjálslegt. Hitt er annað mál,
að sá getr frpmr tala'ð »frómt úr flokki«, sem
hefir reynslu fyrir sér í því, sem hann talar
um ; og eigi er ólíklegt að orð inna reyndu
og lærðu hafi meiri áhrif en orð hinna, sem
eigi hafa annað en hugboð sitt við að styðj-
ast. En það getr heldr enginn gjört kröfu
til þess, að orðum hans sé eignuð meiri þýð-
ing, en hverjum af lesendum þeirra eða
heyrendum þykir skynsamlegt. það er nú
svo fyrir mér, að þó ég riti þér, »þjóðólfr«
minn, nokkur orð, gjöri ég það ekki sem
»fag«-maðr í þeim greinum, sem ég kann að
gjöra að umtalsefni, heldr blátt áfram til að
láta meiningu mína í ljósi, eftir mínum
skilningi á málefninu, án tillits til þess, að
sumum kann að virðast sem sjómenn og
fiskifræðingar hafi éinir rétt til að láta í
ljósi hugboð sitt um fiskiveiðamál, rosknir
og ráðnir stórbændr og hálærðir búfræðingar
um landbúnaðarmál, oddvitar og hreppstjór-
ar um fátækrastjórnarmál, prestar og kenn-
arar um kyrkjustjórn og kenslumál, alþing-
ismenn og háembættismenn um þjóðstjórn-
armál o. s. frv. Eg held eigi upp á nein
slík einkaréttindi, og rita eigi í skjóli þýð-
ingarmikillar stöðu eða nafns, eða f trausti
til hæfileika minna, heldr miklu fremr í
von um að geta vakið aðra hæfari til að
ræða inálin. því ef einhver fáfræðingr for
að sýna sig, getr það ef til vill orðið til þess,
að inir fróðari sjái betr yfirburði sína,
finni betr til hætileika sinna ; og þó þeir
hafi fyrirorðið sig að byrja, koma þeir þá má
sko í fullri dirfð fram á sjónarsviðið, sem
leiðréttarar inna viltu frumhlaupara. það
getr þannig skeð að inir fáfróðu fái lokkað
þekkinguna út hjá þeirn, sém hana geyma,
og finnst mér það nóg afsökun fyrir þá,
vesalingana, að þeir hafa gjört sitt ið bezta,
og orðið orsök til, að framleiða anuað betral
f>eir eru með því þjóðinni uppbyggilegri en
fróðleiki þeirra, sem aldrei láta aðra njóta
hans, en líggja á vísdóminum eins ormar á
gulli.
VI.
Mikið hefir verið talað um fiskiveiðar og
veiðisamþyktir í Bvíkrblöðunum í vetr. Má
eg hnýta þar aftan í mínum hugmyndum ?
Ofur lítið.
Mér virðist það eðlilegt að málefni, sem
er eins mikils varðandi eins og fiskiveiða-
málið er fyrir oss íslendinga, sé alvarlegr
gaumr gefinn. það varðar mjög alla lands-
menn; því fiskiveiði er annar aðal bjargar-
vegr landsmanna. Allr hnekkir og allar
bætr á fiskiveiðum vorum hljóta því að
hafa alþjóðleg áhrif, alþjóðlega þýðingu í
fyllsta máta. það hefir líka oft sýnt sig á-
þreifanlega. Bregðist fiskr eina vertíð hér
við Faxaflóa, þá liggr þegar við hallæri.
það ætti því að vera öllum umhugað, það er
lífsspursmál, að tryggja og vernda aðal-fiski-
miðin. Er því eigi að undra, að annað eins
ólag eins og er á því, hvernig fiskveiðar eru
hér stundaðar, kveiki óánægju. Oánægjan
veldr hreifingum. En hreifingar þær, sem óá-
nægja yfir einhverju ólagi veldr hjá oss,
ganga oftast til yfirvaldanna, til stjórnar-
innar, með umkvörtunum eins og þegar
börn eru að kvarta.1) En þær umkvartanir
eru misjafnlega bænheyrðar. Og aumlegt
ástand virðist mér það, að eiga stundlega
gæfu héilla héraða að miklu leyti undir jái
eða neii einstaks manns. Fiskiveiðasam-
þykt sunnanmanna sannar það. Eg held
að þesskonar lög verði ekki að verulegu liði.
Ætti -alþingi og konungr að staðfesta slík
lög eins og önnur lög.
Alt þetta mikla fiskveiða samþyktarstagl
sunnanmanna er spunnið út af lítilsháttar
takmörkun einnar veiðiaðferðar. Hvað má
eigi ætla að það kostaði, ef fara ætti að
hreifa alvarlegum, víðtækum breytingum á
veiðiaðferðinni í flóanum, sem öll ástæða
virðist til ? það þarf eigi að hugsa að koma
slíku til leiðar með samþyktum.
Flestar sveitirnar, sem næst ligga við
I) Dóri: Hann Jón ætlar að borða frá mér, babbi-
— Jón: Hiin mamma sagði að við ættum báðir í
skálinni.-—Dóri: En ég á skálina, og þá á ég líka
allann graulinn, og vil ekki að hann Jón borði
með mér, hann hefir svo stóran spón!
Faxaflóa sunnanverðan, eru rýrar landbú-
sveitir, en veiðarnar hafa verið þeirra aðal-
bjargræði og margra raanna í öðrum fjarlæg-
ari sveitum, svo auðvelt er að gera sér hug-
mynd um, hver áhrif það hefir á megan
þjóðarinnar, ef alveg hættir að fiskast frá
landi (á opn. skip.) við flóann, eins og útlit
er til, ef nú tíðkanleg veiðiaðferð viðhelzt.
þjóðin er »á gelgjuskeiði«, segirísaf., en eg
hygg að hún sé í mörgu tilliti »á milli vita«,
og það eigi sízt hvað sjóarútveg og veiðiskap
snertir, í ið minnsta hér við Faxaflóa. A
bernskuárunum var því nær einungis leitað
fiskjar á segllausum smábátum með færum,
rétt út fyrir þaragarðinn. Nú er hans leit-
að mest á 4—10 manna förum, seglbúnum,
með færum, lóðum, netum, og farið á móti
honum svo langt sem komizt verðr með
þessi veiðigögn. það er liún nú komin »á
legg«; en alla forsjálni vantar. þroskanum
er enn ónáð : að leita fiskjarins með vissum
veiðiáhöldum á vissum stöðurh og tímum, á
fiskibdtum (opn. skipum) á grunnmiðum, en
á fiskiskipurn (þilsk.) á djúpmiðum og í
fjarlægum veiðistöðum eftir fiskigöngum og
öðrum atvikum, og að rœkta fiskistöðvar með
agni og niðrburði á grunnmiðum. Fyrir
það ætti alt að gjöra, til þess allar umbætr
að miða, sem útveg og veiðiskap snertir, að
ná þroskanum sem fyrst. þjóðin, þingið,
stjórnin á að vera samtaka í að vinna að
því, og þd hlýtr það að takast fljótt. þingið
getr gjört mikið í þessu tilliti með löggjöf
um fiskiveiðar og siglingar, og með fjárfram-
lögum. |>að þarf að ákveða skýrt með þing-
gefnum, kgl. staðfestum lögum, hverja veiði-
aðferð megi viðhafa á hverjum stað og tíma
á grunnmiðum, sem sótt eru af fiskibátum.
það þarf að skipa gæzlumenn í hverri ver-
stöð til að hafa eftirlit með reglu fiski-
manna á sjó og landi. þarf að byggja bát§-
lægi (kvíar, hafnir) í hverri fjölskipaðri ver-
stöð, þar sem því verðr viðkomið. þarf að
hvetja menn til að bæta svo bátalagið og
seglalagið, að hvorttveggja verði sem hagan-
legast og áreiðaulegast til fiskisókna. þarf
að hvetja meun til að koma upp og auka
fiskiskipaútveg; setja lög um siglingar, veita
ísl. fiskiskipum -forróttindi, stofna og efla
ábyrgðarsjóð fyrir þilskip, byggja vita og
leiðarljós o. fl. þ. h.
VII.
Lofaðu mér að skýra meiningu mína ná-