Þjóðólfur - 12.03.1886, Page 4
44
kistan stóð. Mjer heyrðist, sem skrúfu vœri
snúið í trje. Jeg lilustaði og heyrði nfi aptur
hið sama. Með riðguðu skammbyssuna í hend-
inni gekk jeg hægt að kistunni. Þegar jeg
nam staðar, heyrði jeg, að loku var hleypt frá
kistunni, og rjett á eptir er lokinu hægt og
hægt lypt upp. Nó fór mjer ekki að verða um
"sel. í dauðans ofboði fieygði jeg mjer ofan á
kistuna. Þá heyrði jeg veinað í kistunni, er
jeg með öllum þunga mínum þrýsti lokinu nið-
ur. Jeg komst brátt til vitneskju um það, að
hjer var enginn draugur á ferðinni, heldur var
bráðlifandi maður í kistunni, sem nú neytti allra
krapta til að lypta upp lokinu með mjer á; en
það tókst ekki, sem betur fór. Jeg litaðist um
í kring um mig eptir einhverju, sem jeg gæti
vafið utan um kistuna, svo að jeg missti eigi
feng minn. Til allrar hamingju náði jeg í
kaðal einn, þrívafði hann utan um kistuna og
batt duglegan rembihnút að. Siðan negldi jeg
lokið niður með löngum nöglum, þrátt fyrir
vægðarhænir fangans. (Framh.).
Reykjavík 12. marz 1886.
Spánarfiskur. Eins og nú er orðiðkunnugt,
lítur mjög illa út með saltfisksverzlnn hjeðan
til Spánar, hæði sakir þess, hve saltfisksverzlun
þangað frá Frakklandi er orðin mikil, og salt-
fiskur hjeðan frá landi, einkum frá Faxaflóa,
er engan veginn svo vel vandaður að verkun,
sem skyldi. Horfir þetta til mestu vandræða.
— 10. f. m. hjeldu kaupmenn og verzlunar-
stjórar hjer í bænum fund, til að ræða um, hvað
gera skyldi til að afstýra þeim vandræðum. Yar
þar afráðið að kveðja til aðalfundar hjer í Rvík,
til að ræða þetta mál, og skora á kaupmenn
og útvegshændur í kring um Faxaflóa að mæta
þar. — 20. f. m. hjeldu ýmsir útvegsbændur af
Seltjaimarnesi og Rvík fund hjer í bænum til
undirbúnings undir aðalfundinn. Var aðalfund-
ur þessi haldinn 6. þ. m. hjer í hænum. Mættu
þar fáir, nema hjer úr nágrenninu. Kom þar
öllum saman um, að flskverkunina yrði að öllu
leyti að vanda svo vel, sem auðið væri. Voru
samþykktar „reglur um saltfinksverhin", áþekkar
reglum, er samþykkt.ar höfðu verið á fundi 7.
des. 1878. Skyldi úthýta þeim prentuðnm með-
al fiskimanna. Þá var og talað um fiskimats-
menn. Skyldu kaupmenn eptir samkomulagi við
hændur taka þá til, en yfirvöldin útnefna þá og
eiðfesta og gefa þeim erindishrjef. Talið var
nauðsynlegt, að afhenda kaupmönnum fiskinn
svo fljótt, sem unnt væri, t. a. m. haust- og
vetrarvertíðarafla fyrir 15. júlí; sömuleiðis að
kaupmenn Ijetu sjer annt um, að fiskurinn hjeld-
ist óskemmdur, úr því að hann væri kominn í
þeirra hendur.
2 Frakkneskar flsklskútur komu hjer inn,
önnur 8. hin 10. þ. m. Hafði hin fyrri aflað að
eins 300, og það mest undan Reykjanesi. En hin
hafði hina 4 síðustu daga aflað 3500, mest af
því undan Garðsskaga. Engar frjettir höfðu þær
getað sagt frá útlöndum.
Ný veitingastofa var opnuð hjer í bænum
á laugardaginn var í lækjargötu i húsi Krist-
ínar Bjarnadóttur. Þar er enginn áfengur drykk-
ur seldur, heldur kaffi, chocolade, lemonade og
vindlar. Veitingastofa þessi er stór og rúmgóð
og snoturlega úthúin.
íslenzku flskiskúturnar lögðu út hjeðan í
fyrri nótt.
Agætishláka hefur verið þessa viku.
AUGLÝSINGAR
í samfeldu máli m. smáletri kosta 2 a. (þakkaráv. 3a.)
hvert orö 15 stafa frekast; m. ööru letri eöa setning
1 kr. fyrir þumlung dálks-lengdar. Borgun út í hönd.
Nýtt Conditórí og Café.
Jeg undirskrifuð leyfi mjer hjermeð,
að tilkynna hinum heiðruðu bœjarbúum,
að jey eptir fengnu leyfi frá hinum hátt-
virta bæjarf'ogeta, hef opnað nýtt Condi-
tórí og Café í suðurendanum á húsi
mínu í Lækjargötunni hjer í bænum.
Verður þar selt: Kaffi, Chocolade,
Lemonade. Sjerstaklega skal jeg leyfa
mjer, að benda hinum heiðruöu Oood-
Templars á þennan stað, enda mun jeg
gera mjer far um, að gera allt, sem í
mínu valdi stendur, að þetta Conditórí
og Café verði bœjarbúum yfir höfuð svo
geðfeUt, að þeir sœki það vel. — Á morgn-
ana verður opnað kl. 10 og lokað kl.
rjett 11 á kvöldin.—
Reykjavik 6. marz 1886.
Kristín Bjarnaddttir.
T .eiftarvísir til lífsábyrgðar og eiðublöð til út-
fyllingar fæst nú ókeypis hjá flestöllum læknum
hjer álandi. Ættu sem flestir að lesa Leiðar-
vísinn og kynna sjer hann.
Rvík. 7. marz 1886.
J. Jónassen.
Á næstliðnu sumri þóknaðist guði að taka
til sin son okkar Egil 21 árs, sem var efni-
legur og við byggðum von á áð yrði ellistoð
okkar. Hann andaðist að Stafholti í Mýra-
sýslu. Við finnum okkur skylt að þakka opin-
berlega þeim höfðingshjónum, herra prófasti
síra Stefáni Þorvaldssyni og frú hans, fyrir þá
miklu hjálp og umönnun, er þau sýndu við
þetta tilfelli. Auk þess gáfu þau okkur allan
kostnað, er af útförinni leiddi. Þetta er ekki
sá fyrsti velgjömingur, sem þessi höfðingshjón
hafa sýnt okkur. Við getum ekki annan þakk-
lætisvott sýnt, en að biðja af hjarta algóðan
guð að launa þeim fyrir okkur.
Tjarnarkoti 1. marz 1886
Bjarni Bjarnason. Guðrún Arnadóttir.
X fyrravetur varð jeg fyrir miklum og mjög
tilfinnanlegum fjárskaða. Vöktust þá upp ýms-
ir veglyndir menn til að bæta úr þessum skaða
mínum. Þeir, sem rjettu mjer hjálparhönd, voru
þessir: G. Bjarnason og B. Gislason á Ármúla,
P. Pálmason á Hraundal, K. Ólafsson og H.
Jónsdóttir á Laugalandi, R. Jónsdóttir á Hamri,
Ó. Jónsson á Lágadal, Á. Guðmundarson á Arn-
gerðareyri, J. Halldórsson á Laugabóli, síra S.
Pjetursson á Vatnsfirði. — Með hrærðu hjarta
votta jeg undirskrifaður öllum þessum áðurnefndu
geföndum mitt innilegasta þakklæti fyrir heið-
ursgjafir þeirra og göfuglyndi, sem þeir hafa
auðsýnt mjer, og bið guð að launa þeim það
allt, þá er þeim mest á liggur.
Skjaldfönn í febr. 1886.
Asgeir H. Ólafsson.
LÖGFRÆÐISLEG FORMÁLABÓK
eöa
LeiÖarvísir fyrir alþýðu
til aö rita samninga, arfleiösluskrár, skiptagjörn-
inga, sáttakærur, stefnur, umsóknarbrjef og fleiri
sllk skjöl svo þau sjeu lögum samkvæm;
eptir
Magnús Stephensen 0g L. E. Svelnbjörnsson,
yfirdómendur,
er komin út, StærÖ 22 arkir. VerÖ: í kápu kr. 3.75.
Reykjavík, 12. febrúar 1886.
Kr. 6. Þorgrímsson.
XXauðstjöruöttan fola, 2ja vetra, velgengan,
með hita aptan hægra, hófbita fr. v., vantar
mig siðan i fardögum 1885. Getur verið, að
hann hafi verið rekinn á afrjett Hrunamanna-
hrepps.
Birtingaholti 2. marz 1886.
Helgi Magnússon.
Til athngunar.
Vjer undirskrifaMr álitum þat skyldu vora aö bifl.ja
almenning gjalda varhuga vi8 hinumrnörgu og vondn
eptirlikingum A Brama-lifsdixir hra. Mansfeld-BúUner
& Lassens, sem fjöldi fjárhuga kaupmanna hefir á boft-
stölum; þykir osb þvi meiri ástæöatil þessarar aövör-
unar, sem margir af eptirhermum þessum gera sjer
allt far um aft llkja eptir einkennismiðanum á egta
glösunum, en efnið 1 glösum þeirra er ekki Bramar
lífs-eliacir. Vjer höfum um langan tlma reynt Brama-
lífs-elixir, og reyn/.t hann vel, til þess að greiða fyrir
meltingunni, og til þess að lækna margskonar maga-
veikindi, og getum þvi mælt með honum sem sannar-
lega heilsusömum bitter. Oss þykir það nggsamt, að
þessar óegta eptirlikingar eigi lof það skilið, sem
frumsemjendurnir veita þeim, úr þvi að þeir verða að
prýða þær með nafni og einkennismiða alþekktrar
vöru til þess að þær gangi út.
Harhoöre ved Lemvig.
Jens Christian Knopper. Ttiomas Stausholm.
C. P. Sandsgaard. Laust Bruun.
Niels Ctvr. Jensen. Ove Henrik Bruun.
Kr. Smed Bönland. 1. S. Jensen.
Gregers Kirk. L. Datdgaard. Kokkensberg.
N. C. Bruun. I. P. Fmtkjer. K. S. Kirk.
Mads Sögaa/rd. I. C. Paulsen. L. Las»en.
Laust Ch/r. Christensen. Chr. Sörensen
N. B. Nielsen. N. E. Nörby.
Eigandi og ábyrgðarmaður:
Þorleifur Jónsson, cand. phil.
Skrifstofa: á Bakarastíg við hornið á Ingólfsstræti.
Prentari: Sigm. Guðmundsson.