Þjóðólfur - 21.05.1886, Qupperneq 2
82
orðið og „fellowu, úr því svo mikið er
talað um það orð. A bls. 94 stendur,
að Engleudingar og allir útgef. Shak-
speres kingað til haldi að year sje á
þeim stað eintala. Þó ekki Wright,
sem þýðandi segist sjálfur hafa stuðzt
mjög við í skýringum sínum.
Hve margir af hinum nýrri Shaksp.-
útgef. skyldu halda slíkt ? — A bls. 95
stendnr, að „holpenu sje vanalegra en
„holpu, og lítur því svo út sem sú
mynd sje nú brúkuð. En hvortveggi
myndin er úrelt, og er nú hélped haft
í stað þeirra. Þessa hefði átt að geta.
Á bls. 164 er talað um skáldið "William
Spenser, sem mun eiga að vera Ed-
mund Spenser. Á bls. 166 stendur að
„minion“ sje á fornháþ. „minniau, en
sú mynd finnst ekki í fornháþ., held-
ur minpa, miðþáþ. minne. En þýð.
hefur auðsjáanlega farið hjer eptir
Webster og er honum því vorkunn.
Bókin er allvel úr garði gerð, að
því er ytra frágang snertir. Þó eru
töluverðar prentvillur í þýðingunni
og sumar óþægilegar, svo að meining-
in raskast, t. d. punktur þar sem hann
á alls ekki að vera (t. d. bls. 4,19, 90);
enn fremur í fyrir i og i fyrir í (t. d.
á bls. 1, 8, 4, 5, 21, 32, 58, 59, 84,
85, 88, 93, 104, 105, 107, 108) og u
f. n og n f. u (t. d. á bls. 10, 39, 44,
89, 102, 107, 109; þetta kemur
stundum opt fyrir á sömu bls. Enn
fremur a f. u (t. d. 107). Ekki er
heldur laust við ósamkvæmi í rithætti,
og skal hjer að eins getið, að stund-
um er ritað -r í niðurlagi orða (t. d.
á bls. 6, 102) þótt annars sje jafnan
ritað -ur*
J. St. & V. o.
*) Þar sem hinir heiðruðu höfundar tala um,
að þýðingar Shaksperes haíi hingað til verið
gefnar út með styrk af almannafje, geta ef til
vill ]>au orð skilizt svo, sem meistari E. M.
hafi fengið st.yrk til að gefa út Storminn. Þess
skal j)ví geta, til að fyrirbyggja allan misskiln-
ing, að hann sðtti að vísu um styrk til að
gefa út hðk þessa, en fjekk alls engan styrk
til þess.
Enn fremur skal geta þess, að meistari E. M.
hefur sent prentsmiðjueig. Sigm. Guðmundssyni
allinikið af leiðrjettingum á ýmsu í útgáfu hans
á Storminum, og ætlast E. M. til að þær bæt-
ist aptan við Storminn. Bitstj.
Brjef frá Lundúnum.
Eptir stud. mag. Jón Stefánsson.
—o—
1. Ferðin. Temps. Járnbrautir.
Riehmond.
Jeg tók mjer far með dönsku gufu-
skipi, sem fór rakleiðis frá Höfn til
Lundúna. Lögðum af stað kl. 2 á
fimmtudag, góðviðri alla leið, um há-
degisbil á sunnudag sáum við land. Það
var Suffolk-fylki, flatt land með hvítum
söndum sem fjarar langt út af. Það-
an er drjúgur spölur suður til Temps-
mynnis um auðug fiskimið innan um
skipahrannir, sem eru að draga björg-
ina úr sjónum. Sunnudagskveld lögð-
umst við í Medway-fióa sunnan til í
Tempsmynni. Ljósagangur mikill á
flóanum um kvöldið og kom það af
rauðum og grænum luktum á skipun-
um, sem lágu út um allaii flóann. I
býtið mánudagsmorgun hjeldum við
af stað upp eptir Temps. I Grave-
send kom lóss og 2 tollþjónar umborð.
Þaðan er jafnlangtupp til borgarinn-
ar og frá Helsingjaeyri til Hafnar.
Temps er skipgeng 50 mílur* í land
upp og einar 14 á breidd í mynninu,
fyrir ofan Gravesand verður hún mjórri
og mórauðari eptir því sem ofar dreg-
ur; kolaprammar og bátar fram með
bökkunum, skip í miðjunni; mesta
furða, að gufuskipagrúinn, sem æðir
upp og ofan- eptir, skuli ekki rekast
i kaf á þeim ljónagangi. Maður verð-
ur feginn að komast úr verksmiðju-
skarkalanum fyrir neðan bæinn upp
undir London Bridge, sem er neðsta
brúin á fljótinu. Temps er víst það
eina fljót, sem á myndastyttu af sjer.
Hún stendur á Somerset House á
nyrðri bakkanum. En Temps er Hka
merkisfljót. I gamla daga, þegar
London Bridge var sú eina brú á því,
voru líka til 40,000 ferjumenn; þó ó-
trúlegt þyki, þá er svo til talið á 16.
og 17. öld. Það var venja þangað til
fyrir fáum árum, þegar fljótið lagði
að halda á því 'markaði, hunda-at,
hana-at og leiki; stundum kom þá
*) Jeg brúka hjer alls staðar enskar mílur
48/4 enskar mílui' = 1 dönsk.
leysing svo skyndilega, að menn og
hundar og hanar flýttu sjer í land,
en kræsingar og góðgripir sukku og
mætti eflaust slæða margt upp af
Tempsbotni ef reynt væri. Lax og
silungur og fleira veiðist, þó ekki
nema fyrir ofan bæinn. Ollum óhrein-
indum úr borginni er fleytt um jarð-
göng 11 fet á breidd 10 á hæð og
hleypt úr þeim út í fljótið um flóð
14 mílum fyrir neðan bæinn; útfallið
ber þau til sjávar en margt sezt samt
fyrir af þeim. Rennurnar hafa kost-
að 81 miljón króna. Sjerstakt lög-
reglulið hefur umsjón á fljótinu, enda
þarfþess við. Máltækið „að stela öllu
steini ljettarau nær sjer ekki niður
þar, því sjálfum akkerunum er stund-
um stolið af skipum á fljótinu. Gufu-
bátar flytja farþegja upp eptir öllu
og á sumrin upp eptir Oxford alla
leið. (Framh.).
Eeykjavík 21. maí 1886.
Tveir undirbúning'sfuiidii' undir þingkosn-
ingar voru haldnir laugard. 15. þ. m., annar í
Hafnariirði kl. 11 f. h., liinn í Keykjavík kl. 6
e. h. Á Hafnarfjarðarfundinum mættu um 40
manns; var próf. síra Þórarinn Böðvarsson kosinn
fyrir fundarstjóra. Því næst lýstn þeir próf.
Þ. Böðvarsson, skólastj. J. Þórarinsson og sjera
Þorkell Bjarnason því yfir, að þeir gæfu kost
á sjer til þingmennsku fyrir 'kjördæmið.
Grimur Thomsen kvað sjerþykja nóg um, ef
allir þeir prestar yrðu kosnir á þing, er nú
væri i orði að kjósa. Þeir mundu þá rúmlega
fylla postulatöluna, og það þótt Júdas væri tal-
inn með. Skaðlegt væri, að hafa svo marga
þingm. af einni stjett. Hann mælti síðan með
sjera Þork., en móti þeim feðgum, sjera Þ. B.
og J. Þ. Á fundinum var drepið á ýms mál,
þar á meðal fjárveitingar þingsins til Elens-
borgarskólans, sem Gr. Thomsen var andvígur.
Gr. Th. taldi nauðsynlegt, að næsta þing setti
nefnd til að rannsaka, hvernig hallærisgjöfun-
um hefði verið varið, og fjellust þingmanna-
efnin á það. Yfir höfuð voru menn heldur á >
móti kaffitoll. Sjera Þork. var með lágum
launum embættismanna. Sjera Þórarinn kvað
þeim eiga að launa sómasamlega; farsæld lands-
ins eigi komin undir því, að svelta embættis-
menn, enda hefði hann aldrei reynt að sníkja
út atkvæði með þeim kenningum. Með laga-
skóla voru þeir eindregið sjera Þ. B. og J. Þ.,
en sjera Þork. á móti, meðal annars sakir kostn-
aðar og af þvi, að þá mundi íslendingar fremur
einangrastfráheimsmenntuninni. Með stjórnar-
skrárfrumv. síðasta þings voru eindregið sjera