Þjóðólfur - 08.10.1886, Síða 4
180
Snorrason, Pálssonar frá Sigluf.). Apt-
ur á móti hefur í sumar 1 (Þorsteinn
Skúlason) hætt við skólanám og utan
skóla lesa 3, svo að í skólanum eru
nú 110.
Yerzlun Lauritzens & Co, Hjer sunnan-
lands hefur Lauritzen, kaupmaður frá Newcastle,
keypt mikið af fje og gefið fyrir það—eptir pví,
sem það hefur vegið lifandi — 9 a. pd. í kind
undir 90 pd.. (en tók eigi ljettara en 85 pd.) 9V2
e., (10 a.) i kind frá 90—110 pd.; í kind yfir
110 pd. 11 a. pd. í þessum 110 pd. og 15 a.
fyrir hvert pd. þarframyfir. Hross hefur hann
og keypt (þar á meðal nokkur veturg.) á 25—
55 kr. Mestmegnis hefur hann horgað það í
vörum: overheadmjöl 8 a. pd., rúg 13 kr. 200
pd., hrisgrjón 10 a. pd., bankabygg 9V2—10 a.
pd., baunir 11—11 Va e- P(h| hafrar 8 a. pd.,
haframjöl 12 a. pd., maismjöl 8 a. pd., kaffi42
—45 a., kandis 26 a., hv.sykur 22 a., smjör 41
e. pd., steinolia 28—30 kr. tunnan (176 pottar).
Vörur þessar hefur hann selt við nokkru lægra
verði mót peningum. — Til hans kom 4. þ. m.
gnfuskipið Kronen, sem fór i gær til fjártöku
norður á Sauðárkrók. — Gufuskipið Minsk fór
hjeðan 6. þ. m. með 1300 fjár og 130 hross.—
Nú sem stendur hefur hann litlar sem engar
vörur, en i orði er, að hann fái enn skip i haust
með vörum; að minnsta kosti fær hann vörur
með póstskipinu Lauru.
VÍSINDALEG NÝMÆLI.
—
Stýrilegir lopthátar. Það eru rúm 100 ár,
síðan loptbátar voru fundnir upp (1782). Á
þeiin var hægt að komast upp i loptið, og urðu
þeir þá að herast áfram fyrir veðri og vindi,
en ómögulegt var að stýra þeim, eða fara á
þeim hvert sem menn vildu, þangað til fyrir
2 árum, að mönnum tókst að húa til þvílíkan
loptbát, sem fara má á hvert sem menn vilja
hæði móti og undan vindi alveg á sinn máta
eins og menn nú fara um sjóinn á gufuskipum.
Það er skrúfa, sem knýr loptbátinn áfram, en
skrtifan er sett, i breyfingu með rafmagni og
hátnum er stýrt með dálitlu stýri. Þeir heita
Krehs og Benard, sem fyrstir haf'a látið gera
þvilíkan hát fyrir 2 árum, en síðan hefurÉen-
ard gjört ýmsar endurbætur við hann. Bátur-
inn, sem heitir La France, var fyrst reyndur
9. ág. 1884 og þá snerist skrúfan 42 sinnum
á mínútu og hraði bátsins var um 2V8 mílu á
klukkustund. 23. sept. í fyrra var bátur-
inn enn reyndur, eptir að hann hafði verið
endurbættur að nýju, og þá snerist skrúfan
57, sinnum á mínútu og háturinn fór nálægt 3
mílur á tímanum.
Til
hr. prestaskólakennara E. Bríems.
í reikníngi kvennaskólans í Rvík 31. ág 1882
til 31. ág. 1883 (Isafold 1884 bls. 60) stendur
„Til forstöðukonu skólans 600 lcr“. í reikningi
kvennask. frá 1. sept. 1883 til 31. ág. 1884.
(ísaf. 1886 hls. 52) stendur: „1. til forstöðu-
konunnar fyrir árið 1883/84 600 kr. 2. t.il
sömu fyrir 1882/83 (auk 500 kr. áður) 100kr.“
Það er kunnugt að forstöðukonan hefur á seinni
árum fengið alls 600 kr. laun, svo að af þess-
um reikningi var eigi hægt að ætla annað en
100 kr. væri tvitaldar, og getið þjer eigi kennt
öðrum um það en sjálfum yður, en nú hafið þjer
skýrt frá, að þær eru það eigi og þakka jeg
yður það, eins og jeg hins vegar vona, að reikn-
ingarnir verði framvegis svo greinilegir hjá
yður, að mögulegt sje að sjá, að þeir sjeu rjett-
ir. — En, með leyfi, hverjir endurskoða reikn-
inga kvennaskólans og því skrifa þeir eigi á
þá, að þeir hafi gjört það?
Með virðingu.
s.
AUGLYSINGAR
í samfeldu máli m. sm&letri kosta 2 a. (þakkaráv. 3a.
hvert orö 15 stafa frekast; m. ööru letri eöa setning
1 kr. fyrir þumlung dálks-lengdar. Borgun út 1 liönd.
„VESTURFÁRARNIR"
verða leiknir á laugardags-kvöldið (9.
október).
fiPÍhÍHírPP °£ önnur eyðublöðeru prentuð
IlÖIMill&íll fljótt og vel hjá Sigm. Guð-
mundssyni. — Fínustu visitkort og gratul.kort.
Jöróin FORSŒLU-
DALITIL í Yatnsdal í Húnavatns-
sýslu er til sölu, að undanskildu afrjettarland-
inu Hvíslum. Kaupandi getur fengið jörðina
til áhúðar í næstu fardögum. Hver sem kynni
að vilja kaupa jörðina er beðinn að snúa sjer
til Björns Eysteinssonar á Bjettarhól i Dals-
hvíslum.
Almennur safnaðarfundur
í Beykjavík 25. október kl. 4 í leikfimishúsi
barnaskólans. Fundarmál: umsjón og fjár-
hald dómkrikjunnar; breytingar á tekjugrein-
um presta; innleiðsla hinnar nýju sálmabókar.
Sjá nánara uppfestar auglýsingar.
Hallgrímur Sveinsson.
Hjer með gefst til vitundar, að ferða-
menn og aðrir mega alls ekki ríða, eður láta
hesta sína fara yfir um túnið á Esjubergi eð-
ur Eystri og Vestri Saltvík; og verði slíku
hanni ekki hlýtt, hafa ábúendur heimild til að
taka hestana, og sjá til að þeir sem það gjöra
verði sektaðir að lögum.
Beykjavik 6. okt. 1866.
Kristín Bjarnadóttir.
Til Helga Jónssonar á Ketilsstöðum á Kjal-
arnesi hefur verið dregin kind með hansmarki:
geirstýft hœgra, en með þvi að hann á eigi kind
þessa, er hjer með skorað á þann, sem á hana,
að gefa sig fram og sanna eignarrjett sinn að
markinu og jafnframt vitja kindarinnar til áð-
urnefnds Helga Jónssonar.
Þessa árs leigur af Tungufelli í Lunda-Reykja-
dnl eru geymdar hjá Factor M. Ólafssyni á
Akranesi; umboðsmaður jarðarinnar, hver sem
hann er, má vitja þeirra þar.
Q. þ. m. týndist grár hestur í Fossvogi, 15
vetra gamall, með marki : sneitt fr. standfjöður
apt. hægra, sneitt fr. vinstra, vakur, járnaður
með fjórböruðum skeifum. Hver sem kynni að
hitta hestinn, er vinsamlega heðinn að gera að-
vart um það sem fyrst til Einars Magnússon-
sonar á Miðfelli í Hrunamannahreppi.
Hina evangelisku fyrirlestra held jeg
framvegis kl. 5 á hverju sunnudagskveldi í
dómkirkjunni, en ekki í Glasgow.
Reykjavik 7. okt. 1886.
Lárus Jóhannsson
CSrOtt og snoturt íhúðarhús úr timbri í
Hafnarfirði fæst til kaups með vægu verði.
— Lysthafendur snúi sjer til ritstjóra þessa
blaðs.
Til athugunar.
Vjer undirskrifaðir álitum það skyldu vora
að biðja almenning gjalda varhuga við hinum
mörgu og vondu eptirlíkingum á Brama-lífs-
eleocír hra. Mansfeld-Búlner & Lassens, sem
fjöldi fjárhuga kaupmanna hefur á boðstólum;
þykir oss því meiri ástæða til þessarar aðvör-
unar, sem margir af eptirhermum þessum gera
sjer allt far um, að líkja eptir einkennismiðan-
um á egta glösunum, en efnið i glösum þeirra
er ekld Brama-lífs-elixír. Vjer höfum um lang-
an tima reynt Brama-lífs-eliocír, og reynzt hann
vel, til þess að greiða fyrir meltingunni, og til
þess að lækna margskonar magaveikindi, og get-
um þvi mælt ineð honum sem sannarlega heilsu-
sömum bitter. Oss jiykir það uggsamt, að þess-
ar óegta eptirlíkingar eigi lof það skilið, sem
frumsemjendurnir veita þeim, úr því að þeir verða
að prýða þær með nafni og einkennismiða al-
þekktrar vöru, til þess að þær gangi út.
Harboöre ved Lemvig.
Jens Ghristian Knopper. Thomas Stausholm.
C. P. Sandsgaard. Laust Bruun.
Niels Chr. Jensen. Ove Henrik Bruun.
Kr. Smed Bönland. I. S. Jensen.
Gregers Kirk. L. Dahlgaard Kokkensherg.
N. C. Bruun. I. P. Emtkjer.
K. S. Kirk. Mads Sögaard.
I. C. Paulsen. L. Lassen.
Laust Chr. Cristensen. Chr. Sörensen.
N. B. Nielsen. N. E. Nörby.
Eigandi og ábyrgðarmaður:
Þorleifur Jónsson, cand. phil.
Skrifstofa: á Bakarastíg.
Prentari: Sigm. Guðmundsson.
i