Þjóðólfur - 26.11.1886, Blaðsíða 2

Þjóðólfur - 26.11.1886, Blaðsíða 2
206 lausn geta þá bráðabirgðalög lifað að ei- lífu, að minnsta kosti er mjög erfitt að afnema þau, því að þessi lög höfðu ver- ið lögð fyrir þingið af einum þing- manni, og þau verið felld þar. Hilleröd á, Sjálandi 4. nóv. 1886. Tíðin er hjer hin ákjósanlegasta og uppskeran varð allgóð, en verð á vör- um bænda er fremur lágt. Atvinnu- leysi meðal verkamanna er frámuna- legt, svo að til stórvandræða horfir. Yfir höfuð ákaflega mikil deyfð í verzl- un og atvinnuvegum; ef ekki ræðst fram úr því, lítur mjög illa út fyrir almenningi, svo að það er' ekki ís- land eitt, sem komizt hefur í því lík- ar kröggur. Skoðun Times á stjórnarbaráttu íslendinga, 0* a Eins og flestir lesendur Þjóðólfs munu vita, er blaðið Times, sem kemur út í Lundúnaborg, eitthvert hið stærsta og mest metna blað í heimi. 29. sept. þ. á. er í því ritstjórnargrein um stjórnar- bótamál vort. í sama blaðinu er frjetta- brjef frá einhverjum frjettaritara blaðs- ins, sem segir frá afdrifum stjórnar- skrárfrumvarpsins á þinginu í sumar og áhuga Iandsmanna á því máli. Hann segir og frá því, live hagur landsmanna sje hörmulegur í öllum greinum o. s. frv. og í niðurlagi brjefsins kvartar hann um stakt dugleysi liinna æðri embætt- ismanna landsins og áhugaleysi þeirra á hagsmunum þess. Á undan þessu frjettabrjefi stendur áðurnefnd ritstjórnargrein, þar sem er skýrt frá, hvernig stjórnarskipun ís- lands er nú og hvað íslendingar fari fram á. Þykir Times kröfur íslend- inga í alla staði eðlilegar, en heldur þó að þær fáist ekki uppfylltar með- an hið núverandi ráðaneyti situr að völdum í Danmörku. Það telur þó ó- hyggilegt fyrir íslendinga að grípa til nokkurra ólöglegra ráða, því að báð- ir málspartar mundu hafa illt af því. „Danmörk mundi baka sjer hörmlegt hatur með því að beita nokkurri kúg- un og ofríki gegn lítilli, en mjög ept- irtektaverðri (interesting) þjóð, en hins vegar mundi vopnuð mótstaða frá hálfu íslendinga hafa svo mikið tjón í för með sjer, að þeir biðu þess ekki bæt- ur, og það enda þótt þeir bæru hærra hlut“. Um hin einstöku atriði stjórnardeil- unnar má að vísu koma fram með ým- is konar skoðanir, en þó verður ekki kröfum íslendinga um sjálfstjórn jafn- að saman við kröfur íra, því að Keykja- vík er 1200 mílur frá Danmörku. Verzl- unarviðskipti milli íslands og Danmerk- úr eru hvorki mikil nje hlýleg. Verzl- unin við Skotland er að líkindum miklu ábatasamari en verzlunin við Dan- mörku. Það er engin ytri hætta fyrir Danmörk að veita íslendingum það er þeir krefjast. Það mundi vera torvelt fyrir Dani að segja, hvað’ þeir mundu missa við það, nema ef það skyldi vera hinn lítilsverði rjetfur til að veita fá- ein mögur embætti. Þetta æt-ti stór- um að geta stuðlað að málamiðlun. Stjórnin hefur allt af synjað staðfest- ingar á fleiri og færri lögum frá al- þingi. Ef ráðgjafinn fyrir íslandi hefði notað neitunarvaldið með jafnmikilli gætni eins og t. a. m. nýlenduráðgjafi Englendinga, mnndu íslendingar valla hafa komið fram með kröfur um sjálf- stjórn. Það er alkunnugt að liagur landsins er hinn bágasti og að það er brýn nauðsyn á mörgum umbótum í því efni frá löggjafarvaldsins hálfu, en stjórnin í Danmörku er ásökuð fyrir, að synja staðfestingar á þeim lagafrum- vörpum, sem hafa komið frá alþingi í þá átt, og það geri hún af öfund, eig- ingirni, eða blátt áfram af fávizku og skeytingarleysi. í stjórnardeilum er að vísu ekki ævinnlega hægt að reiða sig á almenningsálitið, enalltfyr- ir það má þó fullyrða eptir þjóðar ein- kennum íslendinga, að fulltrúar þeirra hafa að minnsta kosti eins vel vit á, hvað landinu er fyrir beztu, eins og maður, sem situr við skrifborð sitt í 1200 mílna fjarlægð frá landinu. — Það er ómögulegt að neita því, að svo lítur út, sem Danmerkur stjórn sje gjarnt að vekja óvild og tortryggni gegn sjer hjá þeim þjóðum, sem eru undir hana gefnar. Danir og konung- ar þeirra hafa sorglega reynslu við að styðjast í því efni frá Hertogadæmun- um. Þeir ættu að vara sig á að láta sjer verða sama skyssan á aptur, og gæta þess að gera íslendinga ekki frá- hverfa Danmörku fyrir fullt og allt. Það er sannlega eptirtektavert, að Times — heimsblaðið — skuli fara þessum orðum um stjórnarmál vort. Aðal- atriðin úr grein þessari voru tekin upp í hið danska vinstri manna blað Politik- ina 2. okt. — Dagblaðið danska 22. okt. kom með ritstjórnargrein móti greininni í Times. Dagblaðið er eins og menn vita liægri manna blað og mjög handgengið stjórninni, og má svo að orði kveða að það, sem það segir um stjórnarmál, sjeu orð dönsku stjórn- arinnar, G-rein þessi er að sumu leyti næsta einkennileg. Auðvitað reynir hún að bera í bætifláka fyrir stjórn- inni og sýna fram á, að ástæðulaust sje fyrir íslendinga að koma fram með þessar stjórnarbótarkröfur. Að því er lagasynjanir snertir og önnur úrslit ís- lenzkra mála hjá ráðgjafanum, slengir blaðið skuldinni á landshöfðingja, því það segir meðal annars, að ráðgjafinn fyrir íslandi fari eptir skýrslum og til- lögum landshöfðingja í öllum' málum, þar sem þekking á staðháttum hafi nokkra þýðingu, með öðrum orðum, í sjerstökum málum landsins, enda hafi í lagasynjunum t. a. m. synjun á lög- um um lagaskóla og afnám amtmanna- embættanna o. s. frv. verið farið eptir tillögum landshöfðingja. — Samkvæmt þessu eru þá landshöfðingja að kenna, er íslenzk mál.fá önnur úrslit hjá ráð- gjafanum, en þau, sem landsmenn óska, og getur landshöfðingi ekki skotið skuld- inni á ráðgjafann í því efni. En þetta er aptur sterk ástæða fyrir stjórnbóta- kröfum voruin, því að livað á þetta flakk málanna til Danmerkur að þýða, úr því að tillögur landshöfðingja ráða næstum eða eingöngu úrslitum þeirra, — landshöfðingja, sem kalla má á- byrgðarlausan.

x

Þjóðólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.