Þjóðólfur - 31.12.1886, Síða 2
226
ist af landi burt til Ameríku, mest til
Kanada. Af embœttismönnum, sem lát-
izt hafa hjer á landi eru helztir:
Bergur Thorberg landshöfðingi ogGuð-
mundur sýslumaður Pálsson; enn erlend-
is: fyrverandi landshöfðingi Hilmar
Finsen yfirborgstjóri í Khöfn (d. 15. jan-
úar); uppgjafaprestar 2 Ijetust: Geir
Bachmann og Jón Ásgeirsson ; af bœnd-
um: Árni Sigurðsson í Höfnum, Bene-
dikt Jóhannesson að Hvassafelli í Eyja-
firði (d. 24. okt.), Daníel Jónss. á Þórodds-
stöðum i Hrútaf., Jón Jónsson á Æsustöð-
um í Eyjafirði (d. 17. okt.), Jón Pálmason
í Stóradal, Þorsteinn Jónsson þingmað-
ur Vestmanneyinga, allt merkustu bú-
höldar. Látnar merkiskonur voru: prests-
ekkja Elinborg Pjetursdóttir (f. 1. nóv.
1805, d. 9. febr.), ekkjufrú Maríe Fin-
sen (f. 28. apríl 1803, d. 27. nóv.), Sol-
veig ljósmóðir Pálsdóttir (f. 8. okt.
1821, d. 24. maí) og ekkjufrú Þórunn
Thorsteinson (f. 30. júlí 1794, d. 28.
marz) og erlendis (á Þýzkalandi): Jó-
hanna Kristjana Gunnlaugsdóttir Briem,
kona dr. Carl Schútz, málfræðings á
Þýzkaiandi (f. 20. jan. 1806. dáin 15.
apríl).
EnJjœttafhdninrjar urðu 35, þar af
brauðaveitingar 22; 8 prestar fengu
lausn frá embætti með samtals 3433 kr.
19. a. eptirlaunum, enn vígðir vóru til
prestsembættis 12 kandídatar; þó eru
12 prestaköll óveitt, sýslumannsemb. í
Skagafjarðarsýslu, önnur málafiutnings-
sýslanin við yfirdóminn og aukalækna-
sýslanirnar í Dalasýslu og Dyrhóla-
hreppi.
J'on Steingrímsson.
Reykjavík, 31. des. 1886.
Embættispróf við prestaskðlann. Friðrik
Jónsson tók 24. þ. m. próf í guðfræði og fjekk
2. einkunn (41 stig). Hann var sjúkur í sum-
ar, er prófið fór fram á prestaskólanum.
Sjónleikir. í latinuskólanum hafa verið
leiknir sjónleikir á mánudags-, þriðjudags-, mið-
vikudags- og fimmtudagskveld núna í vikunni:
Andbýlingarnir eptir Hostrup, Hann drehk-
ur eptir Konradi, Erasmus Montanus eptir
Holberg og Lœknirmncmót vilja sínum eptir
Molie.re. Það er bindindisfjelag skólapilta, sem
hefur stofnað til sjónleikanna eins og í fyrra
um jólin. Hafa skólapiltar boðið bæjarmönn-
um til að horfa á leikina, en sunnudagskveld-
ið 2. janúar verður leikið í skólanum og að lík-
1
indum selt. — 1 Glasgow hefur stöku sinnum
núna að undanförnu verið leikinn Skuggasveinn
eptir Matthias Jochumsson.
Islendingafjelag í Kaupmannahöfn
hjelt fyrsta vetrarfund sinn mánud. 1. nóv. —
Forseti skýrði frá því í byrjun fundarins, að
stjórn fjelagsins hefði komið sjer saman um,
að koma á sunnudagaskóla í fjelaginu i vetur
fyrir fátæka íslenzka leikmenn í Höfn. Stú-
dentar hefðu margir lofað að kenna borgunar-
laust, fjelagið annast allan kostnað, sem af
þessu kynni að leiða og nú væri að eins undir
því komið, hvort leikmenn vildu sæta þessu.
Hann lýsti þvi yfir að íslendingar, sem kæmu
að heiman, öllum ókunnugir, og þyrftu að-fá
ýmsar upplýsingar, gætu framvegis snúið sjer
að stjórn íslendingafjelags og myndi hún leið-
beina þeim eins og hún framast gæti, útvega
þeim húsnæði, vinnu o. s. frv., ef henni væri
unnt. — Fjárstyrks væri ekki að vænta af fje-
laginu í bráð, eins og ekki væri von, þar sem
fjelagsmenn væru flestir lítt efnum búnir, því
fæstir af hinum fjáðari íslendingum í Höfn
væru í fjelaginu og styrktu það því ekki að
neinu leyti, en hann kvaðst vona svo góðs til
þeirra, að -þeir 'gengu í fjelagið eða styrktu það
á einhvern-hátt, þegar þeir sæju að það gerði
eitthvert verulegt gagn. Cand. jur. Páll Briem
hjelt mjög góðan fyrirlestur um „frelsi óg
rjett“. — Eptir fyrirlesturinn skemmti fólk
sjer við söng, spil, tafi o. s. frv., eins og venja
er til á fundum.
í vetur verða fundir haldnir eínu sinni á
viku til marzmánaðar loka.
-S-3§j M O Ð.
—:o:—
Sannkallað fiistudagsár hefur árið verið,
sem nú er að kveðja. Það byrjaði á föstudegi
og endar á föstudegi; í því hafa verið alls 53
föstudagar. — í jan., apr., júní og októbermán-
uðum voru 5 föstudagar í hverjum, og 5 tungl-
breytingar (tunglkoma, fylling, kvartilaskipti)
ársins hafa borið upp á föstudag.
Steinolíubrunnar hafa fundizt á vesturströnd
Rauðahafsins; þykir sá fundur heillavænlegur
fyrir Egyptaland, því fjárhagur þess stendur
hörmulega illa. Nú er farið að nota steinolíu
fyrir eldsneyti í stað steinkola á gufuskipum ;
og þykir víst, að hún muni verða aðaleldsneyti
gufuskipa síðarmeir.
AUGLYSINGAR
I samfeldu máli m. smáletri kosta 2 a. (þakkaráv. 3a.
hvert orð 15 stafa frekast; m. öðru letri eöa setning
1 kr. fyrir þumlung dálks-lengilar. Borgun útíhönd.
ÞJÓÐÓLFU R,
Þessi blöð Þjóðólfs verða keypt við háu verði
á afgreiðslustofu hans:
Af 2. árg. 30.—31. blað, er nefnist:
Hljóðólfur.
Af 38. árg. 36., 38.-39. tbl.
Alþýðlegt frjettablað, er jeg bauð í
sumar, hefur eigi fengið nógu marga áskrifend-
ur til þess, að jeg geti gefið það út.
Björn Bjarnarson
Heimskringla,
hið nýja vikublað íslendinga í Vesturheimi, gef-
ið út í Winnipeg, fæst i Reykjavík hjáSigurði
bóksala Kristjánssyni. — Hið stærstablað, sem
prentað hefur verið á íslenzka tungu. Kostar
að eins 6 krónur.
Rautt hesttryppi tveggja vetra með mark:
standfj. apt. v., heíur komið fyrir hjer i hreppi
og eigi gengið út, eptir birtar auglýsingar í
nábúa hreppa hjer næstu, og þess vegna var
það selt við opinbert uppboð, hinn 28. þ. m.
og getur rjettur eigandi fengið tryppið innan
14 daga frá útkomu þessarar auglýsingar með
því, að borga allan áfallin kostnað, að öðru
leyti andvírðið að frá dregnum kostnaði tilfar-
daga 1887 hjá undirskrifuðum hreppstj.
Mosfellshreppi 28. des. 1886.
Halldór Jónsson.
Á næstliðnu hausti var mjer dregin hvítkoll-
ótt gimbur veturgömul með fjármarki mínu:
tvístýft fr. hægra biti apt., sneitt fr. gagnbit-
að v. Getur íjettur eigandi vitjað andvirðis-
ins til mín fyrir næstkomandi fardaga.
Vatnshóli i Húnavatnssýslu 7. des. 1886.
Magnús J. Halldörsson.
Nú hef jeg nýlega fengið nóg efni til að búa
til úr hinn alþekkta, góða vatnsstígvjela-
áburð minn, er jeg sel nokkuð ódýrari en
áður, af því að jeg lief fengið efni í samsetn-
inguna nokkru ódýrara en í fyrra. — Það er
ómissandi fyrir þá, sem vilja hirða vel um stig-
vjel sin, að kaupa þennan áburð, því að stíg-
vjelin endast miklu lengur, ef þau eru iðulega
smurð með þessum góða áburði frá mjer.
Reykjavik 16. des. ’86.
Bafn Sigurðsson.
Tannlæknir.
Hjer með leyfi jeg mjer að tjá mönnum, að
jeg ætla mjerað dvelja nokkra mánuði í Reykja-
vík, og að jeg tek að mjer tannlækningar, án
þess að draga tennurnar út, með því að fylla
holar tennur (Plombering), hreinsa tennur, setja
í menn Ameríkanskar glerungs- (Emaille) tenn-
ur af beztu tegund og koma reglu á tanntöku
hjá börnum. Auk alls konar tannlækninga tek
jeg enn fremur að mjer lækning á allskonar
munnsjúkdómum.
O. Nickolin
cand. pharm., tannlæknir.
Eigandi og ábyrgðarmaður:
Þorleilur Jónsson, cand. phil.
Skrifstofa: á Bakarastíg.
Prentari: Sigm. OiaJmundsson.
f
t
I