Þjóðólfur - 19.03.1887, Blaðsíða 4
48
ur jafnan rækilega og með meira fylgi I
en önnur útlend blöð stutt mál vort
gagnvart dönsku stjórninni, og ættu því
þeir íslendingar, sem halda dansktvinstri
blað, að halda Morgunblaðið framar öðr-
um. — í áminnsti grein er stuttlega
rakin saga stjórnarskrárbreytingarinnar
á síðustu þingum og tekið fram, hve
þjóðin hefði greinilega sýnt við síðustu
kosningar, að stjórnarskrárbreytingin
er henni mjög mikið áhugamál; blaðið
telur og engan efa á, að næsta alþingi
taki málið fyrir á ný. — Blaðið ámæl-
ir og Nellemann fyrir lagasynjanir og
hve lítinn gaum hann gefi ályktunum
alþingis. Meðal annars minnist blaðið
á Fensmarkshneykslið og á ályktun
síðasta alþingis í því máli, sem Nelle-
mann sje eigi, svo að menn viti, farinn
að sinna enn sem komið er. Málið sje
þó næsta þýðingarmikið, því að þar sje
að ræða „eigi að eins um að firra lands-
sjóðinn miklu fjártjóni, sem hann
megi ekki við, heldur einnig hitt — sem
sje á annan hátt mjög þýðingarmikið
fyrir ísland á ókomnum tíma, — að
taka, öðrum til viðvörunar, duglega
í lurginn á hirðulausum embættismönn-
um, hvort sem þeir nú heita amtmað-
ur eða landshöfðingi“-
Bókmenntafjelaglð. Á fundi 26.
febr. samþykkti Hafnardeildin tillögu
Beykjavíkurdeildarinnar (sjá Þjóðólf 6.
tbl. þ. á.) um að leggja heimflutnings-
málið í gjörð þriggja manna, og kaus
frá sinni hálfu sem gjörðarmann stipt-
amtmann Hannes Finsen, en hafnaði
sem oddamanni geheimeetazráði A. F.
Krieger, er Reykjavíkurdeildin hafði
kosið til þess, en sem oddamann kaus
Hafnardeildin professor Konráð Maurer.
— Að því er ríkisskuldabrjef fjelags-
ins snertir, samþykkti Hafnardeildin,
að „ekki gæti komið til greina, að
nokkuð af fjelagssjóðnum yrði sent
Reykjavíkurdeildinni“, og var þó í ráði
að fá þau útborguð í peningum, enda
gat Hafnardeildin fengið það ummæla-
laust frá hálfu „ríkisskuldaforstjórans“
án tillits til þess skilyrðis Reykjavík-
urdeildarinnar, að henni yrðu sendar
9000 kr. af peningunum.
Tíðarfar hefur yfir höfuð verið held-
ur óstillt sunnanlands, þar til fyrir
skömmu, að hægviðri gjörði, en nú er
aptur komin óstilling á veðrið. Hagar
sunnanlands góðir. Svipað tíðarfar að
frjetta víðast hvar af landinu. Hagar
norðanlands góðir, nema fram til heiða
og upp til fjalla víða jarðlaust. Vest-
anlands sögð verri tíð og sums staðar
haglítið eða haglaust, einkum í Dölum.
Hey reynazt yfir höfuð mjög slæm
norðan- og vestanlands, og heybirgðir
mjög litlar.
Lausn frá prestskap hefur lands-
höfðingi í dag veitt sjera Jóhanni Knúti
Benediktssyni(vigðun) 1849) áKálfafells-
stað í Austurskaptafellssýslu.
Nýlosnað brauð er því tjeður Kálfa-
felísstaður metinn 776 kr.
Verðlagsskrár 1887- -1888. Lambs- MeÖal.
Dagsverk. f'ÓÖur. alin.
Austurskaptafellssýsla . . 2.25 3,33 43
Yesturskaptafellssýsla . . 1,91 2,89 43
Rangárvallasýsla . . . 2,17 3,01 45
Vestmannaeyjasýsla . . 2,50 3,50 42
Árnessýsla 2,35 3,70 52
Gbr. og K.sýsla og Rvík 2,82 4,27 55
Borgarfjarðarsýsla . . . 2,21 3,89 51
Mýrasýsla 2,67 4.44 56
Snæf.- og Hnappadalssýsla 2,70 4,87 54
Dalasýsla 2,67 5,25 55
Barðast.randarsýsla . . . 2,06 4,79 54
ísafjarðarsýsla og kaupst. 2,38 5,05 53
Strandasýsla 2,10 5,71 52
Húnavatnssýsla . . . . 2.147. 4,54 49
Skagafjarðarsýsla . . . 2,25 4,887, 47
Eyjafj.sýsla og kaupstaður 2,57 4,39 47
Þingeyjarsýsla . . . . 2,847. 4,53 487,
Norðurmúlasýsla . . . 2,72 4,30 50
Suðurmúlasýsla . . . . 3,08 4,221/, 53
Verzlunarfrjettir frá Khöfn 1. marz.
Rúgur, mjöl, ertur, hafrar og sykur
í líku verði, sem í janúar, en kaffi að
hækka í verði. Kramvara í líku verði
og næstliðið ár. Af íslenzkum vörum
hefur iill og lýsi ekki hækkað í verði.
Þar á móti hefur fiskur hækkað í verði,
og seldust um 200 skpd, sem komu
frá Færeyjum seinast með Lauru, fyrir
41 kr. skpd. A Spáni betra útlit með
verð á íslenzkum fiski en verið hefur.
Þar kvað hafa legið mikið af norskum
fiski, fiski frá Nýfundnalandi ogjafnvel
frakkneskum fiski; er sagt, er að fisk-
ur þessi liafi, við geymslu i papphús-
um þar, eigi haldið sjer eins vel og ís-
lenzkur fiskur, enda eru Spánverjar að
sögn farnir að sjá að frakkneskur fisk-
ur geymist ekki vel, því að hann sje í
raun og veru ekki meir en hálfverkað-
á móts við íslenzkan fisk. En eigi að
síður ríður fslendingum mjög mikið á
að vanda verkunina á fiskinum, því að
það er helzti vegurinn til að halda fisk-
markaðinum á Spáni.
AUGLYSINGAR
í samfeldu máli m. smáletri kosta 2 a. (þakkaráv. 3a.
hvert orö 15 stafa frekast; m. öðru letri eða setning
1 kr. fyrir þumlung dálks-lengdar. Borgun útíhönd.
Anehor Línan hefur sent mjer nokkur
hundr. expl. af nýjum hæklingi, með korti, um
Canada(ádönsku); getaAmeríkufarar fengið hann
gefins, ef þeir senda burðargjaldið, 6 aura, eða
frimerkið. Rvík, 18/3—87.
Sigm. Guðmundsson. ' 100
II. Lauritzen & Co. í Newcastle
on Tyne auglýsir hjer með, að herra
C. Knudsen, sem í íýrra var erlnds-
reki vor á íslandi, er eklti lengur
í þjónustu vorri, og að liann má
þess vegna engin skipti liafa við
neinn í voru nafni.
Newcastle on Tyne 20. jan. 1887.
Hans Lauritzen & Co. 101
God Lön
finde ærlige ogflittige personer.
Tilbud under S. P. 4766 til Aug. ,J. WollT
& Co., Annoncebureau, Kjöbenhavn. 102
Til kaups fást þessar bækur:
Yor Herres og Prelsers Jesu Christi Liv, for-
talt for Folket. Bearbejdet efter det Bngelske
af Georg Evers. Skrautútgáfa með 126 mynd-
um.
Lchrbuch der hornöopathischer Therapie í 2
bindum. — Ritstjóri vísar á seljandann. 103
Nokkur kvæöi eptir Hanncs S. Blön-
(lal, fást hjá Sigurði Kristjánssyni fyrir 50 a.
Eríðamark mitt er sýlt bæði og gagnfjaðrað
bæði:
Húsatóptum í Grindavik 1. júlí 1886
Joseph Chr. Johnson. 105
Eigandi og ábyrgðarmaður:
Þorleifur Jðnsson, cand. phil.
Skrifstofa: á Bakarstíg.
Prentari: Sigm. Guðmundsscm.