Þjóðólfur - 24.06.1887, Síða 1

Þjóðólfur - 24.06.1887, Síða 1
Kemur út á föstudags- morgna. Verö árg. (60 arka) 4 kr.(erlendisó kr.). Borgist fyrir 15. júlí. ÞJÓÐÓLFUR. Uppsögn (skrifleg) bund- in viö áramót, ógild nema komi til útgefanda fyr- ir 1 október. XXXIX. ár^r. Keykjavík, föstudaginn 24. ,)úní 1887. Nr. 26. Um endurbætur á kvikfjárrækt. Eptir Hermann Jónasson. I. Það er á margra manna vörum, að í manna minnum haíi horfur aldrei verið jafnísjárverðar sem nú. Virðist því hugur mjög margra stefna til Ameríku, og miklar líkur eru til, að menn þyrpist þangað jafnótt og þeir sjá vegi til þess. Þetta er og skilj- anlegt, því að sem betur fer, erum vjer koinnir á það þroskastig, að vjer get- um ekki unað við skrælingjaþarfir i andlegum og líkamlegum efnum; en faiargir sjá ekki veg til að geta full- nægt lífskröfum sínum hjer á landi, og vilja þvi reyna að leita gæfu sinn- ar annars staðar. Það er þó neyðar- kostur að verða að flýja. landið, til þess að tryggja lífsstöðu sína og sinna. En þurfa menn að flýja land- ið, til þess að geta lifað eins og frjáls- bornum mönnum sæmir? Það er auð- vitað, að árferði er hjer opt mjög erf- itt, og hefur þrengt tilfinnanlega að oss hin síðustu ár, en allt fyrir það er það skoðun margra vorra beztu manna, að ef atvinnuvegir vorir væru rjett og ötullega stundaðir, stjórnarskipun þjóð- mála vorra svo haganleg, að hún gæti sem bezt fullnægt kröfum vorum, og mörgu fleiru, sem miður fer, væri beint í rjetta átt, þá væri eigi að ótt- ast, að oss liði ekki vel, og að vjer gætum talizt menn með mönnum. Hver sem athugar þetta vandlega, verður að jata að skoðun þessi eje rjett. Og ef menn viðurkenna það, þá er það ekki hrjóstur landsins og óblíða náttúrunnar, sem vjer flýjum, beldur flýjum vjer þjóðina eða þjóðar- óvanann, það er að segja, vjer flýjum ‘yalfa oss. En þurfum vjer að fara Ameríku, til þess að lagfæra sjálfa °ss? Getum vjer ekki eins gjört það hjer á landi? Margir segja, að þótt þeir leitist af alefli við að verðasjálf- stæðir, þá sje hjer svo margt, sem styðji til þess að eyðileggja eða koma i veg fyrir sjálfstæði þeirra, að þeir verði ofnrliði bornir; eini vegurinn sje því að fara til Ameríku. Þegar litið er því á hag og hugs- unarbátt þjóðarinnar, leynist engum, að þetta eru alvarlegir tímar, ef ekki í fyllsta máta hættulegir. Það er því brýn þörf á bótum, ef á að komast hjá örbirgð. Um þetta verða allir vandlega að hugsa; því að horfurnar verða eitthvað að breytast frá því sem nú er. Þeir, sem eitthvað geta, mega ekki streyma af landi burt, en öreigar hrúgast hópum saman á sveit- irnar, sveitirnar á sýslurnar og sýsl- urnar svo á landssjóð. Það er að vísu margt, sem þrengir hjer að, en þó einna mest, hversu fjenaðurinn er fallinn, og það, sem hefur lifað af honum, lítur út fyrir eð verða sára afnotarýrt um mest allt land. En er þetta ekki að nokkru fyrirhyggjuleysi voru að kenna, þar sem fje svo þúsundum skiptir hefur fallið úr hor? Það er auðvitað, að mjög margt af þeim fjenaði, sem drep- izt hefur í vor, fórst í stórhríðinni miklu, er geisaði víða yfir eptir miðjan maí, °g í þvílikum áhlaupum haust og vor er erfitt eða alls ekki unnt að verj- ast óhöppum. En i hvaða landi sem er, geta ófyrirsjáanleg óhöpp að hönd- um borið af völdum höfuðskepnanna. Það er eðlilegt, að til vandræða horfi, þegar arður af kvikfjenaði bregzt meira eða minna, því að kvikfjárrækt hefur verið og er sem stendur helzta atvinnugrein vor, sem auðsætt er af því, að mestur mannfellir hjer á landi hefur leitt af fjárfelli, en ekki affisk- leysi. En þar eð kvikfjárræktin er aðalatvinnugrein vor, þá má töluvert leggja í sölurnar fyrir umbætur á henni. Það getur enginn borið á móti því með rjettu, að almennt sje mjög mikið ólag á kvikfjárræktinni. En allir hljóta að sjá, að þannig má ekki lengur ganga. Vil jeg því reyna að benda á þá helztu vegi, er gætu leitt til þess að bæta kvikfjárrækt vora. Eyrst og fremst ríður á þvi, að hver sem fæst við hirðing búpenings, hafi fullan áhuga á því, að leysa það starf sem bezt af liendi, og til þess að geta það, leita sjer allra þeirra upplýsinga, sem hægt er að fá. En um fram allt verða menn að glæða hjá sér velvild til skepnanna og vorkunnsemi við þær. Þess ber að gæta, að vjer höf- um skyldur gagnvart skepnunum, og vjer verðum að vera strangir við oss að gæta rjettar þeirra. Sá, sem er vorkunnlátur við skepnurnar og vill ekki brjóta rjett þeirrr, setur vel á hey sín að haustinu, því að hann getur ekki þolað að sjá skepnu.rnar líða hungur og kvalir allan veturinn. Það er þvi engin hætta, að hann felli úr hor; þvi að þótt óvenjuharðir vetrar komi, getur hann síðari hluta vetrar við haldið lifinu í skepnunum með vanhalds fóðri. Þótt skaðinn sje á- kaflega mikill, sem leiðir af því að horfella skepnur, eða kvelja þær svo, að afnot þeirra verði engin eða sára- rýr, þá hafa menn allt fyrir það ekki i þúsund ár lært að verða hyggnir af þeim skaða; því að seint á 19. öld falla skepnur enn úr hor. Mönnum hættir svo við, að ganga eptir máls- hættinum: „Vogun vinnur og vogun tapar“, en því getur ef til vill stund- um verið bót mælandi, þegar teflt er um gull og silfur eða aðra dauða muni, en það er alveg rangt þegar teflt er um líf eða lífskjör varnarlausra skepna, sem vjer eigurn yfir að sjá. Öll búnaðarfélög landsins ættu að

x

Þjóðólfur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.