Þjóðólfur - 23.08.1887, Page 1

Þjóðólfur - 23.08.1887, Page 1
Kemur út á, föstudags- moigna. Verö árg. (60 arka) 4 kr. (erlendisö kr.). Borgist fyrir 15. júlí. ÞJÓÐÓLFUR. Uppsögn (skriíleg) bund* in viö áramót, ógild nema komi til útgefanda fyr- ir 1. október. XXXIX. árg. Reykjavík, ])riðjudaginn 23. ágúst 1887. Nr. 38. Alþing og Reykjavík. Áður en vjer fengum alþing, þá var það eitt af áhugamálum beztu manna í landinu, bvar alþing skyldi baldið, bvort það skyldi haldið á Þing- völlum við Oxará, eða í binni hálf- dönsku, óþjóðlegu Reykjavík. Um það leyti sem alþing var stofnað, voru Reykjavíkurbúar í mesta máta óþjóð- legir; gamall andi danskra kaupmanna drottnaði þar í almætti sínu, ásamt fyrirlitningu fyrir öllu íslenzku, enda kvað svo rammt að þessu, að alís- lenzku fólki þótti bin mesta fremd í því, að láta börn sin læra að tala á dönsku, og flengdu þau með vendi, ef þau ljetu sjer verða að koma með íslenzkt orð, innan um hina góðu Reykjavíkurdönsku. Árið 1841 segir Jón Sigurðsson um Reykjavík: „Menn bafa lengi hatast við Reykjavík, af því bún væri danskt óræsti og mót- snúin öllu þjóðerni íslendinga1 * 111. Bald- vin Einarsson, Bjarni amtmaður, Tóm- as Sæmundsson, Jónas Hallgrímsson o. fl. báru mikinn kvíðboga fyrir að hafa þjóðfulltrúa íslendinga á þessum stað. Þeir óttuðust, að þingmenn myndu láta bæjarbraginn í Reykja- vík hafa ájirif á sig, og eigi geta notið sín fyrir bæjarlýðnum, og fyrir því hjeldu þeir þvi fram, að alþing skyldi baldið á Þingvöllum, á hinum helga stað, þar sem allt hlýtur að vekja menn til föðurlandsástar og framkvæmdarsemi í velferðarmálum landsins, þar sem allt minnir menná, bæði hversu stjórnvizka, göfuglyndi og drengskapur hafa eflt heiður og teill landsins, og enn fremur, „hversu hatur úlfúð og fiokkadrættir og stjórn- leysi og heimska höfðingjanna og af- skiptaleysi alþýðu hafa komið landinu 1) Orð Jóns Sigurðssonar, sem hjer er vitn- »ð til 0g yíðar, eru í ritgjörð lians um alþing Mandi í fyrsta árg. Nýrra fjelagsrita. í hina mestu örbyrgð og volæði“, og þar sem menn eru langt frá solli og glaumi bæjarlífsins. Bjarni orti til Tómasar Sæmundssonar: Hans undir rætur hverfðu tungu, svo megi’ hann mæla af megni þínu, að slóðir áa hinir yngri virði, að rísi þjóðarþing á Þingvelli. og Jónas orti eptir Bjarna: Hlægir mig eitt það, að áttu því uglur ei fagna, ellisár örninn að sæti og á skyldi horfa hrafnaþing kolsvart i holti fyrir haukþing á bergi; floginn ertu sæll til sóla, er sortnar hið neðra. Baldvin var dáinn, Tómas og Bjarni dóu báðir 1841 og Jónas átti skammt eptir ólifað. Forvígismenn þessarar skoðunar, að alþing skyldi halda á Þingvöllum, fjellu frá, áður en útrætt var um málið. Jón Sigurðsson hjelt fram að halda alþing i Reykjavik, og sú skoðun varð ofan á. Reykjavík varð alþingisstaðurinn og má þar við una; hefur Reykjavik ýmsa kosti, sem mæla með henni til að vera höfuðstaður landsins, einnig að því leyti að vera samkomustaður alþingis. En hún hafði mikla ókosti og hún hefur mikla ókosti enn í dag, og það eru þessir ókostir, sem vjer eigum allir að leggjast á eitt, hverjir með öðrum, að uppræta. ,,Jeg sje heldur enga ástæðu“, segir Jón Sig- urðsson „til, að vjer sleppum Reykja- vík, enn sem stendur, og köllum haha ólæknandi“; „mjer finnst það standi í voru valdi að gera hana íslenzka, ef vjer viljum, og ef vjer ekki gerum það, þá er það einþykkni vorri að kenna eða dugnaðarleysi". Jón Sig- urðsson segir enn fremur: „Að í- mynda sjer, að fulltrúar vorir mundu missa einurð sína við að vera i Reykja- vik, finnst mjer svo óvirðulegt að ætla hinum beztu mönnum, sem land vort á, að jeg fæ ekki af rnjer að svara því, og hinu ekki heldur, að þeir muni gleyma svo sjálfum sjer, að gera sjer og þeim, sem hafa sent þá, og öllu landinu skömm, með því að sýna í nokkru slíka at- höfn til orðs eða æðis, sem ekki sómir ráðvöndum og siðsömum rnerkis- manni“. Jón Sigurðsson hafði góðar vonir, og sjálfur átti hann beztan þátt i því, að stemma stigu fyrir þeim áhrifum til ills, er Reykjavík gæti haft á þingmenn. En vjer höfum eigi á- vallt jafnmiklum manni og Jóni Sig- urðssyni á að skipa, til að veita oss forustu bæði í þessu og öðru; og þeg- ar vjer nú skoðum hlutina og spyrj- um sjálfa oss: Eru þingmenn alveg vitalausir í þvi efni að láta Reykja- vik hafa áhrif á sig, til þess sem miður fer? Halda allir þingmenn sinni fullri einurð, þeirri einurð, sem þeir hafa, þegar þeir tala um málin við sína kjósendur, þegar þeir eru komnir á alþing í Reykjavík? þá verðum vjer því miður að segja: „Nei“. Þeir sem fyr meir hjeldu á móti Reykjavík sem samkomustað alþingis, voru einna mest hræddir, ekki við staðinn sjálfan, heldur við persónurn- ar i staðnum, eða með öðrum orðum við hin persónulegu áhrif Reykjavik- urbúa á þingmenn. Vjer skulum hjer ekki fara út í mörg mál, heldur að eins nefna einstök atriði í fjárhags- málum þjóðarinnar, síðan alþing fjekk löggjafarvald. Eyrst og fremst samþykkti alþing árið 1875 í fyrsta skipti, sem það kom saman, eptir að það fjekk sitt

x

Þjóðólfur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.