Þjóðólfur


Þjóðólfur - 23.08.1887, Qupperneq 2

Þjóðólfur - 23.08.1887, Qupperneq 2
150 litla löggjafarvald og fjárveitingar- vald, launalög, þar sem margir em- bættismenn i Keykjavík fengu mjög mikil laun; siðan hafa verið á nærri hverju þingi samþykktir ein- hverjir launabitlingar til embættis- manna í Keykjavík. En hvernig stendur á því, að þing- ið hefur verið svo gott og ljúft við þessa embættismenn fremur en em- bættismenn annarstaðar á landinu ? Er það af því, að þjóðin hafi heimt- að þessar launabætur samþykktar? Þessu verður eigi svarar játandi, þvi að það má sannarlega svo að orði ■ kveða, að þjóðin yrði bæði hrygg og reið, þegar aðgjörðir þingsins 1875 spurðust út um landið. Þá er' Arn- ljótur Ólafsson reis upp í Norðlingi og ljet skammirnar dynja yfir hinum hálaunuðu embættismönnum, sem hann nú hefur bundizt elskulegustu bræðra- böndum, spilaði Arnljótur einmitt á þeim strengjum, sem launalögin frá 1875 höfðu spennt yíir landið. Það var meðal annars af því að Arnljótur gerðist túlkur þeirra tilfinninga, sem þessi launalög kveiktu hjá þjóðinni, að hann gat áunnið sjer traust hjá almenningi, og fengið um stundarsak- ir mikið álit hjá Norðlendingum. Hvert þing, sem hefur veitt embætt- ismönnum í líeykjavík launabitlinga, hefur á eptir fengið mikið ámæli hjá þjóðinni og ákúrur bæði leynt og ljóst. Það er þvi ekki af því að þjóðin hafi óskað þessara launabitlinga. En er þá ástæðan til þessa, að embættis- menn í Ueykjavik hafa verið öðrum embættismönnum þjóðlegri, meiri fræði- menn, meiri framfaramenn, meiri dugn- aðarmenn, meiri stjórnvitringar, frjálslyndari o. s. frv. eða hefur það verið af öðrum ástæðum ? Hjer skulum vjer nefna eitt sem er eptirtektavert. Þegar alþingis- menn hafa verið á fyrirfarandi þing- um að ræða launabitlinga til einstakra embættismanna í Reykjavík, hafa menn tekið eptir því, að frændur og vinir þessara embættismanna hafa hangið utan í ýmsum þingmönnum og reynt til með öllu móti að tala um fyrir þeim utan þings og hafa stundum embættismennirnir sjálfir, þegar málið var til umræðu í þinginu, staðið eða setið eins og bjargfastur klettur á áheyrendapallinum allan tímann, meðan umræðurnar stóðu yfir og blínt á þíngmenn, litið vinalega til þeirra, sem vildu veita þeirri launa- viðbótina, en grimmilega til þeirra, sem voru andvigir og vildu ekki taka neitt úr pyngju þjóðarinnar og gefa þeim. Hafi embættismennirnir stund- um ekki verið viðlátnir, og enda hvort sem var, þá hafa konur þeirra systur og dætur fyllt skarð þeirra eins og harðfengar valkyrjur og ógnað fjand- mönnum sínum á þinginu með voða- legu augnatilliti. En er nú ólíklegt, að þetta geti engin persónuleg áhrif haft á menn ? Þetta þótti þingmönnum sjálfum ekki óliklegt á alþingi 1883. Þá sagði Arnljótur Ólafsson þetta um eina fjárveitingu við svila sinn Tryggva Gfunnarsson: „Nú, liggur sá fiskur hjer undir steini, að það sje psrsón- an sem fjeð er veitt? Því hefði jeg aldrei getað trúað um hinn háttvirta 1. þingmann Suðurmúlasýslu (Tryggva Gfunnarsson), sem svo opt hefur verið að bregða mönnum um að þeir ljetu hið persónulega of mikið ráða, og þar með gefið í skyn, að hann sjálfur væri ópersónulegur — að jeg eigi segi neutrius generis“ (Alþ.tíð. 1883 B 886. dálkur). Það var einnig á þessu sama þingi, að einn þingmaður stóð upp gegn einni launaviðbót, en at- kvæðagreiðslan var ógreinileg, svo að nafnakall varð við að hafa, en í þessu varð þingmanninum litið upp á á- heyrendapallinn og sá þar svo voða- legt augnatillit, að hann í of boði sínu greiddi við nafnakallið atkvæði þvert á móti og sagði já við launaviðbót- inni og fyrir það gekk launaviðbótin fram. Vjer sögðum áðan að þingið hefði fengið ámæli hjá þjóðinni fyrir launabitlinga og viljum vjer hjer taka sem dæmi kafla úr hinni velsömdu og fróðlegu ritgerð eptir „Gfrjótgarð unga“ Hm launalög og launaviðbætur bls. 15 : „Hjer er ekki rúm til að rekja all- ar þessar launabeiðslur, enda er sagan af þeim venjulega á þá leið, að meiri hluti þingmanna hefur verið svo hjart- veikur, að sjá aumur á þeim. Hefurlika eigi þessumembættismönn- um ávallt verið ánægja að því, að bjóða sumum þingmönnum heim til sín á kveldin eptir erfiði og þunga dagsins ? Hafa þeir aldrei hresst þjakaðar sálir neinna þingmanna? Það er eigi sjaldan að finna má þess dæmi, að þingmaður, sem heima á i hjeraði, hefur mælt djarflega um sparnað og hefur tekið djúpt í árinni um embættismennina, sem þeir hafa kallað landsómagana, hefur þegar kikn- að í knjáliðunum þegar á þing Var komið. 1885 voru hvað eptir annað felldar launaviðbætur handa þeim Sohierbeek og Tómasi Hallgrímssyni, og þeir hefðu aldrei fengið þær, ef vinir þeirra hefðu ekki að lokum á sameinuðu þingi farið að eins og sveitamenn- irnir, er þeir hafa hestakaup á bykkj- unum sínum. Þegar ekkert fjekkst, varð vinur Schierbecks að segja sem svo við vini Tómasar eða þá þeir við hann: „Eigum við ekki að styðja hverjir aðra. Jeg og einhverjir, sem jeg hef, skulu greiða atkvæði með Tómasi, ef þið greiðið atkvæði með Schierbeck. — Það er eina ráðið, það verðum við að gjöra“. Nokkuð var það, að á þennan hátt mörðu þeir launaviðbætur' þessar í gegn. Það sýna þingtíðindin". Svona er nvi talað um þingmenn eptir á, fyrir að samþýkkja launavið- bæturnar. Þarna sjá menn ljóst dæmi. Þó ekki sje fallegt frá að segja, þá er það sannleikurinn, að sumir þingmenn hafa látið persónuleg áhrif af Reykjavikurbúum, vinna meira á sjer enn vera bar. Vjer tölum hjer ekki um þá, sem einhvern veginn eru orðnir staðfastir í þeirri skoðun, að embættismenn fái aldrei of mikil laun heldur um þá, sem tala mikið um hina hálaunuðu, en snúa svo við blaðinu, þegar á hólminn er komið,

x

Þjóðólfur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.