Þjóðólfur - 25.11.1887, Side 1
Kemur út á föstudap*-
iuorgna. Verð árg. (60
arka) 4 kr. (erleudis 5 kr.).
Borgist fyrir 15. júlí.
ÓÐÓLFUR
Uppsogn skrifleg. bund-
in yið áramót, ógild nerna
komi til útgefanda fyr-
ir 1. október.
Reykjayík, föstudaginn 25. nÓTemlber 1887.
XXXIX. árg.
Xýir kaupendur að Þjóðólfl fyrir
næsta ár geta fengið ókeypis blaðið
frá 1. okt. þ. á. til ársloka (46.—60.
tbl.). — Hver sem útvegar 5 nýja
kaupendur af Þjóðólfi getur fengið 1
expl. af árgöngunum 1886 og 1887
auk sölulauna.
Löggilding verzlunarstaða.
Löggilding verzlunarstaða er eitt
af því, sem vjer íslendingar megum
sárbæna vora góðu dönsku stjórn um.
En bún neitar oss, þverneitar og dauf-
heyrist við öllunr vorum bænum, vjer
Vogum ekki að segja: kröfum, því að
slikt mundi láta illa í eyrum vorrar
föðurlegu stjórnar, sem elskar oss eins
og olbogaböm. I seinasta brjefi, þar
sem hún neitar um löggilding verzl-
unarstaða, gerir hún oss neitunina
enn þá sárari en ella, með því að láta
oss greinilega vita, að vjer sjeum ekki
óskabörnin , heldur aðrir, allt aðrir.
Meðan stjórnin var að hugsa sig- um,
hvort hún ætti að neita eða ekki, fjekk
hún bænarskrá frá Akureyri, um að
neita. Það höfðu nokkrir danskir
kaupmenn tekið sig saman í laumi og
sent þessa bænaskrá. Danskir kaup-
menn! Þar eru óskabörn stjórnar-
innar, sem fá vilja sinn i íslenzkum
löggj afarmálum. En íslenzk alþýða,
hún hefur ekki vit fyrir sjer, svo að
stjórnin verður að hafa vit fyrir henni.
Stjómin huggar oss með, að þessi
lög um löggilding verzlunarstaða haíi
„litla þýðingu í raun og veru, að
ininnsta kosti um langan tíma“, en
samt sem áður fer hún mörgum orð-
um nm alian þann skaða, sem af lög-
gildingum leiði. Hún segir t. a, m.,
að „löggilding Svalbarðseyrar við Eyja-
fjörð hlyti1 að kippa mjög rir vexti og
viðgangi Akureyrar11, og eigum vjer
l) Undirstrykað af oss.
erfitt með að koma þessu lieim og
saman, að það, sem er þýðingarlítið,
skuli þó hljóta að hafa stórkostlegar
verkanir. Fyrir utan þessar skaðlegu
verkanir á höfuðstað norðurlands, valda
þessar ',,þýðingarlitlu“ löggildingar
miklum erfiðleikum við alla tollgæzlu
og sóttvarnir og fyrir þetta „verður
staða fastaverzlananna, sem nauðsyn-
legar eru til þess, að byrgja landið
með vörur, smátt og smátt erfirJar'P.
íteyndar verður ekki staða fastaverzlan-
anna erfiðari, — þar hefur stjórninni,
þótt hún sje vitur, mikilega yfirsjest
— heldur staða dönsku kaupmannanna
erfiðari, því að þar sem þeir hafa náð
undir sig öllum kaupstaðnum og geta
útilokað aðra, þar geta þeir i næði
beitt sinni lieillaríku einokun, en ef
kemur upp nýr kaupstaðar rjett hjá,
verður þeim þetta „erfiðara" og jafn-
vel ómögulegt.
Auk þessara vondu verkana er enn
eitt, sem sýnir elsku stjórnarinnar á
oes og hvernig hún vill hafa vit fyr-
ir okkur, og sem vegur alveg a moti
hægum vöruflutningi, en það eru „hin-
ar illu afleiðingar, sem verzlunarstað-
ir hafa á bændur þá, sem nálægt þeim
búa“.
Stjórnin vill vernda oss frá illu,
hinum illu dönsku verzlunum, sem
hafa vondar afleiðingar á (!) bændur
Þetta er vitnisburður um danskar
verzlanir frá danskri stjórn.
Þetta eru ástæður stjórnarinnar,
gamlar og mygglaðar ástæður frá tím-
um einokunar og einræðis, sem fáir
íslenzkir menn geta láta sjer um munn
fara.
Einvalalið stjórnarinnar, hinir kon-
ungkjörnu þingmenn, fylgdu skoðun-
um stjórnarinnar trúlega fram og
börðust vasklega fyrir þeim, bæði bú-
maðurinn Jón Hjaltalín og auðfræð-
1) Undirstrykað af oss.
Xr. 53.
ingurinn Arnljótur Ólafsson, sem hef-
ur talað svo fagurlega um samkeppni
.og smáar verzlanir í „Auðfræði“ sinni.
Þar á móti töluðuhinir konungkjörnu
lítið um það, hvort höfnin væri góð
eða ekki.
Það var að eins ein höfn, sem sjer-
staklega var ráðizt á, Yogavík í Gt-ull-
bringusýslu. Landshöfðingi var svar-
inn óvinur hennar, L. E. Sveinbjörns-
son "sagði, að hún væri „engan veg-
inn góð skipalega" og E. Th. Jónas-
sen sagði moðal ■ annars: „Yogavík er
vond höfn“.
Þessi vonda höfn hefur þó nýlega
orðið að liði. Um daginn, þegar póst-
skipið fór hjeðan síðast, hreppti það
svo vont veður, að það varð að snúa
við og leitaði sjer þá hælis, ekki á
hinni góðu Keflavík, sem hefur nýjar
„tilfæringar“ , eptir því sem L. E.
Sveinbjörnsson sagði. Nei, póstskip-
ið fór fram hjá henni og leitaði sjer
hælis á hinni vondu höfn, Yogavík.
Þetta ætti að vera ástæða fjuir
stjórnina, að banna hinu danska gufu-
skipafjelagi, að fara í illviðrum inn á
þær hafnir, sem henni er ekki um,
þvi að meðan hún ekki gerir það, þá
hafa þessi smáu atvik meiri áhrif á
oss, heldur en ástæðan frá einokunar-
tímunum, og það verður til þess, að
vjer höldum áfram að biðja stjórnina
að láta að vilja vorum í von um, að
hiín muni verða við óskum vorum,
þegar vjer erum búnir að tönglast á
þeim í tuttugu ár.
íslendingar, það er i þessu máli,
eins og fleirum, eina ráðið, að þreyt-
ast aldrei með að heimta, því að um
síðir fáum vjer vilja vorum framgengt.
Rasmus Kristján Rask.
Tuttugasta og annan dag þessa mán-
aðar vóru liðin 100 ár frá því að
Rasmus Kristján Rask fæddist. Hann