Þjóðólfur - 15.06.1888, Page 2
110
hin verstu orð. Nokkru eptir, að hann
kom heim úr þessari för, lýstu allir hægri
flokkarnir yfir, að þeir vildu hafa stjórn-
arskrárbreytingu og nýjar kosningar, þ.
e. sama og Boulanger. Nú er eptir að
sjá, hvað hann tekur til bragðs þessu næst.
Páfinn og írar. Leó páfi hefur sent
hinum írsku biskupum skjal, sem bannar
Boycotting (viðskiptaleysi) og Plan of
Campaign (að borga ekki landsskuldir).
Hinir írsku þingmenn hafa sagt á fund-
um, að þeir hlýddu páfa ekki nema í
trúarefnum, en klerkalýðurinn birtir skjal-
ið á prjedikunarstólnum.
Wolseley hersliöí'ðingi hefur sagt, að
her og floti Englendinga væri í vondu
standi. Þingið hefur nú veitt margar
miljónir til að bæta úr því, og vakti
þetta mikið uppþot í blöðum og á fund-
um.
Þýskalandskeisari er orðinn svo heill
heilsu, að hann er á fótum allan daginn,
gengur í aldingarði sínum og ekur út í
vagni.
Þingi Prússa var nýlega slitið; for-
ingi framfaraflokksins, Kichter, tók áður
duglega ofan í lurginn á þeim blöðum,
sem rjeðust á keisaradrottninguna út af
Battenberg-hjónabandinu, sem ekki varð
úr í þetta sinn.
stanley. Brjef hefur borist til Evrópu
frá Emin Pasja í Mið-Afríku, sem er rit-
að 2. nóvember, og veit hann ekkert um
Stanley. Samt hafa þeir menn, sem
þekkja Afríku, góðar vonir um, að hann
sje á lífi enn.
Við járnbraut Rússa í Mið-Asíu til
Samarkand var lokið hinn 27. maí. Að
henni unnu 6000 manns daglega, enda
höfðu landsbúar, sem unnu að henni, I
ekki fengið nema 25 aura á dag í laun.
Lr ráðaneyti Sverdrups kvað nú ætla
tveir ráðgjafar, og Björnstjerne Björns-
son er kominn í flokk mótstöðumanna
hans.
Sýningin í Höfn. Hún nær yfir mik-
ið svæði, um 106,000 □ álnir (rúml. 18
vallardagsláttur) og Tivoli er ekki nema
blettur innan í henni. Það er stór mun-
ur á henni og sýningunni 1872. Þá
komst allt fyrir í einu húsi, en nú er
það geymt í mörgum húsum, stórum og
smáum, og sumt undir beru lopti. Ilið
stærsta húsið er langur salur með hvelf-
ing yfir öðrum endanum; í þeim sal er
iðnaður og listaverk. Þegar komið er
inn undir hvelfinguna, eiu hlutir frá
Noregi á hægri hönd og miðnættissólin
! (tir striga) yfir þeim, en á vinstri hönd
er Svíþjóð og mynd af Stokkhólmi á
veggnum upp yfir. Norðmenn bera af
öðrum í trjesmíði og Svíar í járnsmíði.
Framundan manni er hinn langi salur,
og i honum fyrst danskir munir, þájap-
anskir, þýskir, franskir, rússneskir, ensk-
ir og ítalskir, þá listaverk dönsk, svensk
og norsk. Af þýskum munum, er enn
ekkert komið og lítið af enskum og í-
tölskum. Aptur er mikið af dýrgripum
komið írá Hússlandi. Iðnaður þess er
einkennilegur og geta aðrir Evrópumenn
margt lært af honum. Sumt er gert með
j mikilli snild, en sumt glóir af gulli og
j gimsteinum, svo að fólk glápir á það,
eins og tröll á heiðríkju. Það er keis-
aradrottningunni rússn., dóttur Kristj. 9.,
j að þakka, að þetta merkissafn er hingað
komið. Málverk Dana standa ekki á baki
Svía og Norðmanna, heldur framar.
Margt gætu Islendingar lært af fiski-
og landbúnaðarsýningunni. Yfir einu
litlu horni í fiskisýningunni stendur Is-
land og fálkamerkið og þorskmerkið í
bróðerni undir nafninu. Það, sem mest
ber á, er skotthúfubúningur og faldbún-
ingur, sem fólki þótti mikið í varið.
Samkvæmt fiskikatalógnum höfðu 22 ís-
lendingar sent muni; þar af voru 3 kvenn-
menn. Ull, vaðmál, sokkar, æðardúnn,
niðursoðið kjöt og fiskur, er sýnt. A.
Feddersen, umsjónarmaður fiskisýningar-
innar, hafði sent ýmsa útskorna muni.
Hin islenska sýning er því mögur. Grræn-
| lendingar hafa heilt þil við hliðina á ís-
landi. Um fiskisýninguna skal jeg greina
betur næst. A landbúnaðarsýningunni
er t. d. mjólkurhús og sjest í því. hvern-
ig ein vjel vinnur allt, skilur rjómann
úr mjólkinni betur en trog C1/^0/,, rjóma
eptir i mjólkinni, en í trogum J/2- l»/0
eptir), strokkar, hnoðar smjörið, ystir und-
anrenninguna o. s. frv.; úr draflanum
eru svo ostar gerðir. Á síðustu 10 ár-
um hafa þessar vjelar breiðst út um Dan-
mörk og skipta nú þúsundum. Danir
flytja nú 40 miljónir punda af smjöri
út, eða tvöfalt á við það, sem þeir fluttu
út fyrir 6 árum. Víðast hvar leggja
margir bændur saman og eiga vjel í fje-
lagi. I næsta sinn skal jeg segja meira
af landbúnaðarsýningunni o. fl.
Danir búast við, að margir útlending-
ar komi hingað í sumar og allt af er
viðkvæðið hjá þeim: „Millionen koin-
mer“, nefnil. af fólki eða peningurn, því
þeir ætla sjer að græða á sýningunni.
Enn sem komið er sjást varla aðrir
en Svíar og Þjóðverjar af útlendingum.
Nýdáinn er Grísli Brynjúlfsson, sem
verið hefur docent við háskólann í Höfn
síðan 1872.
Beykjavík, 15. júní 1888.
Póstskipið Laura kom hingað aðfara-
nótt 12. þ. m. og með því kaupmennirn-
ir Bryde, Fr. Fischer, Lefolii, H. Th. A.
Thomsen o. fl., þar á meðal prófessor
frá Ameríku, Charle Spragne Smith í
New York, með konu sinni, og einn veg-
gjörðarmaður frá Noregi.
Strandferðaskipið Tliyra, er fór hjeð-
an 2. þ. m. vestur og ætlaði norður um land,
kom hingað aptur 9. þ. m., hafði eigi
komist nema norður undir Horn fyrir
is; fór lijeðan s. d. áleiðis til Austfjarða,
en kemst sjáifsagt ekki heldur þar að
Hafísinn. Eptir seinustu frjettum að
norðan með manni úr Oxnadal, sem það-
an fór 6. þ. m., var Eyjafjörður þá fullur
af is inn að Oddeyri. „Pollurinn" auður,
og þar talsverður sildarafli. Skagafjörður
og Húnaflói einnig fullir af ís, er mað-
ur þessi fór þar um. — Seinast er frjett-
ist að austan var samföst ishella vestur
undir Dj’rhólaey og ishroði við Vest-
mannaeyj ar.
Próf í lögfræði hefur Klemens Jóns-
sou nýlega tekið við háskólann í Khöfn
með 1. einkunn.
Prestrígður 10. þ. m.: kand. Guðlaug-
ur Guðmundsson sem aðstoðarprestur sjera
Jónasar Gruðmundssonar á Staðarhrauni.
Vcrslunarfrjettir frá Khöfn 1. þ. m.
Af vörum, sem komu með Lauru, seldist
saltfishur vestfirskur hnakkakýldur 64—
65 kr. skpd., óhnakkakýldur vestfirskur
og besti sunnlenskur hnakkakýldur 60—-
62 kr.; smáfiskur hnakkakýldur 53 kr.,
óhnakkakýldur 47—50 kr., ýsa 42 kr.,
lýsi 36 kr. Sundmagar velverkaðir 55
au. pd., hrogn í lágu verði; haustull hvít
45 a., mislit40a.; saltkjöt selt fyrir fram
49 kr. tunnan (224 pd.). Fiskurinn seldist
svo vel, af því, að hann var alveg upp-
seldur áður, en talið víst, að verðið hrapi
niður jafnskjótt, sem meira berst að, og
illt útlit fyrir hátt fiskverð á Spáni, sak-
ir samkeppni frá Frakka hálfu og afar-
mikils fiskfengs í Noregi. Hvaða verð
muni verða á Spánarfiski í sumar, er
því ekki auðið að segja, en talið líklegt,
að það muni ekki verða liærra en i lyrra.
Nokkuð af lýsi er enn óselt, sem lík-
iega fæst eigi meir fyrir en 34 kr. —