Þjóðólfur - 06.07.1888, Page 1

Þjóðólfur - 06.07.1888, Page 1
Kemur 4t á föstudags- niorgna Verð árg. (6u arka) 4 kr. (erlindis 5 kr.). Borgist fyrir l.'i. jdll. ÞJÖÐÖLFUR. Uppsögn skrifleg, bund- in viö áramöt, ögild nema komi til útgefanda fyr- ir 1. október. Reykjavík föstuclaginn 6. júlí 1888. XL. árg. Þ j ó ð ó I f u r fsest frá júlíbyrjun til ársloka fyrir 2 kr., og fá þeir, sem því sæta úkeypis og kostnaðarlaust sent það, sem þá verður komið út af „sögu- safni Þjóðólfs“ : „Fangann í Kákasus 51 bls., Yesturfarann og Indíanana 26 bls., Heienu aðra 26 bls., byrjun á Sögu stýrimannsins og æfisögu Sigurð- ar niálara 48 bls., eða alls ókeypis yfir 150 bls. Menn qefi sig ýrarn sem allra jyrst. íslendingar og Danir, I. Fyrrum var Danaveldi voldugt ríki. Þá var það margfalt voldugra en nú. En síðan hefur Danaveldi hnignað stór- um; öld eptir öld hefur klippst utan af þvi, og stór hjeruð og stór lönd hafa gengið undan. En hvers vegna hefur þetta farið svo ? Hvers vegna hefur Danaveldi hnignað þannig? Hvers vegna var Svíaríki óánægt með að vera í sam- bandi við Danmörk ? Hvers vegna var Holstein óánægt? Hvers vegna er ís- land óánægt ? Aðalástæðan til þess hefur verið, að Danir hafa eigi viljað unna öðrum grein- um hins norræna þjóðernis jafnrjettis við sig. Þeir hafa viljað hefja sig á kostn- að annara, láta sína menn eingöngu ráða yfir hinum og hafa hag á þeirn. En vís- vitandi og óafvitandi hafa þeir svo leitt út af þessu ýmsar kreddur, sem þeir hafa rígbundið sig við og staðið á fastara en j fotunum. Þetta hefur verið mein hinn- ar dönsku þjóðar, og þetta er það enn í dag. Hvað er það annað en kredda, þessi setning um alríkisfjöturinn, sem ráðgjafi íslands heldur fram í kgl. aug- lýsing frá 2. nóv. 1885? Hvað er það annað en kredda, að halda því fram, að Danaveldi muni liðast í sundur, ef ís- lendingar fái þá stjórnarskrá, sem þeir óska? Er það skynsamlegt að halda, að það sje hættulegra, að íslendingar sjeu ánægðir í sambandi við Dani, og lofa þeim að neita þeirra krapta, sem guð hefur gefið þeim, til þess að hjálpa sjer sjálfir, og nota hinar ríku auðsuppsprett- ur landsins, til þess að blómgast og efl- i ast — heldur en að þeir sjeu stöðugt ó- ánægðir og að ala upp hjá þeim óvild og jafnvel hatur til Dana og fyrirlitn- ingu fyrir stjórn Danmerkur ? Vjer get- j um ekki skilið, hvernig danska stjórnin j er svo blind, að hún skuli ekki sjá, að slíkt er heimskuleg kredda. Meðal hins seinasta, sem yjer höfum sjeð um oss frá dönsku stjórninni, eru orð í Dagblaðinu, sem styður stjórnina í öllum gjörðum hennar gagnvart ís- landi, og er oss þar líkt við fúllynda tengdamóður, sem sífellt sje að rífast út af engu efni. Þetta er prjedikað fyrir hinni dönsku þjóð, en þó er þetta svo rangt, sem verða má, og likingin svo skökk, sem hugsast getur. Islendingar hafa aldrei verið að sletta sjer í innan- lands málefni Dana og aldrei heimtað að hafa áhrif á þau; þeir hafa að eins heimtað jafnrjetti við Dani og óskað, að þeir mættu sjálfir ráða sinum sjerstöku ( málefnum, ekki af fjandskap við Dani, heldur af því að þetta er skilyrðið fyr- ir framförum og velgengni Islands. Aðr- ar eins kenningar og þessar miða eigi til neins annars en, að snúa hugum Is- lendinga frá Dönum, og koma inn hjá þeim þeirri skoðun, að það sje einskis góðs að .yænta af sambandi við Dani, og að það sje best að komast sem fyrst úr sambandi við þá og í samband við aðrar betri þjóðir. En það er þó eigi rjett að taka ofmikið mark á þvi, sem liggur í öðrum eins falskenningum og þeim, sem koma fram hjá Dagblaðinu, því að enn þurfum vjer eigi að örvænta um, að Danir muni unna oss jafnrjettis. Vinstri menn eru meiri hluti hinnar dönsku þjóðar og þeir hafa jafnan sýnt velvild og rjettlætistilfinningu í baráttu vorri við hina dönsku stjórn, og svo hafa einstöku‘danskir stjórnarmenn við- urkennt, að kröfur vorar sje bæði sann- gjarnar og rjettlátar. Það var Monrad sem sagði þetta 1870*: „Æðsta forusta íslands sjerstöku mál- Nr. 81. efna á að vorri ætlan að eiga aðsetur sitt á íslandi sjálfu. Pjarlægð landsins og óvissar samgöngur gjöra það að verk- um, að yfirstjórn Islands í umboðsleg- um málum verður seinfær og slóðaleg, ef hún á að vera i Kaupmannahöfn. Menn kvarta yfir því nú, að stjórnarstörfin í Danmörku fari seint úr hendi, hvernig ætli þá yrði, ef yfirstjórn danskra mála yrði lögð út til íslands? Hugsi menn sjer þetta, og leiði sjer það alvarlega fyrir sjónir, þá munu menn geta skilið, hversu óheppilegt það mundi vera, ef æðsta stjórn íslands sjerstaklegu mála ætti að verða í Kaupmannahöfn eins og hingað til. Þar með skulum vjer hyggja að því, að loptslagið á Islandi er án efa mjög ólíkt lopslaginu í Kaupmannahöfn, en það hefur mjög mikil áhrif á hina umboðslegu stjórn í hverju landi, að hún sje undir sama loptslagi og laudið, sem hún er sett til að ráða yfir“. Það, sem einnig gefur oss vonir um, að Danir muni unna oss jafnrjettis, er það, að á síðustu tímum eru Danir farn- ir að rannsaka sína eigin sögu og virða fyrir sjer, hverjar orsakir eru til hnign- unar Danaveldis, og ef þeir sjá þær, þá mega þeir vera undarlegir, ef þeir ekki læra neitt af því, hvernig þeim hafa verið mislagðar hendur i viðskiptum þeirra við samþegna sína, sem tilheyra öðrum greinum hins norræna þjóðernis. Yjer höfum nýlega lesið tvær ritgjörðir um Suður-Jótland**, eptir A. D. Jörgen- sen, leyndarskjalavörð í Kaupmannahöfn, þar sem hann segir söguna um tildrög- in til þess, að Sljesvík og Holstein skild- ust við Danaveldi. Hann talar um tím- ann undir Friðriki VII. og er þetta hans dómur um hann: „En samt á eigi að draga dulur á, að hann hefur sína galla. Mjer finnst, að þeir geti orðið settir fram í þeirri aðalsetningu, að oss hafi vantað politiska lipurð í flókn- um málefnum; stjórnarmenn vorir voru meir og minna heillaðir af kreddum, sem *) Berl. tið., 23. ág. 1870. **) Smaaskrifter tilegnede A. P. Krieger, Kh 1887, bls. 308—340.

x

Þjóðólfur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.