Þjóðólfur - 26.10.1888, Síða 1

Þjóðólfur - 26.10.1888, Síða 1
Kemur út á fostudags- morgna Verö árg. (60 arka) 4 kr (erlindis 5 kr.). Borgist fyrir 15. júlí. ÞJÓÐÓLFUR Uppsögn skrifleg, bund- in við áramöt, ógild nema komi til útgefanda fyr- ir 1 október. XL. árg. Reykjayík föstudaginn 26. okt. 1888. Nr. 49. Bókaverslun Kr. Ó. Þorgríms- sonar selur Helgapostillu innhefta meö mynd fyrir aö eins 3 kr. (áð- ur 6 kr,). i68 TT elga-postilla, lieft, með mynd á 3 kr., fæst í Bókverzl. Sigf. Eymundssonar. 469 Hvernig er ísland? Eptir Sœm. Eyjídfsson. I. Það hefur verið fagurt um að litast hjer á landi, þegar landnámsmenn komu hingað fyrst, — landið allt „skógi vax- ið milli fjalls og fjöru11, allir firðir og ár fullar af íiski. Þótt talsvert sje án efa orðum aukið um skógana og fleira, þa er það víst, að landið hefur verið fagurt og frítt og margur bletturinn hef- ur þá verið grasi vafinn, sem nú er groðurlaus. Aldrei hafði þó nokkur mannleg hönd hiynnt að jarðargróðan- um. Náttúran ein, án nokkurar mann- legrar samvinnu, hafði framleitt allan þennan gróður. Vjer vitum, að aistaðar þar sem menntaðir menn hafa tekið sjer bólfestu, hafa þeir ræktað jörðina; þeir hafa gengið í samvinnu við náttúruna, og stutt hana til þess, að framleiða gróða jarðarinnar. Náttúrukraptarnir hafa orð- ið að beygja sig undir vilja mannsins, °rðið að vinna mönnunum í hag og fyr- ir ern iöndin byggilegri eptir að menntaðir menn hafa búið i þeim, en þau áður voru. En undarlegt er ísland. Það hefur nú verið byggt í rúm 1000 ár, en eptir þvi sem flestir segja, hefur hað aldrei verið jafneyðilegt og óbyggi- legt 0g nú, og ávallt hefur það verið að ganga af sj6r og blása upp; úr öllum áttum heyrist það, hve landið sje nú orðið af sjer gengið og upp blásið, og hversu hjer sje orðið ólífvænlegt; snjall- asta ráðið sje því, að komast sem fyrst til Ameríku. Þott olíklegt sje, er það þó víst áreið- anlega satt, að landið hefur mikið geng- ið af sjer síðan á landnámstíð. Orsökin til þess er sú, að landsmenn hafa jafnan mjög slælega gengið fram í því að rækta jörðina; þeir hafa reitt hana og rúið, að svo miklu leyti sem þeim hefur verið unnt, en bætt henni það aptur að litlu; fyrir því er eigi undar- legt, þótt mikil spjöll sjeu á orðin, þótt landið hafi gengið mikið af sjer í 1000 ár. Skógarnir eru nú næstum horfnir en mikill hluti af þeim eyðileggingum, sem landið hefur orðið fyrir, á rót sína í því, að skógarnir eyðilögðust; það er svo víða, að jarðvegurinn hefur eigi get- að haldist við í fjallahlíðunum bröttu, síðan skógarnir hurfu og hættu að binda hann; vatnið hefur borið hinn lausajarð- veg niður á láglendið, og því standa hlíð- arnar eptir auðar og berar, grjóti huld- ar og gróðurlausar. Svo fijótt gekk landsmönnum að eyðileggja skógana, að svo er að sjá, sem um 1400 hafi alls eng- ir skógar verið til í Norðurlandi, er Þing- eyjarsýsla er undanskilin. Allmiklum eyðileggingum hefur land- ið einnig orðið fyrir, sem eru þess eðlis, að mennirnir geta eigi kennt sjer þær að neinu leyti; þannig eru t. d. allar þær skemmdir, sem eldgosin hafa valdið; sömuleiðis mikið afþeim skemmdum sem hlotist hafa af vatnagangi og sandfoki. Það er því auðsætt, að landið hefur tals- vert gengið af sjer síðan á landnámstíð; skógarnir eru að miklu leyti horfnir, og graslendið er talsvert minna. Þótt landið hafi þannig talsvert geng- ið af sjer, er alls eigi sagt, að hjer sje orðið jafnóbyggilegt og ólífvænlegt, sem margir virðast ætla. Loptslagið er hið sama, sem það var á landnámstíð; jarð- vegurinn hjer á landi er yfir höfuð að tala fremur frjóvsamur, þótt frjóvsemi hans hafi efalaust þorrið sumstaðar síðan í fornöld. Inspektor Feilberg, sem ferð- aðist hjer á landi sumarið 1877, hefur látið rannsaka efnafræðislega nokkrar ís- lenskar jarðtegundir frá ýmsum stöðum; benda þær rannsóknir til þess, að jarð- vegurinn sje hjer yfir höfuð að tala frjóv- samur. íteynslan sannar þetta einnig á flestum stöðum. Sumarið hjer á landi er svo stutt og kalt, að jarðræktin get- ur eigi átt sjer stað á sama hátt og í löndum þeim, er sunnar liggja; engin akuryrkja getur átt sjer stað hjer á landi; það er varla um annað að tala en grasræktina, og er hún þó eins og menn vita, í litlu öðru falin en því, að veita jörðinni áburðarefni, og verja hana fyrir ágangi. Jarðræktin hjer á landi er því svo ólík því, sem hún er í, öðr- um löndum, að það er naumast unnt að bera það saman. Þótt jarðyrkjan geti aldrei orðið hjer á háu stigi, er þó eigi víst, hvort það fje, sem varið er til grasræktar hjer á landi, gefur minni vöxtu, en það fje, sem varið er til akuryrkju í sumum þeim löndum, sem talin eru fremur góð lönd. Það er auðsætt, að margir þeir, sem lasta Island, dæma eins og blindur maður um lit; þeir vita eigi og skilja eigi, hvað það er, sem ber að taka til greina, er dæmt er um það, hvort eitthvert land sje gott eða vont; þeir tala mest um það, hve ísland sje kalt, og Iiversu það sje fátækt; en þótt það sje kalt og þótt það sje fatækt, er það nokkur veruleg sönnun fyrir því, að það sje vont land og gæðasnautt? Að landið sje kalt, sýn- ir einungis það, að hjer þarf að klæða sig betur en í öðrum löndum, sem heit- ari eru, en sannar alls eigi, að hjer sje eigi unnt að lifa jafngóðu lífi, sem ann- arstaðar. Það er eigi rjett, að ætla, að löndin sjeu eptir þvi verri, sem þau eru kaldari. Landið er fátækt, það er að segja, landsmenn lifa við fátækt og skort. Þetta getur nú að vísu verið vottur um það, að landið sje eigi gott, en þó er eigi víst að svo sje. Náttúran er hvergi svo örlát, að hún rjetti allt upp í hend- urnar á manninum, án þess hann þurfi nokkuð fyrir að hafa. Maðurinn verður því að ganga í samvinnu við náttúruna, til þess að afla þess, er hann þarfnast, — hann verður að vinna; en til þoss að vinnan verði að þeim notum, sem til er ætlast, verður hann að vinna með þekk- ingu; liann verður að kunna að fara með fje, því það er afl þeirra hluta, sem gjöra

x

Þjóðólfur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.