Þjóðólfur - 28.12.1888, Síða 2
238
skipfci, sem hann er beðinn að borga í
bankann. Hann hefur tekið við pen-
ingunum á áliðnum degi, og því eigi
getað borgað þá í bankann fyr en dag-
inn eptir; en í millibilinu gætu pening-
arnir farist í eldsvoða eða á annan hátt,
og yrði það þá þess skaði, sem sendi,
því að af hinum, sem tekið hefur við
þeim til að borga þá frá sjer, verður
eigi heimtað meira, en að hann geymi
þá sem sína eigin peninga. — Auk þess
bakar það þeim fyrirhöfn, sem fær þann-
ig senda peninga til að borga öðrum;
slíkt hefur og óþarfa kostnað í för með
sjer fyrir þann, sem sendir, því að hann
verður náttúrlega að borga ómakslaun
og undir kvittun til baka.
Ef aptur á móti eitthvað þarf að gera
meira en að borga peningana, t. d. að
semja um eitthvað við viðtakanda, eða
ef sami maður þarf að borga mörgum
mönnum smáupphæðir á sama stað (t. d.
í Reykjavík), þá er allt öðru máli að
gegna; þá er eðlilegast, að senda pen-
ingana einum manni og biðja hann að
annast slíkar smáborganir og samninga
við hlutaðeigendur.
Reykjavík, 28. des. 1888.
1 Fornleifafjelaginu var haldinn árs-
fundur 22. þ. m. Forseti (Sigurður Yig-
fússon) skýrði frá nokkrum rannsókn-
um á sögustöðum á Vesturlandi, er hann
hafði kannað á rannsóknarferð sinni síð-
astliðið sumar og minntist á, að Forn-
gripasafnið ætti fjelaginu mikið að þakka,
því að á rannsóknarferðum sínum hefði
hann getað útvegað safninu marga gripi
o. s. frv. Hann kvaðst hafa í hyggju,
að halda 3—4 fyrirlestra í fjelaginu í
vetur um fornfræðisleg málefni. — Fje-
lagsmenn höfðu fjölgað undir 20 þetta
ár, og eru nú um 180. Prófessor Eygh
í Kristíaníu, sem gengið hefur í fjel. þ.
á., hefur gefið því merkilegt rit með
mörgum myndum af forngripum í Nor-
egi, og minntist forseti þess með þakk-
læti. Hann minntist og sjerstaklega
eins látins fjelagsmanns, bókavarðar Jóns
Arnasonar, sem var einn af stofnendum
fjelagsins og embættismaður þess, síðan
það var stofnað. — Reikningar fjelags-
ins voru lagðir fram, og átti það í sjóði
í byrjun fjelagsársins (1. ág. síðastl.) 325
kr. 72 a., en síðan hefur talsvert komið
inn, svo að það á nú um 400 kr. —
Frestað var eptir tillögu Á. Thorsteins-
sonar til næsta aðalfundar, að kjósa skrif-
ara og 2 fuiltrúa.
Tíðarfar. Hjett fyrir og um jólin
hefur hlaðið niður miklum snjó, svo að
nú mun víða vera haglítið, einkum af
af því að spilliblota gerði 23. þ. m.
Ofsaveður gerði hjer á áliðnum degi
23. þ. m. af útsuðri ; en eigi hefur frjetst,
að það hafi gert neinar st<)rskemmdir,
enda stóð það eigi nema fáar klukku-
stundir.
Samsöng hjelt söngfjelagið Svava hjer
í bænum 22. þ. m. undir forustu organ-
ista Jónasar Helgasonar. Tannlæknir
Nickolin söng einnig nokkur lög solo,
og þótti þ a ð góð skemmtun.
24 stúlknr, sem tóru frá Svíþjðð til Ameríku í
sumar, giptust allar jaínskjótt sem }>ær stigu þar
á land, sænskum mönnum, sem þær höfðu aldrei
sjeð fyr. Höfðu J>eir gegn um hjúskaparskrifstofu
eina i Stokkhólmi komist í makk við allmargar
ungar stúlkur i Svíþjóð, sem urðu að senda þeim
myndir af sjer og prestsvottorð uin gott siðferði.
Þeir höfðu svo valið sína hver, sent þeiin farar-
eyri til að komast til Ameríku. hjeldu brúðkaup
sín, jafnskjótt sem þær komu, í mesta flýti, allir
24 í einu.
Auglýsingar.
Búnaöarritiö.
Þeir, sem skulda fyrir búnaðarritið, I. og II.
árg., eru vinsamlega beðnir, að láta ekki lengur
dragast, að borga það annaðhvort til undirskrifaðs
eða útgefandans Hermanns Jónassonar á Hólum í
Hjaltadal.
Reykjavík, 27. des. 1888.
Siguiður Kristjánssou. 600
Seldar óskilakindur
í Urindavíkurlireppi haustið 1888.
1. Svart gimbrarlamb, m.: heilrifað biti fr. h.,
fjöður fr. v.
2. Hvíthníflóttur sauður, tvævetur, m.: stúfrifað
og biti fr. h., stúfrifað v.; brenniraark: lítt
læsilegt L. P.
3. Hvíthyrnd ær, 4—5 vetra, m.: sýlt li., gagn-
bitað v., ólæsilegt brennim.
Andvirði þessara kinda, geta rjettir eigendur
fengið, að frádregnum kostnaði, hjá undirskrifuð-
um hreppstjóra, til næstkomandi fardaga 1889.
Garðhúsum, 18. des. 1888.
___________Einar Júusson._______601
IPSF'’ á næstu krossmessu (14. mai), getur góð-
ur fjárhirðir fengið vist á bæ í Árnessýslu, ein-
ungis til að hirða fje. Ef haun hefur góð með-
mæli frá áreiðanlegum manni, má hann búast við,
að hafa betri kjör, en vinnumenn almennt hafa.
Ef nokkur vill sinna þessu, gefi hann sig fram við
ritstjóra Þjóðólfs, sem vísar á staðinn. 602
Þakkarávarp. Þegar við undirskrifuð urðum
fyrir því í aftakaflóðinu, sem hjer bar að 22. f. m.
að missa í sjóinn 5 mannafar og 2 mannafar, sem
braut alveg í spón, urðu þessi heiðurshjón til að
rjetta okkur fljótt sína hjálparhönd: Hákon Eyj-
ólfsson og Guðrún Eyvindsdóttir í Stainesi, með
því að gefa okkur 20 kr., Daði Jónsson og -Helga
Loptsdóttir á Bala 5 kr., Tómas Fyjólfsson og Sig-
ríður Guðmundsdóttir í Gerðakoti 6 kr., þess má
og sjerstaklega geta, að Stafneshjónin hafa sýnt
staka hjálpsemi og jafnvel gefið stórgjafir mjer og
öðrum, sem orðið hafa fyrir atvinnumissi og óhöpp-
um. Fleiri hafa einnig sýnt oss ýmsa hjálp, þótt
hjer sjeu eigi taldir. Öllum þeim, sem rjett hafa
okkur hjálparhönd bæði nú og fyr, biðjum við
þann að borga, sem lofað hefur að láta ekki einn
svaladrykk ólaunaðan, af góðu hjarta úti látinn.
Glaumbæ, 18. des. 1888.
Jún Júnsson, Ragnhildur Rúnúlfsdúttir. 603
ALMANAK
pjóðvinafjelagsins um árið 1889 er til sölu:
1 Reykjavík hjá bóksala Sigfúsi Eymunds-
syni og bóksala Sigurði Kl'istjánssyni;
á Akranesi hjá kaupmanni Böðvari Þor-
valdssyni;
á Rlönduúsi hjá kaupmanni J. G. Möller.
Kostar 50 aura. 604
er ekki
oltta
nema á hverjum pakka standi eptirfylgjandi ein-
kenni:
MANUMUIUhcU |
Ijff-É^J.LICHTIIMCER |
EL Copenhagen. ^ 6Q6
Magaveiki, höfuöverkur,
magnleysi.
Magaveiki, höfuðverkur og
m a g n 1 e y s i þjáði mig um langan tima;
en er jeg hafði drukkið tvö glös af
Brama-lífs-elxíri Mansfeld-Biillners & Las-
sens, fjekk jeg aptur fulla heilsu.
Kona mín hefur verið veik i tvö ár,
og batnaði fyrst er hún fór að taka inn
bitter þenna.
Leiðuodda við Skien.
Hans Jörgensen.
Einkenni á vorum eina egta Brama-lífs-elixír
eru firmamerki vor á glasinu og á merkiskildin-
um á miðanum sjest blátt ljón og gullhani, og
nnsigli vort MB & L í grænu lakki er á tappan-
um.
Mansjdd- B ídlner & Lassen,
sem einir búa til hinn verðlaunaða Brama-lifs-elixír.
Kaupmannahöfn.
Vinnustofa: Rörregade No. 6. 606
Eigandi og ábyrgðarmaður:
Þorleifur Júnsson, cand. phil.
Skrifstofa: í Bankastræti nr. 3.
Prentsm. Sigf. Eymundssonar.