Þjóðólfur - 12.04.1889, Blaðsíða 4
64
al prentara, svo að það varð að fá prent-
ara frá útlöndum.
Vatnavextir «ff stórfióð komu mikil
i f. m. á Englandi, einkum í Suðvestur-
klutanum, og gerði stórtjón á húsum,
járnbrautum og öðru. Mest var flóðið i
Bristol.
í K'höfn var búist enn einu sinni við
bráðabirgðarfjárlögum ; umræðunum um
fjárlögin var eigi Jokið í fólksþinginu
fyr en 15. f. m.
ísinn í Eyrarsumli var enn nokkur
24. f m„ en var að fara, svo að segl-
skip gátu komist frá Höfn og gufuskip
gátu farið óhindruð um sundið.
Konungurinn í Hollandi, sem hefur
lengi verið veikur, er á engum bata-
vegi og talið víst. að hann mundi deyja
innan skamros.
Ritstjúri einn í Ameríku hefur ný-
lega verið skotinn. Hann hjet Dawson
og var ritstjóri við The News and Courier
í Charleston. Það var læknir nokkur,
sem skaut hann.
Anderson, sendiherra Bandarikjanna í
Kaupmannahöfn, fer nú frá, en í hans
stað kemur sænskur maður, Enander, sem
nú er ritstjóri við blaðið Hemiandet
í Chicago.
Smávegis.
A: „Mikið skelfinar er jeg farinn að verða minn-
lslaus, það sem jeg t. d. geri i dag, er jeg búinn
að steingleyma eptir 2 daga“.
H: „Það er undarlegt. En eptir á að hyggja,
þú munt ekki geta lánað mjer 100 kr. svo sem
vikutima?"
Auglýsingar.
í samfeldu máli með smáletri kosta 2 a (þakkaráv. 3 a.)
hvert orð 15 stafa frekast; með öðru letri eða setning,
1 kr. fyrir þuinlung dálks-lengdar. Borgun út 1 hönd.
Til hagnaðar fyrir laugahúsið!
Laugardaginu hinn 13. apríl heldur
cand. jur. Klomens Jónsson, í Good-
templarhúsinu íyrirlestur um „Jörund
hundadagakóng“. Hann hefst kl. 8 ]/2-
Aðgöngumiðar kosta 50 aur., og fást lijá
póstm. 0 Finsen á laugardaginn kl. 10—2
og 4—7 og við innganginn. 121
Fr í m erki.
íslensk frímerki eru keypt fyrir liátt verð og
peninga út í hönd, eða í skiptum fyrir útlend fri-
merki, ef þess er ðskað. Brjef með t.ilboðum og
frímerkjum sendist til
F. Seith, Admiralgade 9.
Kjöbenhavn K. 122
PJÁRMARK Áma prests Björnssonar á Sauðár-
krók er: Stýft hægra, gagnbitað; tvistýft aptan
vinstra, vaglskora framan. 225
c Ekta anilínlitir 6*j
4— 9?
fást hvergi eins góðir og ódýrir eins og ás
í verslun 5
5 STURLU JÓNSSONAR
7Z -4H Aðalstræti Nr. 14. "—• gj;
w •JPÍIUJIIU* KJHIÍ 123
FUNDUR í STÚDENTAFJELAGINU laugardag-
inn 13. apríl kl. 9V2. Rætt um skemmtanir á sumar-
daginn fyrsta. Söngfundur kl. 6.
Dr. med. W. Zils, læknir við konung-
legu liðsmanna-spítalana í Berlín ritar:
Bitterinn „Brama-lífs-elexír“ er fram-
úrskarandi hollt og magastyrkjandi
meðal.
Berlín. Dr. med. W. Zils.
Einkenni á vornm eina egta Brnma-lífs-elixír
ern firmamerki vor á glasinu og á merkiskildin-
um á miðanum sjest blátt ljðn og gullliani, og
iunsigli vort MB & L í grænu lakki er á tappan-
um.
Mansýeld- B ídlner & Lassen,
sem einir bda til hinn verðlaunaða Brama-lifs-elixir.
Kaupmannahöín.
Vinnustofa: Börregade No. ti. 124
Eigandi og ábyrgðarmaðuí:
Þorleilur Jónsson, tanil. phil.
Skrifstofn: í Bankastræti nr. 3.
Prentsm. Sigf. Kymundssonar.
62
samsæri með innlendum mönnum gegn Frank og fylgd-
armönnum Stanleys, en það hafði komist upp. Að öðru
leyti liafði allt gengið vel.
Eptir að Stanley hafði hvílst nokkra daga, fór
hann að búast til ferðar, ætlaði liann að fara sjóveg
norður til Mtesa. Eptir mikla fyrirhöfn fjekk liann
loks lánaða 27 báta og lagði af stað 29. júní 1875.
Um daginn kom stormur. svo að þeir náðu eigi
þangað, er þeir ætluðu, og urðu að sigla um nóttina, en
þá fóru nokkrir smábátar að liðast sundur. Stanley
missti mikinn farangur, en gat frelsað alla frá að drukkna,
svo að menn voru glaðir og lofuðu guð. „E1 hamd — ul
illa.li!“ (guð veri lofaður) kölluðu íýlgdarmenn Stanleys
hástöíum.
Nú varð Stanley að gjöra við bátana, og þar að
auki varð hann að selflytja menn og fólk. Hann tók
sjer stöðvar á eyðieyju í nánd við Bumbireh ogvíggirti
búðir sínar.
Þangað komu menn frá Mtesa; þegar hann tjekk
að vita um aðfarir Megassa, sendi hann menn í allar
áttir til að leita að Stanley og var þetta ein seudi-
sveitin. Nú varð lið hans 470 manns og þurfti hann
því eigi að vera hræddur við svertingjana í Bumbireh.
Samt, sem áður reyndí hann til með öllu móti að
hafa frið við þá, en þeir hrópuðu á móti: „Nangu!
Nangu!“ (nei, nei). Það var því ekki undanfæri og varð
63
Stanley að skjóta á þá og draji af þeim margt raanna.
Síðan gekk ferðin slysalaust og kom Stanley 20. ágúst
aptur t.il Mtesa.
Þegar Stanley kom aptur, voru Wavumaar á eyj-
unni Uvuma búnir að gjöra uppreisn gegn Mtesa og fjekk
Stanley því eigi að fara frá honum. Mtesa liafði safn-
að liði, 150 þús. manns, en Wavumaar höfðu að eins
20 þús. manns, en þeir höfðu fengið skipalið mikið, 150
báta með hraustum liðsmönnum sjer til hjálpar. Þeir
voru sjómenn góðir og gjörðu Mtesa mikinn skaða. Ept-
ir að Stanley kom, drápu þeir sendiherra frá Mtesa og
uppáhaldssvein hans og varð Mt.esa við það æfareiður.
Meðan Stanley dvaldi hjá honum, skýrði hann Mtesa
og hirð hans frá furðuverkum náttúrunnar og framför-
um í Evrópu. Hanii skýrði honum frá kristinni trú,
lagði út nokkuð af biblíunni fyrir honum oghvattihann
til að kristnast. Kom svo, að Mtesa kallaði höfðingja
sína á ráðstefnu og bar undir þá, hvort þeir heldur skyldu
trúa á Isa (Jesús) og Músa (Móses) eða Múhamed.
„Látum oss taka þá trú, sem best er“, sagði einn
höfðingjanna.
„Já“, sagði annar, „en það er ekki gott að vita,
hver er best. Arabar segja, að sín bók sje best, en hvítu
mennirnir, að sín bók sje best, — hvernig eigum vjer
svo að vita, hvað er sannleikur?“