Þjóðólfur - 01.05.1889, Page 1
Keraur út á. fostudags-
morgna Verö árg. (60
arka) 4 kr. (erlendis 5 kr.).
Borgist fyrir 15. júli.
ÞJÓÐÓLFUR.
Uppsögn skrifleg, bund-
in viö áramót, ógild neraa
komi til útgefanda fyr-
ir 1. október.
XLI. árg.
Reyk,jaTÍk miðTÍkudaginn 1. maí 1889.
Nr. 19.
Depot og Eneforhandler for Island
söges for vore Fabrikater:
Soda & Seltersvand
Medicinske Mineralvande
Specialiteter i Mousserende Frugt og Vin-
limonader, Svensk Sodav. og Afholden- {
hedsdrikke.
Skriftlig Henvendelse besvares og nær-
niere meddeles.
S0DRING & Co.
Kgl. privil. Mineralvandsfabrik og Brondanstalt.
Kjobenhnvn 0. 141
títlendar frjettir.
Hifn, 18. apríl. 1889.
Flótti Boulangers. París og Frakk-
land eru Boulanger-laus. Stjórnin byrj-
aði ofsókniua gegn hönum með því, að
banna hið franska þjóðvinafjelag; fann
hún til, að það væri leynilegt og ólög-
legt fjelag, sem færi á bak við stjórnina.
Hirslur fjelagsstjórnarinnar voru rann-
sakaðar og þóttist stjórnin hafa fundið
ýmislegt saknæmt í þeim og höfðaði mál
á móti fjelagsstjórninni. Nú fór Bou-
langer ekki að verða um sel, þvi hann
sá, hvað sjer var ætlað. Hann hvarf eitt
kveld (2. april) og kom fram í Bryssel.
En stjórnin hafði ætlað að láta taka
hann í býtið um morguninn eptir og
skipaði lögregluliðinu að skjóta hann, '•
ef haun ljeti ekki taka sig góðfúslega.
Boulanger sendi Frökkum opið brjef frá
Bryssel og kvaðst hafa gengið úr greip-
um dauðans, því París væri í höndum
fjandmanna sinna, sem vildu drepa sig
án dóms og laga. Hann mundi verða
utanlands, þangað til kosningarnar i okt-
óber sópuðu þeim burt. Margir fiokks-
menn Boulangers söfnuðust til hans, en
stjórnin höfðaði mál gegn honum og
setti ráðherradeildina (efri deild) til að
dæma í málinu. Deildin skipaði nefnd,
sem nú er að rannsaka málið. Málinu
gegn stjórn þjóðvinafjelagsins lauk svo,
að hver maður í henni var dæmdur í
100 franka sektir, og var það magur sig-
ur fyrir stjórnina.
Uppgailgur Rússa. Hinn 6. mars lagði
Mílan Serbiukonungur niður völdin, og
er hann þó ekki meir en rúmlega þrí-
tugur að aldri. Yinir Rússa og fjand- j
menn Austurríkis höfðu svo mikið bol- j
magn á þingi og utanþings, að hann sá
sjer ekki fært annað, en selja konung-
dóminn í hendur syni sínum, Alexander,
13. ára gömlum. Mílan setti 3 ríkisstjóra
til að stjórna landinu, þangað til haun j
næði lögaldri, og er höfuð þeirra Ristitsj, ,
aðalforingi Rússa. Mílan fór til Aust- j
urríkis og hefur verið á einlægu ferða-
lagi síðan. Menn búast við, að Natalía
drottuing, sem nú er á Rússlandi, komi
nú bráðum heim, þegar hún hefur sigr-
að mann sinn.
I Rúmeníu hefur Karl konungur, sem
er af Hóhenzollernættinni neyðst til að
taka sjer ráðaneyti af vinum Rússa, og
i eru blöð Bismarcks mjög gröm yíir þvi.
Ferdínand af Kóburg i Búlgaríu er nú
orðinn svo valtur í sessi eptir öll þessi
umskipti, að Zankoff, foringi Rússasinna,
á hægt með að steypa honum, einkum
| ef liann fær aðstoð frá Rúmenum eða
Serbum.
í fylkjum Rússa við Eystrasalt búa
margir Þjóðverjar, sem kvarta sáran, þvi
stjórnin reynir að gera þá rússneska,
| mál þeirra og trú o. s. frv. En Þjóð-
verjum ferst ekki að kvarta, því ekki
fara þeir sjálfir betur með Dani, Pólverja
og Frakka í sínum löndum. Eins og
þjer viljið að aðrir breyti við yður, eins
skuluð þjer breyta við þá.
Luxcmburg er nú orðið laust við Holland.
Kon. Hollendinga er svo veikur og rænu-
laus, að þingið hefur settríkisstj. til að stýra
landinu. Þannig er sambandið milli her-
togadæmisins Luxemburg og Hollands
leyst. Adolf, sá er var hertogi í Nassau,
áður en Prússar tóku það, tók við her-
togatign í Luxemburg, og var Þjóðverj-
um mjög illa við, að hann ávarpaði þing-
ið og þegna sina á frönsku, sem er töl-
uð af heldra fólki í Luxemburg.
Fundurinn í Bcrlín um Samoaeyj-
arnar byrjar 1. maí. En náttúran hef-
ur leyst úr Samoamálinu á furðanlegan
hátt. Hin þrjú herskip Þjóðverja og
hin þrjú herskip Ameríkumanna, sem
voru þar, fórust öll í fellibyl, og varð
að eins bjargað mönnum (flestuin) af einu
skipi Þjóðverja, en af Amerikumönnum
var flestum bjargað af hinum þrem skip-
um. Eitt enskt skip, sem var þar, komst
af.
Sama dag rákust tvö farþegjaskip á í
sundinu milli Frakklands og Englands
og drukknuðu 13 manns. Prins Napóleon
(sá er var á íslandi) bjargaði sjer á sundi.
Á Englandi heldur máli Parnells á-
fram. Sir Charles Russell, málaflutn-
ingsmaður Parnellsliða, hefur nýlokið
ræðu, sem stóð í 8 daga og játuðu vinir
og óvinir, að á henni væri hin mesta
snild.
A þingi er verið að ræða frumvarp um
sveitastjórn á Skotlandi, um flotaauka
(Sl1/^ miljón punda sterling) o. fl.
(fladstoningar hafa unnið sigur i nokkr-
um aukakosningum til þings í Kenning-
ton í Lundúnum, í Rochester og fleiri
stöðum.
Tveir ágætismenn hafa látist, John
Bright á Englandi og hinn mikli svenski
hugvitsmaður, John Ericson í New York.
G-ladstone og Salisbury lofuðu mannkosti
öldungsins John Brights á þingi í fögr-
um ræðum. Hann var 77 ára gamall og
var talinn mesti mælskumaður, sem var
uppi á Englandi, og þótti bera af Gflad-
stone. Ættjarðarást og ósjerplægni hans
var ofar öllu lofi og varð hann stundum
fyrir hallmælum af löndum sínum fyrir
það, sem þeir sáu nokkrum árum síðar,
að var rjett og gott.
John Ericson hefur fundið upp og unn-
ið svo margt og mikið, að það yrði hjer
oflangt upp að telja. Svíastjórn ætlar
að senda herskip til að sækja lík hans.
Af Dönum er það að segja, að þeir
fengu bráðabirgðar-(provisorisk)-fjárlög,
eins og vant er, 1. apríl og kippti eng-
inn maður sjer upp við það.
Bandaríkin. Hinn 30. apríl eru liðin
100 ár síðan Washington tók við for-
seta tign í Bandafylkjunum og safn-
ast þann dag allir ríkisstjórar (Gfover-
nors) i Bandaríkjunum um Harrison for-
seta í New York. Öllum afkomendum
embættismanna undir stjórn Washingtons
er boðið í stórveislu og hringt klukkum
um öll Bandaríkin. Harrison situr i stól
Washingtons í kirkjunni og biblía hans
og sálmabækur verða brúkaðar o. s. frv.