Þjóðólfur


Þjóðólfur - 23.07.1889, Qupperneq 1

Þjóðólfur - 23.07.1889, Qupperneq 1
Kemur út á föstudags- morgna. Yerö árg. (60 arka) 4 kr. (erlendis 5 kr.). Boruisí fyrir 15. júlí. ÞJÓÐÓLFUR. Uppsögn skrifleg, bund- in viö áramót, ógild nema komi til útgefanda fyr- ir 1. október. XLI. árg. Reykjayík þriðjudagínn 23. júlí 1889. Nr. 34. Bókaverslun Kr. Ó. Þorgríms- sonar selur Helgapostillu innhefta með mynd fyrir að eins 3 kr. (áð- ur 6 kr.). 286 Helga-Postilla, lief't 3kr.; í velskulbandi g-yltu4kr.; í alsklnni, gylt, 4 kr. 50 au. og 5 kr. Sigf. Eymundssonar Bókverslun. 287 Útlendar frjettir Hiifn, 11. júlí 1889. Scrbía. Um ekkert land hefur verið talað jafnmikið og Serbíu síðan 1. júní. Blöðin liafa staðið á serbiskum þönum og tínt til allt, smátt og stórt, sem Serbar hafa að hafst. Snemma í júní kom Mikael erkibiskup heim þengað. Hann hefur set- ið í útlegð á Rússlandi, síðán Mílan kon- ungur vjek honum úr völdum. Honum var fagnað forkunnar vel og fengið em- bættið aptur í hendur, en hinn, sem í því var, settur af. Mikael breytti ýmsu í ann- að horf. Margt var nú gert í blóra við Austurríkismenn. Á stórhátíð í minningu bardaga, sem Serbar áttu við Tyrki fyrir 700 árum, sagði erkibiskup, að sú væri von og ósk allra Serba, að forsjónin Ijeti þeim auðnast að safnast í eina heild. En fieiri Serbar búa í Austurríki en í Serbíu sjálfri, svo að þetta er sama sem að óska þess, að Asturríki sundrist. Þegar erki- biskup smurði Alexander konung, var enginn sendiherra viðstaddur, nema Rússa. Rússakeisari hafði gert lionum boð, að hann skyldi vera þar við. Svo kvisaðist, að Serbía hefði gengið í varnarsamband við Austurríki. Það var því heldur en ekki asi á þeim Austurríkis-vjerum, þegar Þing var sett. í þingsetningarræðunni stóð reyndar, að Austurríki gleddi sig 'yflr velmegun nágranna sinna, Serba, en utanríkisráðgjafinn var þegar spurður að, hvernig stæði á því, að Austurríki hefði misst öll tögl 0g hagldir í Serbíu. Hann svaraði, að Serbía yrði að eiga sig sjálf, en Austurríki mundi taka til sinna ráða — og þau væru hörð og óblíð — ef nokk- uð væri gert, sem riði í bága við hags- muni þess. Fleiri spurningar voru lagð- ar fyrir þennan ráðgjafa, einkum útaf uppreisn í serbisku fylki, sem Tyrkir eiga. En allt þetta hefur nú hjaðnað niður og I verður ekki að ófriðarefni um sinn, þó að Austurríki herbúi sig eptir mætti. Á Þýskalandi er pólitiskt logn sem stendur, nema hvað Bismark er að ertast við Svissa. Keisarinn hefur verið síðan í júnílok á ferð í Noregi og verður þar þangað til i ágústbyrjun, að hann fer til Englands. Með honurn ferðast Waldersee yfirforingi hins þýska hers; er sagt og ráðið af ýmsu, að þeim Bismarck sje ekki vel til vina. Waldersee vill nefnil. leggja þegar út í stríð, meðan Þýskaland er betur búið en fjandmenn þess, en Bismarck vill frið. Bismarck hefur átt í brjeíáskriftum við Svissa út af lögreglustjóra þeim, Wohlgemuth, er jeg gat um síðast. Svissar vilja engum leyfa að seilast til um innanríkismál sín og samninga þá, sem eru milli landanna, skilja hvorirtveggju á sinn hátt. Við það situr, en Svissar hafa veitt á þingi fje til nýrra vopna og til að víggirða göngin gegn um St. Gotthard’s fjallið bet- ur, og láta vígalega. Á Frakklandi er svo mikið rifrildi og ólæti á þinginu, að engu tali tekur. Fylgdarmenn Boulangers hafa verið tekn- ir höndum fyrir ræðuhöld hingað og þang- að, en er fljótt sleppt aptur. Nefndin af efri deild þings, sem rannsakar málið gegn Boulanger, er komin að þeirri nið- urstöðu, að höfða skuli mál móti honum fyrir samsæri gegn þjóðveldisstjórninni, lagabrot og fjárknytti. — Aðsókn að sýn- ingunni er mikil og vex dag frá degi. Ráðaneytisskipti í Noregi. Hinn 26. júní kom Emil Stang, foringi liægri mana á stórþinginu í Kristianíu, með uppá- stungu, að þingið skyldi lýsa yfir van- trausti sínu á ráðaneyti Sverdrups. Nú sá Jóhann Sverdrúp, að fokið var í flest skjpl og beiddist þegar lausnar úr ráða- neytinu með öllum fjelögum sínum hjá Óskar konungi. Konungur kom til Kristianíu og skrifaði síðan Sverdrúp á þá leið, að hann viðurkenndi ekki, að stórþingið hefði rjett til að hrínda ráð- gjafa úr völdum, hann einn hefði þann rjett, en úr því svo væri komið, sem nú væri, þá mundi hann samt veita honum lausn. Hann þakkaði honum trúa þjón- ustu og bauð síðan Stang að skipa ráða- neyti. Nú er að því gætandi, að hægri menn vantar nokkur atkvæði (5—6) í að vera meiri hluti á þingi, en þing verður ekki sett fyr en 1. febrúar 1890, og kosn- ingar nýjar verða um haustið það ár. Þangað til getur líklega þetta nýja ráða- neyti hjarað, þó ekki sje búið að fá menn í það enn í dag. Frá Afriku hefur frjetst, að Stanley liafi verið kominn að Victoria Nyanza vatninu 2. desember 1888, en ákaflega illa til fara, og er nú von á þeim Emin Pasja við austurströnd Afríku. Wissmann, umboðs- maður Þjóðverja þar á ströndinni, er að berjast við Araba og lætur hin þýsku lierskip skjóta á bæi þeirra, en lítið gagn er víst í því stríði. Foringi hinnar ensku flotadeildar, sem er á vakkiþar viðströnd- ina ljet taka þýskt gufuskip og mölva vjelina i því, á því var Peters nokkur, sem hafði safnað sjálfboðaliði og ætlaði að fara að vinna land undir þjóðverja í Afríku. Hann kvartaði, en flotaforinginn sagði: Þú getur klagað mig, ef þú villt; jeg fer mínu fram. Bismarck vill ekki eiga neitt við þetta og þykir Þjóðverjum það leitt. Englendingar eiga líka í brös- um við Portúgalsmenn þar suður frá út af járnbrautum, og er í orði að halda stórverldafund um þessi mál öll. Louise, elsta dóttir prinsins af Wales, liefur trúlofast jarlinum af Fife. Ein af dætrum Viktoríu drottningar er gipt Marquis af Lorne og er þetta í annað sinn, að kvennmaður af þeirri kommgsætt giptist manni, sem ekki er konungborinn, og mælist það vel fyrir i landinu. Jarl- inn er stórauðugiir. Persakomingur er núna staddur í Lundúniim, og er þar stjanað við hann eins og annars staðar fram úr öllu hófi. Hann útbýtir krossum og gulli, en aldrei tekur hann af sjer lambskinnshúfuna, hvort sem hann situr eða stendur, og

x

Þjóðólfur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.