Þjóðólfur - 23.07.1889, Page 2
134
ýmsu aíkáralegu bregður við hjá hon-
um.
Xý Gf ræn 1 imdskiinn u n. Danir ætla
nú að kanna austurströnd Grænlands frá
66. til 7 3. stigs norðurbreiddar. Fyrir norð-
an 73. stig hafa Austurríkismenn komið
og danskur sjóliðsforingi hefur komist
norður á 66. stig og haft þar vetursetu.
En liið 135 mílna langa svæði þar á milli
hefur enginn Evrópumaður augum skoð-
að, og ætla nú Danir að hafa þar vetur-
setu.
Hátíð mikil var f Róm á fyrsta í
hvítasunnu; þar var afhjúpaður minnis-
varði Giordano Brunos, ágæts heimspek-
ings, sem var brenndur í Rómi árið 1600.
Sendimenn frá öllum löndum voru við-
staddir og var páfanum gramt í geði4
Hann hjelt ræðu fyrir kardínálum sínum
í júnílok, og kvað sjer væri nú naumlega
lengur vært í Róm. Ólíklegt er samt,
að hann flytji búferium, hvað mikið sem
konum verður storkað.
Danir eru nú að halda undirbúníngs-
fundi undir kosningarnar í haust eða vet-
ur.
Hoffory, prófessor í Norðurlandamálum
í Berlín, ætlar að láta leika þar Loka-
sennu í vetur, og er vansjeð, hvernig það
fer.
A 1 þ i n g i.
VI.
Þingmannafrumvörp þessi eru komin
fram á þingi í viðbót við þau, sem áður
eru nefnd:
49. um afnám amtmannaembættanna og
stofnun fjórðungaráða (Sig. Stefánsson og
Sig. Jensson).
50. um að gera aptur Klippstað að sjer-
stöku prestakalli með 300 kr. uppbót úr
landssjóði (Þorv. Kjerúlf).
51. um stofnun ullarverksmiðju (J. Jóns-
son, þm. N.-Þing.).
Launamálið. I frumvarpinn er ákveð-
ið, að laun nokkurra embættismanna skuli
verða færð nokkuð niður. Þannig eiga
laun biskups og amtmannanna að vera
5000 kr., háyfirdómarans 4800 kr.; hinna
yfirdómaranna og landfógetans 3500 kr.,
forstöðumanns presta- og lærðaskólans
4000 kr. Aptur á móti ákveður frv., að
laun hinna lægst launuðu embættismanna !
í Rvik sjeu hækkuð, sem sýnist óþarfi,
því að það má segja þessum embættis-
mönnum til lofs, að þeir hafa eigi kvart-
að um oflág laun. Eptir frv. eiga laun
fyrsta kennarans við prestaskólann og
fyrsta og annars kennara lærða skólans
að vera 2800 kr., en laun 2. kennara við
prestaskólann og 3. og 4. kennara við
lærða skólann 2400 kr.
Þetta launalagafrv. er komið gegn um
neðri deild og var samþykkt þar við 3.
umr. með 14 atkv. móti 5. Þessir 5 voru
Jón Jónsson á Sleðbrjót, Ólafur Briem,
Páll Briem, Þorleifur Jónsson, og Þorv.
Björnsson.
Tolhnálið. 10 a. tollur á kaffi, 5 a. á
sykri, 35 á tóbaki og 1 kr. á hverjum
100 vindlum var samþ. í neðri deild 20.
þ. m. — í efri deild voru þessar upphæð-
ir einnig samþykktar í gær við 2. umr.
Jón Hjaltalín, Arnlj. Ól. og Sighv. Árna-
son komu með breytingartill. um að hafa
tollinn 5 a. á kaffi, 2 a. á sykri; 20 a. á
tóbaki og 75 a. á 100 vindlum; en þær
tillögur voru felldar ineð 4 atkv. móti 7 ;
þessir 4 voru þrír hinir áðurnefndu og Á.
Thorsteinsson.
Lög afgreidd frá alþingi.
IV.
Lög um viðauka við lög 14. jan. 1876
um tilsjón með flutningum á þeim
mönnum, er flytja úr landi í aðrar heims-
álfur.
1. gr. Enginn útflutningsstjóri eður
umboðsmaður útflutningsstjóra má taka
við neinu innskriptargjaldi eða neinu fje
undir nokkru öðru nafni sem borgun upp
í væntanlegt fargjald eða meðalgöngu
fyrir að útvega útförum far, nje heldur
nokkurri skuldbindingu um gjald síðar
í þessu skyni, nema hann jafnframt gefi
útfaranum skriflegt Joforð uin flutning
fyrir fastákveðið verð á tilteknum tíma
Og frá tilteknum stað.
Brotum gegn ákvæðum þessum hegnir
landshöfðingi með úrskurði til sekta allt að
2000 kr. af upphæð þeirri, er útflutn-
ingsstjóri hefur að veði lagt; útflutn-
ingsleyfi má og af honum taka, ef tilefni
þykir til.
2. gr. Nú tekur útflutningsstjóri eigi
við útförum á þeim tíma og stað, er
hann eða umboðsmenn hans hafa samið
um eða auglýst, enda sje eigi lögmætum
forföllum um að kenna, og getur þá út-
fari hver kært útflutningsstjóra fyrir
landshöfðingja, en hann ákveður bætur
útförum til handa af veði því, er útflutn-
ingsstjóri hefur sett, enda hafi útfarinn
eigi vanhaldið sínar skuldbindingar.
3. Skip, sem flytja útfara af landi,
mega hvergi hjer við land taka neinn
farþegja um borð, sem ekki hefur útfar-
arsamning áteiknaðan af lögreglustjóra
eða umboðsmanni hans, áður en hann
fer á skip, nema hann hafi vegabrjef frá
lögreglustjóra umdæmisins eða umboðs-
manni hans, þar sem hann fer á skip.
Brotum gegn ákvæði þessu hegnir
landshöfðingi með úrskurði til sekta allt
' að 400 kr. fyrir hvern þann mann, er
skipstjóri tekur á skip sitt gegn þessu
banni, og greiðist sektarfjeð af upphæð
þeirri, er útflutningsstjóri hefur að veði
lagt, Nú afhendir maður öðrum vega-
brjef sitt, og varðar það jafnháum sekt-
um, sem áður er talið.
4. gr. Állar sektir eptir lögum þess-
um renna í landssjóð.
TZeykjavík, 23. júlí 188b.
Póstskipið Laura kom hingað í fyrra
kveld og með því biskup Hallgrímur Sveins-
son með frú sinni, dr. Yaltýr Guðmunds-
son, sem ætlar að dvelja lijer um tíma,
Jón Jónsson kaupmaður frá Borgarnesi og
margir útlendingar, þar á meðal kaþólsk-
ur prestur, Schreier að nafni, til að fá leigj-
anda að Landakoti lijer í bænum.
Gruðmundur Björnsson (frá Marðar-
núpi), sem útskrifaðist aí latínuskólanum
í liittið fyrra, hefur nú tekið undirbún-
ingspróf (Kantusse) undir læknisfræði við
háskólann í Höfn með ágætiseinkunn ; kvað
enginn íslendingur liafa áður fengið jafn-
góðan vitnisburð við það próf.
Yerslunar frjettir frá Khöfn 12. þ. m.
Á Spáni er seldur einn farmur af salt-
fiski frá Faxaflóa, sem á að sendast frá
íslandi í júli eða seinast 15. ágúst, fyrir
46 rikismörk (nál. 41 kr.) kominn á skip
á Isl. Engin boð í farma, sem síðar koma.
! Saltfiskur sá, sem kom með Lauru, seld-
ist 54 til 55 kr. skppd. stór vestfirskur,
hnakkakýldur, en 50 kr. óhnakkakýldur.
Smáfiskur var borgaður með 38, 40 til
41 kr. — Færeysku stór óhnakkakýldur
jaktafiskur seldist 50 kr. og' stór versl-
unarfiskur 4.71/? til kr. skppd. —
Hákarlslýsi ljóst gufubrætt 31r>/8 kr., pott-
brætt 31 kr.; dökkt hák.l. og þorskalýsi
261/, og 261/4 kr. 210 pd. — Sundmagar
boðnir á 40 a. án þess að ganga út.
Ædardúnn að lækka í verði; hefur selst
á 131/, kr.
Brauð veitt: Af konungi 6. þ. m.
Breiðabólstaður í Fljótshlíð prestaskóla-
kandídat Eggert Pálssyui eptir kosningu
safnaðarins.
Slys og manntjón. 20. þ. m. hvarf maður í
Yestmannaeyjum, Árni að nafni, um nótt úr rúmi
sinu og fannst daginn eptir drukknaður i sjó ná-
lægt landi. Hann var kominn um sjötugt og hald-
ið, að hann hafi drekkt sjer, því að fyrrum hafði