Þjóðólfur - 25.10.1889, Side 2
198
oss af tómum illvilja, heldur af ókunn-
ugleika, og það er þess vegna, að vjer
höfum barist fyrir innlendri þingbund-
inni stjórn með fullri ábyrgð fyrir al-
þingi, af því vjer ætlum, að þegar vjer
fáum innlenda og kunnuga stjórn, þá
muni af fyrirkomulagi þessu leiða betri
stjórnhættir, bæði með lagastaðfestingar
og annað.
Yjer sjáum þannig, að frumvarpið frá
í sumar stendur að þessu leyti ekkert á
baki frumvörpum, sem Jón Sigurðsson
vildi hafa fram.
Vjer viljum svo snúa oss, að hinum
öðrum breytingum á frumvarpinu og
viljum vjer þá fyrst nefna skipun efri
deildar. Það er vafalaust. að þeir, sem
berjast á móti stjórnarskrárfrumvarpinu
í sumar, munu einnig hamast á móti öll-
um konungskosniugum og bera þar
fyrir sig Jón Sigurðsson, en það er þá
best, að láta frumvörp Jóns Sigurðsson-
ar sjálfs bera vitni um það, hvort Jón
Sigurðsson mundi hafa látið slíkt standa
fyrir framgangi málsins.
Frumvarpið 1867: „25. gr. í efri deildinui
eiga sæti: 1., 6 konungkjörnir embættismenn; 2.,
6 þingmenn, er alþingi kýs“.
Frumvarpið 1869 „28. gr. Á alþingi eiga
sæti 30 þjóðkjörnir alþingingismenn og 6 embætt-
ismenn á Islandi, er konungur kveður til þingsetu.
24. gr. í efri deildinni sitja 12 þingmenn. 25. gr.
Hinirkonungkjörnu alþingismenn eiga allir sætií efri
þingdeildinni. Hina þingmennina kýs alþingi.11
Frumvarpið 1871: „18. gr. Á alþingi eiga
sæti 30 þjóðkjörnir alþingismenn og 6 alþingismenn
sem konungur kveður til þingsetu. 19. gr. í efri
deildinni sitja 12 þingmenn. 20. gr. Hinir kon-
ungkjörnu alþingismenn eiga allir sæti i efri þing-
deildinni. Hina þingmennina í efri deildinni kýs
alþingi11.
Þannig er nú þessu varið.
í frumvarpinu frá í sumar var ákveð-
ið, að konungur skyldi til bráðabirgða |
kveðja 6 menn til þingsetu, en síðar meir j
að eins einn þriðjung efri deildarinnar.
Frumvarpið er þannig nokkuð frj álslegra
en frumvörp Jóns Sigurðssonar. En þar j
að auki var það ákveðið í frumvarpinu
frá síðasta þingi, að konungskosning
skyldi gilda æíilangt. Þetta var tekið
eptir lögum Englendinga, og hafa kon-
ungskosningar á þann hátt reynst mjög
vel. Hinar „tryggu leifar“ geta líklega
ekki skilið, hverja þýðingu þetta hefur,
en aðrir munu víst skilja það, þegar þeir
hugleiða, að ef svo hefði verið í hinum
eldri lögum, þá hefði sjera Halldór á
Hofi setið á þingi til dauðadags, sömu-
leiðis Kristján Kristjánsson, sem var sett-
ur af embættinu fyrir frjálslyndi sitt;
Benedikt Sveinsson hefði og setið á þingi
til daudadags sem konungkjörinn, einn-
ig Hallgrímur biskup Sveinsson.
En það má nefna fleira.
Forvígismaður hinna „tryggu leifa“,
Benedikt Sveinsson, vildi hafa 4 kon-
ungkjörna þingmenn í efri deild í frum-
varpinu frá 1881, (sjá Alþ.tíð. 1881, C,
bls. 371) og 1883 hopaði hann svo á hæl,
að hann vildi hafa helminginn konung-
kjörinn, eins og nú er eptir hinni nú-
gildandi stjórnarskrá (sjá Alþ.tíð. 1883,
C, bls. 392), en á þann hátt getur stjórn-
in þó ávallt skipt um, þegar henni ekki
líkar við framkomu þingmannsins, og er
auðsjáanlegt, hversu margfalt verra slíkt
er.
Viljum vjer svo eigi fara frekari orð-
um um þetta atriði, en snúa oss að á-
byrgð stjórnarinnar og dónvinuin er á
að dæma um brot hennar.
Jón Sigurðsson lagði jafnan mikla á-
herslu á, að stjórnin ætti að bera ábyrgð
á stjórnarstörfum sínum gagnvart alþingi.
Benedikt Sveinsson hefur aptur á móti
ekki verið fastur þar í rásinni. Það er
ekki í fyrsta skipti, að hann hefur snú-
ist á móti í stjórnarbótamálinu. Þegar
mest reið á, snerist hann móti Jóni Sig-
urðssyni. Það var árið 1869, þá gerði
hann samtök við sjera Þórarinn. Þá
vildi hann, að ráðgjafi Islands bæri á-
byrgð fyrir fólksþinginu í Danmörku.
Hann barðist þá fyrir, að Jögleidd yrði
svolátandi ákvörðun:
„Jafnt og hinir aðrir ráðgjafar ríkisins á ráð-
gjafinn fyrir ísland sæti i rikisráðinu, og hefur á-
byrgð samkvæmt hinum yfirskoðuðu grundvallar-
lögum Danmerkurrikis, dagsettum 5. jírní 1849.
Yilji neðri deild alþingis koma fram slíkri á-
byrgð á hendur ráðgjafanum, fer það þess á leit
við fólksþingið, og sje fólksþingið því samþykkt
gjörir það þær ráðstafanir, sem með þarf“ (Alþ.tið.
1869, H., bls, 315).
Þá munaði litlu, að Benedikt gæti lagt
alþing undir fólksþingið danska, því að
ef einir tveir hefðu gengið úr liði Jóns
og greitt atkvæði með Benedikt, þá hefði
þetta náð fram að ganga. En þótt svo
færi eigi, þá var það þó hinn mesti hnekk-
ir fyrir Islands mál, hversu Jón var fá-
liðaður; notaði Orla Lehmann þetta mjög
mikið í ræðum sínum móti ísl., og enn er
það kennt við háskólann í Höfn, hversu
lítið hafi á vantað, að danska stjórnin
sigraði þá og fengi sitt fram.
Þegar Benedikt síðar bar fram stjórn-
arskrárfrumvörpin á alþingi 1881 og
1883, Ijet hann sjer ábyrgðina í ljettu
rúmi standa og hafði þau ákvæði, að
stjórnin skyldi að eins hafa ábyrgð á
því, að stjórnarskránni yrði fylgt. Hjelt
hann þar hinum háskalegu ákvæðum
hinnar núgildandi stjórnarskrár. í frum-
varpinu í sumar er aptur á móti ákveð-
ið, að bæði ráðgjafar konungs og ráð-
gjafar jarlsins skulu bera alla ábyrgð á
stjórnarstörfum sinum, og er það þannig
alveg samkvæmt frumvörpum Jóns Sig-
urðssonar. Aptur á móti ljet Jón sjer
minna umhugað um, hver dómstóll ætti
að dæma um málið. í frumvörpunum
frá 1867, 1871 og 1873 er að visu sagt,
að landsdómur skuli dæma um þessi mál,
en það erekkert sagt, hvernig hann skuli
skipaður, og í frumvarpinu 1869 er þessu
sleppt og að eins ákveðið, að um ábyrgð-
ina skuli nákvæmar ákveðið með lögum.
Það hlýtur þvi að verða hverjum manni
ljóst, hvort Jón Sigurðsson mundi hafa
gert þetta atriði að þrætuepli.
I frumúarpinu i sumar eru nákvæm-
ari ákvæði um þetta, en í hinum eldri
frumvörpum, þvi að þar er ákveðið, að
landsyfirdómurinn einn dæmi um ábyrgð
ráðgjafanna. En jafnframt er ákveðið,
að yfirdómendur megi ekki sæti eiga á
þingi. Hjer er enn farið að dæmum
Englendinga.
Það er auðvitað eigi hægt, að bera
þetta saman við eldri frumvörpin, því
að þar stóð ekkert um skipun lands-
dómsins, en vel þolir þetta samanburð
við frumvarpið frá 1886. Ef menn
vilja vantreysta landsyfirdominum, afþví
að stjórnin veiti embættin í honum, þá
má alveg eins vantreysta öllum embætt-
ismönnum, og svo ber þess að gæta,
að eptir frumvarpinu 1885 hefði stjórn-
in að eins þurft að hafa tvo með sjer í
efri deild ásamt landsyfirdóminum til
þess að sleppa, og ef hún hefði haft 3
eða 4 í efri deild með sjer, sem liggur
nærri að ætla, þá hefði hún ekki þurft
að hafa nema 1 eða 2 úr yfirdómi til
þess að fá sýknudóm.
Það hefur marga kosti, að halda á-
kvæðum frumvarpsins í sumar, eptir því
sem reynsla Englendinga er, og Islend-
ingar ættu síst að harma það, þótt vjer
tækjum nokkuð eptir dæmi hinna stjórn-
vitrustu þjóða heimsins.
Vjer höfum borið saman frumvörp Jóns
Sigurðssonar og frumvarpið frá síðasta
þingi, svo að hver maður getur borið
um, hvort þetta frumvarp stendur á baki
hinum og eru þó ótalin hin einkar þýð-
ingarmiklu ákvæði i frv. frá síðasta þingi
nm fjárlögin og bráðabirgðarlögin.