Þjóðólfur - 24.01.1890, Blaðsíða 1
Kemur út á föstudög-
um — Verð árg. (60 arka)
4 kr. Erlendis 5 kr. —
Borgist fyrir 15. júlí.
ÞJÓÐÓLFUR.
Uppsögn skrifleg, bundin
við áramót, ógild nema
komi til útgefanda fyrir 1.
október.
LXII.
ReykjaTík, föstudaglnn 24. janúar 1890.
4.
Kaupfjelög í útlöndum.
i.
Sumstaðar í öðrum löndum, einfeum á
Englandi, hafa menn, mest fátækir verka-
menn, stofnað fjelög, til þess að útvega
sjer verslunarvörur og aðrar lífsnauð-
synjar, sem þeir þurfa á að halda, með
sem bestu verði, og á ýmsan annan hátt að
bæta hag sinn og efla velgengni sin á að
meðal. Fjelög þessi eru viðurkennd, sem
einhver heillavænlegustu fyrirtæki fyrir
hinn fátæka verkmannalýð, sem er víða
erlendis. Þvilík fjelög voru 1887 á Eng-
landi um 1200 með 866,000 fjelagsmönn-
um. 1 Danmörku eru og mörg þeirra;
eru þau þar nefnd optast nú orðið: „Brugs-
foreningeru. Margir munu kannast við
nafnið, en því miður munu allt of fáir
vita, hvernig þau eiginlega eru —, því
miður segjum vjer, því að af fjelögum
þessum gætum vjer íslendingar lært eigi
alllítið, sem gæti koinið oss að góðu haldi
í kaupfjelögum vorum, sem enn eru í
bernsku og standa eigi á svo tryggum
fótum, sem skyldi, ef eitthvað ber út af.
Vjer höfum því ásett oss að skýra lítið
eitt frá kaupfj elögunum í útlöndum, eptir
því sem vjer höfum föng á, bera þau
síðan saman við kaupfjelög vor, sem eru
þeim að ýmsu leyti ólík, þótt tilgangur-
inn sje sami, og jafnframt hugleiða, að
hve miklu leyti kaupfjelög vor ættu að
sniða sig eptir hinum út.lendu fjelögum,
ásamt fleiru, er snertir kaupfjelagsversl-
un vora.
En áður en yjer förum að lýsa kaupfje-
lögunum í útlöndum, verðum vjer að gera
fáeinar athugasemdir um verslun almennt.
Sjaldnast framleiða menn sjálfir lifs-
nauðsynjar sínar og aðra hluti, sem þeir
þurfa a að halda. Landbóndinn elur að
visu sjalfur ripp kvikfjenaðinn, sem gefur
af sjer mjólkina, sem hann drekkur, og
bjötið, sem hannborðar; ogi þeim lönd-
um, þar sem akuryrkja er, yrkir land-
bóndinn einnig kornið í brauðið, sem
hann borðar. En þrátt fyrir það þarf
landbóndinn þó margt, sem ekki verður
framleitt af jörðinni, sem hann býr á,
og það verður hann að kaupa; opt og
einatt er jafnvel ómögulegt að kaupa það
af þeim, sem hefur framleitt það. Kafíi
og sykur t. d. er opt selt og keypt á
leiðinni frá framleiðslustaðnum til þeirra
manna, sem að lyktum neyta þess, og
svo er um margar aðrar vörur og lífs-
nauðsynjar. Opt gengur varan frá fram-
leiðandanum til annars, sem býr til úr
henni aðra vöru, sem hann síðan selur
kaupmönnum og þeir þeim, sem á henni
þurfa að halda. Þetta á sjer stað t. d.
um ullina, sem gengur frá fjárbóndan-
um til verksmiðjueigandans; hannbýrtil
úr henni dúka og ýmis konar vefnaðar-
vörur, sem hann selur til kaupmannanna
og þeir selja aptur til þeirra, sem búa
til úr þeim föt o. fl. handa sjer eða öðr-
um. Yfir höfuð eru tveir flokkar af milli-
liðum milli framleiðandans og neytand-
ans. Til annars flokksins heyra allir þeir,
j sem búa til úr vörunni aðra vöru og
þannig selja allt aðra vöru en þeir hafa
keypt, eins og á sjer stað um verksmiðju-
eigendurna, iðnaðarmennina, malara, bak-
ara o. s. frv. Hinn flokburinn eru þeir,
sem selja sömu vöru, sem þeir hafa keypt;
það eru hinir eiginlegu verslunarmenn:
stórkaupmenn og smákaupmenn.
Þegar nú sá maður, sem neytir vör-
unnar (neytandinn) kaupir hana, þá verð-
ur hann eigi að eins að borga til þess
manns, sem upphaflega hefur framleitt
vöruna (framleiða.ndans), heldur einn-
ig til þess, sem hefur ummyndað hana
eða búið til úr henni aðra vöru, og loks
til þess, sem að lyktum verslar með vör-
una. Allir verða þeir að hafa einhvern
ágóða af atvinnu sinni, að minnsta kosti
svo mikinn að þeir geti lifað af henni.
Og þar af leiðir aptur, að því fleiri hend-
ur sem varan genqur í gegn um á leiðinni
frá framleiðandanum til neytandans, því
meira verðilr neytandinn að horga fyrir
hana með öðrum orðum, því dýrari verð-
ur varan, en því færri hendur, sem var-
an gengur i gegn um, því ’odýrari verður
hún.
Þetta verða menn að setja vel á sig,
því það er grundvöllurinn fyrir kaup-
fj elagsversluninni. Það er nefnilega ljóst,
að það er beinn hagur fyrir neytandann
að kaupa vöruna af framleiðandanum sjálf-
um, ef því verður við komið; það er opt
mögulegt, en einnig opt ómögulegt. Sá,
sem t. d. langar i kaffisopa, getur ekki
keypt kaffi af manni þeim austur í Asíu
eða vestur í Brasilíu, sem yrkir kaffið.
Milliliðir eru því nauðsynlegir, og það
opt margir milliliðir. Að spara einn eða
fieiri þessara milliliða, er aðalætlunarverk
kaupfjelaganna erlendis, sem vjer minnt-
umst á í byrjuninni. Margir eru svo fá-
tækir, að þeir geta t. d. ekki keypt nema
nokkur lóð af kaffi í einu af smákaup-
manninum; en smákaupmaðurinn aptur
á móti kaupir það í heilum sekkjum af
stórkaupmanninum, sem aptur hefur keypt
það, ekki af framleiðandanum í Asíu,
heldur kaffikaupmanni t. d. í Hollandi.
Hver fátæklingur fyrir sig getur ekki
keypt kaffið í heilum sekkjum af stór-
kaupmanninum; til þess er hann bæði of
fátækur og eyðir heldur ekki svo miklu.
En hann getur ásamt öðrum, sem eins
stendur á fyrir, gengið í fjelag og þann-
ig stofnað kaupfjelag, sem þá kaupir kaffið
í heilum sekkjum af stórkaupmanninum
með sama verði, sem smákaupmaðurinn
annars fær það fyrir. Á þennan hátt
sparast einn milliliður. Þegar fleiri kaup-
fjelög en eitt eru stofnuð, geta þau
aptur gert samband sín á milli og keypt
vörur í sameiningu fyrir sama verð, sem
stórkaupmaðurinn fær þær fyrir. Þann-
ig eru þá sparaðir tveir milliliðir, og fje-
lagsmenn fá vörurnar að því skapi með
lægra verði, en ef þeir hefðu orðið að
kaupa í smákaupum hver fyrir sig af smá-
kaupmanninum.
Milliliðir þeir, sem sparast á þennan
hátt, eru verslunarmenn, og kaupfjelagið
kemur þá íþeirrastað. En fjelögingeta
einnig haft það ætlunarverk að gjöra ó-
þarfa og koma í staðinn fjrrir einhvern
af þeim milliliðum, sem býr til vöruna,
t. d. bakara. Fjelagið býr þá sjálft til
brauð handa þeim mönnum, sem í því
eru; fjelagið kaupir þá eða leigir brauð-
gjörðarhús, kaupir korn eða mjöl og læt-
ur menn, sem það heldur, baka úr því.
Fjelagsmenn fá þannig ódýrara brauð,
en þeir fengju, ef þeir keyptu hver fyr-
ir sig brauð hjá einhverjum bakara.
Kaupfjelög þessi eru þannig fjelög,
sem kaupa og stundum jafnframt búa til
þær vörur, lífsnauðsynjar og aðra hluti