Þjóðólfur - 28.02.1890, Síða 3
39
sína braut sjálfur og hafði sig fram úr
fátækt“.
í Þistilfirði 'lö í vetur Sigfús Jónsson,
bóndi í Hvammi, „dugnaðarmaður og góð-
ur bóndi“.
Úr Austur-Skaptafellss. skrifað 10. þ. m.:
„Tveir kvennmenn hafa orðið bráðkvaddir
fyrir skömmu hjer í A.-Skaptfss.“
Lungnabólga hefur gjört vart við sig
suður í Garði síðan í janúar, og nokkrir
dáið úr henni.
Á Eyrarfi^kka dó 18. þ. m. snikkari
Jóhann Fr. Jónsson, „vandaður maður og
vel að sér; hann hafði fyrir 2 árum tryggt
líf sitt fyrir 2000 kr.“ er oss skrifað
þaðan.
Barðastrandarsýslu (Gufudalssveit), 2. febrúar.
„Síðan uýja árið gekk í garð, Uefur tíðin verið frá-
bærlega frostalítil, eins og fyr í vetur; vanalega
1—3 st. frost. Jarðbann er þó bæði hjer í sveit
og annars staðar í grendinni. Hefur svo verið
síðan um jól; valda því áfreðar“.
Strandasýslu, 24. jan. . . . „Tíðin licfur verið
slsem hjer siðan á jólum, sífelldir kafaldsbyljir;
jjarskasnjór kominn og alstaðar haglaust“.
Húnavatussýslu, 3. febr. . . . „Tíðin hefur um
langan tima verið hin versta, einlægar hríðar af
vestri, svo að varla hefur verið snjókandi fje opt-
ast nær, og alveg jarðlaust fram til dala“.
Skagaflrði (Sæmundarhlíð), 4. febr. „Tið nú og
hefur verið fjarska óstöðug og umhleypingasöm,
og sumstaðar hjer i Skagafirði jarðbann, einkum
hjer utan til fyrir áfreða; fannþyngsli engin. Bn,
sem betur fer, eru flestir eða allir óbilandi með hey
handa skepnum sínum, en þau reynast fjarska ljett“.
Skagafjarðarsýslu, 1. febr.....„Pram til
dala hefur mátt heita öndvegistíð það sem af er
vetrinum; engin stórhríð hefur enn þá kornið; opt-
ast frostlítið. Horfurnar með búskapinn þvi hinar
bestu“.
Horður-Þingeyjarsýslu (Þistilf.) 7. jan. „Síð-
astliðið ár hefur á þessum kjálka landsins, sem
annars staðar, mátt heita hið ákjósanlega að öllu
leyti. Heyskapur í sumar má heita ágætur sakir
hinnar góðu nýtingar. Tíðarfar hefur að sönnu
verið æði óstillt og stormasamt frá veturnóttum,
en aptur á móti hafa frost og snjóar verið með
langminnsta móti, eptir því sem hjer um sveitir
er vanalegt. Jörð fyrir sauðfje hefur allt að þess-
um tima víðasf verið næg; lömb voru hjer sumstað-
ar eigi tekin fyr en um og eptir hátíðir.—Dagana
23.—27. nóv. síðastl. gerði hjer ofsaveður og stór-
hríð. Þá urðu 2 menn úti 4 Slettu, 1 á Langanesi
og 1 í Axarfirði. Fjárskaðar urðu þá og allvíða.
í Þistilfirði fennti og hrakti til dauðs undir 100
fjár, mest af þvi frá tveim bæjum; og var það
mjög tilfinnanlegt tjón, þar eð fjárstofn manna var
sakir undanfarandi harðindaára, orðinn mjög lítill.
Á Langanesi urðu einnig allvíða fjárskaðar; þó
hvergi miklir, nema á einum bæ, þar fórust 16
kindur fullorðnar. Bæði fyrir og eptir þetta óveð-
urskast hefur verið besta tíð“.
Vopnaflrði 4. jan....,uað hefur mátt heita
góð tíð það sem af vetrinum er; þó hún
hafi verið nokkuð óstöðug 0g veðrasöm, liefur
verið mjög snjólítið og góðar jarðir, enda er nú
vonandi, að flestir verði vel byrgir með hey í vet-
ur, þar sem þau voru með meira móti í haust, og
lítið þurft að gefa hingað til. Góður afli var lijer
í haust og framan af í vetur á meðan hægt var
að róa, og nú seinast þegar róið var, milli jóla
og nýárs, varð fiskvart11.
Horðurmúlasýslu 27. jan.: „Árið byrjaði með
harðindum, útsynnings-bleytusnjóum. Jarðlaust i
öllu Fljótsdalshjeraði og í Fljótsdal, sunnan með
austursíðu Hjeraðsins kyngi af snjó, en snjógrunnt
yst á Hjeraðinu, því að þar rigndi lengur“.
Austur-Skaptafellss. 10. febr......,Það, sem af
er vetri, hefur verið mjög óstöðugt að veðráttu til,
en frostalítið, og öllum útifjenaði gefið stöðugt
síðan fyrir jöl“.
---o>ÖO<=»-<c>-
Fyrirspurnir og svör.
1. Getur jarðeigandi með rjettu skyldað land-
seta sinn til ábyrgðar fyrir innstæðu og álagi á
parti, sem hann hefur byggt af ábúðarjörð sinni,
þegar það var með vilja og vitund jarðareiganda,
skilmálalaust á báðar síður; jörðin þó reglulega
úttekin og partábúendanum greiddur tiltölulegur
hluti af álaginu, þótt aðallandsetinn hafi eigi reglu-
lega sagt lausum jarðarpártinum?
Svar: Um þetta eru eigi til bein lagaákvæði og
oss vitanlega eigi fallinn dómur um það. En svo
virðist, sem aðallandsetinn geti ekki komist hjá,
að ábyrgjast jarðareigandanum innstæðukúgildi og
álag af hinum afbyggða parti, nema jarðareigand-
inu hafi samþykkt að eiga aðganginn með það að
ábúanda partsins.
2. Ber að greiða úttektarmönnum laun fyrir
jarðarúttekt, og ef svo er, hverjum ber að gjöra
það, þegar yfirúttekt fram fer?
Svar: Fyrir úttekt ber að greiða hverjum
úttektarmanni 2 kr. fyrir hvern dag, sem gjörðin
stendur yfir (Lög nr. 3 13. jan. 1882, 8. gr.) og
skal fráfarandi og viðtakandi jarðar borga út-
tektina að sínum helmingi hvor (Lög nr. 1 12. jan.
1884, 30. gr.); sama er að segja mn yfirúttekt, ef
hún breytir álagsupphæð, en breyti yfirúttekt henni
ekki, skal sá, er krefst hennar, borga hana að öllu
(sömu lög, 34. gr.).
3. Hverjum ber að ko3ta til sleða, þegar aka
þarf grjóti í kirkju-grunn eða garð, ef enginn
sóknarbænda á hann hæfilegan.
Svar: Sóknarbændum.
4. Við erum þrír bræður; faðir okkar dó; einn
okkar tók að sjer að annast um útförina, þótt hin-
ir legðu lika til hennar. Svo selur sýslumaður
búið og þessi eini kaupir mikinn hluta þess, en
stendur samörfum sínum eingin skil á reikningum
eða rjettarkröfum, og fær heldur ekki umboð hjá
þeim, til þess að ráða einn fyrir alla, — er þetta
lögum og venju samkvæmt.
Svar: Nei.
5. Jeg seldi jörð, sem jeg hafði fyrir löngu
keypt; er jeg skyldugur að sýna þeim mönnum
eignarskjöl, sem jeg hafði fyrir henni, sem jeg
hvorki keypti af nje áttu neinn hlut að söl-
unni.
Svar: Nei.
6. Má prestur láta taka kirkju úr miðri sókn
og flytja í kaupstað á sóknarenda, þvert á móti
vilja allra sóknarmanna utan kaupstaðarbúanna,
þótt þeir sjeu lítið fleiri að tölu?
Prestur þessi • telur trú um, að sóknarmenn fái
eflaust að vera i kaupstaðnum nætur eptir messu-
daga, — þvi langt er yfir sóknina og opt torfærur
um tvær mílur vegar, — en svo vildi óheppilega
til, um jólin, er prestur hjelt kvöldsöng þar á
staðnum, að nokkrir menn komu þar að hlýða á,
fyrir utan staðarbúa, og fengu að vera um nótt-
ina, nema einn, sem varð að liggja úti, vegna þess
hann var ódrukkinn. Slæm var sú fyrsta ganga,
þar máske fleiri á eptir fari! G.
Svar: Nei, þvi að til þess ,að kirkju megi færa,
verður meiri hluti atkvæðisbærra sóknarmanna að
samþykkja kirkjufærsluna; síðan verður hjeraðs-
fundur, og þar á meðal bæði hlutaðeigandi prest-
ur og safnaðarfulltrúi úr sókninni, að samþykkja
hana. Þá fyrst getur landshöfðingi með ráði
biskups staðfest kirkjufærsluna. (Sjá lög 27. febr.
1880 um stjórn safnaðarmála og skipun sóknar-
nefnda og hjeraðsnefnda, einkum 12. gr., og lög
s. d. um skipun prestakalla, 4. gr.). Ef öllum
þessum skilyrðum er eigi fullnægt, er engin heim-
ild til að færa kirkjuna.
Umskipti liamingjunnar. 1826 braut
maður frá Norður-Ameríku, William Wheelwright
að nafni, skip sitt við strendurnar á Argentínu.
Hann komst á land hálfnakinn og hungraður. Hon-
um var einn kostur nauðugur, að vera kyrr þar
sem hann var komiun, því að hann átti ekki einn
eyri til að ferðast fyrir þaðan. 40 árum seinna
ljet hann byggja fyrstu járnbrautina i Suður-Ame-
ríku og stofnaði gufuskipafjelag, sem tvisvar i
viku sendir skip sín milli borgar einnar i Argent-
ínu og Englands. Nú er hann dauður, en viða i
borgunum í Argentínu og Chili hafa honum verið
reistir veglegir og miklir minnisvarðar.
AUGLÝSING AR
í samfeldu máli meö smáletri kosta 2 a. (þakkaráv. 3 a.>
hvert orð 15 stafa frekast: með öðru letri eða setning,
1 kr. fyrir þumlung dálks lengdar. Borgun út 1 hönd.
Samskotum tll míimisvarða yflr Jðn
Sigurðsson á Grautlöndum veitir ritstjóri
Þjóðólfs viðtöku, og tekur að sjer að koma þeim
til forstöðumannanna. Jafnóðum og samskotin
verða borguð, verða þau auglýst í blaðinu. 109
Arinbj. Sveinbjarnarson
BÓKBINDARI
leysir af hendi hvers konar bókband. Gyllir bækur
í sniðuin, efæskter. Alltódýrt og vel vandað.
xio Vinnustofa: Laugaveg 2.
Skrifstofa fyrir almenning.
10 Kirkjustræti 10
opin livern rúmhelgan dag kl. 4—5 e. h. m
Arinbj. Sveinbjarnarson:
Bókbandsverkstofa.
|_________2 LAUGAVEG 2.________
Hin alþekkta
skósmíða-
vinnustofa
mín í Veltusundi nr. 3 er opin frá kl.
6—7 á morgnana til kl. 9—10 á kveldin.
Allt íljótt og vel af hendi leyst.
Rafn Sigurðsson. n3
Fundur í stúdentafjelaginu laugardags-
kveldið 1. mars kl. 8'/a 114