Þjóðólfur - 22.03.1890, Qupperneq 1
Kemur tit á föstudög-
um — Verö árg. (60 arka)
4 kr. Erlendis 5 kr. —
Borgist fyrir 15. júll.
ÞJÓÐÓLFUR.
Uppsögn skrifieg, bundin
viö áramót, ðgild nema
komi til útgefanda fyrir 1.
oktðber.
XLII. árg.
Keykjavík, laugardaginn 22. mars 1890.
Nr. 14.
Skakkir áttavitar.
Með síðustu póstum komu greinar að
norðan og vestan frá forvígismönnum
minni hlutans. I Þjóðv. er sama glamrið
og áður, og brjefin og aðsendu grein-
arnar steyptar í sama móti, sem fyr. Þeim
Vestra er full vorkun á þessu, því þeir
bafa þegar gert sig seka í svo augljós-
um rangfserslum og mótsögnum, að það
er von, þótt þeir grípi þau hálmstráin,
sem næst liggja, til að halda sjer uppi.
Það, sem þeir hafa sagt nú, er marg-
hrakið áður.
Benedikt Sveinsson skrifar í Norður-
ljósinu; í upphafi greinar sinnar rjettir
hann Þjóðviljanum auðsjáanlega góða
sneið, þótt hún sje ekki af osti, með því
að segja, að það sje málið, sem eigi að
vera umtalsefnið, en ekki mennirnir, eins
og opt hefur verið tekið fram í Þjóðólfi.
Það er eins og B. Sv. hafi þótt nóg um
hinar persónulegu árásir á menn í Þjóð-
viljanum, og má hjer segja, að bragð er
að þá barnið finnur. Að öðru leyti byrj-
ar B. Sv. á því að segja, að „engum
manni sje unnt“ að fá ákveðna hugmynd
um stefnu Þjóðólfs og Fjallkonunnar.
Nú skyldi maður ætla, að B. Sv. hefði
slegið í botn, og ekki tekið að sjer að
vísa mönnum veginn, er hann gat ekki
áttað sig á stefnunni. En þetta á þó
ekki svo að vera, og getur því hver mað-
ur gert sjer í hugarlund, hvernig veg-
leiðslan verður hjá áttaviltum leiðtoga.
Vj er viljum nú virða fyrir oss átta-
vitana, sem hann miðar við, og sem allt
er undir komið, ef menn eiga að vita,
bvort þeir sjeu á rjettri leið.
Fyrst segir hann, að 2. grein stöðu-
laganna slai því föstu, að hinn svo nefndi
raðgjafi Islands skuli eiga sæti í ríkis-
raði Dana. Árið 1885 var hann nú
reyndar á annari skoðun; þá kom hann
með þessa spurningu í ritgjörð sem hann
skrifaði í Andvara: „En getur nú þetta
fyrirkomulag, að ráðgjafi íslands skuli
slíkur hafa sæti í ríkisráði Dana,
samrýmst við grundvallarlög Dana á
einn veg eða við stöðulögin 2. jan. 1871
°S stjórnarskrána 5. jan. 1874 1. gr. sbr.
§r- á hinn bóginn?“ Þessu svaraði
hann þannig: „Jeg ætla, að menn muni
verða að kveða „nei“ við þessari spurn-
ingu, hvernig sem menn velta henni fyr-
ir sjer“ (Andvari 1885, bls. 200). Vjer
segjum að eins um þetta: Hvernig get-
ur hugsast meiri mótsögn en þetta, er
sami maðurinn svarar sömu spurning-
unni með nei 1885, en já 18901.
í öðru lagi segir hann, að með tilvís-
un til stöðulaganna sjeu ofurseld lands-
rjettindi og sjálfsstjórnarrjettur íslands.
En árið 1883 lagði hann það sjálfur til
á alþingi, að tilvísun þessi væri tekin
upp i stjórnarskrárfrumvarpið og var það
samþykkt með 20 atkvæðum í neðri deild
(Alþ.tíð. 1883, C, bls. 300—301, B, II.,
bls. 90). Er til meiri mótsögn en þetta ?
Líklega ekki, nema ef vera skyldi næsta
atriði. Á öllum síðari þingum og á
Þingvallafundinum síðast lofaði hann
mjög mikið stjórnarfyrirkomulag Canada
og hinna ensku nýlenda, er sjálfstjórn
hafa. En nú þykir hinum sama(B. Sv.)
slíkt ófært, því að stjórnarfrumtak Eng-
lendinga gagnvart nýlendum sínum geti
ekki samrýmst stjórnarfrumtaki Dana
gagnvart íslandi „fremur en brúnklukk-
an og jötunuxinn". Það er óvíst, hvort
stj órnarfrumtak Englendinga á að vera
líkt brúnklukku eða jötunuxa, en hvort
það likist þessu eða hinu, þá er furða,
að Ben. Sv. skuli hafa getað haft slík
skrímsli í höfðinu í mörg ár, án þess að
svima.
Að síðustu segir hann, að með því að
ákveða, að landsdómurinn einn dæmi um
mál, er höfðuð verða gegn ráðgjöfunum,
þá játist íslendingar undir „dómsvald
Dana(!) í hinum sjerstaklegu málefnum
landsins11. Þetta eru óbreytt orð B. Sv.,
sem geta fullkomlega jafnast við Þjóð-
viljann, þar sem honum tekst upp. Þessi
áttaviti bendir ekki svo lítið fram hjá
sannleikanum. En þegar mótsagnirnar
eru svona áþreifanlegar og áttavitarnir
svona skakkir hjá foringja minni hlut-
ans, þá geta menn imyndað sjer, hvernig
’) Þess iná einnig geta, að 1875 var B. Sv. á
allt annari skoðun en nú. Á alþingi 1875 bar
hann fram fyrirspurn um þetta og hjelt því fram,
að það væri langt frá því, að stöðulögin heimiluðu
ráðgjafa íslands sæti i ríkisráði Dana, „heldur þvert
á móti hið gagnstæða" (Alþ.tíð. 1875, II., bls. 377).
leiðsagan er að öðru leyti og hvort B.
Sv. með allan sinn minni hluta og sundr-
ungarmenn muni ganga rakleiðis á sann-
leikann.
Almenningur furðar sig ef til vill á
því, að B. Sv. skuli geta sniíist þannig
í hring og förlast þannig sjónir á mál-
efninu, en þeir, sem muna, hvernig hann
kom fram á alþingi 1869 og snerist á
móti Jóni Sigurðssyni, þegar mest reið
á, þeir furða sig ekkert á sliku, því að
þótt náttúran sje lamin með lurk, hún
leitar heim. Páll Briem.
Rjetta- og gangnafærsla. Oss hafa borist
nokkrar greinar að norðan móti rjetta- og gangna-
færslu og móti ritstjórnargreinum ísafoldar um það
mál. Bæði sakir rúmleysis í blaðinu og af því, að
greinar þessar ganga allar í sömu stefnu, getum
vjer eigi tekið þær allar i blaðið; en tökum að eins
eptirfylgjandi kafla úr brjefi, dags. 26. febr., frá
einum af merkustu bændum i Húnavatnssýslu:
„Sýslunefndarfundur okkar byrjar nú 3. mars.
Þar verður meðal aanars væntanlega rætt um aug-
lýsingar Coghills og hótanir viðvíkjandi færslu á
göngum og rjettum. Jeg má fullyrða, að ekkí
verði fallist á gangnafærsluna, jafnvel þótt Coghill
hðti þvi að kaupa ekki fje hjer, nema svo verði;
þvi undanfarin ár hafa Slimonsþjónar ekki borgað
okkur Norðlcndingum fje svo vel, að okkur þurfi
að vera eptirsjá að þeim skiptum, nema næstl. haust,
af þvi þá voru fleiri um boðið. Oss dettur heldar
ekki i hug, að þó Slimon hætti hjer fjárverslun, að
með því væri þá lokið fjársölu til Englands; nei,
þvert á móti salan heldur áfram eptir sem áður;
og því fremur getum vjer vænt þess, þar sem hinir
aðrir fjárkaupmenn frá Englandi, er keypt hafa að
oss að undanförnu, gjöra enga heimtingu á því, að
göngum og rjettum verði breytt. En það sat síst
á Slimon eða Coghill í þetta sinn, að heimta fjeð
fyrri framvegis, þvi næstliðið haust stóð tilfinnan-
lega illa á skipunum, en ekki fjenu, og slíkt hefur
átt sjer stað optar áður, og er þetta ráðlag Slim-
ons bæði honum og oss til stórtjóns. Pjeð horast
fjarskalega í parrakinu og verður mjög óútgengi-
legt, þegar til Englands kemur; af þvi flýtur, að
það selst illa þar, nema það sje geymt og fitað, en
það mun kosta peninga, sem dragast frá hagnaðin-
um, og þess gjöldum vjer næsta árið.
Eitt er enn þá óviðkunnanlegt við fjárverslun
Coghills, og það er, að hann heimtar stöðugt, að
seljendur reki fjeð á sinn kostnað og ábyrgð, efeitt-
hvað ferst á leiðinni af mörknðunum til skips eða
þeirrar hafnar, sem fjárflutningaskipið kemur á.
Þetta eldir eptir af því, að vjer Norðlendingar báð-
um Coghill í fyrstu að kaupa að okkur fje, og setti
hann okkur þá þessa ókosti, og hefur getað haldið
þeim fram, af því hann helur lengst af verið hjer
einvaldur. Hinir aðrir fjárkaupmenn vorir S. Sæ-