Þjóðólfur


Þjóðólfur - 11.04.1890, Qupperneq 2

Þjóðólfur - 11.04.1890, Qupperneq 2
66 er mjólk hið eina, sem hægt er að veita sjer og komið getur í staðinn fyrir móð- urmjólkina. Það er ætlun manna, að 2/g allra ungbarna sjeu ekki höfð á brjósti og verði því að lifa á annari mjólk en móðurmjólkinni. Svik á mjólkinni hafa því hinar yfirgripsmestu afleiðingar. Eiginlega er það að eins ösnumjólk og að nokkru leyti geitarmjólk, sem getur nokkurn veginn komið í staðinn fyrir brjóstamjólkina, en það er optast lítt mögulegt, að útvega sjer ösnu- eða geitar- mjólk, svo að það verður mestmegnis kúamjólk, sem hlýtur að koma í staðinn fyrir brjóstamjólkina. í kúamjólk er hjer um bil jafnt af fitu, ostefni og mjólkursykri (4 aflOOaf hverju fyrir sig); í brjóstamjólk er apt- ur á móti meira af mjólkursykri (6 af 100), en dálítið minna af ostefni. Það verður því að láta nokkuð af sykri í kúamjólk og þynna hana dálítið með vatni, til þess að hún geti komið í stað- inn fyrir brjóstamjólk. Bæði í Danmörku og í öðrum löndum deyja ungbörn svo þúsundum skiptir, af því að mjólkin, sem þeim er gefin, er svikin. Það er þó ekki svo að skilja, að mjólkin sje venjulega eiturblönduð, held- ur er hún þynnt eða rýrt næringargildi hennar, annaðhvort á þann hátt, að hún er vatnsblönduð eða rjómanum náð úr henni; undanrenningin er þá seld sem nýmjólk; að vatnsblanda mjólkina er mjög algengt, en það er nokkurn veginn hægt að komast eptir því. Stundum má það með því, að gó að eðlisþyngd mjólk- urinnar (þyugd hennar í hlutfalli við vatn) með þar til gjörðu verkfæri (Flyde- vœgt), því að eðlisþyngd mjólkurinnar er þessi: Góð nýmjólk..............Ímzs-Ijoss- Mjólk, sem helmingur rjóm- ans hefur verið tekinn úr 1,034—1,036. Undanrenning .... l,og7—1,040- Undanrenning er þannig þyngri í hlut- falli við vatn en nýmjólk. En sje 1 pela af vatni blandað saman við 3 pela af undanrenningu, sem er að eðlisþyngd 1,088) kemur út eðlisþyngd þessarar blönd- uðu mjólkur 1,030, svo að það lítur svo út, sem þetta sje ósvikin nýmjólk, og því ekki einhlýtt, að gá að eðlisþyngd mjólkurinnar. Aptur á móti getur gagnsæi mjólkur- innar gefið góðar bendingar, eins og síð- ar skal sýnt. Þó hefur mjólkursvikur- unum tekist að sjá við því, með því að blanda saman við mjólkina ýmsura efn- um, svo sem stífelsi, krít, gibsi, tvíkola- súru natroni o. s. frv., en við það eykst eðlisþyngd mjólkurinnar og hún verður minna gagnsæ en ella, og þá þarf ná- kvæmari rannsóknir, til að finna svikin. Stundum er tvíkolasúru natroni blandað saman við súra mjólk, og fær hún þá nokkurn veginn upphaflegt bragð sitt, en slík mjólk er ekki holl fyrir heilsuna. (ffleira næst). Úr brjefi úr Strandasýslu, 31. mars. „Tíðar- far má heita hið besta. Veturinn hefur verið mild- ur, en veðrátta lengstum óstöðug. Úrkomur miklar og veðrasamt. Hagar voru alls staðar til nýjárs. Þaðan og fram undir miðgóu víðast haglaust. Þá komu upp snapir og er nú víðast orðin beitarjörð með sjó fram. Um miðjan yfirstandandi mánuð gjörði snarpt norðanhret, hið eina, sem komið bef- ur á vetrinum, með þó nokkru frosti. Þá sáust deili til hafiss norður með ströndum, en mjög ó- veruleg, og virðist tíðarfarið benda til þess, að ís sje ekki til muna úti fyrir. — Skepnuhöld alls stað- ar hin bestu, enda voru heyin frá sumrinu sem leið, bæði mikil og góð. Búnaðaríjelag okkar ljet gjöra skoðun um miðjan vetur á heyjum og fjen- aði og var útlitið hið besta. Hey nóg og til mik- illa leifa, ef ekki verður því harðara vor. Pjenað- ur allur í bestu þrifum. Það mun t. d. á allmörg- um bæjnm liittast svo fóðraðir gemlingar, að þeir vegi að meðaltali 70—80 pd., og lambhrútar fund- ust sumstaðar, er voru talsvert yfir 100 pd. Fjelag þetta hefur komið á metnaði í því, að fara vel með fjenaðinn, og má vænta af því mikilla góðra afleið- inga. — Fiskiaflinn varð i haust alls enginn hjer við innanverðan flóann, en allgóður norður með Ströndunum, einkum kringum Eeykjarfjörð. Há- karlsafli hefur verið litill i vetur, enda ógæftir mikl- ar norður frá, svo sjaldan hefur orðið reynt svo teljandi sje. Um Góulokin var róið af Gjögri, en ekki fjekkst næði að sitja, þar norðangarður rann á. En mælt er, að skorið hafi verið niður það lítið sem fjekkst, og er því óvísara um aflann, er næst gefur að róa. — Vörubirgðir eru nægar á Borðeyri, og siglingar von snemma. Verslun er þar fremur erfið bændum og óhagfelld, og er það ekki síst, að kenna samgönguleysinu við innanlandshafnir, sem kemur hart niður á kaupmönnunum, einsogöðrum. — Þrir hreppar, hinir næstu fyrir sunnan Stein- grímsfjörð, versla talsvert í Dalafjelaginu, og hefur þeim líkað það vel. Mun sú verslun heldur aukast en minnka. Við Hrútafjörð eru enn engin samtök til verslunar, enda lægi þar best við samlög við Húnvetninga. Menn hafa reynt vörupantanir hjá Coghill, en hættir eru menn við þær aptur, og verð- ur þeirra að líkindum ekki freistað optar. En hjer, eins og annars staðar, hlýtur að reka að því, að einhver samtök verði gjörð, og það máske þegar á næsta sumri. Margir góðir menn eru farnir að hugsa til að leita fyrir sjer um einhver heppxleg úrræði, og máske gefst færi á, að skýra nákvæm- ar frá því næst, hvað gengur. Hugvekjur blað- anna um kaupfjelög vinna sitt að því, að vekja menn. — Heilbrigði hefur verið almenn og engir nafnkunnir hafa dáið. — Útlitið til framtíðarinnar er því að öllu samtöldu bærilegt, og miklu betra, en nokkur fyrirfarandi ár. Það er ekki við því að búast, að búskapurinn takí fraraförura í stórum stigum, þótt eitt ár komi gott eptir h^rðindabálk þann, sem á undan er genginn; en haldist bæri- legt árferði um nokkuð lengri tíma, og umfram allt, ef afli færi aptur að gefast af sjó, eða ef eitthvað rýmkvaði um verslun og samgöngur, virðist sem full ástœða sje til að vonast eptir, að alllifvænlegt verði, einnig í þessum harðindasveitum. Það er furða, hvernig menn hafa getað af borið allt í einu harðindi, fiskileysi, samgönguleysi og erfiða verslun, án þess, að missa auk efnanna allan kjark og dug“. Strandferðaskipið Tliyra, skipst. Hov- gaard, kom hingað seint í gærkveldi; hafði komist á allar hafnir, sem til stóð, og auk þess skotið nokkrum Færeyingum á land á Patreksfirði; varð hvergi vart við hafís, nema fáeina jaka á ísafjarðardjúpi. Með því komu hingað margir farþegjar, þar á meðal sjera Kristinn Daníelsson og kona hans og Páll Pálsson (Vatnajökulsfari). Póstskipið Laura var ekki komið til Færeyja, er Thyra fór þar um. Htleudar frjettir. Þau stórtíðindi bár- ust nú hingað, að Bismarck baðst lausn- ar frá öllum embættum sínum 18. f. m., og veitti Þýskalandskeisari honum það 20. s. m. Keisara hafði þótt hann of ráðrík- ur, en Bismarck ekki getað þolað, að tekið væri fram fyrir hendurnar á honum og kaus því að víkja. í stað Bismarcks er kominn herforingi Oeorg Leo von Caprivi, 59 ára gamall, hyggindamaður mikill. — Sonur Bismarcks, Herbert Bismarek, segir líka af sjer. — Verkmálafundurinn, sem nefndur er í síðustu útlendu frjettum, hófst í Berlín 15. f. m.; komu þar 60 fulltrúar frá ýms- um löndum í Evrópu. Á fundinum höfðu þegar verið gjörðar ýmsar samþykktir. — Tisza, sem verið hefur með dugnaði forstöðumaður ráðaneytisins í Ungverja- landi í 15 ár, iagði niður völdin í miðj- um f. m. — Ráðherraskipti orðin á Frakklandi, og Freycinet orðinn forstöðumaður ráða- neytisins í 4. sinni. — Gladstone hefur fengið tvo nýja þing- menn úr sínum flokki inn á þingið. — Fljótið Missisippi í Bandafylkjunum flæðir yfir bakka sína og hefur gert mik- ið tjón. — Danskt gufuskip sökk á leið frá Borg- undarhólmi til Khafnar, 24 menn fórust. — Þetta eru helstu frjettirnar frá útl. Nákvæmari frjettir koma í aukablaði á mánudaginn. Brauð veitt: Heydalir 2. þ. m. sjera Þorsteini Þórarinssyni í Berufirði eptir kosningu safnaðarins. /

x

Þjóðólfur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.