Þjóðólfur - 18.04.1890, Blaðsíða 1

Þjóðólfur - 18.04.1890, Blaðsíða 1
Kemur tlt á, föstudög- am — Verð 4rg. (60 arka) 4 kr. Erlendis 5 kr. — Borgist fyrir 15. júll. ÞJÓÐÓLFUR. Uppsögn skrifleg, bundin við áramót, ógild nema komi til útgefanda fyrir 1. október. XLII. árg. ReykjaTÍk, föstudaginn 18. apríl 1890. Nr. 19. S var til „Fjelags eins í Ísafjíu-ðarsýslu“. (NiSurl.J. Það hefur verið gæfa hinnar íslensku þjóðar, að allir þeir, sem hafa starfað að þjóðmálum vorum, hafa fundið til, hver ábyrgðarhluti slíkt var, að berja inn í menn kreddur, og þó hafa menn stundum verið á þeim vegi. Jeg var á Þingvallafundinum 1885 og man, hversu mikið kappsmál hið frest- andi neitunarvald var. Mestur hluti þjóð- arinnar fylgdi því fram, en þá sýndu forvígismenn þess svo mikil pólitísk hygg- indi, að þeir ljetu það mál falla niður, þegar þeir höfðu sýnt fram á, að almenn- ingur væri jafnvel svo ákafur, að hann heimtaði slíkt. Og það var mikið lán, að enginn tók upp það atriði aptur, nema einn maður, sem flestir sáu, hvað til þess gekk. Þingvallafundurinn 1885 samþykkti frestandi neitunarvald með miklum at- kvæðafjölda, en samt fóru þingmenn ekki eptir því, og það var alveg rjett, því að það er í rauninni vanbrúkun á atkvæða- greiðslu þjóðarinnar, að leggja þess kon- ar mál fyrir hana; þess konar mál verð- ur þjóðin að fela fulltrúum sínum, hún verður að treysta viti þeirra, til að finna hið rjetta, og drengskap þeirra, til að gjöra það, sem þeir álita rjett vera. Og þess vegna er það eigi lítill ábyrgðar- hluti, þegar fáfróðir menn hamast gegn því sem óbrúkandi óhæfu hjer á landi, sem þó reynist vel í öðrum löndum, og meiri stjórnvitringum, en hjer eruuppi, hefur komið saman um, að væri heppi- legt fyrir þjóð sína. En eins og jeg sagði áður, eru kredd- urnar háskalegar, og þess vegna hafa þær reynst mjög illa fyrir hverri þjóð, til að fá því framgengt, sem verulegir erfiðleikar hafa verið á; enda segjamót- stöðumennirnir sem svo: það þarf eigi að óttast hundinn, sem geltir, hann bít- ur ekki. Jeg skal að vísu játa, að það var eins og nokkurs konar upphlaup, þegar fund- urinn var sprengdur í neðri deild í þing- lok, en í Þjóðviljanum á að eins að sigra með orðum. Það hafa ekki vantað orð 1 Þjóðviljanum í vetur, en hvaða mein- ing hefur verið með þeim ? Þegar Þjóð- viljinn kom með síðasta pósti. var það prjedikað fyrir fólki, að við Þorleifur Jónsson og Jón Ólafsson værum úlfar í sauðargærum og argir fjendur fósturjarð- arinnar, en nú virðumst við vera orðnir allt aðrir. Eptir áskoruninni að dæma eigum við nú að vera vel fallnir til að koma stjórnarmálinu í heppilegra og þjóð- legra horf, og því segi jeg það, að mjer finnst mikið af því, sem í Þjóðviljanum stendur, vera sannkölluð orðapólitík, sem litil meining er í, orðapólitík, sem hljóti að hafa siðspillandi áhrif á þjóðina, og sem mjer stendur stuggur af, ekki síður en hrossakaupapólitikinni, semmjersýn- ist vera farin að rjetta upp sitt ófrýni- lega höfuð í Þjóðviljanum. Persónuleg hrossakaupapólitík held jeg sjeeigihættu- leg, þvi að hún þrífst eigi nema hjá gjörspilltum þjóðum, en orðapólitík get- ur aptur á móti orðið mjög hættuleg, ef þjóðina vantar pólitískan þroska og henn- ar betri og hyggnari menn draga sig í hlje undan orðahríðinni. Jeg hef sagt það fyrir skömmu í Þjóð- ólfi, að í raun rjettri vildu Þjóðvilja- uaenn ná að sama takmarki eins og meiri hlutinn, en mjer er stöðugt að verða ljós- ara, hversu mikið skilur á milli okkar að öðru leyti, og því tek jeg það upp, sem jeg sagði í upphafi: hvar erþávon um árangur af fundarhaldi á ísafirði? jeg tel það þjóðlegast og heppilegast fyrir fosturjörð vora, að menn sýni sem mesta lægni og samkomulagsanda, til þess að fá stjornarmálinu framgengt, en forð- ist sem mest kreddur og meiningarlaus orð. í Þjoðviljanum hefur röksemdunum ekki verið skeytt mikið í vetur; mjer hafa fundist röksemdirnar vera þar sann- kölluð olbogabörn. Ef hið ísfirska fje- lag vill hugsa um málið með alvörugefni og kynna sjer skoðanir mínar, vil jeg benda því á að lesa greinarnar, sem hafa staðið um málið í Þjóðólfi í vetur. í Andvara verður einnig prentuð ritgjörð um málið, sem jeg vil biðja það að lesa °g kynna sjer vandlega. Jeg get eigi skýrt málið betur fyrir mönnum, en þar er gert. Þegar Þjóðviljamenn hafa lesið þá ritgjörð, þá vildi jeg gjarnan fá að vita, hvort enginn bilbugur er á þeim. Ef það er ekki, sje jeg eigi, að neitt gagn geti orðið að hinu fyrirhugaða fund- arhaldi á ísafirði með þeim Sigurði Stef- ánssyni. En ef þeir vilja sýna samkomu- lagsanda, þá skal jeg vera fús til að ræða málið við þá. Þó finnst mjer verra til- fallið, að hafa fundinn á Isafirði, heldur en hjer í Reykjavík. Jeg sje ekki bet- ur, en að það sje miklu hægra fyrir þá Sigurð, að koma hingað, heldur en fyrir okkur Þorleif að fara vestur. Þeir geta notað skipaferðir i ágústmánuði, en við yrðum að fara landveg, sem er næsta ó- haganlegt. Jeg vil því fyrst og fremst skora á hið ókunna ísfirska fjelag, að senda full- trúa sína hingað, því hjer skal jeg reiðu- búinn að mæta á fundi með þeim, hvern- ig sem fer, en ef það ekki getur orðið, þá vil jeg fara þess á leit, að jeg fái upplýsingar um, hver von er til, að Þjóð- viljamenn vilji aðhyllast samkomulag. Að endingu óska jeg, ef fundarhaldið á að verða í ágústmánuði og Þjóðvilja- menn vilja ekki hafa það hjer í Reykja- vík, að það verði þá haldið einhvers staðar á miðri leið. Fjelagið getur varið fje sínu til að kosta sína eigin menn; það þarf eigi að sjá mjer fyrir farareyri. Um þetta vænti jeg svars frá hinu ó- kunna fjelagi sem fyrst. Iteykjavík, 12. apríl 1890. Y ir ðingarfyllst. Páll Briem. * * * Áskoruninni frá „fjelagi einu í Ísaíjarð- arsýslu“, sem birt var í síðasta blaði, svara jeg á sama hátt, sem hr. Páll Briem, og læt jeg mjer því nægja að skír- skota til seinni hluta greinar hans hjer að framan. Ef fjelaginu og fulltrúum þess, er fundurinn mikið áhugamál, von- ast jeg eptir, að þeir komi hingað til Reykjavikur; með því eina móti geta þeir verið vissir um, að eitthvað verði af fund- inum, hvern tilgang sem fjelagið hefur með hann, þar sem það að öðrum kosti má búast við, að ekki verði af fundar- haldinu. Þorleifur Jónsson.

x

Þjóðólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.