Þjóðólfur - 13.06.1890, Page 2
110
600 ár. Hann ljet sleppa hertoganum af
Orleans úr fangelsi í nótt, og flytja hann
yfir landamærin.
Bulgaría. Málinu gegn Panitza þeim,
er ætlaði að velta Ferdínand af Kóburg í
Búlgaríu úr völdum, er lokið. Hann var
dæmdur til dauða, en honum verða gefin
grið. Nýlega var Ferdinand á ferð á
járnbraut, og slapp með naumindum úr
höndum manna, sem ætluðu að handtaka
hann. Annar flokkur manna ætlaði að
bjarga Panitza, en voru teknir höndum.
Ekki er vakurt þó riðið sje, og svo eru
Rússar að heimta skuldir sínar af Tyrkjum,
eptirstöðvar frá ófriðnum 1877—78!
Hæsta dómkirkja í keimi er dóm-
kirkja í Ulm á Þýskalandi, sem nýlega
er lokið við að reisa, hún er 530 fet á
hæð.
Vörn hr. Jóns Ólafssonar.
Svar J. Ó. til mín sýnir, að ritdeila er ekki ætíð
sama og illdeila á íslandi, þó að það brenni opt
við.
Jeg skal nú, í sem stystu máli, svara varnar-
grein hans.
Jeg hef ekkí sagt, að það lýtti bók hans, að
hún er ekki skólabók.
Nafni minn er framfaramaður og fylgir rás tím-
ans á borð við aðra, þó framarlega sjeu, en —• í
framburði fylgir hann, því miður, Walker (1790),
Webster (1848), Collins, sem fer eptir þeim o. s.
frv. Framburður breytist á 20—30 árum, svo ekki
er von, að vel fari. 1 þessu efni er nafni minn
það, sem síst skyldi um hann ætla, apturhalds-
maður.
Hr. J. Ó. ber able alstaðar fram abel (7Tb o 1)
t. d. þrisvar á bls. 33, en alls einw sinni (bls. 66)
ber hann það fram eibel. Þess vegna eignaði jeg
honum fyrri framburðinn.
í orðum eins og nature er t opt fbr. með s-bljóð
(sjá Joh. Storm: Engelsk Filologi (útg. 1881), bls.
112, en er í rauninni likast svensku k í kár.
Injure á að frb. in'dzkor samkvæmt Sweet (1888),
Yietor, Joh. Storm og Murray.
Leizure er frb, lísjor eingöngu af Webster í
seinni útgáfum af honum, en 1848 var frb. á reiki
í þessu orði.
Murray, sem er hæstirjettur, þegar um enskt mál
er að ræða, gerir mun á ea-hljóðinu í early og
seareh, svo þó að J. Ól. vitnaði í 9 sinnum 9 orða-
bækur móti því, haggast það ekki.
Endileysustagli 100 tíma Eibes verður ekki bót
mæld; setningar hans, t. d.: Hafið þjer stokkinn
minn eða þann, sem nábúinn hefur o. s. frv., koma
aldrei fyrir nema á pappírnum. Jeg ræð þeim,
sem brúka hans bækur, til að lesa orð Joh. Storms
(Engelsk Filologi, norska útg., bls. 113—114) um
Ollendorf og eptirbáta hans.
Hr. J. Ó. hefði ekki getað leiðrjett 2. útg. af
túlk sínum eptir minum aðfinningum, svo að nokkru
hefði numið, því að jeg hef ekki nefnt tínnda
part af villunum í honum. Hann játar, að jeg
hafi leiðrjett ýmsar villur hjá sjer, en sumt hafi
jeg aflagað. Látum oss lita á það.
Webster hans ber fram restorang eða restorant,
en ekki restórant, eins og hann segir.
Buskel á að bera fram bússjel (sjá Murray).
Haunch er ætíð nú frb. hansj (Sveet, Vietor,
Webster), en gamlar orðabækur kunna að bera
það fram honsj.
Það kastar tólfunum, þegar J. Ó. vill bera wound
(= und) fram eins og Walker 1790, af þvi að
Webster (1848) vitnar í hann! Þeir menn eru
fyrir löngu gengnir til grafar, er báru þetta orð
svo fram, þvi jafnvel 1848 var orðin tíska að bera
það fram wúnd, en ekki wánd (sjá W. 1848).
Webster J. Ó. ber mayor fram méT.
Veit J. Ó. ekki, að ought er þátið af sögninni
to owe?
Veit hann heldur ekki, að shall og will eru ekki
til i nafnhætti (infinitiv)?
Svo virðist sem hann viti ekki þetta tvennt.
Þess vegna er engin furða, að hann kennir vestur-
förum að ávarpa ætíð ógipt kvennfólk með „madam“ !
að mistress þýði ætíð frilla (!) nema framan við
nafn, að these people (bls. 22) þýði þessar þjóðir
o. s. frv.
Jón Stefánsson.
Strandfcrðaskipið Tkyra kom hing-að
að kveldi hins 9. þ. m.; það var orðið 3
dögum á eptir áætlun, er það kom á Seyðis-
fjörð, Kom við á Hofsós og tafðist nokk-
uð við það, lá vegna illviðurs 1 dag á
ísafjarðardjúpi, en tafðist að öðru leyti
ekki vegna illviðriskastsins.
Farþegjar með Tliyru komu margir
hingað, flestir frá höfnunum umhverfis
landið; frá útlöndum Jón Vídalíu með frú
sinni, 2 Englendingar og 1 íslendingur frá
Ameriku alkominn heim.
Hafís varð Thyra hvergi vör við, þótt
líklegt sje að hann sje ekki langt undan
landi.
Tíðarfar hefur um allt iand verið gott
í vor, þangað til um byrjun þ. m.; eigi
hafði þó illviðriskastið í vikunni sem leið
orðið mjög vont fyrir norðan, fyr en ef
til vill 4. og 5. þ. m. — Blíðviðri lijer
síðustu 2 daga.
Einbættispróíi (Magisterkonference) í
sagnfræði við háskólann í Kaupmannahöfn
lauk Bogi Th. Melsteð 3. f. m.
Jón Stcfánsson cand. mag. í Kaup-
mannahöfn er nú á ferð í Lundúna-
borg og víðar á Englandi. Kirkju- og
kennslumálaráðgjafinn í Danmörku hefur
veitt honum 600 kr. á ári í 3 ár til að
rita enska bókmenntasögu og ferðast fyr-
ir þá peninga.
í Lundúnaborg hjelt Jón nýlega fyrir-
lestur í „Browning-fjelaginu" og luku blöð-
in lofsorði á honum. Jón hefur þar kom-
ist í kynni við ýinsa heldri menn, þing-
skörunga og fleiri.
Yerð á íslcnskum vörum erlendis.
Khöfn 17. maí. í Lofoten í Noregi öfluð-
ust 50 milljónir af þorski í ár, en 36
millj. í fyrra. Sökum þessa mikla afla hefur
verðið á fiskinum nýjum orðið þar talsvert
lægra en í fyrra, og útlit fyrir að verð á
fiski verði ekki hátt í ár. Á Spáni hefur
verið seldur einn farmur af sunnlenskum
íslenskum saltfiski, tekinn á íslandi, fyrir
39 kr. skppd. — Fiskur, sem kom með
Thyru, var seldur á Englandi 14 pd. sterl.
smálestin (2000 pd.) af smáfiski, ÍO1/^ pd.
sterl. ýsa. Frá Genúa heyrist ekkert, en
lýkur til, að þar gangi minna út af fiski,
en áður. Þetta lítilræði, sem kom hing-
að með Thyru af ísl. saltfiski, seldist vel;
vestfirskur nýr, stór jaktafiskur 58—60 kr.,
smár jaktafiskur 38 kr., löngur 35—42 kr.
og ýsa 30 kr. Austfirskur óhnakkakýldur,
stór saltf. seldist á 52 kr. — Lýsi er
sömuleiðis í lágu verði sakir lýsisbirgða í
Noregi. Ljóst, tært, gufubrætt ísl. hákarls-
lýsi hefur síðast selst á 30—32 kr. 210
pd.; dökkt þorskalýsi soralaust 271/;, kr.
Á uppboði hinnar konunglegu grænlensku
verslunar seldust að eins 2/3 af því, sem
seljast átti af lýsi, og það 3 kr. minna en
á síðasta uppboði í haust sem leið. — TJll
er í lægra verði; óþvegin haustull, sem
kom með Thyru seldist á 56 a. pd. með
umbúðum. — Af því, sem óselt var af
œðardún, hefur selst nokkuð af bestu teg-
und á ÍO1/^ kr. pd., en verri dúnn geng-
ur alls ekki út. — Sundmagar hafa selst
á 25 a. pd. — Islenskir heilsókkar á 60 a.,
hálfsokkar 35 a. og vetlingar 30 a. parið.
Khöfn 2. júní. Ull er stöðugt í lágu
verði. Hvít haustull óþvegin, sem kom
með Lauru, 65 ballann, seldist að eins 53a.
með umbúðum. Saltfiskur, sem kom með
Lauru frá Vesturlandi, seldist: stór
hnakkak. 58—60 kr., stór óhnakkak. 53—
55 kr., stór miðlungsfiskur 45 kr., smár mið-
lungsfiskur 40 kr., löngur 42 kr., ýsa 28
kr. skpd., allt eingöngu til neyslu hjer í
borginni. Yestfirskur smáfiskur og ýsa,
sem kom með Lauru til Leith, seldist á
13^/s, pd. st. og ÍO1/^ pd. st. smálestin.
Með „Niels“ frá Seyðisfirði kom til Liver-
pool þessa dagana 20—25 smálestir af
fiski, sem seldist: stór á 16 pd. st., smá-
fiskur 14 pd. st., ýsa 11 pd. st. smálestin.
Af lýsi frá f. á. liggja hjer óseldar um
1000 tunnur af Ijósu gufubræddu hákarls-
lýsi, sem ekki gengur út fyrir 32 kr. (210
pd.). Með Lauru kom frá Reykjavík um
150 tunnur af ljósu pottbræddu hákarls-
lýsi, sem ekki gengur út fyrir 30 kr. (210
pd.); hæsta boð í það hefur verið 28 kr.,