Þjóðólfur - 20.06.1890, Síða 1
Kemur út á föstudög-
Um _ yerö árg. (60 arka)
^ kr. Erlendis 5 kr. —
B°rgist fyrir lá. júli.
ÞJÓÐÓLFUR.
Uppsögn skrifleg, bundin
viö áramót, ógild nema
komi til útgefanda fyrir 1.
október.
XLII.
árg.
Reykjavík, föstudaglnn 20. júní 1890.
Nr. 29.
Magnetic, gufuskip Slimons, kom hing-
að í fyrra dag; liafði komið við í Vest-
^annaeyjum með vörur tii kaupm. Gísla
Stefánssonar og á Eyrarbakka með vörur
til kaupm. Guðm. ísleifssonar. Robertson,
skipstjóri á Magnetic, sem farið hefur mörg
ar á skipum Slimons hingað til lands, er
hiun fyrsti skipstjóri, sem lent hefurgufu-
skipi á Eyrarbakka; hingað til hefur það
verið talið áhætta mikjl, en hann, sem er
duglegur skipstjóri, eins og enskir skip-
stjórar yfir höfuð, ljet það ekki aptra sjer;
karm ljet ekki illa yfir að lenda þar, og
kvaðst eins fús tíl að lenda þar með gufu-
®kip framvegis, eins og á ýmsum öðrum
köf'num landsins, þar sem gufuskip hafa
áður komið.
Magnetic fór aptur í fyrri nótt vestur
og norður um land til að taka vesturfara
á ýmsum höfnum hjer við land. Hjeðan
fóru nokkrir vesturfarar og útflutnings-
st)óri Sigfús Eymundsson, sem fer með
vesturförunum til Skotlands.
Lrá útlönduiu hárust engin stórtíðindi
með Magnetic.
Stanley ætlaði 9. þ. m. frá Lundúna-
korg til Edinborgar, þar sem konunglega
skoska landfræðisfjelagið ætlaði að halda
konum veislu; þaðan ætlaði hann til Glas-
gow, sem ætlaði að gera hann að heið-
ursborgara. Eptir það ætlaði hann að
ey<ast víðar um Skotland. Þjóðverjar
a a óstinnt upp eggjanir hans til Englend-
mga að láta ekki hlut sinn fyrir Þjóðverj-
um í Afríku.
Voðastormur oq vatnsflbð hafði komið í
ntario i Kanada um síðustu mánaðamót:
hafði bær einn • , . ...
.. .„ -£ ’ Jiarr'te, þvi nær eyðilagst
og mikið tjón orðið , ..
® , viösvegar a monnum
°g skepnum.
Byltingamenn fara nú að eiga erfið
uppdráttar, segir enskt blað eitt frá
W >« Þýskaland, EásSl,„d “
hMra08, SVlM hafa gCTt samnIné um
mndra uppgang pejrra
Reyklausa púðrifj hefur nýlega V(
reynt í Magdeburg og kom það þá fr.
að það flytur þrefait, eða ferfalt lem
en gamla puðrið.
Um Suezskurðinn fóru 3425 skip é
Sem leiði Þar af v°ru 2611 skip en
Tekjurnar voru árið sem leið nál. 70 millj.
franka (1 fr.=72 au.), þar af hreinn á-
góði yfir 37 milijónir franka.
Dr. Yaltý Guðmundssyni var 29. apríl
veitt embætti við háskólann í Kaupmanna-
höfn sem kennara í íslands sögu og ís-
lenskum bókmentum frá 1. s. m.
Sauðfjárverð á Englandi er nú tals-
vert lægra en um þetta leyti í fyrra.
Skoska blaðið The Scotsman ll.þ. m.segir
frá fyrstu stórsölu á fje í Skotlandi í ár;
voru þar deginum áður seld 20.000 fjár;
verðið á besta fje var 2—2^/g shilling (kr.
1,80—2,25) lægra á hverri kind en um
sama leyti í fyrra, en á lakara fje 5—9
sh. (4,50—8,10) lægra en um þetta leyti
árið sem leið.
Mount Park, gufuskip frá Zöllner í
Newcastle, átti að fara 17. þ. m. frá Leith
með vörur til kaupfjelaganna, á að koma
við á Seyðisf., Húsavík, Akureyri, ísafirði
ef til vill, og koma hingað 1.—2. júlí með
vörur til kaupfjel. Árnesinga, fara hjeðan
4. júlí með hesta beina leið til Newcastle;
á að koma hingað aptuy þaðan 17. júlí
með vörur, kol 0. fl., fer síðan norður og
tekur hesta á Eyjafirði.
Hjeraðshátíð og sýning halda Eyfirð-
ingar í dag og næstu daga á Oddeyri í
minningu um, að 1000 ár eru liðin, síðan
Helgi magri nam Eyjafjörð. Hafa Eyfirð-
ingar haft allmikinn viðbúnað, til þess að
hátíðahald þetta gæti farið vel fram.
Skáldið sjera Matthías Jochumsson hefur
samið sjónleikinn Hélga Mnn magra, sem
ef til vill verður leikinn á hátíðinni. Auk
frakkneska herskipsins, sem fór norður á
Eyjafjörð um daginn til að vera þar við
hátíðina, eru bæði strandferðaskipin, Laura
og Thyra, að líkindum stödd þar í dag,
og hafa án efa komið þangað með múg
og margmenni, til að vera við hátiðahaldið.
Hjeðan úr Reykjavík var Eyfirðingum
sent með Magnetic ávarp með samfögnun
og heillaóskum vegna hátiðahaldsins, und-
irskrifað af mörgum bæjarbúum, 0g í dag
hafa allir kaupmenn bæjarins flaggað í
minning um þennan merkisdag Eyfirðinga.
Hvalveiðaskipið eitt fyrir vestan kvað
hafa ætlað að fara með Skúla sýslumann
Thoroddsen til Eyjafjarðar á kjörfund-
inn ásamt háðum þingmönnum ísfirðinga.
Kvennaskölinn á Ytriey. Næstliðinn
vetur voru 37 stúlkur allan veturinn á
skólanum. og var honum skipt í 3 deildir:
1. deild, 2. deild og aukadeild. (í síðast-
nefndri deild voru eigi fastákveðnar náms-
greinir, heldur eptir ósk nemenda og sam-
komulagi við forstöðukonu).
í 1. deild voru 19 námsmeyjar. Þar af
urðu 16aðnjótandi styrks. í 2. deildvoru
5 námsmeyjar. Þar af urðu 2 aðnjótandi
styrks. í aukadeild voru 13 námsmeyjar.
Þær stúlkur, sem sækja vilja um skól-
ann til næsta vetrar, þurfa að vera búnar
að því fyrir 1. ágúst svo hægt yrði að
koma svari til þeirra í tíma.
Veran á skólanum kostar yfir skólaárið
frá 1. okt.—15. maí 120 krónur. Þær stúlk-
ur, sem taka þátt í aðalnámsgreinum skól-
ans í 1. og 2. deild og taka próf í þeim
öllum að vorinu, fá styrk af opinberu fje,
sem búast má við að verði um 20 kr.
Reykjavík, 19. jön. 1890.
Elin Briem.
Jarðarför síra Jakobs Ouðmundsson-
ar1 á Sauðafelli fór fram að Sauðafelli 22.
maí; var þar mikill mannfjöldi saman
kominn — um 350 manns — Hiiskveðjuna
hjelt sjera Eirikur Gíslason á Breiðaból-
stað, en líkrœðuna Jón prófastur Gutt-
ormsson í Hjarðarholti, og sagðist þeim
báðum ágætlega. Grajarræðu aillanga og
fagra hjelt aðstoðarprestur Jóhannes L.
Jóhannsson upp úr sjer blaðalaust. Síra
Jakob var framfaravinur og frelsismað-
ur. síungur í anda, og skoðun um allt
til dauðans. Meðan hann var í skóla, var
h ann lífið og sálin í öllum fjelagsskap pilta.
Hann var líka uppástungumaður að því,
þegar skólabáturinn var seldur við flutning
kólans til Reykjavíkur, að þá skyldi stofna
af verði hans styrktarsjóð fyrir pilta. Þetta
eru upptök Bræðrasjóðsins, er síðan hefur
orðið mörgum að liði, einsog kunnugt er.
Hann gaf sig snemma við stjórnfræði og
1) Þetta er kafli íir æfiminning sjera J. G., sem
Þjóðólfi var send, en verður eigi tekin öll i blaðið,
með þvi að helstu æfiatriða hans var getið i 23.—
24. tbl. — Þess skal þó getið, að í þessari æfi-
minningu er sagt, að hann hafi verið fæddur 2.
júní 1817, hafi alist frá 5 ára aldri upp hjá móður-
systur sinni Önnu Ólafsdóttur á Móafelli í Stýflu,
farið i Bessastaðaskóla 1843 og kvongast 1854.