Þjóðólfur - 11.07.1890, Síða 2

Þjóðólfur - 11.07.1890, Síða 2
126 yfir forseta. Er það auðsýriilega gert til þess, að þær fipi ekki þingmenn frá alvar- legum störfum. Þingstörf byrja daglega með bænagjörð. Kapellán gengur svo út apturábak, hneigj- andi sig og beygjandi. Síðan leggur em- bættismaður einn hinn gullna veldissprota forseta á borðið fyrir framan hann, um leið og hann sest. Þeir þingmenn, sem ekki hafa lagt hatt sinn eða' blöð í eitt- hvert sæti fyrir bænir, komast naumlega að. Pokar með bænaskrám hanga báðu- megin við borð forseta. Stjórnarsinnar sitja hægra megin við hann og stjórnin sjálf á fremsta langbekknum, en mótstöðu- mennirnir andspænis, að sínu leyti eins. Bekkirnir hækka, því nær sem dregur þil- inu. Á miðju gólfi er autt svæði, en þó lítið. Þingmenn eru flestir miðaldramenn, sumir öldungar. Sumir eru skrautklædd- ir, sumir í jakkafötum, margir sitja með hattinn á höfðinu, en þeir ganga ætíð með hattinn í hendinni á leiðinni út og inn og meðan þeir tala, en setja hann á höfuð- ið, undir eins og þeir setjast niður. Ræðu- menn snúa sjer að forseta og talaþarsem þeir sitja. G-óður ræðumaður byrjar venju- lega með hægð, en svo ef einhverju er andæft — og það er oft tekið fram í hjá ræðumönnum — þá hvessir hann röddina. Þegar ganga á til atkvæða um eitthvert mál, er kallað: „division, vision, vision“ og hringt klukkum um allt húsið. Til- nefndir menn hafa það embætti á hendi að leita uppi þingmenn út um allt, nema þá af báðum flokkum, sem hafa komið sjer saman um að láta atkvæði sín fallast í faðma og vega livort annað. Sitt hvoru megin á hliðvegg þingsalsins eru dyr, sín- ar hvorar fyrir já og nei, og út um þær ganga þeir. Þyravörður skygnist svo undir bekkina til að sjá, hvort enginn sje eptir og lokar. Síðan stendur hann við glugga, sem er á hurðinni og gægist inn. Þegar forseti er sestur, koma 4 menn, er hafa það starf á hendi að telja þingmenn, fá honum skjal með tölum og ganga út apturábak, „bugtandi“ sig. Hver fundur getur breytst í nefnd þannig, að forseti gengur frá stóli sínum. Jeg sá suma þing- menn dotta, enda væri það engin furða, ef þeir sætu allan þingtímann (6 mánuði) kl. 3—12 og opt lengur; en kl. 7—9 eru tæpir 40 menn í salnum. Annars er ekki fundarfært. Flestir þingmenn bera á sjer blómstur í efsta hnappagatinu; Gladstone ber ætíð rös, hvíta eða rauða. Þingsköp- in eru bók, sem er 800 bls. og þó ekki nema ágrip. Nefndarálit og því um líkt er hjer um bil 80 prentuð bindi á ári. Til að sýna hversu vanafastir Englengar eru, skal jeg geta þess, að þegar fundi er slitið, þá er kallað: „Who goes home?“ (hverfer heim, nfl. mína leið). Fyrir 200 árum fylgdust þingmenn að í hópum vegna stigamanna og ræningja, en þeir eru ekki enn þá hættir þessu kalli! Margir þingmenn eru gamansamir í ræð- um sínum, og er opt hlegið dátt í þing- salnum, en þeir, sem tala í einhverju máli, sem ekki er kappsmál milli flokka, þekkja það venjulega út í æsar. Svo var um skólalög, sem jeg heyrði rædd og fleira. í dag fara fram hinar miklu veðreiðar við Epsom, Derby-reiðar svo nefndar og þingið heldur ekki fund vegna þeirra. í næsta skipti skal jeg segja eitthvað frá merkismönnum Englendinga á þingi. Búnaðarfjelag Suðuramtsins hjelt að- alfund hjer í bænum 5. þ. m. — Af sjóði fjelagsiris var veitt 400 króna styrkur til að halda áfram vatnsveitingum á sandin- um milli Skaptár og Geirlandsár í Skapta- fellssýslu. Heiga Magnússyni íBirtingaholti voru veittar 50 kr. til að útvega fyrir vagn og jafnframt sem viðurkennig fyrir unnar jarðabætur. Öðrum styrkbeiðslum annað- hvort synjað eða frestað að gera út um þær. — Nefndin, sem kosin var á síðasta fundi, til að íhuga tillöguna um fjenaðar- sýningar (sbr. 9. tbl. þ. á.), lagði til, að reynt yrði að koma á sýningum þessum i sambandi við fjármarkaði í haust í hverri sýslu, nema Skaptafellss. og skyldi fje- lagsstjórnin skrifast á við oddvita sýslu- nefndanna um þetta. — Stjórn fjelagsins var endurkosin. Bókmenntafjeliigið. Ársfundur var haldinn í Reykjavíkurdeildinni 8. þ. m. — Um 20 á fundi — Forseti skýrði frá efna- hag fjelagsins og gat þess, að frá Hafnar- deildinni kæmi út þ. á. 24 arkir af Forn- brjefasafninu og 3. hepti af gátum og þul- um, en frá Rvíkurdeildinni Skírnir, Skýrsl- ur og reikningar, Frjettir frá íslandi og tímaritið. Næsta ár væri von á einu hepti af sýslumannaæfunum. — Samþykkt var, að Rvíkurd. gæfi út næsta ár Norðurlanda- sögu eptir Pál Melsteð, að áskildu sam- þykki nefndar, sem kosinn var á fundin- inum til að dæma um handritið; í þá nefnd kosnir Þórhallur Bjarnarson, Hannes Þor- steinsson og Eiríkur Briem. B. M. Ólsen, sem flest atkv. fjekk, baðst undan setu í nefndinni, sökum þess að hann yrði að vera að heiman í sumar. — Skírnisritari næsta ár var kosinn cand. mag. Jón Stef- ánsson í Khöfn. Eptir tillögu stjórnar- innar var samþykkt með litlum atkvæða. mun, að borga honum eigi ritlaun, nema fyrir 5 arkir af þessa árs Skírni, þótt hann væri rúmar 7 arkir, með því að á- skilið hefði verið í fyrrn, að Skírnir mætti ekki vera lengri en 5 arkir. — Embættis- menn, yaraembættismenn og endurskoðun- armenn allir endurkosnir. í ritnefnd kosnir B. M. Ólsen, Eiríkur Briem, Stgr. Thor- steinsson og Kristján Jónsson. — Loks voru teknir í fjelagið þessir 10 Khafnar- búar: Ad. Nikolaisen, B. Hjaltested, Ingi- björg Bjarnason, Lúðvíg Knudsen, Marinó Hafstein, OddurBjarnarson, Sigríður Helga- dóttir, Snæbjörn Arnljótsson, Vald. Thor- arensen og Þórður Jensson. Verð á verslunarvörum er þetta al- mennt hjer í bænum um þessar mundir (verðið mót peningum út, í hönd er sett innan sviga, en verðið í reikning utan sviga): Rúgur 8 a. (7 a.) pd.; rúgmjöl í heilsekkjum 18,00 (16,70); bankabygg 13—14 a. (12—13 a.) pd.; baunir 13 a. (12 a.) pd.; hrísgrjón í heilsekkjum 28,00 (26,00); 3/4 hrísgrjón 13 a. (12 a.) pd.; Overheadmjöl 9—11 a. (8—-9 a.) pd.; kaffi l, 10 (1,00) pd., og 1,05 (95 a.) pd.; ex- port 50 a. (45 a.) pd.; kandís 36 a. (30 a.) pd.; hv.sykur 36 a. (30 a.), í toppum 100 pd. 30,00 (25,00); púðursykur 28 a. (25 a.) brennivín 80 a. (75 a.) potturinn; neftó- bak Nr. 1 1,50 (1,35), Nr. 2 1,35 (1,25) pd.; munntóbak 2,10—2,20 (1,90, 5 pd. í einu 1,80 pd.); snur 60 a. (55 a.); skeifna- og naglajárn 20 a. (16 a.) pd.; gjarðajárn ógalvaniserað 20 a. (16 a.) pd., galvanis. 28 a. (25 a.) pd. Út á innlendar vörur er svarað: hvíta ull 65 a. pd., svarta ull hjá Thomsen 65 a., hjá öðrum 60 a. pd., mislita ull 45 a.; æðardún 9—10 kr. pd.; lambskinn einlit 50—80 a., mislit 25—40 a.; selskinn 2 kr. Út á saltfisk Nr. 1 er enn eigi svarað meiru en 40 kr. fyrir skpd., smáfisk 32 kr., ýsu 26 kr., en á Eyrarbakka og Vest- mannaeyjum er uppkveðið verð á saltfiski Nr. 1 45 kr., og menn vonast fastlega eptir, að hann muni komast upp í 50 kr. Útskrifaðir úr latínuskólanum. 9. þ. m. luku burtfararprófl frá skólanum 5 af þeim 6, sem eigi gátu lokið því um dag- inn, og fengu þessar einkunnir: 1. Haraldur Níelsson I. eink. 92 2. Sigurður Jónsson II. — 77 3. Aage Schierbeck II. — 75 4. Gísli Kjartansson III. — 58 5. Gísli Jónsson III. — 57

x

Þjóðólfur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.