Þjóðólfur - 05.05.1891, Blaðsíða 4

Þjóðólfur - 05.05.1891, Blaðsíða 4
84 Nýtt rit. Þegar menn lesa auglýsingu þessa, verð- ur komin út í Kaupmannahöfn bæklingur, er heitir: Framtíöarmál. Verslunarfrelsi eða einokuu A Eyrarbakka. Frjettaþráður til íslands*. Eptir Boga Th. Melsteð. Bæklingur þessi er í 9 þáttum og má sjá efni hans af yfirliti þessu: I. Eyrarbakkahöfn. Málið út af höfninni. Þýð- ing þessa máls. II. Hafa aðrir kaupmenn en landeigandi að lög- um rjett til að Betja niður festar á Eyrarbakka- höfn? Ákvæði Grágásar. Um 70 alþjóðlegar hafn- ir á Þjóðveldistímanum. Ákvæði Jónsbókar, sem málið er dæmt eptir. Eignarrjetturinn er takmark- aður, þegar um velferð almennings er að ræða. Árið 1545 dæma lögmenn, sýslumenn allir og lög- rjettumenn, að hafuir sjeu alþjóðlegar og eigi megi banna höfn. Breytingar á versluninni á árunum 1264—1602, en ekki á því, hvernig menn mættu nota hafnirnar. Frá 1602—1787 hefur konungur æðsta vald. Ekkert bendir á, að eigendur Eyrar- bakkaverslunar hafi fengið sjerstakan ijett yfir höfuinni nje skerjunum eptir 1787, en ýmislegt sannar hið gagnstæða. Hvað kennir þett-a mál? III. Ádam Smith. Vinnan aðaluppspretta vel- megunarinnar. ísland land framtíðarinnar. Fram- taksleysi og dáðleysi. Höfuðskömm Reykjavíkur. Árangurslítil vinna og óhagsýni. Lýsing á Eyrar- bakkaverslun. Brennivínslind. Verslun Vestmanna- eyja. Beikningar frá Eyrarbakkaverslun. IV. Einar Jónsson og versluu hans. Guðmund- ur ísleifsson sem sjómaður og kaupmaður. Miklar framfarir á Eyrarbakka. Eyrarbakki þarf að verða kaupstaður og höfnin frjáls. Aðalvegir í Árnes- og Rangárvallaýslu. Kaupmenu flytja vörur til bænda. Magnús á Grund í Eyjafirði. Stórkostlegur hagur. Hvað Árnesingar, Rangæingar og Skaptfellingar eiga að gera nú fyrir þing. V. Lýsing Tómasar Sæmundssonar á kaupmönn- um. Orð dr. Hallgríms Schevings og Jóns Sigurðs- sonar. Guðm. Scheving. Guðm. ísleifsson. Þorleif- ur Kolbeinsson. Nesbrúin. Lefolii. Afskiptaleysi vort Austanvjera. Grein í Þjóðtiðiudunum. VI. Tilgangur stjórnarinnar 1787. Kaupmenn níddu Magnús Stephensen o. fi. 111 áhrif kaup- manna. Háukadalsbót. Gram. Fcumvarp stjórn- arinnar. Grein í Samkundutiðindunum. Bæuar- skrá kaupmanna. Lefelii í fararbroddi. 24 undir- ritaðir. Alþingi fyrirlitið. Ósvífinn sleggjudómur um embættismennina. Bryde. Mótmæli. Lögin samþykkt. Sneypuför. VII. Hvernig liugsa kaupmenn? Vald pening- anna. Vald þekkingarinnar. Peningaburgeys. Lefolii og Árnesingar, Rangæingar og Skaptfellingar. Fylgifiskar Lefoliis. V. Fischer, Ágúst Thomsen og Ásg. Ásgeirsson. Engin ástæða var fyrir kanp- menn að fjargviðrast. Kaupfjelögin. Kaupmenn erlendis og hjá oss. VIII. Stórborgir landanna hjartastaðir verslun- arinnar, samgöngnrnar æðar hennar. Greið við- skipti. Jens Pálsson og gufuskipafjelag. Hljóð- berar eða talþræðir. Hvað er athugavert við tal- þræðina. Verslunin við útlönd aðalverslun vor. Eigi verslun vor að umskapast, er frjettaþráður nauðsynlegur milli landa. Landssjóður og stjórnin. Shaffner. Englendingar. Hoffineyer. íslendingar sjálfir. Hvað kostar frjettaþráður? Hverjir kosta hann? •Frjettaþráður nær norður til Hjaltlands. Ríkissjóður, landssjóður, og ef til vill enska stjórn- in og hlutabrjef. Landar i Vesturheimi. Hvert kjördæmi biðji alþingi, að það skori á stjórnina að komast eptir, hvað frjettaþráður kosti o. s. frv. Nytsemi frjettaþráðarins fyrir vísindi, siglingar, stjórnina, verslunina o. fl. Reykjavík á að verða höfuðstaður islenskrar verslunar. Hugsunarháttur- inn. IX. Á 5. tug 20. áldar á íslandi. Hýbýlaprýði. Reykjavik. Árnessýsla. Eyrarbakki og 50 ára kaupstaðarhátíð hans. Bæklingur þessi verður yflr 100 blað- síður og kostar hann að eins 50 aura til 1. ágústmán. þ. á., en eptir þann dag verð- ur hann kannske seldur hálfu dýrari. 17. maí verður hann sendur hjeðan til Sigurðar Kristjánssonar í Keykjavík, verslunar Guð- mundar ísleifssonar og Guðmundar bók- bindara á Eyrarbakka, kennara Lárusar Tómassonar á Seyðisfirði, Friðbjarnar Steins- sonar á Akureyri, Stefáns Stefánssonar kennara á Möðruvöllum, Magnúsar Sig- urðssonar á Grund, til ísafjarðar og mun þess getið í Þjóðviljanum, livar hann fæst þar. Þær 4 arkir, sem nú eru hreinprentað- ar, eru sendar innheptar nú með Lauru til Reykjavíkur, Eyrarbakka og ísafjarðar. Þeir, sem kaupa þær, f'á síðari hlutann hjá hlutaðeigandi út^ölumönnum ritsins, er næsta póstskip er komið. Kaupmannahöfn, Marstrandsgata 26, Ö., 18/4 ’91. 154 Bogi Tli. Melsteð. P -'standi eptirfylgjandi einkenni. „Sameiningin“ fæst hjá Sig. Kristj- ánssyni í Reykjavík fyrir 2 kr. árg. Hið eina kirkjulega tímarit á íslensku. í átta blaða broti. Sjeriega vandað að öllum frá- gangi. i56 3É*eir sem tryggja vilja lif sitt, geta fengið allar nauðsynlegar upplýsingar hjá Dr. Jónassen. Lög- mœtt aldursskýrteini verður að fylgja hverri beiðni um lífsábyrgð. 157 Pingmálafundur. Laugardaginn 13. júnímánaðar næstkom- andi höldum við undirskrifaðir að öllu for- fallalausu fund með kjósendum okkar á Sveinsstöðum í Húnavatnssýslu, til að ræða um alþingismál. Fundurinn byrjar kl. 12 á hádegi. Reykjavik 1. maí 1891. Eiríkur Briem. Þorleifur Jónsson. Kvennaskóli. Næstkomandi október verður stofnaður kvennaskóli í „Vina Minni“ í.Reykjavík. Auglýsing um fyrirkomulag skólans verð- ur gefln út seinna. Cambridge, 20. april 1891. 158 Sigríður Einarsdóttir. Samtíningur handa börnum eptir Jöhannes Sigfússon, annað hepti, 96 bls., kostar óinnbundinn 50 aura, bundinn 70 aura; fæst hjá bóksölumönnum i Reykja- vík, og verður sendur út um land með næstu ferðum. 159 Jeg undirritaður hefl næstundanfarin 2 ár reynt „Kína-lífs-elixir“ Valdemars Pet- ersens, sem herra H. Jónsson og M. S. Blöndahl kaupmenn hafa til sölu, og hefl jeg alls enga magabittera fundið að vera jafngóða, sem áminnstan Kína-bitter Valde- mars Petersens, og skal því af eigin reynslu og sannfæringu ráða íslendingum til að kaupa og brúka þennan bitter við öll- um magaveikindum og slæmri meltingu (dyspepsia), af hverri helst orsök sem þau eru sprottin, því það er sannleiki, að „sæld manna, ungra sem gamalla, er komin und- ir góðri meltingu“. En jeg, sem hef reynt marga fleiri svokallaða magabittera(arcana), tek þennan optnefnda bitter langt fram yfir þá alla. Sjónarhól 18. febr. 1891. L. Pálsson, prakt. læknir. Kina-lífs-elexirinn fæst á öllum verslun- arstöðum á íslandi. Nýir útsölumenn eru teknir, ef menn snúa sjer beint til undir- skrifaðs, er býr til bitterinn. Valdemar Petersen, 160 Frederikshavn, Danmörku. Eigandi og ákyrgðarmaónr: ÞORLEIFUE JÓNSSON, mnd. pliil. Skrifstofa: i Bankastræti nr. 3. Fjelagsprentsmiðjan.

x

Þjóðólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.