Þjóðólfur - 15.05.1891, Page 2

Þjóðólfur - 15.05.1891, Page 2
90 ins, að ráða bót á þessu það fyrsta. Jeg, sem þetta rita, vona, að þeir, sem betur hafa vit á, láti nú til sín taka, og komi með tillögur um, hvernig hægast muni verða að koma því til leiðar, að aukin verði þekking á dýralækningum í land- inu. Það væri stórmikill munur að því, þó ekki væri nema einn dýralæknir, ef hann væri góðum hæfileikum búinn, svo hann gæti kennt fleirum, og einnig ritað leið- beiningar fyrir almenning, það kynni marg- ur að verða til þess að færa sjer það í nyt, og gera ýmsar tiiraunir, ef til væru góðar leiðbeiningar að fara eptir. Æski- legast væri að dýrlæknisfræði yrði kennd á búnaðarskólunum, en þess mun varla kostur fyrst um sinn. Það fyrsta, sem hægt er að gera, er að fá einhvern hæf- an mann til að læra dýralæknisfræði er- lendis, og ætti þingið að veita fje til þess, að minnsta kosti að nokkru leyti, og úr því er vonandi, að áfram yrði haldið smátt og smátt, þangað til einn maður yrði í hverri sveit, sem dálitla þekkingu hefði á dýra- lækningum, því fyrri verða ekki fullkomin not af þvi. En þó það yrði nú aidrei, þá er talsvert fengið, ef fenginn er einn góð- ur og starfsamur dýraiæknir, því þá er meiri von til að fleiri muni á eptir koma. Þ. B. Framtíðarmál. Verslunarfrélsi eða ein- okun á Eyrarbakha. Frjettaþráður til Is- lands. Eptir Boga Th. Melsteð. Khöfn 1891. Mörg hvetjandi rödd hefur hljómað frá íslendingum í Khöfn heim til landa sinna á Fróni og nægir að nefna Ármann á al- þingi, Fjölni, Ný fjelagsrit og Launalög og launaviðbætur, sem allt hefur, sitt á hvern hátt, reynt að vekja íslendinga til meiri framtaksemi og þjóðmenningar og frætt þá um margt og inikið, sem miður hefur farið og hvað gera skuli til við- reisnar landi og lýð. Rit það, sem sagn- fræðingurinn Bogi Th. Melsteð hefur nú sent löndum sínum og hann nefnir Fram- tíðarmál, er sprottið af sama anda, sama áhuga fyrir velferð og framförum ættjarð- innar, sem rit þessi, er vjer nefndum, er prýðisvel skrifað og mjög fræðandi um verslunarmál vor og margt fleira. Ritið byrjar á hinu alkunna máli út af Eyrarbakkahöfn, er Lefolii kaupmaður höfðaði gegu keppinautum sínum, kaup- mönnunum Guðmundi ísleifssyni og Eínari Jónssyni, til að bægja þeim frá afnotum af höfninni og þannig drepa alla samkeppni við sig. Höfundurinn rekur hafnalöggjöf vora frá því á þjóðveldistímanum fram á vora daga og Ieiðir, að oss virðist, ómót- mælanleg rök að því, að enginn einn kaup- maður hafi nokkuru tíma öðlast rjett til að nota einii höfnina eða til að bægja öðrum frá afnotum af henni. Síðan lýsir höf. versluninni á Eyrar- bakka og sýnir fram á, hve mikil nanð- syn er, að þar sje ekki einokun. „Einokunar- verslunin á Eyrarbakka“, segir höfundur- inn, „hefur síðan 1787 að öllum líkindum unnið oss meira tjón en öll Heklugos frá byggingu landsins, og höfum vjer þó marga skráveifuna af þeim fengið. Það var ekki að eins um þann tíma, sem Tómas heitinn Sæmundsson mundi, að matur á Eyrarbakka var „að jafnaði ekki fáanlegur lengur en tvo eða þrjá mánuði á ári hverju og stundum skemur“, heldur hefur það verið svo frá því ein- okunin var afnumin og það fram á daga þeirra manna, sem enn eru ungir. Jeg man eptir því sem barn frá árunum um 1870 og síðar, að menn sögðu upp í Gríms- nesið, að þar væri engan mat að fá. . . , Ein vara var það þó, sem ávallt fjekkst á Eyrarbakka, en það var brennivín. Eyr- arbakkaverslunin hefur jafuan verið ótæm- andi brennivínslind, og það er eins og hún hafi verið það með lífi og sál og gjört sjer meira far um að vanda brenni- vínið til verslunarinnar en aðrar vörur, því á þessa vöru eina þaðan hafa allir lokið lofsyrði. . . . Svo var nú verðið á öllu eptir þessu, svo afarillt, að nálega enginn verslaði þar, ef annars var kostur. Vegna alls þessa sóttu þeir Árnesingar og Rangæingar, sem gátu, um langar og erfiðar leiðir til Reykjavíkur og Hafnar- fjarðar, til þess að versla þar. Á Eyrar- bakka versluðu einkum fátæklingarnir á Bakkanum og úr Flóanum, sem skuldirnar höfðu bundið fasta við verslunina, og hef- nr eflaust hin óþrjótandi brennivínslind verslunarinnar opt lagt þessi bönd á menn“. Á reikninga verslunarinnar hefur verið prentað: „Það, sem jeg kynni að hafa ástæður til að bæta npp í þessum reikningi, verður einungis tekið til greina, þegar hanu verður framvísaður (!) i við- skiptum við Eyrarbakkaverslun í næstu kauptíð. — Það, sem stendur inni, borgast einungis í vörum og eptir hentugleikum verslunarinnar“. Menn voru eptir þessu neyddir til að versla þar framvegis, ef menn áttu að ná nokkurri leiðrjettingu á reikningnum. „Hafa menn nú nokkurn tíma“, segir höf., „þekkt meiri ósvífni og ójöfnuð hjá nokkrum kaupmanni en þetta? Hvílík fyrirlitning fyrir viðskiptamönnunum ligg- ur í þessu! . . . Ekki þyrði Lefolii, ef hann ræki verslun í Danmörk, að bjóða hinum fátækasta vinnumanni annað eins og þetta. . . . Af öilu þessu má sjá, að hafl Eyrarbakkaverslun verið ótæmandi brennivínslind, þá hefur hún nú um 100 ár verið óþrjótandi adaluppspretta eða föst og stöðug orsök til eymdarskapar, framtaks- leysis og dáðleysis í Árnessýslu og Rang- árvallasýsluu. Þetta er harður dómur, en því eptir- tektaverðari, sem hann kemur frá gagn- kunnugum manni. kandídat í söguvísind- um, sem sjerstaklega hefur rannsakað verslunarsögu landsins. (Niðurl.). Rangárvallasýslu 5. maí: „Helstu frjett- ir hjeðan eru um sýslufundinn, sem Rang- æingar hjeldu hinn 29. og 30. f. m., og voru það ýmsar nýjungar, sem þar komu til umræðu. Nú í vor á að halda 4 fjen- aðarsýningar í sýslunni, og nefnd manna, sem á að liafa umsjón með þeim. Búuað- arfjelag Suðuramtsins veitir styrk til þess- ara sýninga. Vonaudi er, að sýningarnar verði vel sóttar, enda væri full þörf á, ef einhver ráð væru til, að vekja framfara- hug hjá bændum, að þvi er fjárræktina snertir. Menntunarástandið lijer í sýslu kvað sýsluraanni þykja bágborið, og vildi láta verja fje úr sýslusjóði til að ráða bót á menntunarskorti Eyjafjallamanna og Þykkbæinga. Þó að menn væru eigi all- ir á eitt sáttir í fyrstu, ætlar samt sýslu- nefndin að veita. allt að 200 kr. úr sýslu- sjóði til að efla menntun í sýsluuni, hvern- ig sem því kann að verða hagað; ber það vott um, að menn eru að fá tiltínning fyrir því, hve slíku er ábótavant, enda hafa í vetur verið 4 sveitakennarar lijer í sýslunni, er allir sóttu um styrk til barnakennslu. Margar sveitir eru þó kennaralausar enn sem komið er. Nokk- ur búnaðarfjelög eru hjer í sýslunni, og hafa sum þeirra hingað til verið smálát í framkvæmdunum, en líklegt er að þau fari nú að verða atkvæðameiri, þar sem þau sækja um styrk úr Iandssjóði og sýslu- nefndin ber þau fram á bænarörmunum við landshöfðingja. Um vegagjörðir var sýslunefndin á þeirri skoðun, að fylgja ekki gamla mátanum í því að káka við alla vegina í einu, heldur taka sjerstaka

x

Þjóðólfur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.