Þjóðólfur - 22.05.1891, Síða 2
94
annað en framtaksleysi og dáleysi, að nú
skuli til vera lieilar sveitir sumstaðar á land-
inu, þar sem varlasjest kálgarður eða kart-
öflugarður eptir að nú hefur verið prje-
dikað fyrir mönnum í ræðum og ritum í
meir en 100 ár um það, kvílík búdrýgindi
og arður garðyrkjan sje fyrir menn? Þótt
það sje margreyndur sannleiki . . . að það
sje hollt og nauðsyniegt að blanda fæð-
una saman úr jurta- og dýraríkinu og
þótt menn hafi margfaldlega ritað um þetta
á íslandi, þá má samt opt og einatt liitta
menn, sem svara manni, er minnst er á
kálmeti og rófur við þá, að þeir sjeu ekki
grasbítar. . . . Eða ber það ekki vott um
dáðleysi og framtaksleysi, hvernig menn
hirða áburðinn, þrátt fyrir alit, sem um
það hefur verið rætt og ritað nú um lang-
an aldur? . . . eða þá hitt, að menn hafa
eigi manndáð í sjer til að lauga sig eða
þvo á sjer skrokkinn? . . . Er það ekki
höfuðskömm fyrir Beykjavík, höfuðstað
landsins, þar sem um 4000 manna eru
samaukomnar, að eiga ekki neitt baðhús,
þar sem menn geta laugað sig og synt,
og þó hafa menn þar bæði sjóinn og keit-
ar laugar við höndina?“
Eins og sjest á efnisyfiiiti ritsins í aug-
lýsingu um það í 21. tbl., talar höf. í síð-
ari hluta þess, sem enn er ókomiun hing-
að, meðal annars um samganguabætur á
sjó og landi hjá oss, frjettaþráð miili ís-
lands og útlanda o. s. frv., og munum vjer,
þegar niðuriag ritsins er komið, síðar
minnast á það.
Stórisj ór?
Herra Lýður G-uðmundsson á þakkir
skilið fyrir það, að hann hefur í grein
sinni í 19. blaði Þjóðóifs bent á, hvernig
Stórasjós-villan er komin inn í uppdrátt
íslands. Eptir lýsingu Sveins Pálssonar,
sem prentuð er í Andvara aptan við ferða-
sögu mína, virðist það engum efa bundið,
að vatn það, sem Landmenn nú kalla Litla-
sjó, var á 18. öld, þegar Sveinn fór til
Veiðivatna (1795), kallað Stórisjór og voru
menn þá þegar farnir að hafa trúnað á
útilegumannabygðum, sem áttu að vera
við þetta vatn. Seiuna þegar Landmenn
betur kynntust Veiðivötnum og fundu
engar útilegumannastöðvar við þetta vatn,
gátu þeir ekki skilið, að þetta væri Stóri-
sjór, sem svo miklar sögur fóru af, úr
því þar fannst ekkert merkilegt, sem þjóð-
sögurnar gátu átt við, hugðu menn þá að
Stórisjór væri innar á öræfuuum sem ó-
þekkt voru, þannig fluttu hugmyndir
manna vatnið lengra og lengra og nú sýn-
ist það vera komið upp í Vatnajökul, þar
getur því dvalist um stund, uns það á
endanum liverfur út í hafsauga.
Saga Skógarkotsbræðranna um hið geysi-
mikla vatn utan í Vatnajökli er svo óljós,
að ekki er mikið á henni byggjandi. Frá
tiudunum við Tungnárbotna við jökulrönd-
ina og eins frá fjöllunum norðan við Þóris-
vatn, hafði jeg hvað eptir annað í besta
veðri sumarið 1889 ágæta útsjón yfir mest-
ina, allann vesturjaðar Vatnajökuls;gengur
þar óslitinn, geysimikill skriðjökull niður
frá hæstu jökulbungunum jaf'nhallandi nið-
ur að öræfunum, sem ná frá Köldukvísl-
arbotnum suður fyrir Skaptá; skoðaði jeg
allan þennan jökul nákvæmlega í sjónpípu
og sá meir en þingmannaleið inn á hann,
á öllu þessu svæði var ekkert vatn sjáan-
legt á jöklinum, enda gæti eðlilega ekk-
ert stöðuvatn í skriðjöklinum sjálfum hald-
ist til lengdar. Saga Skógarkotsbræðranna
kemur eigi heldur saman við „uppdrátt
íslands“, því Björn Gunnlaugsson lætur
Stórasjó vera á öræfunum kippkorn (%
mílu) fyrir neðan röndina á Vatnajökli og
á uppdrættinum nær hvergi jökull að vatn-
inu eða útí það. Hið eina vatn, sem lýs-
ing þeirra bræðra að nokkru leyti getur
átt við, er Langisjór (eða Skaptárvatn?)
fyrir sunnan Tungná milli tveggja fjall-
garða, það er mjög mjótt en ákaflega langt
og skriðjökull gengur svolítið niður í norð-
austurenda þess; það getur verið, að bræð-
urnir hafi haft einhverja óljósa hugmynd
eða sögusögn um þetta vatn, en aldrei
hefði Landmönnum dottið i hug að kalla
þetta vatn Stúrasjó, því Stórisjór á að vera
fyrir norðan Tungná. Fram með röndinni
á Vatnajökli norðaustur af Veiðivötnum
eru hjer og livar smáir vatnspollar eins
og opt er við jökia og koma þeir og hverfa
á víxl; öræfin upp af Veiðivötnum upp að
jökli eru mjer vel kunn, dálítið svæði norð-
ur af Tungnárbotnum fór jeg ekki um, en
sá þar vel yfir af fjallatindum, það get-
ur vel verið, að einhver smávötn, sem jeg
ekki hefi sjeð, dyljist þar innanum öldur
og smátinda, en þar er hvergi rúm fyrir
stórt vatn, livað þá heldur fyrir slíkt vatn
sem Stórisjór á að vera.
Hinn heiðraði höfundur segir, að Stóri-
sjór eigi að vera norðaustur af Veiðivötn-
um og jeg muni ekki liafa farið nógu
langt í þá átt og vitnar til 62. bls. í ferða-
sögu minni, en þar er að eins talað um
útsjón frá gígbarmi Tjaldvatns; höf. sýnist
eigi hafa lesið lengra, annars liefði hann
eigi ritað þetta, því seinna í ferðasögunni
(bls. 77—80) hefi jeg lýst ferð minni frá
Tjaldvatni um öræfin tii norðausturs alla
leið upp í Tungnárbotna; jeg veit ekki^
hvernig hægt er að fara lengra til norð-
austurs frá Veiðivötnum, því þar þrjóta
öræfin og skriðjökulsrönd Vatnajökuls tek-
ur við, en hún takmarkar öll öræfin að
norðan og austan, eins og öllum er kunn-
ugt. Á þeirri leið eru fyrir ofan vatn
það, er Landmenn kalla Litlasjó, engin vötn
alla leið upp að jökli, sem teljandi eru,
þar eru að eins grunn smávötn á söndum
við Tungná, sem þó geta stækkað allmikið
í leysingum og rigningum. Höf. kefur
ekki þekkt uppdrátt minn af Veiðivötnum
og öræfunum við vesturröud Vatnajökuls,
enda er það nú varla von, því hann er
prentaður í „Dansk geografisk Tidskrift“,
10. bindi, sökum kostnaðarins gat hann
því miður ekki fylgt ferðasögunní i And-
vara. Höf. getur þess, að Snorri Jóns-
son liafi frá Arnarfellsjökli sjeð stórt vatn
suður á öræfunum; þetta sama vatn sáum
við Snorri báðir frá Kerllugarfjöllum 1888,
en árið eptir komst jeg að raun um að
þetta vatn var Þórisvatu, það er geysi-
mikið vatn, nærri eins stórt eins og Þing-
vallavatn, og ganga tveir stórir flóar langt
norður úr því; þangað komu Skaptfelling-
ar á rannsóknarferð sinni 1884 og hjeldu
þeir að það væri Stórisjór. Norðaustur af
Þórisvatni er ekkert vatn, þar eru eintóm
hraun upp með Köidukvísl og eru hjeruð-
in við upptök þeirrar ár vel kunn af ferð-
um Björns Gunnlaugssonar, Sigurðar Gunn-
arssonar og Schythe.
Landmenn geta hæglega, ef þeir vilja,
sannfærst um, að enginu Stórisjór liggur
norðaustur af Veiðivötnum á öræfasvæð-
inu milli þeirra og Vatnajökuls; frá Tjald-
vatni er ekki nema 7—8 tíma reið upp
að jökli, ef gott er veður, vegurinn er víð-
ast allgóður, hey þarf ekki mikið að hafa
með sjer, ef ekki er farið of snemma á
sumri, því við fundum 1889 hagabletti við
jökulinn í Tungnárbotnum og kölluðum þá
Botnaver, þar geta nokkrir hestar fengið
fylli sína í eina eða tvær nætur. Annars
þarf þetta ekki fyrst um sinn nánari rann-
sóknar, því jeg er viss um, að enginn,
sem nokkuð að mun þekkir öræfin og
landslagið norðaustur af Veiðivötnum og
upp að Vatnajökli, mun láta sjer detta í
hug að fara að leita þar að Stórasjó.
Reykjavík 26. apríl 1891.
Þorvaldar Thoroddsen.