Vegna viðhaldsvinnu geti verið truflanir á þjónustu Tímarit.is frá 18:00 og fram eftir kvöldi.

Þjóðólfur - 26.06.1891, Blaðsíða 2

Þjóðólfur - 26.06.1891, Blaðsíða 2
118 spænska og franska) og að nokkru leyti enska; latínan verður þannig eins konar samtengingarliður milli hins forna og nýja; vísindaleg nöfn á hinu og þessu, plöhtum, steinum, vjelum o. s. frv. eru öll með latínskum blæ, enn fremur er þess að gæta, að í ritum nútíðarhöfunda koma einmitt fyrir latínsk orð og klausur, sem manni með æðri menntun er nauðsyn á að geta skilið. Vjer sjáum því ekki betur en að kunnátta í latínu sje alsendis ómissandi scm einn liður æðri menntunar. Að síðustu má geta þess, að það yrði einmitt efiing fyrir látínu námið, að gríska væri aftekin, því, eins og liggur í augum uppi, er huga nemandans hægra að meðtaka, melta og halda fastri þekking á einu örðugu máli heldur en tveimur, einkum þegar það málið, sem lausn er veitt frá, er talsvert örðugra en hitt, sem haldið er. Pá er að snúa sjer að því, scm er aðal- efni þessa máls, gagufræðaskólanum. Við það að grískan yrði afnumin, gæti gengið talsvert mtfiri timi en nú er til latínu- náms i efri bekkjunum, en þá mætti apt- ur byrja að kenna latínu nokkru seinna en nú er gjört; þannig mætti afnema latínunám í tvemur neðstu bekkjunum en verja þeim tíma, er þar með ynnist, til að nema hin svonefndu gagnvísindi. Bæði er það, að í sjálfu sjer er eðlilegast og mannseðlinu samþýðanlegast, að byrjað sje á því, sem ljettara er, og síðan tekið fyrir hið þyngra, eptir því sem þroskinn verð- ur meiri til sálar og líkama. Ekkert get- ur því verið eðlilegra í námslegu tilliti, en að kenna nemendanum fyrst hin Ijett- ari fræði, gagnvísindi, nýju málin o. s. frv., siðan þegar nokkurn veginn góð undir- staða er fengin í hinu almenna, þroskinn orðinn meiri, þrekið styrkvara, að slá sjer á latínuna, hærri stærðafræði, og yfir höf- uð að veita kennslunni vísindalegra snið. Með þessu móti er það fengið, er vjer í upp- hafi þessarar greinar minntumst á, nefni- lega góður og gildur gagnfræðaskóli, og samanstæði liann þá af tveimur neðstu bekkjum latínuskólans. Með þessari til- högun mundi það sannast, að einnig hið vísindalegra nám, nefnilega námið í hinum fjórum efri bekkjum, yrði ávaxtarsamara og menntunarríkara þeim, sem þess njóta, en ella. H. B. Þingmálafundur Ilúnvetnlnga var haldinn á Sveinsstöðum 13. þ. m., þar sem mættir voru um 90 mauns auk beggja þingmanna sýsluunar. Sýsium. Lárus Þ. Blöndal var fundarstjóri, en sjera Jón Þor- láksson á Tjörn skrifari. -- 1. í stjórnar- skránnálinu vaT samþykkt í einu liljóði svofelld ályktun: „Fundurinn aðliyllist stefnu nefndarinnar í neðri deild 1889 í stjórnarskrármálinu yfir höfuð, en leggur sjestaklega áhersiu á, að fyrir „getur lát- ið“ í 6. gr. efridoildarfrumvarpsins komi lœtur, í 7. gr. komi löggjöf og stjorn fýrir „stjórn“, og að efri deiidar menn verði kosnir af sýslunefndum að eins lil 12 ára“. — 2. Afnám vistarskyldunnar var fellt með 40 atkv. móti 28, en aptur á móti samþ. að Iækka allt að helmingi lausamennskugjaldið. — 3. Að koma á sjer- stökum sýslu- og hreppamörkum um land allt var fellt. — 4. Sú breyting á tíundar- lögunum samþ., að allar vanmetalausar ær, sem bornar væru í fardögum, teldust loigu- færar, og þær ær, sem þá væru óbornar, teldust sem geldar ær. —'5. Samþ., að 200 kr. árgjald í landssjóð af Höskulds- stöðum verði afnumið og að fá greidd úr landssjóði eptirlaun uppgjafaprests sjera Eggerts Ó. Briem, sem nú hvíla öll á Höskuldsstaðaprestakalli. — 6. Eptirlaun presta af brauðum vildi fundurinn miða við meðaltal af tekjum brauðanna síðustu 5 ár, en ekki við síðasta brauðamat, eins og ákveðið er i lögum 27. febr. 1880. — 7. Samþ. sú breyting á safnaðarlögunum, að safnaðarfundir sjeu haldnir í maí, en hjer- aðsfuudir í júni. — 8. Beiðni um auka- lækni í austanverðri Húnavutnssýslu samþ. — 9. Samþ. með litlum atkvæðamun, að sameina hreppstjóra- og oddvitasýslanir, og í einu hljóði samþ. að launa þoim manni, sem hefði þessi sameinuðu störf á hendi, með 4 kr. fyrir hvern búanda í hreppnum, er byggi á 5 lmdr. að minnsta kosti, og skyldu launin greiðast að fjórð- ungi úr sveitasjóði, en að þrem þjórðung- um úr landssjóði. — 10. Samþ. í einu hlj. áskorun til alþingis um, að auka styrkinn til kvennaskólans á Ytriey. — 11. Söinul. styrkinn til sveitakeunara og setja svo góða trygging, sem unnt er, fyrir því, að sem hæfastir menu sjeu fengnir fýrir sveitakcnnara. — 12. Samþ. áskorun til alþingis, að hlutast til um, að strandferða- skipið komi við á Borðeyri í liverri ferð meðfram ströndum landsins. — 13. Samþ. að fá aukapósta upp í sveitirnar frá við- komustöðum strandferðaskipanna. — 14. Samþ. áskorun til þingsins um að hlutast til um, að nefud verði sett milli þinga til að íhuga nýtt skipulag á tekjum presta og kirkna og hina kirkjulegu löggjöf yfir höfuð og undirbúa þessi mál uudir næsta þing á eptir. % Stjórnarfrumvörp, sem leggjast eiga fyrir þingið í sumar, eru þessi: 1. Frnmvarp til fjárlaga fyrir árin 1892 —93. (Tekjur áætlaðar 1,059.800 og út- gjöld rúml. 946,000 á fjárhagstímabilinu). 2. Frv. til fjáraukalaga fyrir árin 1888 —89. 3. Frv. til fjáraukalaga fyrir árin 1890 — 91. 4. Um samþykkt á landsreikningnum 1888—89. 5. Uni þóknun til þeirra, er bera vitni í opinberum málum. 6. Um að íslcnsk lög verði eptirleiðis að eins gefln út á íslensku. 7. Um skipun dýralækna á íslandi (2 dýralæknar á landinu), 8. Um skaðabætur þeiin til handa, er að ósekju liafa verið hafðir í gæsluvarð- haldi eða sætt hegningu eptir dómi, svo og um málskostnað í sumum opinberum sakamálum. 9. Um líkskoðun. 10. Um að stjórninni veitist heimild til að afhenda nokkrar þjóðjaröir (á Vest- mannaeyjum) í skiptum fyrir aðrar jarðir 11. Um nokkrar ákvarðanir, er snerta opinbcr lögreglumál. 12. Um sölu silfurbergsnámanna í Helga- staðafjalli. 13. Um viðauka við útflutningslögin 14. janúar 1876. 14. Um iðnaðarnám. 15. Um eptirstæling frímerkja og ann- ara póstgjaldsmiða. 16. Um að selja þjóðjörðina Miðskóga í Miðdalahrcppi. 17. Um almannafrið á helgidögum þjóð- kirkjunuar. 18. Um breyting á 1. gr. í lögum 19_ sept. 1879 um kirkjugjald af húsum. 19. Um lækkun á fjárgreiðslum þeim, er hvíla á Höskuidsstaðaprestakalli í Húna- vatnsprófastsdæmi. (Hið sama, sein farið er fram á á þiugmálafundi Húnvetninga, sjá fundarskýrsluna framar í blaðinu). 20. Um breyting á safnaðarlögunum 27. febr. 1880. (Sama breyting á, hvenær hjeraðsfundir og s;ifnaðarfundir skuli haldn- ir, sem þingmálafundur Húnavatnssýslu leggur til). 21. Um breyting á prestakallalögunum 27. febr. 1880 (um Borgar-, Staðarhrauns-, Hítarness- og Miklaholts prestaköll). Ýms af frumvörpum þessum eru að vísu smámál, en suin af þeim allmerkileg, og

x

Þjóðólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.